blaðið


blaðið - 19.06.2007, Qupperneq 8

blaðið - 19.06.2007, Qupperneq 8
Þessar hillur geta allir sett saman Skrúfufrítt og smellt saman viöbótareining kr. 6.369. 8 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007 blaðiA ;>p1heilsa BARNA VIT Natturuleg vitanun og steirefm fyt't b6rn til aö tyggia eðo sjúga Bragðgóðar vítamíntöflur fyrir börn og unglinga Qti heilsa -haföu það gott LÍFRÆNIR SAFAR AFGANISTAN Sjo UTAN UR HEIMI börn létust í loftárás sjö böm létust í loftárás bandarísks herliðs í austurhluta Afganistans í gær. Að sögn talsmanns Banda- ríkjahers í landinu létust einnig nokkrir uppreisn- armenn í árásinni sem beint var að meintum búðum hryðjuverkasamtakanna Al-Qaeda. SAMEINUÐU ARABISKU FURSTADÆMIN QE2 breytt í hótel Skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth 2 verður komið fyrir við strendur Dubai og opnað sem hótel árið 2009. Fyrirtæki í Dubai keypti skipið á and- virði rúmlega sex milljarða króna, en það var smíðað árið 1967. Skipið„sem kom til Reykjavíkur fyrr í sumar, mun liggja við eina af manngerðum eyjum furstadæmisins. Fæst í heilsubúðum og helstu matvörumörkuðum landsins Dreifing: Yggdrasill, S 544 4270, Suðurhrauni 12b, Garöabae Þýskaland: Ellefu létust í rútuslysi Ellefu létust og rúmlega þrjátíu manns slösuðust þegar rúta keyrði út af hraðbraut og valt nærri Magdeburg í austurhluta Þýskalands, í gær. Hópur eldri borgara frá Nordhein-Westfalen voru í rútunni, sem var á leið til Halle í Sachsen-Anhalt. Ekki liggur fyrir um orsök slyssins, en umferð um hrað- brautina stöðvaðist í marg- ar klukkustundir í kjölfar slyssins. Slasaðir voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús og voru meðal annars fimm þyrlur notaðar til verksins. Geymslu- og dekkjahillur í bílskúrinn, geymsluna, heimilið og fyrirtækið Nethyl 3-3a -110 Reykjavík Sími5353600- Fax 5673609 WWW.ISOLD.IS Sjö alþingismenn sitja í sveitarstjórnum: Ágætis búbót ■ Sjá ekki fram á hagsmunaárekstra ■ Nokkrir minnka við sig .jms Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Steinunn Valdís Óskarsdóttir lýsti því yfir um helgina að hún hyggðist hætta í borgarstjórn eftir þrettán ára setu. Hún segir þingmennsku og setu í borgarstjórn ekki ganga saman, enda sé hvorttveggja fullt starf. Alls sitja sjö þingmenn í sveit- arstjórn samhliða þingmennsku. Einn þeirra, Árni Þór Sigurðsson, hefur þegar gefið það út að hann muni láta af störfum. Aðrir sem Blaðið hafði samband við hyggjast sitja áfram í sveitarstjórn. Samkvæmt lögum um þingfarar- kaup fá þingmenn laun sín greidd frá fyrsta degi eftir kjördag, sem þýðir að nýkjörnir þingmenn þiggja nú þegar laun fyrir þingstörf sín. Þingfararkaup er rúmar 517 þús- und krónur á mánuði. Þingmenn sem koma úr öðrum kjördæmum en Reykjavík norður og suður og Suðvesturkjördæmi fá greiddan húsnæðis- og dvalarkostnað sem er 86.200 krónur á mánuði. Þeir fá jafnframt 58.580 krónur á mánuði í ferðakostnað á meðan þingmenn í Reykjavíkurkjördæmunum og Suð- vesturkjördæmi fá 45.220 krónur. Þá eru önnur fríðindi eins og ferða- kostnaður erlendis, dagpeningar erlendis, símakostnaður og fleira ótalin. Árni Þór Sigurðsson fær rúmlega milljón krónur á mánuði í þingfarar- kaup og setu í borgarstjórn. Hann lækkar þó umtalsvert í launum þegar hann hættir í borgarstjórn og fær eftir það 562.220 krónur. „Mér finnst í prinsippinu