blaðið - 19.06.2007, Side 14
blaðið
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007
heilsa
heiisa@bladid.net
Fáðu þér jarðarber
Um hásumar á afskaplega vel viö að narta í ný og safa-
rík jarðarber. Þau eru ekki einungis frískandi og bragð-
góð heldur einnig rik af B-, C- og K-vítamínum, trefjum,
fólínsýru og fleiri nauðsynlegum næringarefnum.
Það er ekki nauðsynlegt að kaupa sér aðgang að líkams-
ræktarstöð til þess að komast í form. Prófið að hlaupa
upp og niður stiga í 10 mínútur, sippa í 10 mínútur og
gera magaæfingar í 10 mínútur fimm daga vikunnar.
W
Arangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
Alag er áhrifaríkt
Það er algengur misskilningur
að það sé ekki álagið í líkamsæfing-
unni sem skipti mestu máli til að
brenna fitu heldur tíminn sem fer
í æfinguna. Þannig sé ávallt betra
að ganga í klukkutíma heldur en að
hlaupa í hálftíma. Raunin er hins
vegar sú að því hraðar sem er gengið,
hjólað eða hlaupið, þeim mun fleiri
hitaeiningum er brennt á hverri
mínútu. Þess vegna þarf áhrifarík
líkamsrækt ekki endilega að taka
langan tíma heldur er hægt að nota
þann litla tíma sem aflögu er til
þess að reyna mikið á líkamann.
Hins vegar er erfitt fyrir byrj-
endur að viðhalda miklu álagi á lík-
amann í einu og því er öruggast að
byrja fremur rólega en bæta smám
saman í hraða og þyngd.
29 vítamín og steinefni - 1 8 aminósýrur • Blaðgræna • Omega
■ GLA fitusýrur • SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lifræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum.
Súrefnistæmdar umbúöir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaöir,
ræktaðir í ferskvatni eftir ströngum
gæöastaöli. IS09001 ■ IS014001
Systkini og
þunglyndi
Karlmenn sem áttu slæm samskipti
við systkini sín í æsku eiga í meiri
hættu á að stríða við þunglyndi á
fullorðinsárum heldur en þeir sem
áttu góð samskipti við systkini
sín. Þetta kom í Ijós í rannsókn Dr.
Roberts J. Waldingers, dósents í
geðlækningum við Harvardháskóla.
I rannsóknarniðurstöðunum er
tekið fram að slæmt samband við
systkinin leiði ekki sjálfkrafa af sér
þunglyndi, enda má vera að það
hafi verið þunglyndi eða depurð
sem orsakaði slæm samskipti
manna við systkini sín í æsku. Rann-
sóknin sýnir einfaldlega fram á sterk
tengsl þarna á milli sem vert er að
rannsaka betur. „Við þurfum að
gera fleiri rannsóknir til að sjá hvort
þessar niðurstöður verði staðfestar
og þá hver orsakatengslin eru.
Samskipti við systkini hafa hingað
til verið vanmetin í rannsóknum á
þroska barna,“ segir Dr. Waldinger.
Gott fyrir heilann
Það er ekki bara til marks um
góðmennsku að láta fé af hendi
rakna til góðgerðarmála heldur er
það jafnframt hollt fyrir heilastarf-
semina. Rannsókn sem gerð var í
sálfræðideild háskólans í Oregon
leiddi í Ijós að vitneskja þátttak-
enda um að hluti peninga þeirra
rynnu til góðra og þarfra málefna,
til dæmis fátækraaðstoð, örvaði
heilann og veitti svipaða vellíðun-
artilfinningu og neysla góðs matar
og kynlífs. Þetta átti líka við þegar
um var að ræða skyldubundin
fjárframlög á borð við skatt þó að
áhrifin yrðu meiri þegar fólk fékk
að velja sjálft
hvernig pen-
ingum þeirra
yrði varið. Þetta
er vísbending
um að það sé
manninum hollt
og eðlislægt
að hjálpa bág-
U stöddum í stað
jjt M Þess að Það
^ m se lærð
hegðun.
