Bændablaðið - 25.01.2005, Qupperneq 17
Þriðjudagur 25. janúar 2005 17
Umsókn um orlofs-
styrk/orlofsdvöl
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um
orlofsstyrk eða orlofsdvöl að Hólum sumarið 2005.
Gert er ráð fyrir að, auk úthlutunar orlofsvikna að
Hólum, verði í ár úthlutað u.þ.b. 70 orlofsstyrkjum til
bænda. Upphæð hvers orlofsstyrks verður kr. 28
þúsund miðað við sjö sólarhringa samfellda
orlofsdvöl, innanlands en kr. 4 þúsund á sólarhring
við styttri dvöl.
Vinsamlegast raðaðu í forgangsröð hvort þú óskir
frekar úthlutunar orlofsstyrks eða orlofsdvalar að
Hólum með því að merkja 1 og 2 í viðkomandi reiti
(bara 1 ef einungis annað hvort kemur til greina).
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 1. mars
2005. (Athugið að þeir sem fengu úthlutað orlofs-
styrk á sl. ári og nýttu ekki þurfa að sækja um að
nýju).
Orlofsstyrk
árið __________
Í Ásborgum
árið ________ _________
Að Hólum
árið _________________
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Orlofsdvöl að Hólum
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú fengið úthlutað orlofsdvöl eða orlofsstyrk hjá
Bændasamtökunum áður? Ef já, hvar og hvenær
fékkstu síðast úthlutað?
Hvernig búskap stundar þú?
Orlofsstyrk
Tímabilið
Já Nei
Já Nei
Já Nei
Sendist til Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni
v/Hagatorg, 107 Reykjavík, merkt:
Orlofsdvöl sumarið 2005 fyrir 1. mars nk.
Sumarið 2005
Sorpsamlag Þingeyinga á Húsa-
vík tekur á móti heyrúlluplasti til
endurnýtingar frá næstu ára-
mótum. Þangað til safnar sam-
lagið plastinu á sínu starfssvæði,
baggar það og geymir þar til
sorpbrennsla verður tilbúin.
Þegar plastinu er eytt verður
orkan sem losnar nýtt til raf-
magnsframleiðslu. Plastið er
mikill orkugjafi enda olía undir-
stöðuefni í því.
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Sorpsamlags
Þingeyinga, sagði að samkvæmt
áætlun taki sorpbrennslan til starfa
um næstu áramót. Búið er að undir-
rita samning um kaup á brennslu-
tækjunum, húsakostur er í alút-
boðsferli og framkvæmdin sem slík
í umhverfismati.
Sigurður segir að víðast hvar
hafi plastið verið urðað til þessa.
Þær sorpbrennslur sem fyrir eru í
landinu séu að mestu fullnýttar og
geta því ekki tekið við neinu sem
nemi af plastinu og endurvinnsla á
því er engin hér á landi.
Úrvinnslugjaldið er 35 kr. á
kíló af plasti ef það er endurnýtt
eða endurunnið. Ef það er hins
vegar urðað greiðir úrvinnslusjóð-
ur ekki nema 8 kr. á kílóið til þess
aðila sem safnar saman plastinu.
Oftast eru það verktakar. Menn
geta orðið söfnunaraðilar og hlotið
til þess viðurkenningu og þá fá þeir
greiddar 35 kr. á kílóið ef þeir geta
sýnt kvittun þess efnis að tekið hafi
verið á móti plastinu í endurvinnslu
eða endurnýtingu hjá aðila sem úr-
vinnslusjóður viðurkennir.
Ef þessi leið er farin þurfa þess-
ar 35 kr. sem úrvinnslusjóður
greiðir að standa undir söfnunar-
og flutningskostnaði og móttöku-
gjaldi fyrir endurvinnsluna. Sigurð-
ur Rúnar segir að þetta gjald ætti
a.m.k. að standa undir kostnaði til
þeirra sem koma með plast til
Sorpsamlags Þingeyinga af aust-
anverðu Norðurlandi og norðan-
verðum Austfjörðum.
Sorpsamlag Þingeyinga
Reisir sorpbrennslu sem getur
brennt rúllubaggaplasti og framleitt
rafmagn úr orkunni sem losnar