blaðið - 17.08.2007, Blaðsíða 24
SAMbio.is „
SAMWm
NÝJASTA MEIS
PIXAROG
EMMA ROBERTS
Nancy
'Drew
ÓVÆNTASTA
4S0 kr. (Uil Glldtr t alter sýninsar iBFkttr ntð raaðvl
HEenBOEinn
smúm
iKÓLABÍÓ
ÞEIRRA STRIÐ. OKKAR HEIMUR
Ratatouílle fi
RUSH H0UR 3 kl.4, e.BoglOFOWER
RATATOUILLEisUal kl. 3.45 og 5.45 L
TRANSF0RMERS kl. 7og10 10
PLANETTERR0R kl. 8 og 10.20 16
SIMPS0N fcáensktal kl.4 L
RUSH H0UR 3 W. 3.45,550,8 og 10.10
RUSH H0UR 3 LÚXÚS M. 3.45,550,8 og 10.10
SIMPS0N enskttal kl. 4,6,8 og 10 L
SIMPS0N Islenskttal kl. 4,6 og 8 L
EVAN ALMIGHTY kl. 4 og 6 L
DIEHARD4.0 kl.8oa10.45 14
DEATH PR00F kl. 10 16
RUSH H0UR3 kl. 6,8.10OP12-K
THEINVISIBLE kl. 10 14
SIMPSONenskttal kl.8 L
SIMPS0N íslenskt tal 1Ú76 L
RUSH HOUR 3 kl.6.30,8.30 og 10.30
SIMPS0N enskttal kl. 8 oq 10 L
SIMPSON islenskttal kl.6 L
BECOMING JANE kl. 5.30, 8 og 10.30 L
Úf ÁLFABAKKA
RATAT0UILLE kl. 3-5:30-8-10:30
RATATOUILLE W.8
RATATOUILLE i.v-ISLTAL kl. 3 - 5:30
KN0CKED UP kl. 8 FORSÝNÐ 12
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 -10:30 10
TRANSF0RMERS kl. 5-8-10:50
NANCY DREW kl. 6-8:10-10:20 7
GE0RGIA RULES M.8 7
HARRY PÖTTER 5
SHREK3W-ISLTAL w.3-4-6
0CEANS13 kl. 10:30 7
W KRINGLUNNI
RATAT0UILLE kl. 8-10:30
RATATOUILLE w/ÍSLTAl kl. 4:30-5:30
TRANSFORMERS kl. 8-10:40 10
HARRY POTTER 5 kl. 4:30-8 10
GEORGIA RULES kl. 10:40
HíMíHS^k AKUkfffil
RATATOUILLE '.'/-ÍSLTAL W.6
RATATOUILLE kl. 8-10:15
TRANSFORMERS kl. 6-9 10
aíimS IWUFIAVÍK
RUSH H0UR3 kl.6-8-10 12
RATATOUILLE M/-ÍSLTA1 kl.6
TRANSF0RMERS kl.9 7
RATATOUILLE I//-ÍSLIAL kl. 5:40
RATAT0UILLE kl.8
THE TRANSFORMERS 1(1.8-11 10
SIMPSONS THE M0VIE W.6 10
BLIND DATING kl. 10:30 10
SICKO M. 5.30,8,10.30 7
DEATH OF A PRESIDENT W.8
THE BRIDGE W. 10.30 16
DELIVER US FR0M EVIL M.530 14
GOYA'S GHOSTS kl. 550
zoo W. 8 16
FAST FOOD NATION W.1050
SIMPSON enskt tal W. 6 L
DEATH PROOF W. 8 og 10.20 16 !
FOSTUDAGUR 17. AGUST 2007
blaöió
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Það er í mörg horn að líta og við
viljum vanda okkur. Það er ekki nóg
að segjast ætla að safna peningum
gegn fíkniefnum og láta þar við sitja.
Kristján Knútsson er sigurstranglegur í pylsuátskeppni Rvk FM
Torgaði þrjátíu tommu pitsu
„Ég er búinn að vera á stífum pylsukúr undanfarið,"
segir Kristján Knútsson vörubílstjóri, en hann er talinn
með þeim sigurstranglegri á Islandsmeistaramótinu í
pylsuáti sem útvarpsstöðin Rvk FM 101,5 stendur fyrir
á Menningarnótt. „Maður verður að leggja sig í þetta,
það er titill í húfi.“
Keppnin fer fram á Dillon klukkan 18.05 á laugardag.
Undankeppnir hafa verið haldnar daglega í í Bonham-
þættinum, en þar hafa keppendur fengið 3 mínútur til
að torga fimm pylsum í brauði. „Þegar íslandsmeistara-
titill er í húfi leggur maður allt í sölurnar," segir Krist-
ján. „Ég náði að torga 22 pylsum í gær - ég tók reyndar
ekki tímann á því.“
Kristján er ekki óvanur átkeppnum, en hann kveðst
hafa torgað heilli 30 tommu pitsu í félagsmiðstöðinni
Miðbergi fyrir sex árum. „Ég stútaði 30 tommu pitsu
Vel undirbúinn
Kristján borðaði
22 pylsur í gær.
Blaðiö/Frikki
og veistu hvað ég fékk í vinning? Pitsuveislu,“ segir
hann og hlær. „Eg man að ég var svo stútfullur að ég
fékk meira að segja hægðatregðu eftir þetta. Maður var
alveg stíflaður, það var svo mikið af mat í maganum á
manni.“ atli@bladid.net
Vinir Susie Rutar beita sér fyrir átaki gegn fíkniefnavandanum
Hlaupið gegn eitri
Bílabíó á
Vellinum
1.500 bílar komast
fyrir í skýlinu sem
var í eigu hersins
Aðstandendur Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar sem fer fram
dagana 27. september til 7. október
hafa ákveðið að bjóða kvikmynda-
unnendum upp á bílabíó, en kvik-
myndin American Graffiti verður
sýnd í stærstu byggingu landsins,
flugskýli á varnarsvæðinu við Kefla-
víkurflugvöll sem var áður í eigu
Bandaríkjahers. Áætla má að um
1500 bílar komist fyrir í skýlinu og
því ættu flestir að komast að.