að það sé skyn- samlegt að söðla um þegar maður Gunnar Svavarsson: Þingfararkaup 517.639. Forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði 218.710* 15% prósenta álag vegna for- mennsku í fjárlaganefnd 77.550 feröakostnaður 45.220. Samtals 859.069 * Gunnar hættir i bæjarráði i næstu viku og gerirráð fyrirað hætta sem forseti bæjarstjórnar með haustinu. Þá þiggur hann laun sem venjulegur fulltrúi i bæjarstjórn, sem eru 145.807 krónur á mánuði. Ftagnheiður Ftíkharðsdóttir: Þingfararkaup 517.000, Bæjarstjóri í Mosfellsbæ ? * Feröakostnaöur 45.220. * Ragnheiður lætur afstarfibæj- arstjóra / haust. er kominn í þingið. Ég sé ekki að jað ætti að banna það að sitja á jingi og í sveitarstjórn ef menn telja sig komast yfir það,“ segir Árni. Gunnar Svavarsson hyggst láta af embætti forseta bæjarstjórnar með haustinu og gefur ekki áfram kost á sér í bæjarráði. Við það lækkar hann í launum, en hann er eini sveitar- stjórnarmaðurinn sem fer með formennsku í fastanefnd þingsins og fær greitt samkvæmt því. „Sveit- arstjórnarstörfin eru hlutastörf og hafa alltaf verið. Það er kannski annað með borgarstjórn,“ segir Gunnar og sér ekki fram á hags- munaárkekstra. „Þá verða menn að þekkja til stjórnsýslulaganna og ég held að flestir alþingis- og sveitar- stjórnarmenn geri það.“ Ármann Kr. Olafsson hefur í nógu að snúast, því ásamt þingmennsku er hann forseti bæjarstjórnar í Kópa- vogi og formaður Strætó bs. Hann útilokar ekki að minnka við sig þegar fram í sækir en segist ekki hafa gert það upp við sig. „Það eðlismunur á því að sitja í bæj- arstjórn og borgarstjórn. Allir sem sitja í bæjarstjórn Kópavogs, til dæmis, hafa annað starf öfugt við það sem tíðkast í borginni. Svo er hin hliðin að maður er búinn að taka að sér ákveðið verkefni þegar maður er kosinn í bæjarstjórn til fjög- urra ára. Maður hefur ákveðnum skyldum að gegna gagnvart þeim sem studdu mann til ákveðinna verka í bæjarstjórn." Kristján Þór Júlíusson segist gera ráð fyrir því að sitja áfram í bæjar- stjórn á Akureyri. „Ég sit bara sem bæjarfulltrúi og er ekki í neinum nefndum eða ráðum. Ég er kjörinn til að sinna bæjarfulltrúastarfinu næstu þrjú árin.“ Ekki fengust upplýsingar um kjör Ragnheiðar Ríkharðsdóttur hjá Mosfellsbæ og Ármanns few. Kr. Ólafssonar hjá Kópa- * vogsbæ. Ekki náðist í Ragnheiði, Björku Guð- jónsdóttur og Birki Jón Jónsson. Árni Þór Sigurðsson: Þingfararkuap 517.639 Borgarstjórn Reykjavíkur 413.600' Seta iborgarráöi 103.400 Ferðakostnaður 45.220. Samtals 1.079.859. * Árni hverfur úr borgarpólitikinni i haust og verða laun hans þá 562.220 krónur á mánuði. Ármann Kr. Ólafsson Þingfararkaup 517.000 Forseti bæjarstjórnar í Kópavogi ? Formaður Strætó bs. 90.000 Ferðakostnaður 45.220. Birkir Jón Jónsson: Þingfararkaup 517.639 Bæjarstjórn í Fjallabyggð 50.000 krónur, auk 16 þúsund króna greiðsla fyrir hvern sóttan fund. Húsnæðis- og dvalarkostnaður 86.200 Ferðakostnaður 58.580. Samtals 712.419 Kristján Þór Júlfusson: Þingfararkaup 517.639 Bæjarstjórn á Akureyri 107.553 Húsnæðis- og dvalarkostn- aður 86.200 Ferðakostn- aður 58.580. Samtals 769.972 Björk Guðjónsdóttir: Þingfararkaup 517.639 Forseti bæjarstjórnar i Reykja- nesbæ 70.714 krónurauk47.143 króna greiösla fyrir hvern sóttan fund Ferðakostn- aður 45.220. Samtals 633.573

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.