Bændablaðið - 07.06.2005, Side 9
Þriðjudagur 7. júní 2005 9
Heyvinnuvélatindar,
hnífar og festingar
áratuga reynsla
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Fjórir hreppar á NA-svæði
landsins hafa ákveðið að gera
með sér formlegt samkomulag
um brunavarnir á svæðinu.
Þetta eru Vopnafjarðarhreppur,
Skeggjastaðahreppur, Þórshafn-
arhreppur og Svalbarðshreppur.
Siggeir Stefánsson, varaoddviti á
Þórshöfn, sem hefur verið til-
nefndur í stjórn Brunavarna
NA-svæðis sagði í samtali við
Bændablaðið að samvinna hafi
verið milli hreppanna um nokk-
urra ára skeið en nú væri verið
að gera samkomulagið bæði
formlegra og ítarlegra.
Hann segir að grunnhugmyndin
með þessu samkomulagi sé að geta
verið með slökkviliðsstjóra í fullu
starfi sem um leið er brunavarna-
eftirlitsmaður og kann til verka á
öllum sviðum sem slökkviliðsmað-
ur og stýri þessu öllu saman. Sá
heitir Björn Sigurbjörnsson og er
staðsettur á Vopnafirði en síðan eru
varaslökkviliðsstjórar í hverjum
hinna þriggja hreppanna. Siggeir
bendir á í þessu sambandi að það sé
alltaf vandamál á svona litlum
stöðum að reka slökkvilið og vera
með þá fagmennsku sem þarf og
því sé svona samvinna æskileg.
Björn Sigurbjörnsson slökkvi-
liðsstjóri sagði að starfsstöðvar
slökkviliðsins væru þrjár. Ein
stöðin er á Vopnafirði með 14
skráða slökkviliðsmenn, einn
slökkvibíl og einn tækjabíl. Önnur
er á Bakkafirði með 5 slökkviliðs-
menn og einn slökkvibíl og loks
er sú þriðja á Þórshöfn með 12
slökkviliðsmenn, einn slökkvibíl
og einn tækjabíl.
Eftirlit með brunavörnum á
svæðinu er í höndum Björns.
Hann segist fara reglulega eftir-
litsferðir um svæðið en að í flest-
um tilfellum sé brunavörnum
ábótavant. Sveitarfélögin eiga í
flestum tilfellum stærstu bygging-
arnar þar sem ástandið er misgott.
Hann segir erfitt að fylgja eftir
kröfum á hendur sveitarfélögun-
um um úrbætur fyrir stórfé.
Brunavarnir mæti yfirleitt afgangi
hjá þeim.
Björn segir að samt sem áður
hafi ekki orðið neinir stórbrunar á
NA-svæðinu síðustu árin. Nokkrir
heybrunar hafi þó komið upp þeg-
ar menn sleppa að setja plast utan-
um heyrúllurnar, hrúga þeim sam-
an og síðan hitnar í og eldur brýst
út. Við slíka bruna, segir hann, að
sé mjög erfitt að ráða.
Brunavarnir á norðausturhorni landsins
Fjórir hreppar hafa gert með sér
formlegt samkomulag um brunavarnir
Hólamannavika
Hólamannafélagið, sem starfað
hefur með hléum frá því 1904,
er hollvinasamtök Hólaskóla -
Háskólans á Hólum. Markmiðið
er m.a. að tryggja tengsl fyrrum
nemenda og starfsmanna við
skólann og Hólastað. Í því skyni
stendur Hólamannafélagið nú í
sumar fyrir Hólamannaviku þar
sem félagar, sem eru allir fyrr-
um nemendur og starfsmenn,
eru hvattir til þess að sækja
staðinn heim og að kynna sér
hvað þar er um að vera og
hvaða áætlanir eru uppi um
framtíðina. Sérstaklega er höfð-
að til afmælisárganga, sem geta
nýtt þetta tækifæri til þess að
hittast og rifja upp gamla tíma
og kynnast því sem nú fer fram
á Hólum.
Á Hólamannaviku verður boð-
ið upp á gistingu og aðra þjónustu
á afsláttarkjörum og þeim sem
sækja staðinn heim er boðið upp á
sérstaka kynningu á starfi skólans
og því sem unnið er að. Þá verða
jafnframt kynnt þau samstarfs-
verkefni sem skólinn vinnur að
með öðrum aðilum heima og er-
lendis.
Hólamannavika í ár verður
dagana 19. til 26. ágúst 2005. Þeir
sem vildu kynna sér þetta mál
frekar er bent á að hafa samband
við Málfríði Finnbogadóttur fram-
kvæmdastjóra ferðaþjónustunnar í
síma 4556333 eða með netpósti
malfridur@holar.is
Formaður Hólamannafélags-
ins er Pétur Bjarnason sjávarút-
vegsfræðingur.