Bændablaðið - 07.06.2005, Qupperneq 17

Bændablaðið - 07.06.2005, Qupperneq 17
Þriðjudagur 7. júní 2005 17 Mikilvæg arfleifð „Ég tel bjart framundan í íslensk- um landbúnaði þótt hann gangi nú í gegnum talsverðar hremm- ingar á vissum sviðum. Landbún- aðurinn hefur undanfarið leitað jafnvægis en það er ferli sem tek- ur langan tíma vegna þess að þessi atvinnugrein snýst um fleira en framleiðslu á matvöru. Hún snýst líka um alúð og rækt við landið okkar,“ segir Jóhann Guðni Reynisson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. „Það, að bændur leggi af bú- skap á jörð sinni og flytjist á brott, getur haft alvarlegar afleið- ingar því þá hætta þeir mjög mik- ilvægu starfi sem gæslumenn landsins. Oft hefur allt of mikil einföldun verið höfð uppi um áhrif beitar en þá gleymist að bera virðingu fyrir störfum bænda og þeirri mikilvægu arf- leifð sem þeir bera milli kynslóð- anna.“ Jóhann nefnir þá miklu breyt- ingar sem orðið hafa á neyslu- mynstri þjóðarinnar á þann veg að gerðar eru auknar kröfur um fullunnar matvörur og sérpakkn- ingar. „Sóknarfærin felast í því að bændur taki þátt í þessari þró- un en skapi sér um leið sérstöðu og standist kröfur neytenda um góða og holla matvöru,“ segir Jó- hann sem telur að lítil og meðal- stór fjölskyldubú muni af þeirri ástæðu eiga mikla möguleika. Jóhann Guðni er fæddur Hafnfirðingur en hefur verið sveitarstjóri í Þingeyjarsveit síð- ustu árin. Hann segir fjölskyld- unni líða vel í sveitinni og hann þakki fyrir að dætur sínar öðlist tengsl við samfélagið þar. „Reynslan er ómetanleg, endist ævilangt og börn sem ekki eiga kost á þessu fara mikils á mis, bæði kynni af dýrum og búskap og þá ekki síður að hafa fengið að dýfa hendi í kalt vatn sem barn. Það er öllum hollt að fá að hjálpa til við búskap,“ segir Jóhann sem var tíu sumur í sveit á Berustöð- um í Ásahreppi og reynsluna það- an segir hann aldrei fá fullþakk- að. Sveitasæla er kjarni málsins „Hvar mögu- leikar íslenskra sveitar til sóknar og uppbygging- ar liggja er mis- jafnt frá einu héraði til ann- ars. Í mínum huga er þó eng- um vafa undir- orpið að tæki- færin í uppsveit- um Árnessýslu felast í fallegri náttúru, víðerni og mörgum af merkustu sögu- stöðum lands- ins, sem draga æ fleiri að. Hér er ég með öðrum orðum að segja að sóknarfærin hér um slóðir liggi öðru fremur í ferðaþjónustu,“ segir Sveinn A. Sæland, garðyrkjubóndi á Espiflöt í Biskupstungum og oddviti Bláskógabyggðar. Á síðasta áratug hefur sumar- húsum í uppsveitum á Suðurlandi fjölgað mikið og eru þau orðin um fjögur þúsund. Þá hefur ferða- mannastraumur um svæðið marg- faldast. „Atvinnuhættir hafa gjör- breyst,“ segir Sveinn. Hefðbund- inn landbúnaður sé stundaður á sí- fellt færri bæjum, þó að kvótaeign innan sveitarfélagsins hafi haldist svipuð. Æ fleiri hafi aftur á móti atvinnu af ferðaþjónustu með ein- hverju móti, auk þess sem all nokkuð sé um að fólk búi eystra en sæki vinnu í nærliggjandi sveit- arfélög eða til Reykjavíkur. Sveinn er fæddur og alinn upp í Biskupstungum, en bjó sem ung- ur maður um skeið í Danmörku og seinna í Hveragerði. Hann kveðst þannig hafa öðlast ágætan saman- burð, en að honum fengnum hafi hann án nokkurs hiks sest að í sveitinni aftur. „Við sem höfum valist til forystu í sveitunum þurf- um að tryggja ímynd þeirra og haga málum eftir því. Við viljum áfram vera sveit, en ekki þéttbýli. Sveitasæla er kjarni málsins.“ Ljúf sumur í Leirár- sveit „Ég var mörg ljúf sumur í sveit hjá móðurfólki mínu á Eystri Leir- árgörðum í Leirársveit. Fyrir strák úr Reykjavík var margt framandi í sveitinni og mér fannst flokka- drátturinn milli manna merki- legur. Veruleik- inn var sá að þótt bændurnir byggju allir við nokkuð sam- bærilegar að- stæður var pól- tíkin mjög hörð og menn keyptu jeppa og vinnu- vélarnar hjá því umboði sem stóð næst þeirra viðhorfum. Ég efast um að svona þekkist nú,“ segir Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingar. Einar Már segir sveitaveruna hafa verið góðan lærdóm í því að vinna og að því muni hann búa alla ævi. „Þarna var ég að hamast á traktorunum og það þótti sjálf- sagt að keyra bíl löngu áður en sautján ára aldri var náð. En sveitadvölin var ekki bara vinna, á sunnudögum tók fólk sér frí. Ég minnist þess að við fórum oft í skemmtilega útreiðatúra inn í Hafnarskóg sem er þarna í grenndinni, sunnan undir Skarðs- heiði.“ Á Alþingi hefur Einar Már m.a. verið fulltrúi í landbúnaðar- nefnd og einnig setið í stjórn Landasjóðs landbúnaðarins. Eftir að hafa fengið tækifæri til að kynna sér hagsmuni greinarinnar á þeim vettvangi segist hann telja sóknarfærin mörg. Í hefðbundinni framleiðslu séu margir möguleik- ar. Þar nefnir Einar hugmynda- fræðina sem starfsemi Austur- lambs byggir á; að neytendur geti pantað kjöt frá ákveðnum bónda í gegnum Netið og fengið sent til sín heim. Þessi viðskipti hafi tek- ist vel og séu í sókn. Verð kr. 840.000 m/vsk Burðargeta 12 tonn + Stærð palls = 2,55x9,0m H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími: 588-1130. Fax. 588-1131. FLATVAGNAR „Sóknarfærin hér um slóðir liggja öðru fremur í ferða- þjónustunni,“ segir Sveinn A. Sæland, oddviti Bláskóga- byggðar. „Jóhann Guðni með hrossin sín á Einars- stöðum í Reykjadal, þau Topp og Sprengju frá Berustöðum II í Rangárþingi, en þar var hann í sveit sem barn. Mynd: Ína Björk Jóhanns- dóttir „Fyrir strák úr Reykjavík var margt framandi í sveitinni,“ seg- ir Einar Már Sig- urðarson al- þingismaður. 0  % #  "' & " ( (  4!4   " ( #     )A'B * #    1203   + 4//  > A  $+*E+

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.