blaðið - 30.06.2007, Qupperneq 41
blaðió
ORÐLAUSTÍSKA
ordlaus@bladid.net
LAUGARDAGUR 30. JÚNI 2007
Þegar maður vill kaupa sér
eitthvað sérstakt er voða
gaman að finna eitthvað úr
íslenskri hönnun.
HVAR KAUPIR ÞÚ FÖTIN ÞÍN?
Ekki mikið
verslunarfrík
„Ég kaupi fötin mín aðallega í
útlöndum. Yfirleitt þegar ég fer
út þá hef ég tíma og næði til þess
að versla og nenni því frekar,“
segir Selma Björnsdóttir spurð
um þær verslanir sem hún verslar
helst í. „Ég á það reyndar til að
versla hér heima og þá aðallega ís-
lenska hönnun eins og til dæmis
Júníform eða Kvk. Þegar maður
vill kaupa sér eitthvað sérstakt
er voða gaman að finna eitthvað
úr íslenskri hönnun. En auðvitað
fer ég og kaupi flík og flík í búð-
unum hérna heima. Annars er ég
bara ekki mikið verslunarfrík í
mér.“
Kaupir það
sem er flott
,Ég versla nú ekkert alltof mikið
og því erfitt að nefna einhverja
uppáhaldsverslun. Þegar ég
kaupi föt þá kaupi ég það sem
mér finnst flott og það sem er
ekki of dýrt,“ segir leikstjórinn
Reynir Lyngdal, sem segist þó
versla hvað mest erlendis. „Vegna
vinnu minnar þarf ég að ferðast
mikið og er því svo heppinn að
geta komist í verslanirnar úti.
Það eru engar ákveðnar búðir
sem standa upp úr, aðallega H&M
og svo kannski eitthvað fínna
þegar maður er í stuðinu og á
fyrir því. En yfirleitt þarf að vera
pínu tilefni til að ég fari og versli.1
Liz Claiborne
Sumarleyfisfatnaður Calvin Klein
Rautt, hvítt og
bleikt í sumar
látin
Tískufrömuðurinn Liz Claiborne
lést síðastliðinn þriðjudag eftir
að hafa háð langa baráttu við
krabbamein. Hún stofnaði
tískufyrirtæki undir eigin nafni
á áttunda áratugnum og haslaði
sér fljótlega völl í tískuheim-
inum. Liz hefur í gegnum árin
selt fatnað fyrir billjónir dollara
og getið sér gott orð fyrir merki
á borð við Lucky Brand Jeans,
Mexx, Ellen Tracy og Juicy
Couture. Fyrirtækið lagði fljót-
lega áherslu á fatnað fyrir hina
týpísku framakonu með áherslu
á klassík, fágun og yfirvegun
og varð Liz hvað frægust fyrir
þess konar fatnað. Þá þótti hún
ósjaldan með þeim flottari á
rauða dreglinum en hún lagði
línurnar fyrir margar stjörnur
dagsins í dag.
Tískuhátíð
í New York
Jennifer Lopez, Aerosmith, Usher
og Alicia Keyes hafa boðað komu
sína á tónleika og tískuviðburð-
inn Fashion Rocks sem fer fram í
New York þann 6. september næst-
komandi, en árlega mætast þar
tónlistarmenn og tískuhönnuðir
á miðri leið þar sem hönnuðir
sýna fatalínur sínar við undirleik
þekktra tónlistarmanna. Avril La-
vigne, Fergie og Ludacris munu
einnig koma fram í Radio City
Music Hall en kynnir kvöldsins
verður leikarinn Jeremy Piven
sem er hvað frægastur fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttunum
Entourage.,___________________
Ef marka má nýjustu línu frá meistara
Calvin Klein er Ijóst að rauður, bleikur
og hvítur eru áberandi í sumarklæð-
unum þetta árið. Calvin Klein hélt svo-
kallaða sumarleyfistískusýningu á dög-
Litríkir skór Það er lykil- Töskur í öllum stærðum
atriði að velja fallega skó í Það er engin kona með
flottum og sumarlegum litum. konum nema hún eigi nokkrar
Skærbleikir skór eru til dæm- töskur í fallegum litum. Calvin
is alveg málið í sumar. Klein sýndi ófáar töskurnar
sem voru hver annarri flottari.
