blaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 19
blaóió
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
FRETTIR
19
október það sama ár. Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið sendi í kjöl-
far þess út fréttatilkynningu sem
fór ekki að neinu leyti í efnisatriði
skýrslu FATF. Þess í stað segir orð-
rétt í henni að „niðurs,taða hennar er
almennt jákvæð en jafnframt komu
þar fram, eins og venja er, ábend-
ingar um það sem talið er að betur
mætti fara i löggjöf og framkvæmd
á þessu sviði“. Ekkert var minnst á
þá gagnrýni sem FATF setti fram á
framkvæmd íslenskra laga um pen-
ingaþvætti heldur sagt að sérstök
ráðgjafarnefnd sem starfað hafi
að undirbúningi og framkvæmd
úttektarinnar muni halda „áfram
störfum og fylgist meðal annars
með þróun þessara mála hérlendis
og á alþjóðavettvangi".
HVAÐ ER FATF?
► Financial Action Tast
Force (FATF) er alþjóðleg
ráðgjafarstofnun helstu
iðnríkja heims sem hefur
það hlutverk að þróa og
koma á framfæri leiðum og
stefnum til að vinna gegn
peningaþvætti og fjármögn-
un hryðjuverkastarfsemi.
► Stofnunin hefur verið starf-
andi frá árinu 1989 og að
henni standa 33 aðildarríki.
► Fyrir þremur árum fram-
lengdu þau umboð stofnun-
arinnar til ársins 2010.
Því horfir það sérkennilega við að
lög hafi verið sett í júní sem byggðu
á tilmælum og ábendingum FATF
um framkvæmd peningaþvættislag-
anna þegar niðurstaða FATF varð-
andi íslenskan fjármálamarkað lá
ekki fyrir. Hún sýndi svo svart á
hvítu að verulegar aðfinnslur voru
gerðar við framkvæmd laganna.
Norrænn samanburður
FATF gefur aðildarríkjum sínum
einkunnir eftir því hversu vel hefur
til tekist að innleiða tilmæli og
staðla stofnunarinnar.
ísland er sagt hafa orðið við þeim
tilmælum að mestu eða öllu leyti í 46
prósentum tilfella. Ef sú niðurstaða
er borin saman við hin norrænu
ríkin kemur í ljós að íslendingar eru
á svipuðum slóðum og Danir. Norð-
menn þykja þó hafa staðið sig best
allra norrænu landanna í þessum
efnum og innleitt um 66 prósent
tilmælanna að mestu eða öllu leyti.
Svíar fylgja þar fast á eftir með 58
prósent.
peningaþvættislögin og hvort það
sé eitthvað sem fljótlega blasir við
að þurfi að taka til endurskoðunar.
Við höfum metnað til að ganga úr
skugga um að þessi mál séu í mjög
góðum farvegi. I þessum alþjóðlega
peningaheimi þarf þetta eftirlit
svo sannarlega að vera í lagi til að
tryggja trúverðugleika íslensks
fjármálamarkaðar.“
Björgvin telur að taka beri ábend-
ingar FATF mjög alvarlega. „Nei,
það má alveg segja að allar slíkar
ábendingar beri að taka mjög alvar-
lega og leggja sig fram við að bæta
úr. Það munum við gera. Burtséð
frá því hvernig fyrrum ráðherrar
brugðust við þá má ekki gera lítið
úr þessu. Við munum leggja okkur
fram við að tryggja að framkvæmd
laganna verði mjög góð.“
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
Fjármálaviðskipti byggja á heiðarleika
almennt byggja á heiðarleika og á
því að viðskiptavinirnir trúi því að
allt sé í lagi.“
Guðjón telur að það hafi skort á
frekari uppfyllingu laganna. „Þegar
úttektin var gerð í fyrravor var
Fjármálaeftirlitið ekki búið að
senda tilmæli á grundvelli nýrra
laga um peningaþvætti til fjármála-
fyrirtækja. Niðurstöðu FATF var
ekki skilað fyrr en í október og þá
höfðu nýju lögin gengið í gildi. Við
unnum leiðbeinandi reglur sem
fyrirtækin innleiddu hjá sér. Alþjóð-
legar kröfur eru orðnar svo miklar
að fyrirtækin þora í raun og veru
ekki annað en að fylgja þeim.“
„Það eru ábendingar í skýrslunni
um að umgjörð eftirlitsaðila í
þessum málum sé ekki nógu góð,“
segir Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármála-
fyrirtækja. „Undir hin nýju lög eru
settir allskonar aðrir aðilar eins
og lögmenn, endurskoðendur, fast-
eignasalar og svo framvegis sem
ríkislögreglustjóri á að hafa eftirlit
með. Þeir hafa sjálfir sagst vera und-
irmannaðir og að þeir geti illa sinnt
því eftirliti. Það bitnar náttúrlega
á úttektinni í heild ef þetta er ekki
í lagi. Til þess að við stöndum sem
allra best þá þarf að gera meira og
koma þessu í lag hjá öllum aðilum.
En niðurstaðan hlýtur að hafa
vakið stjórnvöld til umhugsunar
um að þau þurfi að fara að hysja
upp um sig buxurnar varðandi þá
þætti sem athugasemdir eru gerðar
við.“
Hann segir það hag fjármálafyrir-
tækjanna að peningaþvætti þrífist
ekki á íslandi. „Eftir sem áður
byggist þetta á því að fyrirtækin
eiga að tilkynna um það þegar þau
verða vör við eitthvað óeðlilegt. Ef
þau gera það ekki fylgja því sektir
og refsingar. En afleiðingarnar eru
fyrst og fremst orðsporshnekkir
því lánshæfismat og annað slíkt
verður fyrir áhrifum ef bankarnir
sinna ekki þessu eftirliti. Hættan
á því að þeir séu að horfa í hina
áttina og tilkynni ekki um svona
háttsemi á því að vera engin.
Fjármálaviðskipti líkt og viðskipti
MIRALE
erum flutt í
síðumúla 33
opið
í dag frá10-14
brúðargjafir
brúðargjafalistar
MIRALE
Síóumúla 33
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opió
man.-föstud. 11-18
laugardag 10-14
www.mirale.is