blaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 10
blaði Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfuiltrúi: Árogdagurehf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Sérhagsmunir og heildarhagur Ummæli tveggja forystumanna Sjálfstæðisflokksins um sjávarútvegs- mál í hátíðarræðum á þjóðhátíðardaginn benda til að í forystuliði flokks- ins, sem fer með sjávarútvegsmál í ríkisstjórninni, sé verulegur ágrein- ingur um fiskveiðistjórnina. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, talaði á Isafirði fyrir svæðisbundnum sérhagsmunum. Geir H. Haarde forsætis- ráðherra lagði í ræðu sinni á Austurvelli meiri áherzlu á heildarhagsmuni sjávarútvegsins. Sturla telur framsal aflaheimilda milli verstöðva ógna sjávarbyggðunum. Hann segir að vaxtarsvæði landsins, höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Mið- Austurland, verði að „gefa eftir hlutdeildina í sjávarútvegi til þeirra lands- hluta sem bezt geta nýtt fiskimiðin á hagkvæman hátt og skapað vinnu við sjávarútveginn“. Þessi ummæli þingforsetans virðast byggð á grundvallarmisskilningi á kvótakerfinu. Með frjálsu framsali aflaheimilda fara þær til þeirra fyrir- tækja, sem treysta sér til að nýta þær með hagkvæmustum hætti. Það getur komið illa við hagsmuni einstakra byggðarlaga um lengri eða skemmri tíma, en frjálsa framsalið er undirstaða hagræðingar í greininni. Það er hægt að velja á milli þess að standa vörð um hagsmuni sérhverrar sjávarbyggðar og þess, að tryggja hagkvæmni og góðan rekstur í sjávarút- veginum í heild. Ef frjálsa framsalinu er fórnað, er dregið úr þessari hag- kvæmni. Og vandséð er hvernig sjávarbyggðir í öðrum landshlutum en þeim, sem forseti Alþingis situr á þingi fyrir, eiga að sætta sig við að „gefa eftir hlutdeildina í sjávarútvegi" til þeirra, sem verr standa. í nágrannaríkjum okkar í Evrópusambandinu, þar sem sjávarútvegur- inn er rekinn í þágu byggðasjónarmiða fremur en sem hagkvæm atvinnu- grein, tórir greinin á ríkisstyrkjum og -afskiptum og ár eftir ár eru tillögur vísindamanna um hámarksafla virtar að vettugi, þannig að víða liggur við hruni fiskstofnanna. Viljum við slíkt ástand hér? Forsætisráðherra benti réttilega á það í þjóðhátíðarræðu sinni að þjóðin væri nú betur í stakk búin til að takast á við áföll í sjávarútvegi en oftast áður. Hún hefði betur efni á því að taka á sig byrðar, sem gætu létt róður- inn til lengri tíma. Samdráttur í aflaheimildum er ekki lengur það áfall fyrir þjóðarbúið, sem hann var þegar t.d. þurfti að skera þorskaflann verulega niður fyrir sextán árum, vegna þess að vægi sjávarútvegsins hefur minnkað hlutfalls- lega. Hins vegar er aflasamdráttur auðvitað mikið vandamál fyrir byggðar- lögin, sem eru að mestu leyti háð sjávarútvegi um afkomu sína. Það er rétt hjá Geir Haarde að það er skylda ríkisvaldsins að koma byggð- arlögum til hjálpar, „þar sem grundvöllur atvinnustarfsemi og samfélags brestur“. En það á þá að gerast með staðbundinni og tímabundinni aðstoð, ekki með því að kollvarpa fiskveiðistjórnunarkerfi, sem hefur í grundvall- aratriðum reynzt vel. „ , ' Olafur Þ. Stephensen & Gott til enduivinnslu Auglý&ingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsimi: 510 3700 Símbréf áfréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Gott