Hjólaskór eru vinsælir hjá ungmennum:
Skór sem „fljóta"
á malbikinu
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukiö úthald,
þrek og betri líöan
Fæst i apótekjum og heilsubúöum.
www.celsus.is
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Eitt helsta æðið hjá börnum og ung-
lingum á öllum aldri í sumar eru
svokallaðir „hjólaskór“, eða „heelys“
eins og þeir kallast á ensku. Um er
að ræða skó sem við fyrstu sýn líta
út eins og venjulegir strigaskór en
þegar betur er að gáð kemur í ljós
að undir hælunum eru hjól, svipuð
þeim sem eru undir hefðbundnum
hjólaskautum. Skórnir eru því þeim
skemmtilegu eiginleikum gæddir að
í þeim er bæði hægt að labba venju-
lega og renna áfram á töluverðum
hraða. Þetta er sem sagt skýringin á
því af hverju sum ungmenni virðast
allt í einu fyrirvaralaust fljóta áfram
á hælunum úti á götu. Svona hlaupa-
skór eru geysivinsælir í Bandaríkj-
unum og mörgum Evrópulöndum
og víðar ásamt því sem þeir eru að
sækja í sig veðrið hér á íslandi. Það
er heildverslunin Sportís i Garðabæ
sem hefur umboð fyrir svona hjóla-
skó auk þess sem hægt er að fá svo-
leiðis á vefnum Barnaland.is
Að sögn Herdísar Storgaard, for-
stöðumanns Forvarnarhúss Sjóvá,
eru þessir skór að verða mjög áber-
andi hér á landi. „Það er hægt að
stilla hæðina á hjólunum undir
skónum en í þeim er fólk þó aldrei
jafn hátt uppi í loftinu eins og þegar
það er á línuskautum. Ég hef verið
að fylgjast með því sem er að gerast
í löndunum í kringum okkur, þar
sem svona skór eru algengir, til
þess að geta ráðlagt foreldrum sem
hringja í mig og hafa áhyggjur af
slysahættu,“ segir hún. „Ég var ein-
mitt að koma af fundi í Evrópu þar
sem verið var að fjalla um slysavarn-
ir barna og þar var reyndar enginn
sem gat lagt fram konkret upplýsing-
ar og tölur um slys af völdum þess-
ara skóa og þær eru heldur ekki til
fyrir Island eitt og sér, ekki enn þá
allavega. Þó veit ég að það sem þarf
einna helst að huga að varðandi
þessa skó er að þeir slitna náttúru-
lega eins og aðrir og það getur verið
sérstaklega varasamt að nota skóna
þegar hjólin eru orðin slitin, enda
eykst þá slysahættan til muna.“
Þau slys sem Herdís hefur helst
heyrt um af völdum hjólaskóa eru
svipuð þeim sem algengust er að
verði þegar börn hlaupa um og detta.
„Þá setja þau fyrir sig hendurnar og
geta tognað eða handleggsbrotnað
og stundum renna þau og hruflast
á malbiki eða möl. Það er allavega
algengast miðað við það sem ég hef
heyrt frá nágrannalöndunum. Ég
myndi alltaf ráðleggja þeim að vera
með sama hlífðarbúnað og gilda fyr-
ir hjólabrettin og línuskautana, það
er að segja hjálm og olnboga- og hné-
hlífar. Oft eiga krakkar þennan bún-
að hvort eð er fyrir og ættu því að
setja hann á sig áður en þeir byrja
að þeysast um á þessum skóm.“
Þar sem ekki liggur í augum uppi
við fyrstu sýn að um farartæki er að
ræða minnir Herdís jafnframt á að
hver sá sem renni sér á svona skóm
hafi aðgát í nærveru annarra veg-
farenda. „Fólk er auðvitað vant því
þegar það er á hjóli eða hjólabretti
að gangandi vegfarendur bregðist
við og víki um leið og þeir verði var-
ir við þá. En það getur auðveldlega
farið fram hjá gangandi fólki aðhjól-
askórnir séu farartæki og því verða
foreldrar að brýna fyrir börnum og
unglingum að sýna fyllstu aðgát til
þess að lenda ekki í árekstri úti á
gangstétt,“ segir hún.
Þess má annars geta að hjólaskórn-
ir veita ungmennum skemmtilega
hreyfingu og mun uppbyggilegri
afþreyingu heldur en sjónvarpsgláp
og tölvuleikjahangs. Það er því full
ástæða til að skella á sig svona skóm
og hlífðarbúnaði og fara út að „skó-
hjóla' í sumar.