Ógleymanleg tónlist
Kvikmyndin American Graffiti er
eftir George Lucas en myndin gerist
árið 1962 og er að margra mati með
því amerískasta sem gerist. Myndin
segir frá fjórum vinum sem ákveða
að rúnta um bæinn og njóta lífsins
til fulls síðasta kvöld sumarsins en í
aðalhlutverkum eru meðal annarra
Harrison Ford og Richard Dreyfuss.
Ógleymanleg tónlist í meðförum
útvarpssnúðsins Wolfmans Jacks
bindur myndina saman og hefur
lifað góðu lífi ein og sér áratugum
eftir að myndin kom út. Hljóðrás
myndarinnar verður útvarpað á sýn-
ingunni og verður tíðnin nýtt allan
daginn undir bandaríska tónlist frá
sjöunda áratugnum.
Vinir Susie Rutar Einars-
dóttur sem lést þann 18.
júní síðastliðinn hafa í
sumar kynnt sér málefni
fíkniefnaneytenda á ís-
landi, en minningarsjóður
í hennar nafni hefur verið
stofnaður.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Einn þeirra fjölmörgu aðila sem
þátttakendur i Reykjavíkurmara-
þoni Glitnis geta heitið á er Átak
gegn eiturlyfjum, minningarsjóður
um Susie Rut Einarsdóttur sem
lést aðeins 22 ára að aldri. í sumar
hafa vinir hennar kynnt sér málefni
fíkniefnaneytenda og hafa fundað
með fjölda sérfræðinga sem þekkja
til þeirra mála. Með þeim sam-
tölum vill hópurinn gera sér grein
fyrir hvar helst skorti á úrræði eða
aðgerðir í þessum málum og beita
sér eftir því sem tök eru á. Að sögn
Bolla Thoroddsen er markmiðið
með sjóðnum að styðja við verk-
efni, sem annars vegar stuðla að
forvörnum gegn notkun eiturlyfja
meðal ungs fólks, einkum í áhættu-
hópum, og hins vegar við verkefni
til stuðnings þeim sem hafa lent á
braut eiturlyfja og vilja vinna sig út
úr því.
Ekki nóg að segjast
„Við ákváðum að gera þetta í
sumar eftir að þetta atvik átti sér
stað og við höfum verið að kynna
Miller heilluð
af Bean
Leikkonan Sienna Miller reynir
allt hvað hún getur að heilla
mótleikara sinn, Sean Bean, upp
úr skónum en hann er einna
þekktastur fyrir hlutverk sitt í
Lord of the Rings. Miller sem er
aðeins 25 ára gömul gerir lítið
úr aldursmuninum en Bean er
48 ára gamall og þriggja barna
faðir. „Hún er algjörlega heilluð
af honum og vill kynnast honum
betur,“ segir vinkona stjörn-
unnar. Leikararnir kynntust við
undirbúning kvikmyndarinnar
A Woman of No Importance sem
byggð er á skáldsögu Oscars
Wilde en tökur á myndinni munu
hefjast í september.
okkur þessi mál ítarlega," segir Bolli
sem er einn þeirra sem að minn-
ingarsjóðnum koma. „Við höfum
hitt marga sérfræðinga landsins í
þessum málaflokki og höfum kynnt
okkur vel þau meðferðarúrræði sem
eru í boði á íslandi og hvað tekur
við eftir að meðferð lýkur. Það er
í mörg horn að líta og við viljum
vanda okkur. Það er ekki nóg að
segjast ætla að safna peningum
gegn fíkniefnum og láta þar við
sitja. Það hefur þess vegna ekki end-
anlega verið gengið frá því til hvaða
verkefna fé sjóðsins mun renna. En
minningarsjóðurinn hefur nú þegar
vakið mikla athygli. Það buðust til
dæmis tveir ungir tónlistarmenn til
þess að halda styrktartónleika fyrir
okkur í byrjun ágúst og nú þegar
hafa mörg fyrirtæki boðist til þess
að styrkja málstaðinn án þess þó að
við séum búin að kynna nákvæm-
lega hvað verður gert. Þannig að
þessi fíkniefnaumræða hefur fengið
mikinn hljómgrunn og það er mikil-
vægt að svo verði áfram.“
Þeir sem eiga eftir að skrá sig í
Reykjavíkurmaraþon Glitnis og
vilja heita á Átak gegn eiturlyfjum,
minningarsjóð um Susie Rut Einars-
dóttur, geta skráð sig í Laugardals-
höll í dag á milli klukkan 12 og 21.
Spears stendur
í ströngu
Britney Spears stendur í erfiðri
forræðisdeilu og er á barmi
taugaáfalls að sögn hennar nán-
ustu sem segja stjörnuna óttast
að missa drengina sína tvo, en
fyrrverandi eiginmaður hennar,
Kevin Federline, segir hana vera
óhæfa móður og vill fá fullt for-
ræði yfir drengjunum. Fyrrver-
andi barnfóstra strákanna ber
Spears ekki vel söguna og sagði í
viðtali við National Enquirer að
Spears hugsaði illa um drengina
og væri þeim slæm fyrirmynd þar
sem hún ætti það til að neyta mik-
ils magns áfengis í kringum þá
og kæmi reglulega með ókunna
menn með sér heim.