í garðinn o o • Góður alhliða áburður. • Hentarvel í 511 blómabeð, fyrir matjurtir, skrautrunna og tré. • Inniheldur öll helstu næringar- og snefilefni. • Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar- tímann frá maí fram í miðjan júlí 5> CJ AburdoruerHsmidjon www.aburdur.is Fæst í öllum helstu garðyrkju- og byggingavöruverslunum landsins 10 ÞRIÐJUDGUR 19. JÚNÍ 2007 blaAiA Valdaskeið Verkamannaflokksins Verkamannaflokkurinn í Bret- landi stormaði til valda fyrir áratug síðan. Sigur breskra jafnaðarmanna var stærri en nokkur fordæmi voru fyrir og framtíðin var þeirra. Þremur kosningasigrum síðar stendur flokk- urinn á tímamótum. Næsta sunnu- dag, þann 24. júní, fara leið togaskipti fram í Verkamannaflokknum en þá lætur Tony Blair af formennsku í flokknum eftir þrettán ár og sem forsætisráðherra Bretlands í rúmlega tíu ár. Gordon Brown, fjármálaráðherra landsins, tekur við og fram gengur að lokum frægt samkomulag þeirra félaga um að Brown taki við foryst- unni af Blair. Gróska í London Fyrir tíu árum síðan fórum við fimm manna hópur sem spratt upp úr Gróskuævintýrinu til London til að verða vitni af ævintýrinu og taka þátt í þeim sögulega sigri sem í upp- siglingu var. Við unnum allskyns viðvik fyrir Verkamannaflokkinn síð- ustu vikuna fyrir kosningar og fylgd- umst með í návígi. Þetta gerðum við aftur íjórum árum síðar í öðru kjör- dæmiísömuborg. Núfyrirskömmubarstmérboðum að koma á landsfund Verkamanna- flokksins á sunnudag og verða vitni að formannsskiptunum. Það ætla ég að þiggja og fer á fundinn um helgina sem haldinn verður í Manchester í Englandi. Með í för verður einn af vík- ingunum úr fyrri baráttum, Hreinn Hreinsson, stórjafnaðarmaður. Tvíeykið Blair/Brown er eitt það máttugasta í sögu breskra stjórn- mála og liggur að hluta til að baki sig- urgöngu flokksins síðastliðinn ára- tug. Þó að trúnaðarbrestur og spenna hafi einkennt samband þeirra félaga í vaxandi mæli. Styrkleikarnir hafa samt verið meiri heldur en veikleik- arnir og saman hafa þeir leikið til sig- urs þrennar þingkosningar í röð. Valdaskeiðið í valdapólitísku samhengi er valda- skeið Verkamannaflokksins nokkuð einstakt á síðari árum í evrópskum stjórnmálum. Kosningasigurinn mikli 1997 gerði Tony Blair að yngsta forsætisráðherra Breta fr á 1820, hann var 43 ára gamall, auk þess að færa flokknum stærri meirihluta í þing- inu en nokkur fordæmi eru fýrir. Björgvin G. Sigurösson Þetta var að mestu endurtekið fjórum árum síðar með öðrum gjör- sigri yfir keppinautunum í íhalds- flokki og Frjálslyndum demókrötum. Þriðji sigurinn, sem var sætastur að því leyti að aldrei áður hafði Verka- mannaflokkurinn stjórnað tvö kjör- tímabil í röð eða unnið þrjá meiri- hluta i beit, var um leið markaður skugga innrásarinnar í Irak. Ef Tony Blair hefði ekki gert þau herfilegu mistök að taka þátt í þeirri löglausu innrás þá hefði sigur flokks- ins sjálfsagt verið svipaður hinum tveimur fyrri og valdaskeið Verka- mannaflokksins líklega staðið ára- tugum saman óslitið. Irak varpar djúpum skugga á feril Blairs og flokksins og góðan árangur í innan- landsmálum. Sérstaklega í efnahags- málum þar sem afar vel hefur verið haldið á málum. Nýr kafli Nú tekur Gordon Brown við búinu af Blair og