Bændablaðið - 25.01.2005, Side 15

Bændablaðið - 25.01.2005, Side 15
Mikið hefur verið um kvartanir vegna lausagöngu búfjár, eink- um hrossa, á vegum landsins að undanförnu. Nokkur óhöpp hafa átt sér stað og hafa hross drepist og bifreiðar skemmst víða um land. Ólafur R. Dýrmundsson land- nýtingarráðunautur átti sæti í nefnd sem landbúnaðarráðherra skipaði 1998 og var nefnd vega- svæðisnefnd. Hún skilaði loka- skýrslu um málið 2001. Hann benti á í samtali við Bændablaðið að víða á landinu væri lausaganga stórgripa bönnuð. Lausaganga sauðfjár er aftur á móti yfirleitt ekki bönnuð nema í þéttbýli. ,,Varðandi hrossin virðist það vera svo að þótt þau sé í góðu haldi á sumrin fjölgar vandamálunum með lausagönguna yfir veturinn. Hross eiga þá auðveldara með að komast út á vegina. Ég held að snjóalög eigi þar stóran þátt í. Góðar girðingar getur fennt í kaf og sums staðar eru hliðin ekki í lagi. Meiri hætta er á að hliðin séu skilin eftir opin í miklum snjó. Víða eru pípuræsi í hliðunum, þau fyllast af snjó og skepnurnar kom- ast yfir. Það verður því að loka þessum hliðum með einhverjum hætti," segir Ólafur. Hann bendir á að reglur um fjár- og hrossheldar girðingar mið- ist við venjuleg skilyrði en engar reglur séu til um hvernig bregðast skuli við þegar komin eru mikil snjóalög. Þá sé nýr flötur kominn á málið og ekkert í lögum sem seg- ir til um hvernig bregðast skuli við. Það væri ekki nema bændur tækju til sinna ráða og þeir eiga ýmsa möguleika. ,,Eitt ráð sem þeir eiga er að gefa hrossunum fjarri vegum en alls ekki nærri þeim. Síðust tvo vetur þurfti vart að gefa hrossum úti þar sem beit var næg. Nú bregður aftur á móti svo við að snjór er yfir öllu um allt land og þá þarf að gefa útigangshrossum vel. Sé það ekki gert er mikil hætta á að þau taki að rása og fari þá út á veg- ina. En ef þeim er gefið vel fjarri vegum tolla þau býsna vel í fóðr- inu. Megin atriðin eru hvort þeim er gefið, hversu mikið þeim er gef- ið og hvar þeim er gefið. Þegar snjóalög eru mikil verða bændur að fylgjast betur með hrossum sín- um en ella, loka hliðum, laga lé- legar girðingar og reyna með öllu móti að koma í veg fyrir að hrossin komist yfir girðingarnar þar sem þær hefur fennt í kaf. Einnig tel ég brýnt að ökumenn taki tillit til þessara erfiðu aðstæðna og sýni sérstaka aðgæslu á vegum í sveit- um landsins," sagði Ólafur R. Dýr- mundsson. Hjá Vátryggingafélagi Íslands fengust þær upplýsingar að dómar í málum sem risið hafa vegna þess að ekið hefur verið á hross sýni að það fari alfarið eftir aðstæðum hverju sinni hvort dómur fellur bónda eða bifreiðareiganda í vil. Þannig skipti meginmáli hvort lausaganga er bönnuð eða ekki. Þriðjudagur 25. janúar 2005 15                                              !"#$$ $ Vísitala neysluverðs Vísitala neysluverðs í janúar 2005 er 239,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án hús- næðis er 229,2 stig, lækkaði um 0,56% frá því í desember. Vetrarútsölur eru nú í full- um gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10% (vísi- töluáhrif -0,56%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði og raftækjum lækkaði um 3,3% (- 0,18%). Verð á bensíni og dís- ilolíu lækkaði um 5,7% (- 0,24%). Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 2,9% (vísitölu- áhrif 0,39%), gjaldskrár fyrir opinbera þjónustu hækkuðu um 4,4% (0,32%) og fyrir aðra þjónustu um 1,0% (0,22%). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngild- ir 3,1% verðbólgu á ári (1,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis). Lausaganga búfjár Þegar girðingar fennir í kaf eykst hættan á að hross sleppi út á vegi Notaðar vélar til sölu Valtra 900 dráttarvél Árgerð: 2000 Notkun: 2200 vstd. Stærð: 90 hestöfl. Drif: 4x4 Helsti búnaður: Trima 3.40 ámoksturstæki m/ MultDoc Verð án vsk.: 2.390.000 Deutz-Fahr dráttarvél Gerð: Agrotron 120 MK3 Árgerð: 2003 (Afhent 01/04) Notkun: 200 vstd. Stærð: 130 hestöfl. Drif: 4x4 Ámoksturstæki: Trima 5.85, með dempara, servo og Multi-Doc 2/4 Helsti búnaður: Gírkassi 24/24 með vökvavendigír + skriðgír, loft- kæling, fjöðrun á framhásingu, loftfjöðrun á húsi, 110 l. vökva- flæði , 4/4 tvívirk vökvaúttök, þýskur dráttarkrókur, 50 Verð án vsk.: 6.390.000 Verð með vsk.: 7.955.500 JCB 3CX traktorsgrafa Árgerð: 1992 Notkun: < 8000 vst. Stærð: 8 t. / 90 hö. Verð án vsk.: 1.300.000 Vélin er í góðu lagi en slitin dekk Vicon rúllubindivél Gerð: Vicon R 121 Árgerð: 1999 Notkun: 4000 rúllur Verð án vsk.: 750.000 Vélin lítur mjög vel út og er með netbindibúnaði. Zetor 7341dráttarvél Árgerð: 1998 Notkun: 3000 vstd. Stærð: 82 hestöfl. Drif: 4x4 Ámoksturstæki: Alö 540 Verð án vsk.: 1,350,000 Case CS94 Árgerð: 1998 Drif : 4x4 Stoll ámoksturstæki Verð án vsk.: 2.400.000 Höfum einnig til sölu: 2 stk. Krone sláttuvélar m/ knosara Macchio jarðtætara Kuhn GA402 múgavél (04) o.fl. ofl. Tökum einnig notuð tæki í umboðssölu Gylfaflöt 24-30 Sími: 580 8200 velfang@velfang.is www.velfang.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.