Bændablaðið - 25.01.2005, Qupperneq 1
Auglýsingasíminn er 563 0300
Netfang augl@bondi.is
Næsta blað kemur
út 8. febrúar
Farmallinn
sextugur á
Íslandi
Upplag Bændablaðsins
13.000
Þriðjudagur 25. janúar 2005
2. tölublað 11. árgangur
Blað nr. 210
Gláma
mjólkaði mest
19
Fræðaþing
2005
13 og 21
Svínabændur íhuga
innflutning á kjarnfóðri
Hækkar verð á raforku?
Norðmenn funda með
íslenskum svínabændum
Sem kunnugt er hafa norsk
kynbótasvín verið flutt inn til
Íslands um nokkurra ára skeið.
Síðast voru flutt inn svín í ný-
liðnum desembermánuði og
tókst hann í alla staði mjög vel.
Í norska svínaræktarfélaginu er
sjálfstæð deild, Norsvin Inter-
national, sem sér um sölu kyn-
bótadýra á erlenda grund. Tveir
fulltrúar deildarinnar heim-
sóttu svínabændur nú í janúar,
forstjórinn Øystein Jørem og
Bjarne Holm kynbótafræðing-
ur. Ásamt því að funda með for-
ystumönnum svínabænda og
ráðunauti í svínarækt heimsóttu
þeir svínabúið Hýrumel á Vest-
urlandi hjá Gunnari Ásgeiri
Gunnarssyni og Karvel Karv-
elssyni.
Á fundinum var m.a. farið yfir
síðasta innflutning á svínum frá
Noregi og hvernig standa skyldi
að næstu innflutningum á dýrum
til Íslands. Fundurinn var ákaflega
gagnlegur og komu margar góðar
hugmyndir fram. Kemur m.a. til
greina að svínabændur fari í
námsferð til Noregs í vor til þess
að kynna sér betur hvernig staðið
er að kynbótum þar í landi ásamt
uppeldi og fóðrun ásetningsdýra.
Norska svínaræktarfélagið hefur
skipulagt mörg námskeið fyrir
svínabændur í sínu heimalandi og
mun heimsókn í skóla þeirra án
efa efla þekkingu svínabænda hér
á landi enn frekar á umhirðu
norskra kynbótadýra. /KK
Helgi Jóhannesson, formaður
Sambands garðyrkjubænda,
segir í samtali við Bændablaðið
að ef sú raforkuhækkun sem við
blasir á landsbyggðinni gangi
eftir muni margar garðyrkju-
stöðvar leggjast af. Helgi segir
að ef ekkert verði gert nemi raf-
orkuhækkunin 40-45 milljónum
króna hjá þessum notendahópi
frá því sem verið hefur.
,,Þetta getur ekki farið svona
fram, það sjá allir. Þegar við vor-
um með raforkumálin í þinginu
höfðu margir efasemdir uppi en
svarið frá iðnaðarráðuneytinu var
alltaf á þá leið að engin hækkun
yrði. Nú hefur annað komið í ljós
og það er ekki hægt að láta þetta
fara svona," sagði Drífa Hjartar-
dóttir, alþingiskona úr Suðurkjör-
dæmi.
Hún bendir á að auk garð-
yrkjustöðvanna verði raforku-
hækkun hjá fiskeldisstöðvunum
og heimilum þar sem fólk hitar
hús sín með rafmagni en þar verði
25% hækkun. Drífa segir að um
þessar mundir sé verið að fara yfir
þessi mál í iðnaðarráðuneytinu.
,,Síðan þarf að taka ákvörðun í
ríkisstjórninni um aukinn styrk til
þeirra sem verða fyrir þessari
miklu raforkuhækkun. Það er ljóst
að þingmenn munu þrýsta á um
úrbætur í þessum efnum," sagði
Drífa Hjartardóttir.
Helgi Jóhannesson segir að
gamli rafmagnstaxtinn hafi verið
framlengdur út janúar en þá taki
sá nýi við sem sé þegar tilbúinn.
Áður þurftu garðyrkjubændur ekki
að greiða svokallað aflgjald en nú
eru engin sérkjör veitt og því mun
raforkan hækka um 40-45 milljón-
ir króna til garðyrkjustöðvanna.
Hann segir að það sé dálítið
breytilegt milli stöðva hve hækk-
unin verði mikil og fari eftir notk-
un.
,,Í nokkrum tilfellum verður
um tugprósenta hækkun að ræða
ef engar breytingar verða gerðar,"
sagði Helgi Jóhannesson.
Atvinnulíf á lands-
byggðinni í hættu
Nokkrir svínabændur hafa afl-
að sér tilboða í að kaupa heila
skipsfarma erlendis frá til þess
að ná niður fóðurkostnaði.
Hugmyndin er að skipið sem
fengið yrði til að flytja kjarnfóðr-
ið færi umhverfis landið og los-
aði það á nokkrum höfnum. Það
sem málið hefur aðallega strand-
að á til þessa er að það vantar
korntanka úti á landi. Stofnkostn-
aður yrði því nokkuð mikill. En
nú er svo komið að menn virðast
tilbúnir til að taka þennan slag.
Bændablaðið hefur heimildir
fyrir því að nokkuð langt sé síðan
þessi hugmynd fæddist hjá svína-
bændum og að þeir hafi unnið að
málinu í kyrrþey til þessa. Um-
ræðan hefur eflst mjög að undan-
förnu og samkvæmt heimildum
blaðsins fara svínabændur nú al-
varlega yfir málið.
Sjá nánar um fóðurmál bls 11.
Mynd: Birna Baldursdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir virðir fyrir sér risa grýlukerti í Flúðanefi austan við Vík í Mýrdal. Mynd: Jónas Erlendsson
Klakaströnglar á þorra
Sjá á bls. 8