blaðið - 17.08.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007
blaðið
Gengið
hélt áfram
að lækka
Gengislækkanimar
líklega ekki búnar
„Þessar lækkanir á markaðinum
sem við höfum séð á síðustu
tveimur vikum hafa verið að halda
áfram,“ segir Ásgeir Jónsson, for-
stöðumaður
greiningar-
deildar Glitnis,
en gengi
íslensku krón-
unnar lækkaði
umtalsvert í gær.
íslenska
króna veiktist
um þrjú prósent
í gær. Úrvalsvísitalan lækkaði um
3,84 prósent á sama tíma.
„Það sem gerðist var að lækkan-
irnar leiddu yfir til Asíu og mark-
aðanna þar. Sú lækkun leiddi síðan
hingað. Það lækkuðu eiginlega allir
markaðir við opnun í [gærjmorgun.
Það fór að snerta við hávaxta-
löndum og þá fór þetta að hafa
áhrif á fasteignaviðskipti. Þar sem
krónan er hávaxtamynt þá varð
hún eðlilega fyrir áhrifum af þessu."
Ásgeir segir gengislækkanirnar
líklega ekki búnar. „Lækkanirnar
voru yfir alla línuna í dag. Það er
ekki hægt að færa rök fyrir því að
markaðurinn hafi verið að refsa ein-
hverjum sérstökum fyrirtækjum
heldur lækkaði allt.“ þsj
STUTT
• Verðbólgumarkmið Samtök
atvinnulífsins telja nauðsyn-
legt að endurskoða verðbólgu-
markmið Seðlabanka íslands
eins og það var upphaflega
sett fram með samkomulagi
bankans og ríkisstjórnarinnar
27. mars 2001. hos
• Gagnrýni Þingflokkur Frjáls-
lynda flokksins hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem hann
átelur seinagang ríkisstjórn-
arinnar við að móta tillögur
um mótvægisaðgerðir vegna
niðurskurðar þorskveiðiheim-
ilda. „Þingflokkurinn hafnar því
að eins milljarðs króna framlag
til Byggðastofnunar sé liður í
mótvægisaðgerðum." hos
• Arnkötludalur Reykhóla-
hreppur mótmælir vinnu-
brögðum Vegagerðarinnar við
lagningu Arnkötludalsvegar í
Gautsdal. Er krafist skýringa
á því hvers vegna vegurinn er
færður til um 60 til 70 metra
frá veglínunni sem fór í um-
hverfismat. Fréttavefurinn
bb.is greindi frá.
Enn sóðar á ferð um Vatnsendahæð
Matarveisla fyrir máva og hunda
Enn hendir fólk rusli sínu á Vatns-
endahæð, eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd. I síðasta mánuði var
sagt frá því í Blaðinu að algengt sé
að fólk sem ætlar að henda rusli
í starfsstöð Sorpu bs. í Jafnaseli,
hendi því á hæðinni fyrir ofan ef
stöðin reynist lokuð.
„Það er alltaf fullt af rusli á hæð-
inni fyrir ofan húsið okkar," sagði
Kristjana Jónatansdóttir, íbúi í Jóru-
seli í Breiðholti. Hún segist oft sjá
fólk sturta úr heilu bílkerrunum á
hæðinni á þeim tíma sem Sorpa er
lokuð, og Björn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpu, viðurkennir
að um þekkt vandamál sé að ræða.
Fullir ruslapokar skildir eftir
Það virðast þó fleiri en viðskipta-
vinir Sorpu skilja eftir rusl á hæð-
inni. Að þessu sinni höfðu þrír fullir
ruslapokar með matarúrgangi verið
skildir eftir, en slíkum úrgangi
tekur Sorpa ekki við. Hundaeigandi
sem hafði samband við Blaðið vegna
málsins, en vill ekki láta nafns síns
getið, segir hund sinn nánast undan-
tekningarlaust finna sér góðgæti í
ruslapokum þegar hún viðrar hann
á Vatnsendahæð.
Á hæðinni er stórt mávavarp og
sjást mávarnir iðulega róta í rusla-
pokum á hæðinni. „Ef menn vilja
fækka máv í borgarlandinu væri rétt-
ara að skjóta þessa sóða heldur en
mávana,“ sagði áðurnefndur hunda- f Öskjuhlíðinni Sjá mátti
eigandi við blaðamann Blaðsins. rusl á víðavangi í gær og fóru
hlynur@bladid.net mávar og hundar í afganga.
s
Utlendingar 40 prosent
starfsmanna við umönnun
■ Frábær vinnukraftur en menningarlegt vandamál ■ Bíða eftir efndum kosningaloforða
um hærri laun umönnunarstétta ■ Segir hlutfall útlendinga ekki mega verða öllu hærra
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Yfir 40 prósent starfsmanna við
umönnun á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum eru af erlendum
uppruna. Svipaður fjöldi útlendinga
starfar við umönnun á hjúkrunar-
heimihnu Skjóli.
„Öðruvísi verða þessi heimili ekki
rekin,“ segir hjúkrunarforstjórinn á
Skjóli, Aðalheiður Vilhjálmsdóttir.
í.Iún leggur áherslu á að erlendu
starfstúlkurnar séu frábær vinnu-
kraftur. Hins vegar sé það erfitt
gagnvart gamla fólkinu að hafa svo
marga útlendinga við störf.
„Erlendir starfsmenn halda ekki
uppi samræðum við gamla fólkið.