Rautt og kvenlegt Rauði lit- Sundfatatískan Það er allt
urinn kemur ósjaldan á óvart leyfilegt í sundfatnaðinum
þegar kemur að fínum kjólum. og óhætt að prófa sig áfram.
Það er um að gera að brydda Hvort sem um er að ræða
upp á skemmtilegheitum og sundbol eða bikiní eru allir lit-
skera sig svolítið úr... ir inni og hinar ýmsu útgáfur.
unum og sprönguðu fyrirsæturnar um í
fatnaði sem stílaður er inn á sumarfríið
í ár. Það er því ekki vitlaust að sanka
að sér klæðum í þessum skemmtilegu
litum áður en haldið er í sumarfríið.
Klassíkin I hávegum höfð
Hvítar dragtir koma vel út í
sumar. Það verða allar konur
að eiga allavega einn hvitan
jakka sem nota má við buxur
eða pils.
Skyrturnar girtar ofan I
buxurnar Skyrtur virðast allt-
af standast timans tönn. I ár
þykir flott að girða skyrturnar
ofan í buxur og prófa þær
jafnvel við stuttbuxurnar líka.
Bleikur og stelpulegur
Bleikir kjólar eru áberandi í ár
eins og fram kemur i nýjustu
línu Calvin Klein.
Fyrir þær sem þora Það er
kannski ekki á allra færi að
skella sér í múnderingu sem
þessa en þær sem þora ættu
hiklaust að gera sér daga-
mun og prófa bleikar buxur.
Stone sú
verst klædda
Breska söngkonan Joss Stone
hefur verið valin ein af þeim
verst klæddu í bransanum af
bandaríska tímaritinu In Touch.
Söngkonan er þekkt fyrir lit-
ríkan og líflegan klæðaburð og
þykir mörgum hún fara reglu-
lega yfir strikið í fatavali sínu.
Stone skýtur þar með stjörnum á
borð við Britney Spears og Kelly
Clarkson ref fyrir rass, en þær
hafa áður verið valdar þær verst
klæddu í bransanum af tískuspek-
ingum ytra.
Spennandi
snyrtivörur
í snyrtibuddunni að þessu sinni
eru skemmtilegar vörur sem auð-
velt er að mæla með fyrir allar
konur sem kjósa að líta vel út.
Sensuelle Summer Húð-
mjólkin frá Lancöme inni-
heldur efni sem gera húðina
fallega gyllta og sumarlega
ásamt því að veita henni
raka og næringu. Húðin
verður geislandi, mjúk og
fær sérstaklega fallega
áferð.
Star Bronzer Virkilega
gott brúnkukrem frá
Lancöme sem hentar vel
til þess að gefa andlitinu
sólbrúna og fallega áferð
Kremið er mjúkt og
auðvelt er að bera það á
þar sem það hefur púð-
urkennda áferð. Tilvalið
til þess að gefa húðinni
ferskan blæ í sumar.
m
Continuous
Rescue Continuous
Rescue Antioxidant
frá Clinique gefur
húðinni góðan raka
og mikla næringu.
Kremið ver húðina og
dregur úr fínum línum
og andoxunarefni
draga úr sjáanlegum
merkjum öldrunar.
Ótrúlega gott krem fyrir
vannærða húð.
Modern Friction-andlitsmaski Mod-
ern Friction-maskinn frá Origins er sér-
lega rakagefandi og nærandi fyrir húðina.
Maskinn endurnýjar húðina og hreinsar í
burtu dauðar húðfrumur og önnur óhrein-
indi úr andlitinu. Húðin verður eins og ný
auk þess sem andlitið fær á sig hressara
yfirbragð.