það verður spennandi að sjá hvernig honum farnast að fóta sig í Downingstræti 10. Eftir tíu ár í númer ellefu. Tilraun Blairs, Browns, Peters Mandelson, Robins Cook og marga annarra framsækinna breskra jafnað- armanna til að endurnýja flokk sinn eftir fjórða ósigurinn í röð árið 1991 tókst vel. Að mörgu leyti framúrskar- andi vel. Miklum þrótti var blásið í sígild stefnumið jafnaðarmanna, þau færð til nýrra tíma og gömlum og úreltum markmiðum var komið fyrir róða. Jafnaðarmenn sópuðu hægrisinnaðasta íhaldsflokki í Evr- ópu út úr stjórnarráðinu og við tóku nýir tímar í Bretlandi. Margt hefur afar vel tekist en annað farið úrskeiðis. Stundum bar mjög af leið. Áður hefur verið vísað til hörmunganna í írak sem hafa nú kostað hundruð þúsunda mannslífa og sér ekki fyrir endann á enn þá. Þá má nefna grunsemdir um titlakaup auðmanna og á köflum stjórnlaust spinn í kringum for-’ sætisráðherrann. Irak eru stóru og ófyrirgefanlegu mistök Tonys Blair. Afleikur sem bindur nú enda á feril Blairs og setur framtíð flokksins í hættu. Nú tekur við næsti kafli. Skrifaður af Gordon Brown sem er öðruvísi maður en Blair með öðruvísi áherslur. Klassískari krati en Blair með dýpri rætur í flokknum. Þær hafði Tony Blair ekki og varð það honum bæði til gæfu og þrautar. Eftir því hvernig á það er litið. Höfundurerviðskiptaráðherra Klippt & skorið ANetinu hefur verið hægt að nálgast atriði úr hæfileikakeppni í Bretlandi þar sem 36 ára símsölumaður að nafni Paul Potts syngur óperu með undurfagurri röddu. Atriðið hefur dregið að sér milljónir áhorfenda um allan heim en sérstaklega þykir undrun dómara keppninnar skemmtileg, en einn þeirra er Simon Cowell, hinn frægi Idol- dómari. Hann hefurviður- kennt að Paul Potts hafi komið sér gjörsamlega á óvart, enda átti dóm- nefndin ekki von á öðru en að þarna værl á ferð enn einn furðufuglinn. Þess má geta að Potts vann keppnina á sunnudagskvöldið. Það má sjá allt um hana á www.itv.com. Þeir ferðalangar sem freistast til að taka með sér hráskinku, spægipylsu eða gómsæta osta þegar þeir snúa heim úr fríinu eiga það á hættu að vera gripnir glóðvolgir í tollinum, segiráheimasíðuNeyt- ' ■ endasamtakanna.Það er bannað að flytja hrátt kjöt og osta úr óger- ilsneyddri mjólk inn til landsins nema með tilskildu leyfi. Raunar ber að taka fram að ekki er hægt að mæla með neyslu á ostum úr óger- ilsneyddri mjólk vegna þess að of oft hafa þar fundist óæskilegar örverur. Það er hins vegar svo að á mörgum ostum sem framleiddir eru úr gerilsneyddri mjólk kemur það ekki fram á um- búðum og því eru þeir fjarlægðir af tollinum ef slíkir finnast. Samtökin lýsa yfir furðu sinni á þessu og óska eftir rökstuðningi frá landbúnað- arráðherra vegna þessa. Móðir nokkurfór í útilegu með son sinn og gistu þau á tjaldstæði þar sem mikill fjöldi fellihýsa- og hjólhýsa var staðsettur. Sonur konunnar vildi ná sér f leikfélaga til að fara í fót- bolta og barðiaðdyrum í fínu „húsunum" í kring og spurði eftir strákum. Ekkert gekk að fá krakka til að koma út og leika. Þau voru öll upptekin, annaðhvort að horfa á DVD-myndir á flatskjá eða í tölvuleik. Það er því af sem áður var þegar krakkar ærsluðust um í sveitinni og nutu frelsisins. elin@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.