Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 07.06.2005, Blaðsíða 18
18 Þriðjudagur 7. júní 2005 Til sölu Krone sambyggð rúllu- og pökkunarvél árg.´99 upplýsingar í s.4661548 og 8679037 Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur hafa tek- ið um samstarf í skólamálum. Sveinn A. Sæland, oddviti Bláskógabyggðar, sagði í sam- tali við Bændablaðið að fyrir ári hafi Grímsnes- og Grafn- ingsmenn óskað eftir því að koma með unglingadeildir í skólann í Reykholti. Við því var orðið og hefur samstarfið gengið vel. Samhliða ákváðu GG-menn að leggja niður skóla á Ljósafossi og byggja upp nýja skóladeild á Borg í Grímsnesi fyrir 1. til 7. bekk. Samstarf sveitarfélaganna gengur út á það að Bláskóga- byggð annast faglegu hlið skólamálanna. Kennarar og annað starfsfólk er ráðið af Bláskógabyggð en Grímsnes- og Grafningshreppur sér um allan annan kostnað við skóla- haldið svo sem skólaaksturinn og rekstur hússins. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á starfsmanna- haldi nema hvað starf skóla- stjóra við grunnskóla Gríms- nes-og Grafningshrepps verður lagt niður og ráðinn verður að- stoðarskólastjóri. Skóla- stjórnun verður í höndum skólastjóra Grunnskóla Blásk- ógabyggðar og aðstoðarskóla- stjóra sem verður með starfs- stöð á Borg. Samningurinn gerir einnig ráð fyrir þriggja manna sameiginlegri fræðslu- nefnd samkvæmt breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp. Grímsnes-og Grafningshreppur mun eiga einn fulltrúa í fræðslunefnd- inni en Bláskógabyggð tvo. Fræðslunefnd mun fara með framkvæmdavald í samræmi við fjárhagsáætlun. Samstarf í skólamálum Nýlega fékk Sigurður Árnason, Hrafnabjörg- um, A-Húnavatnsýslu, nýja McCormick MTX 140 dráttarvél og sambyggða Krone Combi Pack rúllu og pökkunarvél, þessar vélar ætlar Sigurður til verktakavinnu sem hann mun bjóða sveitungum sínum og öðrum. Vélar & Þjónusta ehf, óskar Sigurði og fjöl- skyldu hans til ham- ingju með nýju vél- arnar og óska honum alls velfarnaðar í verktakavinnunni. www.bondi.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.