Bændablaðið - 17.04.2007, Qupperneq 34
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200734
Gagnagrunnurinn WorldFengur
er upprunaættbók íslenska hests-
ins og samstarfsverkefni FEIF og
Bændasamtaka Íslands. Hann
er alþjóðlegt skýrsluhaldskerfi
hrossaræktarinnar og hefur verið
í mikilli sókn allt frá því hann var
opnaður á Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins í Austurríki árið
2001.
Áður var það forritið Fengur
sem sá um að halda utan um skýrslu-
haldið og var það stofnsett árið
1991 með um 9.000 hross í grunn-
inum. Á árunum 1995 til 1997
komu út tvær útgáfur af Fengs-kerf-
inu, Einka-Fengur sem var á disk-
lingum og svo VeraldarFengur sem
mátti finna á netinu. Þriðja útgáfa
Fengs birtist svo á árunum 1998 til
2000 og var margmiðlunardiskur á
þremur tungumálum.
Hugbúnaðarþróun WorldFengs
(og fyrri útgáfum af Feng) hefur að
langmestu leyti farið fram í tölvu-
deild Bændasamtakanna í gegnum
árin og er aðalforritari kerfisins í
dag Þorberg Þ. Þorbergsson forrit-
ari tölvudeildarinnar staðsettur á
Akureyri. Bændasamtökin eru með
samning við Skýrr hf. um rekstur
og hýsingu WorldFengs kerfisins á
öflugum miðlurum í húsakynnum
Skýrr í Ármúla.
Í dag er WorldFengur orðinn
mikilvægur þáttur í hestaheim-
inum og flestir ræktendur nýta sér
hann óspart. Hátt í 300.000 hross
eru skráð í grunninn og ætla má að
WorldFengur sé stærsta upprunaætt-
bók hrossa í heiminum með um 5
þúsund áskrifendur í 23 löndum.
WorldFengur býður upp á marga
möguleika en grunnurinn heldur
m.a. utan um kynbótadóma, al-
mennar skráningar á hrossum, eig-
endaskráningar, örmerkingar, kyn-
bótamat og fleira. Ávallt er leitast
við að bæta forritið og það nýjasta
er að nú er hægt að setja myndbönd
af hrossum inn í grunninn og skráð-
ar eru niðurstöður DNA-greininga.
Bændablaðið fór á stúfana og
ræddi við fjóra hrossaræktendur
um WorldFeng. Svo virðst vera að
húsfreyjurnar á þessum bæjum séu
mun slungnari í að nýta sér tölvu-
tæknina og því þýddi lítið annað en
að biðja þær að sitja fyrir svörum.
Höfuðatriðið í dag
Gunnar Arnarson og Kristbjörg
Eyvindsdóttir í Auðsholtshjáleigu í
Ölfusi hafa náð frábærum árangri
í hrossaræktinni undanfarin ár og
verið kosin ræktunarmenn ársins
þrisvar sinnum því til vitnis. Þeim
hefur gengið vel með sín hross á
kynbótavellinum og nefna má stóð-
hestana Gaum og Gígjar frá Auðs-
holtshjáleigu sem fengu há fyrstu
verðlaun á landsmóti síðastliðið
sumar. Gunnar og Kristbjörg sinna
ekki eingöngu hrossaræktinni held-
ur eru þau einnig stærstu hrossaút-
flytjendur landsins og hafa því í
nógu að snúast.
Hvernig hefur WorldFengur
nýst hrossaræktinni að Auðsholts-
hjáleigu?
„Mjög vel, þetta er nauðsynlegt
tæki. Við fylgjumst helst með ein-
kunnum hesta, kynbótamatinu og
skoðum upplýsingar um afkvæmi
eða hvað stóðhestar eru að gefa.
WorldFengur er höfuðatriði í dag.“
Notið þið kynbótamatið við val á
undaneldishrossum?
„Já við styðjumst við það. Kyn-
bótamatið segir til um hvað stendur
að hrossinu. Við notum það ekki
eingöngu en það styrkir það mat
sem við höfum á hrossinu.“
Við hvað notið þið gagnagrunn-
inn mest?
„Við notum hann gífurlega mik-
ið í sambandi við útflutninginn og
líka við ræktunina.“
Teljið þið WorldFeng mikilvæg-
an fyrir hrossaræktina í landinu?
