blaðið - 30.06.2007, Side 30
30
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007
blaðiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Óskastaða lánþega er að taka lánið á
hóflegum, föstum vöxtum í sömu mynt
og hann fær sínar tekjur.
Vöruskiptin
óhagstæð
Vörur voru fluttar út fyrir 20,5
milljarða króna og inn fyrir
31,2 milljarða króna í maímán-
uði. Vöruskiptin í maí voru því
óhagstæð um 10,7 milljarða, en
voru óhagstæð um 12,6 milljarða
króna á sama gengi í maí 2006.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni voru fluttar út vörur
fyrir 119,9 milljarða króna en inn
fyrir 150,5 milljarða fyrstu fimm
mánuði ársins 2007.
Sjávarafurðir voru 47 prósent
alls útflutnings, en iðnaðarvörur
fjörutíu af hundraði og var verð-
mæti þeirra 34 prósentum meira
en árið áður.
aí
Össur hlýtur
viðurkenningar
Fyrirtækinu Össuri hafa hlotnast
tvær alþjóðlegar viðurkenningar
á síðustu dögum. Fyrirtækið
hlaut Medical Design Excel-
lence-verðlaunin fyrir þróun og
framleiðslu Proprio Foot, auk
þess sem tímaritið BusinessWeek
nefndi Hilmar Janusson einn
fremsta hönnuð í heimi.
STUTT
• Sorpa selur hlut Stjórn Sorpu,
sem er í eigu sveitarfélaga höfuð-
borgarsvæðisins, hefur ákveðið
að selja Furu og Gámaþjónust-
unni eignarhlut sinn í Efnamót-
tökunni. Tilboðið var samþykkt
á stjórnarfundi Sorpu þann 25.
júlí.
• Askar opna i Mumbai
íslenski fjárfestingarbank-
inn Askar Capital mun opna
skrifstofu í Mumbai í Indlandi
á næstunni. Pav Bakshi mun
fara fyrir skrifstofunni, en
hann gekk nýlega til liðs við
bankann frá Bear Stearns.
Upptaka evru gæti
lækkað húsnæðisvexti
■ Gríðarlegur munur á
vöxtum óverðtryggðra lána á íslandi og í evruríkjum
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
EVRAN
Upptaka evrunnar ein og sér
myndi ekki lækka vexti húsnæðis-
- lána á íslandi. Slíkt segir Gunnar
Haraldsson, formaður Hagfræði-
stofnunar, einföldun á málum. „Það
er ljóst að ef við myndum uppfylla
skilyrði fyrir upptöku evrunnar þá
myndu þau ein og sér leiða til vaxta-
lækkunar, hvort sem við gengjum í
Evrópusambandið eða ekki.“
Hagfræðingar virðast vera
nokkuð sammála þeirri kenningu,
en skilyrði fyrir upptöku evru varða
ríkisfjármál, vexti, skuldir hins op-
inbera og verðbólgu - fyrir utan að-
ild að Evrópusambandinu.
Eins og staðan er í dag er lántaka
til húsnæðiskaupa gjörólík hér-
lendis, þar sem flest húsnæðisláll
eru verðtryggð, og á evrusvæðinu,
þar sem flestir taka óverðtryggð
húsnæðislán.
Aðalsteinn Leifsson, lektor í stjórn-
málafræði við Háskólann í Reykja-
vík, skrifaði grein í Blaðið í síðustu
viku, þar sem hann benti á að vextir
húsnæðislána hefðu lækkað veru-
lega í ýmsum ESB-ríkjum, ekki
aðeins við sjálfa upptöku evrunnar
heldur strax við ákvörðun um að
taka hana upp.
Óskalánið í sömu mynt og tekjur
Ólafur ísleifsson, hagfræðingur
og lektor við viðskiptadeild HR,
segir að ef hægi á hagkerfinu sé
styttra í land að ná skilyrðum fyrir
►
Upptaka evru hefur einnig
í för með sér samræmingu
peningamála- og gengis-
stefnu aðildarríkjanna og
samstarf um efnhagsstefnu.
