blaðið - 30.06.2007, Side 2
2
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
blaöiö
STUTT
• Árásarhugur Tíu sextán ára
piltar gerðu tilraun til að ráðast
á heimili jafnaldra síns. Þeir
töldu sig eiga óuppgerðar sakir
við piltinn sem náði að hringja í
lögregluna áður en til átaka kom.
Piltarnir tíu voru færðir niður á
lögreglustöð þar sem hringt var
í foreldra þeirra. Málið heldur
áfram í barnaverndunarkerfinu.
• Lundaveiði Bjargveiðimanna-
félag Vestmannaeyja ætlar að
draga úr lundaveiðum. Lundar
hafa ekki komið upp pysjum
undanfarin tvö ár og félagið
vill ekki að gengið sé of nærri
stofninum.
• Laxárvirkjun Vel gekk að
sækja pilt á sautjánda ári sem féll
fram afbrúnni við Laxárvirkjun
síðdegis í gær. Pilturinn var
einn á reiðhjóli en féll af hjólinu,
yfir brúarhandriðið og ofan í
ána. Hann náði sjálfur að krafla
sig upp að árbakkanum og gat
hringt á aðstoð. Björgunarmenn
komu piltinum á börur.
mbl.is
• Hálendið Slysavarnafélagið
Landsbjörg verður annað
sumarið í röð með fjórar björg-
unarsveitir á hálendinu. Til-
gangurinn er að fækka slysum,
veita ferðamönnum aðstoð og
upplýsingar og vera með við-
bragðsæfingar á hálendinu.
Staða laumufarþeganna óljós
Vonir bundnar við Möltu
Eyborg á siglingu Með 21 laumufarþega.
Neiti yfirvöld á Möltu laumufarþegunum um
borð í togaranum Eyborgu um landvist er óljóst
hvert sigla á með þá. „Það er ekki tímabært að
svara þessari spurningu. Þetta er vissulega lög-
fræðilega flókið mál ef sambærileg tilvik eru
skoðuð,“ segir Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri
utanríkisráðuneytisins.
Skipverjar á Eyborgu urðu á fimmtudags-
morgun varir við 18 karla og 3 konur á tómum
flotkvíum sem skipið dregur eftir Miðjarðarhafi.
Ein kona fannst látin.
Nokkrir dagar eru þar til Eyborg nær höfn á
Möltu en vonir utanríkisráðuneytisins standa
til að yfirvöld þar taki við fólkinu. „Skipið fór
að landhelgislínu Líbýu til að ná í flotkvíarnar
sem flytja á til Möltu. Skipverjar urðu varir við
bát eða skip sem var í kringum þá eitthvað fyrir
miðnætti og sigldi síðan burt. Svo vissu þeir ekki
meir fyrr en í birtingu daginn eftir að þeir urðu
varir við fólkið á flolkvíunum," segir Pétur og
bætir því við að menn hafi engar vonir um að
komast að því um hvaða skip var að ræða. Fólk-
inu var komið um borð í björgunarbáta en síðan
um borð í Eyborgu til að tryggja öryggi þess en
það er á ábyrgð skipstjórans.
„Það er ekki vitað nákvæmlega hvort fólkið telst
formlega flóttamenn. Við höfum enn of litlar upp-
lýsingar,“ tekur Pétur fram.
Eyborg hefur legið í höfn á Möltu og þjónustað
aðila í túnfiskeldi. Túnfiskurinn er veiddur í nót
og haldið lifandi þar. Síðan er honum smalað úr
nót í flotkvíar sem dregnar eru að eldisstöð. Á
Miðjarðarhafi veiddust rúmlega 20 þúsund tonn
af túnfiski í fyrra. Fyrir afurðirnar fengust sem
samsvarar á fjórða tug milljarða islenskra króna.
ingibjorg@bladid.net
Beinar aðgerðir
gegn stóriðjunni
■ Mótmælabúðirnar standa í tvo mánuði ■ Biðja fólk um að koma með grænmetisfæði
Fær á níundu milljón
Slysiö bætt
11 árum síðar
Sjóvá-Almennar tryggingar
voru í gær dæmdar til að
greiða karlmanni tæpar
9 milljónir í miska- og
örorkubætur.
Ekið var inn í vinstri hlið bif-
reiðar karlmannsins, sem var
með slysatryggingu þannig
að ekki var deilt um greiðslu-
skyldu tryggingafélagsins.
í árekstrinum, sem átti sér
stað í mars árið 1995, skemmd-
ust báðar bifreiðar mikið og
karlmaðurinn varð fyrir var-
anlegu líkamstjóni í slysinu.
bm
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Mótmælabúðir á vegum Saving
Iceland, eða Björgum Islandi, hefj-
ast 6. júlí næstkomandi en forsvars-
menn samtakanna vilja ekki gefa
upp staðsetningu búðanna.
Sigurður Harðarson, einn tals-
manna samtakanna, segir að þetta
séu beinar aðgerðir gegn stóriðju
í landinu og sé ástæðan fyrir allri
leyndinni sú að reynslan hafi sýnt
að þegar hópurinn sé kominn á stað-
inn þá vilji yfirvöld beita landeig-
endur þrýstingi til að hrekja hann
burt.