„Við teljum hann mjög mikil-
vægan því hann gefur mynd af því
sem er í gangi enda stór upplýsinga-
banki. Worldfengur er líka markaðs-
gluggi fyir umheiminn og ég tel að
það væri mikill áfangi að hann væri
öllum opinn. Þannig getur umheim-
urinn kynnst því sem verið er að
gera og auðveldara væri að benda
fólki á upplýsingar um söluhross
og svo framvegis.“
Notkunin mest á vorin
Hjónin Sigurður og Lisbeth
Sæmundsson í Holtsmúla hafa
náð langt í hrossaræktinni og
hafa hestar frá þeim skinið skært
á keppnisvellinum undanfarin ár.
Þar má nefna heimsmeistarann í
tölti, Hvin frá Holtsmúla, og stóð-
hestinn Suðra frá Holtsmúla sem
er tvöfaldur Íslandsmeistari í fjór-
gangi. Líklegt er að Suðri fari í
úrtöku fyrir heimsmeistaramótið
í hestaíþróttum og hver veit nema
hann skili þeim hjónum enn einum
heimsmeistaratitlinum í sumar.
Hefur WorldFengur verið gagn-
legur fyrir ykkar hrossarækt?
„Já, við notum hann mjög mikið
og þá aðallega á vorin. Þá fylgj-
umst við ört með skráningum á
kynbótadómum og skoðum hann
oft á dag. Við notum kynbótamatið
ekki mikið, aðallega athugum við
ættir og einkunnir kynbótahrossa
okkur til hliðsjónar í ræktuninni.“
Hvað þykir þér hagnýtast við
gagnagrunninn, Lisbeth?
„Það er svo margt! Það að geta
flett upp öllum ættum og dómum er
líklega aðalatriðið.“
Hversu oft notar þú WorldFeng
að jafnaði?
„Á vorin nokkrum sinnum á
dag, en á veturna mun sjaldnar. Svo
geta komið upp tímar á veturna þar
sem þarf að fletta upp númerum
á keppnishestum og fleira. Þá fer
maður nokkrum sinnum í viku inn
í grunninn.“
Hvernig telur þú að megi bæta
WorldFeng?
„Það mætti setja inn upplýs-
ingar um afkvæmaverðlaun inn á
grunnskráningar hjá þeim hryssum
og stóðhestum sem til þess hafa
unnið. Það er mikilvægt að slíkar
viðurkenningar, eins og til dæmis
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, séu
sýnileg í grunninum.“
Lífsnauðsynlegt tæki
Arnþrúður Heimisdóttir hrossa-
ræktandi að Langhúsum í Skaga-
firði stundar umboðssölu á hrossum
og aðstoðar útlendinga við kaup á
íslenskum hestum. Nóg er að gera
hjá henni enda margir sem vilja eign-
ast gæðing að sínu skapi. Arnþrúður
er dugleg að nýta sér internetið í
þessum tilgangi og heldur úti sölu-
síðunni www.icelandichorses.is.
Heimasíðan hefur reynst mjög vel
og hefur Arnþrúður m.a. sett þar inn
ýmsa fræðslu um íslenska hestinn
sem gaman er að skoða.
Hvernig hefur WorldFengur
gagnast þér við starfsemi þína?
„Afskaplega vel. Þetta er orðið
alveg lífsnauðsynlegt tæki og varð
um leið og maður byrjaði að nota
hann. Þegar mig vantaði upplýs-
ingar um hross í gamla daga þurfti
maður að hanga í símanum og
skrifa niður, en núna er auðveld-
lega hægt að fletta hrossum upp á
netinu eftir lágmarksupplýsingum.
WorldFengur er alveg ómetanleg-
ur og ég nota hann mikið. Hann er
einnig orðinn nauðsynlegur upp á
trúverðugleika og nú er orðið sjálf-
sögð forsenda að hross séu skráð
og hafi fæðingarnúmer.“
Hefur WorldFengur hjálpað þér
við ræktunina?
„Þetta er endalaust áhugamál!
Maður gerir ekki annað en að fletta
upp áhugaverðum stóðhestum og
skoða allt í kringum þá. WorldFeng-
ur er ákveðinn hluti af myndinni,
upplýsingarnar eru svo miklar.“
Hvernig finnst þér að megi bæta
WorldFeng?
„Hann hefur batnað töluvert
síðan ég byrjaði að nota hann árið
2001. Það helsta sem truflar mig er
að manni er hent út eftir ákveðinn
tíma þegar maður er ekki að nota
hann, sem mér finnst óþægilegt því
þá týnir maður þræðinum. En það
er víst gert til að vernda áskriftina.
