Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 14

Bændablaðið - 25.01.2005, Síða 14
14 Þriðjudagur 25. janúar 2005 Árið 1969 afkvæmarannsókn nr. 12, stóðhesturinn: Blesi 598 frá Skáney, Reykholts- dalshreppi, Borgarfjarðarsýslu. Rauðblesóttur, f. Marinó Jak- obssyni, árið 1958. F Roði 453 frá Ytra-Skörðugili M Gráblesa frá Skáney. Kynbótadómur 1966 L.M. Hólar Hjaltadal: 8,50 8,32 8,41 og 1.verðlaun. Eigandi: Marinó Jakobsson bóndi, Skáney, Borgarfirði. Tamingar: Frá 08/07 - 07/09 ´69 (61 dagur á hross = 14 tamninga- mán.) á tamningastöð á Skáney. Fjöldi afkv. 7, aldur 4.0 ár, hæð/band: 139,6 cm, hæð/stöng: 131,4 cm M.t. einkunna: f. bygg- ingu: 7,65 f. hæfileika: 6,90 aðal- einkunn: 7,28 Fóðrun og umgengni: Sumart- amning. Trippi í tamningu eru öll frá Skáney: Litla- Rauðka, Nasi, Snerrir, Glói, Sóti, Rökkvi og Gló- blesi, 3ja v. graðhestur. Tamningmaður: Bjarni Marinós- son, Skáney. Framlag: kr. 24.000,00 Úttekt fór fram: 7. sept. 1969. Matsmenn: Þorkell Bjarnason, Leifur K. Jóhannesson og Guðm. Pétursson. Umsögn: Afkvæmi Blesa 598 eru fremur smá, fínbyggð og unggæð- ingsleg að þroska, enda ekkert þeirra eldra en 4ra vetra. Fríð trippi, vel prúð, selhærð, hálsinn meðalreistur og hvelfdur mak- kinn. Herðar breiðar, full lágar, bakið liðlegt, lend jöfn, vel gerð, bolur þéttur, ekki lofthá. Fætur eru liprir, fremur réttir, hófar stinnir, sléttir, vel djúpir. Trippin eru lipur í vilja, gang- lagin, hreingeng og laus við kjagg, öll brokka þokkalega, mjúk á tölti og skeið kemur til. Fótaburður snoturlegur. Þau temjast mjög vel, eru fljót að læra, enda lundin lífleg og þjál, sem er heilladrýgsta ein- kenni hópsins. Samantekið: Blesi 598 gefur fjölhæf og á margan hátt ágæt hross, sem eru prúð, fríð, fínbyggð og góðgeng, á þeim er ljúflings- bragur. Eftirmáli: Móðir Blesa 598 var Gráblesa fædd í Skáney, ótamin en spengileg stóðhryssa, en lang- amma hennar var þó Jónatans-Jörp frá Aðalbóli í Miðfirði. Blesi kom fram í Skógarhólum fjörurra vetra sumarið 1962, stóð sig þar mjög vel, a.e. 8,10 umsögn: "Frítt og viljugt alhliða gæðingsefni." Mér býður í grun að þarna hafi orðið besta sýningin á Blesa, hann stakk svo í augu, mjög eigulegur, bolfal- legur og mjúk- byggður. Að Faxa- borg, 1965, fær Blesi í a.e. 8,02 og í umsögn segir m.a: "sérstaklega er hann lundgóður og hefur því mikla kosti góðs undaneldishests." Á LM að Hólum í Hjaltadal, árið 1966, fékk Blesi í a.e. 8,41, sem einstaklingur, bætti dóminn og hlaut efsta sætið. Hann var sjálfum sér líkur, engar sviftingar, en heldur svifaþyngri. Sennilega hefur sýningaframinn litlu breytt í viðhorfi til hans. Á Hólamótinu var Blesi 598 að sjálfsögðu öflugur burðarás í af- kvæmahópi föður síns, Roða 453 frá Ytra-Skörðugili, en í umsögn Roða 453 segir m.a: Fríð, prúð, fremur finbyggð, mjúkvaxin, lund- góð, þæg. Allur gangur, brokka vel, tölt skeiðborið, góð vekurð. Prúðleiki og frjálsleg framganga einkenna hópinn. Eink 8,21, heið- ursverðlaun og Roði efstur af- kvæmasýndra stóðhesta og vann "Sleipnisbikarinn", sem er æðsta viðurkenning í hrossarækt, heið- ursverðlaun Búnaðarfélags Ís- lands. Því er ég að tíunda þessi mál hér að um flest er Blesi 598 líkur föður sínum Roða 453, þessi öðl- ings framganga, stærðin, prúðleik- inn, ganglagið, en lundarfarið var þó happasælla í Blesa. Hér að ofan er sagt frá af- kvæmaprófun 1969 á Blesa, sem reiðhestaföður. Árið eftir, 1970, kom Blesi til afkvæmadóms á LM í Skógarhólum, þar sem 7 stóð- hestar kepptu til og náðu 1.verð- launum og hlaut þar 6. sætið. Dómsorð: "Afkvæmi Blesa eru fríð og mjúkbyggð en vantar oft meiri reisn í frambyggingu. Fætur eru fallegir að mestu réttir. Vilji þægilegur en ekki nógu skarpur. Þau eru þjál í umgengni, enda með afbrigðum geðprúð. Aðaleinkunn 7,95 stig og 1. verðlaun." Blesi 598 var fingurbrjótur á grófleikann, sem reynist oft í ætt- um