Búist er við fjölda fólks í búð-
irnar hvaðanæva úr heiminum en
mótmælin hefjast á ráðstefnu um
stóriðju og stórstíflu á Hótel Hlíð í
Ölfusi.
Lögreglan eltir mótmælendur
Mótmælabúðirnar sem hefjast í
júlí verða þær þriðju sem Saving Ice-
land hefur staðið fyrir en í hin tvö
skiptin voru þær við Kárahnjúka-
virkjun. í fyrra voru um tvö hundruð
og fimmtíu manns þegar mest var.
Stóðu þær þá í tvo mánuði eins og
ráðgert er að þær muni gera í ár.
Sigurður segir að mótmælendur
frá því í fyrra, og þá sérstaklega þeir
sem voru handteknir, séu komnir á
svartan lista.
Prófaðu Heimaöryggi
í tvo mánuði í sumar
- ókeypis!
Engin krafa er gerö um framhaldsviðskipti, gríptu þvi tækifæriö núna.
Tilboðið gildir tíl 15. júlí og er í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins
þar sem Öryggismiðstöóin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu.
Hringdu í og kynntu þér málið!
Listi upp hluti hefur slíka hluti meðferðis.
Samtökin birta á heimasíðu sinni
ýmis heilræði til þeirra sem koma
erlendis frá og ætla að taka þátt í
mótmælunum. Þar á meðal er listi
yfir hluti til að nota í mótmælunum
sem lögreglan gæti gert upptæka
við komu til landsins en á honum
eru til dæmis málning, penslar og
lök. Er fólki bent á að hafa tilbúna
ástæðu, sem ekki er hægt að tengja
búðunum, fyrir því af hverju það
VEÐRIÐ í DAG
10-20 stiga hiti
Hæg austlæg eða breytileg átt. Súld eða
þokuloft sums staðar við suður- og austur-
ströndina, annars bjartviðri að mestu. Hiti
10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins norðan-
og vestanlands.
„Vegna eftirlitsins viljum við
benda fólki að ef það er með þetta
með sér þá gæti lögreglan tekið því
sem það sé „atvinnumótmælendur“.
Viljum við vara fólk við áður en það
kemur til landsins,“ segir Sigurður.
Á heimasíðunni er fólki einnig
bent á að hafa með sér mat í eld-
húsið sem verður í mótmælabúð-
unum og er það sérstaklega beðið
um að koma með grænmetisfæðu.
Á MORGUN
Hlýtt og bjart
Hæg austlæg átt eða hafgola og víða bjart
veður. Sums staðar þokuloft við ströndina
austantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast inn til
landsins.
HANDHÆGIR HLUTIR
► Mótmælendurnir koma be-
tur undirbúnir nú en síðustu
tvö ár.
► Þeir hafa ólar og klemmur
til að nota við klifur, efni
eins og er til dæmis í rúm-
lökum, hjólalásar, málning
og penslar.
Náttúrusinnar á Suðurlandi glaðir
Á ráðstefnunni á vegum samtak-
anna verða átta erlendir ræðumenn
og tólf íslenskir. Meðal þeirra ís-
lensku eru Guðbergur Bergsson,
Ómar Ragnarsson og Andri Snær
Magnason. Segir Sigurður að ráð-
stefnam sé búin að vekja mikla
athygl| ;,,Það er mikil gleði meðal
náttúruverndarsinna á Suðurlandi
yfir að þetta skuli vera haldið þar.
Mörgum þaðan hefur fundist að
Hellisheiðin sé að breytast í iðnaðar-
svæði en athyglin hafi öll beinst að
Kárahnjúkum.“
Saving Iceland standa fyrir styrkt-
artónleikum til verndunar náttúru
íslands og gegn stóriðju á Nasa næst-
komandi mánudag klukkan átta.
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
STUTT
• Lokun Hvalfjarðargöngunum
þurfti að loka í 40 mínútur eftir
að fólksbíll rakst á flutningabíl
inni í göngunum. Atvikið átti sér
stað í gærmorgun og engin slys
urðu á fólki.
• Árekstur Bifhjólamaður ók á
litlum hraða aftan á kyrrstæða
bifreið við Jórusel á fimmtu-
dagskvöld. Að sögn lögreglu
fór betur en á horfðist og mað-
urinn slasaðist aðeins lítillega.
• Skemmtiferðaskip Grand
Princess er stærsta skemmtiferða-
skip sem kemur hingað til lands
í ár. Farþegar þess eru tæplega
3.000 og starfsmenn rúmlega
1.000. Skipið kom fyrst til Akur-
eyrar og fer þaðan til höfuðborg-
arinnar. mbi.is
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 24 Halifax 24 New York 22
Amsterdam 15 Hamborg 16 ; Nuuk 7
Ankara 30 Helsinki 17 Orlando 24
Barcelona 26 Kaupmannahöfn 15 Osló 19
Berlin . 20 London 21 Palma 24
Chicago , ■ 26 Madrid 32 Parls 18
Dublin 17 Mílanó 30 Prag 25
Frankfurt 19 Montreal 15 Stokkhólmur 18
Glasgow 16 Miinchen 18 Þórshöfn 11