► Mörg íslensk fyrirtæki gera
nú ársreikning bæði í krón-
um og evrum.
► Seðlabanki evrusvæðisins
er í Frankfurt og ákveður
stýrivexti fyrir öll evruríkin.
aðild að ESB. „Aðalmálið er þó að
koma skikki á efnahagsmálin okkar
vegna, það er það fyrsta sem við
eigum að einbeita okkur að. Þá væri
evran raunhæfur kostur en hún
tengist auðvitað aðild að ESB.“
„Að mörgu er að hyggja varðandi
lántöku og húsnæðisvexti," segir Ól-
afur. „Lántakandi stendur frammi
fyrir margs konar áhættu. Mann-
eskja sem tekur lán í íslenskum
krónum þarf að horfast í augu við
verðbólgu ef lánið er verðtryggt, auk
þess sem vextir ofan á verðbólgu
geta verið breytilegir. Við lántöku í
erlendri mynt skapast áhætta vegna
hugsanlegrar lækkunar á gengi
krónunnar eða styrkingar á gengi er-
lendrar myntar. Öskastaða lánþega
er að taka lánið á hóflegum, föstum
vöxtum í sömu mynt og hann fær
sínar tekjur.“
Þegar talið berst að gríðarlegum
mun á vöxtum óverðtryggðra lána
82.061.000 kr.
heildargreiðsla
Óverðtryggt, íslenskt lán
20.000.000 kr. óverðtryggt húsnæöislán
í krónum með 15,4% vöxtum til 40 ára.
Skv. reiknivél á heimasíðu Glitnis
Verðtryggt, islenskt lán
með núverandi verðbólgu (4%)
20.000.000 kr. verðtryggt húsnæðislán
með 4,95% vöxtum til 25 ára.
Skv. reiknivél á heimasiöu Glitnis
Óverðtryggt lán á evrusvæði
20.000.000 kr. óverðtryggt húsnæðislán
í evrum með 5,7% vöxtum til 30 ára.
Skv. reiknivél á heimasíðu ING bankans i Belgíu
Verðtryggt, íslenskt lán
með óska-verðbólgu (2,5%)
20.000.000 kr. verðtryggt húsnæðislán
með 4,95% vöxtum til 25 ára.
Skv. reiknivél á heimasíðu Glitnis
á evrusvæðinu og hérlendis segir
Ólafur það vera vegna gjörólíks vax-
taumhverfis og líklegast séu þeir
örfáir sem nýta sér óverðtryggða
lántöku á íslandi. Að sama skapi
heyra verðtryggð húsnæðislán til
undantekninga á evrusvæðinu. Hér
er því farin sú leið að bera saman
óverðtryggð lán.
„Mismunurinn er mikill en samt
samanburðarhæfur því vexti má
alltaf bera saman milli staða og
gegnum tíðina. Þessi munur ræðst
ekki síst vegna þess að valin hefur
verið sú leið að mæta verðbólgu-
þrýstingi með stýrivaxtahækk-
unum seðlabanka frekar en með því
að halda í á víðara sviði svo sem í
ríkisfjármálum, fjármálum sveitar-
stjórna, framkvæmdum og skipu-
lagsbreytingum á íbúðalánamark-
aði,“ segir Ólafur.