En að öðru leyti hefur mér fundist
að forritið bjóði upp á flestallt sem
maður þarf, frekar spurning hvar og
hvernig maður leitar, en að kerfið
finni það ekki. En ég sakna þess að
litur komi ekki upp í leitarniðurstöð-
um, oft erfitt að leita að t.d. hryssu
með ákveðinn lit undan ákveðnum
stóðhesti og þurfa að skoða allar
hryssurnar sem gætu komið til
greina í aldurslegu tilliti til að finna
þá hryssu sem ber rétta litinn.“
Telur þú að WorldFengur stuðli
að betri hrossarækt á Íslandi?
,,WorldFengur gefur fólki meiri
upplýsingar og allar viðbótar upp-
lýsingar hljóta að hjálpa hrossa-
ræktendum. Kerfið stuðlar að því
að ræktendur séu ábyrgari enda
alltaf erfiðara og erfiðara að skálda
upp ættartölur.“
Þægilegur og einfaldur
Sigurbjörn Bárðarson og Fríða
Steinarsdóttir stunda hrossarækt að
Oddhóli í Rangárvallasýslu og hafa
náð mjög góðum árangri. Þau hafa
verið dugleg að tefla fram stóðhest-
um sínum og skemmst er að minn-
ast þess af nýliðnu landsmóti þegar
Grunur frá Oddhóli og Sigurbjörn
sigruðu í töltkeppninni og hrifu
brekkuna með sér á yfirferðargang-
inum.
Hvernig hafið þið nýtt ykkur
WorldFeng við ykkar hrossarækt?
„Við athugum þau hross sem við
höfum áhuga á og berum saman
við okkar. Við flettum líka mikið
upp kynbótadómum og reynum að
fylgjast vel með.“
Hvernig finnst þér grunnurinn í
notkun?
„Hann er mjög þægilegur og ein-
faldur í notkun, maður skilur varla
hvernig maður fór af hér áður fyrr!
Oft getur verið erfitt að ná sambandi
við hann en vonandi verður bætt úr
því.“
Hvernig finnst þér mega bæta
WorldFeng?
„Hann ætti að verða opnaður á
þann hátt að fólk geti fengið ótak-
markaðan aðgang, til dæmis í gegn-
um hestamannafélögin. Þannig gæti
það greitt fyrir aðganginn í gegnum
félagsgjöldin. Einnig finnst mér að
það ætti ekki að taka gjald fyrir að
setja ljósmyndir inn í kerfið því það
hvetur fólk til að setja inn myndir
ef það er frítt.“
Telur þú að WorldFengur hafi
haft áhrif á hrossaræktina í land-
inu?
,,Já heldur betur! Upplýsingar
um ætterni eru svo miklu aðgengi-
legri og ég held til dæmis að ómeð-
vituð skyldleikaræktun detti alveg
út sem er af hinu góða.“
Bændablaðið þakkar þessum hressu
hrossaræktendum fyrir spjallið og
vonandi á WorldFengur eftir að
verða þeim áfram gagnlegur við
gæðingaræktunina í framtíðinni.
LKG
WorldFengur
– markaðsgluggi fyrir umheiminn
Sigurður og Lisbeth í Holtsmúla.
Kristbjörg og Gunnar í Auðsholtshjáleigu.
Arnþrúður í Langhúsum.
Sigurbjörn og Fríða á Oddhóli.
Lagnakerfi í
landbúnaði
Lagnakerfi í landbúnaði er
yfirskrift ráðstefnu sem haldin
verður á Hvanneyri á miðviku-
dag, 18. apríl, frá kl. 10 til 17,
en að henni standa Lagnafélag
Íslands og landbúnaðar-
ráðuneytið í samvinnu við
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Bændasamtök Íslands,
Samband íslenskra sveitarfé-
laga, Brunamálastofnun og
Lagnakerfamiðstöð Íslands.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra setur ráðstefn-
una.
Meðal þess sem um verð-
ur fjallað er núverandi ástand
í lagnakerfum í landbúnaði,
loftræstikerfi í landbúnaðar-
húsum, mjaltakerfi, upphit-
un húsa, neysluvatnslagnir,
varmadælur, heitir pottar, lagn-
ir í gróðurhúsum, raflagnakerfi,
haughúsakerfi, rotþrær og
brunavarnir, en á ráðstefnunni
verður m.a. kynnt ný tækni í
viðvörunarkerfum fyrir land-
búnaðarbyggingar. Þá verður
farið yfir verklagsreglur við
hönnun, byggingu og lokafrá-
gang lagnakerfa og ábyrgð á
verkframkvæmdum.