gjarnastur. Má hins vegar segja að fáséðari væru í hópnum hans kraftmiklir skörungar, en slíkir reiðhestar, jafnvel þótt fáir séu, drita gjarnast metorðum í slóð feðranna. Í W-Feng eru skráð 139 af- kvæmi Blesa, þar af hafa 9 af- kvæmi hlotið 1. verðlaun, í aðal- eink. af 54 dæmdum(16%). Í þeim hópi er aðeins einn stóðhestur, Fáfnir 847 frá Svignaskarði, sem hlaut 1.v. bæði fyrir byggingu og hæfileika. En alls hlutu 17 hross 1.v. f. byggingu, sem gefur til kynna styrk Blesa að fíngerðu vaxtarlagi. Blesi var mest notaður til undaneldis heima á Skáney en þangað fengu afbæjarmenn að leiða hryssur. Þá var hann leigður eitt vor (´68) í Skagafjörð og þar komu undir m.a. Kápa Síðudóttir á Sauðárkróki, sem vegna slysfara var aldrei tamin, en gaf af sér hóp gæðinga, Gígja 4226 frá Víðimýr- arseli, sem hlaut í umsögn "gullfal- leg", og Máría 4108 frá Syðra- Skörðugili, sem er M. Atla 1016 frá Skarði, Rang. 1.v. stóðhests, sem stendur sig vel til kynbóta í Svíþjóð. Huggun 5400 frá Engi- hlíð, Dal. seinna á Minni-Borg í Grímsnesi, má nefna og hefur reynst mjög vel til kynbóta. Marinó bóndi á Skáney mat við Blesa sinn fínleikann og hára- prýðina með hans jákvæðum reið- hestskostum og varla hefur rauð- blesótti liturinn ruggað við hesta- sálinni. Mikinn og sannan áhuga hafði Marinó á hrossum og ræktun þeirra, hann var meira en áratug í stjórn Hrs.Vesturlands. Hann sá ekki eftir tímanum í félagsmála- störfin og rækti þau af heilum hug, stóð traustum fótum ef í odda skarst í orrahríðum ræktunarmál- anna. Marinó hafði trú á Blesa, mat hann að verðleikum og gerði alla tíð vel við hann, sem og var hans búskaparlag. Nú, 47 árum frá fæðingu Blesa 598, eru öll hrossin í Skáney út af honum, ef frá eru talin 2 skjótt að- skotadýr. Þar fer fremst Rönd 5900 í Skáney, sem er með Blesa að forföður, jafnt þvers sem kruss! Bjarni í Skáney er spurður hvaða reiðhestur, sonur Blesa, sé honum hvað ríkastur í minni? Það gæti verið leirljós gæðingur hjá Jakobi í Samtúni, í Reykholtsdal, úr fyrsta árganginum undan klárn- um. Hann bar með sér gæðinginn. Af heimahryssum í Skáney var Nös 3518, dóttir Skvettu 2859 frá Gufunesi sú af dætrum Blesa, sem hafði efni á að viðra sig af stolti, hvar í flokki sem fannst. Blesi 598 féll 1979, 21 vetra. Þ.B Minningarsjóður um Guðlaug Bergmann Guðlaugur Bergmann fram- kvæmdastjóri lést hinn 27. des- ember 2004. Guðlaugur var mikill drifkraftur í Ferðaþjónustu bænda og var í fararbroddi í umhverfis- og gæðamálum. Hann var verk- efnisstjóri í undirbúningi sveitar- félaganna á Snæfellsnesi við að gangast undir vottun Green Globe 21. Öðrum áfanga í því ferli var náð í nóvember sl. þegar sveitarfé- lögin fengu formlega viðurkenn- ingu á því að hafa mætt viðmiðum Green Globe 21. Guðlaugur taldi sjálfur að umhverfismál væru eitt mikilvægasta verkefni sem núver- andi kynslóð gæti tekist á við. Fjölskylda Guðlaugs Berg- mann hefur stofnað sjóð til minn- ingar um Guðlaug en markmið sjóðsins er að styrkja verkefni í umhverfis- og samfélagsmálum. Reikningsnúmer sjóðsins er 1143- 18-640230 og kt. 430105-2130. Heil 75 ár eru liðin síðan myndin hér að ofan var tekin af nemendum á dráttarvélanámskeiði árið 1930. Ef svo ótrúlega vildi til að einhver þekkti einhverja á myndinni þætti okkur vænt um að fá línu frá þeim og eins ef einhver veit hvar námskeiðið var haldið. Á myndinni t.h. eru stjórn og starfsmenn Matarfélags Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal árið 1957. Við þekkjum tvo á myndinni, þá Jónmund Zophoníasson frá Hrafnsstöðum og Valdimar Kristjánsson frá Sigluvík. Nú biðjum við lesendur um aðstoð, ef þeir þekkja nafn þriðja karlmannsins og kvennanna tveggja að láta okkur vita. Af spjöldum hrossa- sögunnar Þorkell Bjarnason Stóðhesturinn Blesi Gamla myndin Bjarni og Blesi 598 í Skáney 1965. Ljósmynd: ÞB.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.