Aðalsteinn Leifsson segir í grein
sinni að vextir á óverðtryggðum
húsnæðislánum í fimm löndum
hafi verið á bilinu 9,35% til 19,05%
áður en þau tóku upp evruna. Tíu
árum síðar, árið 2002, hafi sömu
vextir verið rúmlega 5%, en í dag
eru vextir evrusvæðisins kringum
5-6%. „Vaxtamunur á evrusvæðinu
og íslandi er gróflega helmingur
og reynsla evruríkjanna er sú að
vextir lækka strax eftir að ákvörðun
um upptöku evrunnar hefur verið
tekin.“
Félag SkrúSgarSyrkjumeistara
GARÐHEIMAR
meistari.is
MARKAÐURINN ÍGÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 29. júní 2007
Viöskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð í lok dags:
Félög í úrvalsvísitölu verð breyting viösk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
▼ 365 hf. 3,46 -1,70% 29.6.2007 12 13.318.290 3,44 3,48
♦ Actavís Group hf. 89,60 0,00% 29.6.2007 19 420.606.488 83,00 90,00
a Alfescahf. 5,42 0,74% 29.6.2007 13 139.360.349 5,42 5,49
▼ Atlantic Petroleum P/F 1050,00 -2,33% 29.6.2007 11 17.323.027 900,00 1000,00
a Atorka Group hf. 8,40 1,82% 29.6.2007 9 46.555.064 8,40 8,45
▼ Bakkavör Group hf. 69,40 -0,29% 29.6.2007 20 1.617.970.487 69,30 69,60
▼ FLGrouphf. 29,50 -0,17% 29.6.2007 23 180.848.637 29,50 29,55
Glitnir banki hf. 28,95 0,52% 29.6.2007 220 16.298.027.840 28,90 28,95
a Hf. Eimskipafélag íslands 40,30 0,50% 29.6.2007 9 24.410.642 40,30 40,45
▼ Kaupþing banki hf. 1125,00 -0,53°7o 29.6.2007 61 2.748.263.807 1125,00 1128,00
▼ Landsbanki íslands hf. 38,10 -0,26% 29.6.2007 40 1.184.552.229 38,05 38,10
a Marelhf. 84,70 0,24% 29.6.2007 14 51.225.390 84,60 84,90
▼ Mosaic Fashions hf. 16,50 -2,94% 29.6.2007 2 21.925.848 16,50 16,95
a Straumur-Burðarás Fiárf.b. hf. 21,85 0,23% 29.6.2007 80 1.821.279.521 21,75 21,80
▼ össurhf. 106,00 -1,40% 29.6.2007 15 40.778.738 106,00 107,50
Önnur bréf á Aöallista
a Existahf. 34,40 0,88% 29.6.2007 37 1.728.489.774 34,30 34,45
▼ Flaga Group hf. 1,90 -0,52% 29.6.2007 1 250.800 1,90 1,92
▼ Foroya Bank 232,00 -2,93% 29.6.2007 52 29.660.098 232,00 236,50
a lcelandair Group Holding hf. 28,00 0,90% 29.6.2007 13 548.136.840 27,90 28,00
♦ lcelandic Group hf. 6,40 0,00% 26.6.2007 - - 6,40 6,49
♦ Nýherjihf. 19,20 0,00% 21.6.2007 . NHHttl 19,70
a Teymi hf. 5,10 0,39% 29.6.2007 9 58.884.915 5,04 5,10
♦ Tryggingamiðstööin hf. 39,30 0,00% 20.6.2007 - - 39,25 39,60
♦ Vinnslustöðin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - -
First North á íslandi
a Century Aluminium Co. 3405,00 1,73% 29.6.2007 5 50.775.000 3400,00 3410,00
♦ HBGrandihf. 12,00 0,00% 22.6.2007 mmm Hítttt 12,00
♦ Hampiðjanhf. 7,00 0,00% 20.6.2007 . . 7,00
Mesta verðbreytingin í kauphöll
OMX á Islandi í gær var á bréfum
365. Þau lækkuðu í verði um 1,7%
Mest viðskipti voru með bréf
Glitnis, fyrir tæpa rúma 16,3
miljarða, en félagið hækkaði um
0,52 og lokagengið var 28,95.
Mesta hækkunin var á bréfum
Atorku, 1,8%. Næst mest hækkaði
Teymi, 0,99%. Alls hækkuðu átta
félög í gær.
Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,29% og stóð í 8.299 við lok dags.
Gengi krónunnar styrktist örlítið
eða um 0,09%.
Hlutabréf hækkuðu áfram víða
á erlendum mörkuðum. DAX-
vísitalalan þýska hækkaði um
1,1% og Nikkei í Japan um 1,3%.
Norræna OMX-vísitalan hækkaði
um 0,86%.