Það fær vissa þjónustu en getur ekki
spjallað við starfsmennina. Við
leggjum upp úr því að starfsmenn
spjalli við heimilisfólk á meðan
verkin eru unnin. En vandamálið
er ekki bara málfarslegt, heldur
menningarlegt. Þótt erlendir starfs-
menn hafi búið hér lengi eru þeir
ekki til í að spjalla um ættfræði og
þess háttar sem gamla fólkið hefur
áhuga á,“ greinir hún frá.
Fagfólk skortir
Aðalheiður segir mönnun ganga
betur nú en í fyrrahaust. „Ástandið
er stöðugra. Við erum með frá-
bæran hóp af starfsmönnum en
okkur skortir helst fagfólk, eins og
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Það er barist um það.“
Aðalheiður segist bfða eftir
UMÖNNUNARSTÖRF
► Meðaldagvinnulaun starfs-
fólks í umönnunarstörfum
hækkuðu í 156 þúsund
krónur á mánuði í fyrra,
samkvæmt könnun sem
Gallup gerði í september síð
astliðnum. í mars 2005 voru
meðaldagvinnulaunin 126
þúsund krónur á mánuði.
► Samkvæmt könnun Gallups
í fyrra segjast 56 prósent
starfsfólks við umönnun
vera mjög eða frekar ósátt
við laun sín. í könuninni
2005 kváðust 74 prósent
vera mjög eða frekar ósátt
við launin.
efndum kosningaloforðanna um
hækkun launa umönnunarstétta.
„En við erum ekki að passa peninga,
heldur fólk og sálir.“
Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunar-
forstjóri á Droplaugarstöðum, segir
mönnun í umönnunarstörf hafa tek-
ist í kjölfar t mánaðar íslenskunám-
skeiðs á vegum heimilisins, Rauða
krossins og Alþjóðahússins fyrir Pól-
verja. „Þeir sem hafa lært íslensku í
mánuð tala náttúrlega ekki fljúg-
andi íslensku en þeir gera miklar
kröfur til sín og aðrir íslenskumæl-
andi Pólverjar við störf hér eru þeim
og okkur til aðstoðar."
(slendingum fækki ekki
Það er mat Ingibjargar að hlutfall
erlendra starfsmanna megi ekki
verða öllu hærra en 40 prósent, eins
og það er nú. „Auðvitað verðum við
að hafa fólk sem talar íslensku. Við
getum ekki verið með marga í einu
sem eru að ná tökum á málinu.“ Eins
og á Skjóli vantar hjúkrunarfræð-
inga í störf á Droplaugarstöðum.
Á Hrafnistu í Reykjavík vantar 20
stöðugildi i umönnun og 10 á Hrafn-
istu í Hafnarfirði. Á Vífilsstöðum er
fullmannað. „Þetta var miklu verra
í fyrra. Margt sumarafleysingafólk
ætlar að halda áfram nú. ímyndar-
herferð okkar í vor, með myndum
af starfsfólki og heimilisfólki á
auglýsingum, skilaði jafnframt
árangri,“ segir Alma Birgisdóttir
hjúkrunarforstjóri.
Erlendir starfsmenn í umönnun á
Hrafnistu eru 8 prósent. Þar er gerð
sú krafa að þeir skilji íslensku og geti
tjáð sig á íslensku. „Það er kannski
þess vegna sem okkur vantar oftar
starfsmenn í aðhlynningu en aðrar
stofnanir,“ segir Alma.
Á Grund eru erlendir starfsmenn
í aðhlynningu 20 til 30 prósent.
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
paietL
Hjá okkur færðu flott föt fyrir skólann.
Opið frá 10- 21 á menningarnótt
VEÐRIÐ í DAG
Skýjað með köflum
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með
köflum eða bjartviðri, en stöku síðdegis-
skúrir á Suðurlandi. Hiti 11 til 16 stig sunnan-
lands, en mun svalara fyrir norðan.
ÁMORGUN
Skúrir suðaustanlands
Hæg vestlæg eða breytileg átt og skýjað
með köflum, en smá skúrir suðaustanlands.
Hiti 8 til 13 stig.
VIÐA UM HEIM
Algarve 25
Amsterdam 17
Ankara 32
Barcelona 27
Berlln 22
Chicago 25
Dublin 15
Frankfurt 23
Glasgow 15
Halifax 22
Hamborg 16
Helsinkl 24
Kaupmannahöfn 20
London 17
Madrid 29
Mílanó 30
Montreal 17
Miinchen 18
New York 26
Nuuk 8
Orlando 25
Osló 21
Palma 26
París 19
Prag 19
Stokkhólmur 20
Þórshöfn 11
Framkvæmdastjóri VSP
Farbann
framlengt
Farbann yfir Viggó Þ. Þóris-
syni, framkvæmdastjóra Verð-
bréfaþjónustu sparisjóðanna
(VSP), hefur verið framlengt
um tvo mánuði.
Efnahagsbrotadeild ríkis-
Iögreglustjóra rannsakar
tilhæfulausa 12,6 milljarða
króna ábyrgðaryfirlýsingu
sem Viggó veitti fyrirtæki í
Bandaríkjunum. Málið komst
upp um miðjan apríl eftir
innanhússrannsókn hjá VSP
og var Viggó umsvifalaust sagt
upp störfum.
mge
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiöréttingar birtast aö jafnaði á síðu 2.