Bændablaðið - 25.01.2005, Qupperneq 23
Þriðjudagur 25. janúar 2005 23
www.bondi.is
Fjós eru okkar fag
Landstólpi ehf.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
Mikið úrval tæknibúnaðar í fjós:
Weelink - fóðrunarkerfi
o www.weelink-systems.nl
Básamilligerðir og átgrindur
o www.dcedrachten.nl
Básadýnur
o www.promatltd.com
Steinrimlar
o www.appelbeton.nl
Flórsköfukerfi
o www.dairypower.ie
Uno Borgstrand náttúruleg loftræsting
o www.uba.se
Kjarnfóðurbásar og kálfafóstrur
o www.urbanonline.de
Propydos - súrdoðabrjótur
o www.propydos.nl
Plastgrindur í gólf
o www.carfed.ch
Þráðlausar eftilitsmyndavélar
o www.lynx-systemes.com
Fjósbyggingar - Hönnun og ráðgjöf
2.400 ferðir
í gegnum
Hvalfjarðar-
göngin
Á síðasta ári keyptu félags-
menn stéttarfélaganna í
Þingeyjarsýslum 2.400 miða
í Hvalfjarðargöngin á Skrif-
stofu stéttarfélaganna á
Húsavík sem jafngildir 2.400
ferðum í gegnum göngin.
Hefðu félagsmennirnir
keypt miðana fyrir sunnan
þegar þeir fóru í gegnum
göngin hefðu þeir þurft að
greiða 2.4 milljónir eða kr.
1.000 fyrir ferðina. Hins vegar
greiddu þeir tæplega 1.7 millj-
ónir fyrir miðana á Skrifstofu
stéttarfélaganna eða kr. 700
fyrir ferðina. Þannig spöruðu
þeir sér 700 þúsund á árinu
2004 með því að vera félags-
menn. Þess má geta að stéttar-
félögin í Þingeyjarsýslum voru
fyrst félaga til að bjóða upp á
þessa þjónustu við félags-
menn. Óhætt er að segja að
kjarabótin leynist víða því
sparnaður félagsmanna á síð-
ustu árum nemur nokkrum
milljónum varðandi ferðir í
gegnum göngin þar sem aðild
að stéttarfélögunum tryggir
þeim lægra verð. Ástæðan fyr-
ir því að félagsmenn fá ferðina
á 700 krónur er að stéttarfélög-
in kaupa mikið magn af mið-
um sem er mun ódýrarra held-
ur en að kaupa einstakar ferðir
þegar farið er í gegnum göng-
in. Þetta kemur fram á vef
verkalýðsfélaganna á Húsavík.
Fyrir skömmu var frumsýnd á
Sauðárkróki mynd um Austur-
dal í Skagafirði sem að mestu var
tekin sumarið 2004. Austurdalur
fór í eyði árið 1997 þegar Helgi
Jónsson, bóndi á Merkigili, lést af
slysförum. Dalurinn er úr alfara-
leið en þykir mikil náttúruperla
og er vinsælt svæði útivistarfólks.
Þar er rekið stóð til sumarbeitar
og slangur af sauðfé fer inn á
svæðið. Þar er því farið a.m.k.
tvisvar í göngur á hverju hausti.
Í myndinni er fylgst með Stef-
áni Hrólfssyni, gangnaforingja og
fyrrverandi bónda á Keldulandi, og
félögum hans. Stefán hefur séð um
smölun í Austurdal í tugi ára, byrj-
aði að fara þar í smalamennsku 12
ára gamall og hefur farið þangað í
göngur á hverju ári síðan, en hann
er nú 77 ára. Um smölun í Austur-
dal er sérstakur félagsskapur,
Gangnamannafélag Austurdals.
Allir sem fara í smölun í dalinn
verða sjálfkrafa meðlimir í gangna-
mannafélaginu.
Tökur á myndinnni hófust 17.
júní þegar Stefán rak hross sín í
sumarhagann og þeim lauk síðan í
nóvember þegar atriði með karla-
kórnum Heimi var tekið upp. Í
myndinni er fylgst með þegar
hrossum er smalað í seinni göngum
og einnig nokkrum kindum sem
urðu eftir í fyrri leit í september.
Auk smalamennsku er í myndinni
hinni árlegu messu í Ábæjarkirkju
gerð góð skil. Stefán er að sjálf-
sögðu aðal söguhetjan í myndinni
og hefur frá mörgu að segja á sinn
sérstaka hátt þar sem gleðin og
húmorinn er aldrei langt undan.
Einnig eru mörg myndskeið af
hrikalegri og stórbrotinni náttúru á
þessum slóðum, ekki síst sjálfu
Merkigilinu.
Árni Gunnarsson frá Flatar-
tungu er aðalframleiðandi myndar-
innar og segir hann að myndin sé
tileinkuð látnum vinum hans af
þessu svæði. Höfundur texta er
Ingimar Ingimarsson. Þeir félagar
ólust báðir upp í Blönduhlíðinni og
þekkja Austurdalinn vel. Mynda-
tökur sá Þorvarður Björgúlfsson um
en hann hefur áður myndað á þess-
um slóðum. Myndin tekur um 45
mínútur í sýningu og verður hún
væntanlega sýnd í sjónvarpi síðar á
árinu.
ÖÞ
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir málum. Þær eru léttar
og auðveldar í notkun. Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum
stærðum og gerðum, með eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Verðdæmi: 3000 mm X 3000 mm = kr. 115.020,- m/VSK
Bílskúra- og
iðnaðarhurðir
Vagnar & þjónusta ehf
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
Sími: 567-3440, Fax: 587-9192
Afgreiðslutími hurða
3m hæð, 4 dagar.
Heimildamynd um
Austurdal frumsýnd
9 : )9
; )<
,'()=(==)666
>#
?#
#*==,
;
.
-%
464%
.
%4 ? .
((@ .&%% 4..3 ( 4.%4-(
&3 (
%
. %-% 6%%.
-%
.4
(6 ( . %36.3
6(.
5
(
%
) .(A
.
(
.
(.
/
4.
B %
%3. ..%
6
6((
((. ) 4. -
?- . @ 0!A )9# "" )*=+
B
)! #
)C ',= #