Bændablaðið - 10.09.2009, Side 15
15 Bændablaðið | fimmtudagur 10. september 2009
PROMENS DALVÍK
Rotþrær Vatnstankar Brunnar og framlengingar Olíu- og fituskiljur Sandföng
Sæplastvörur fást í byggingavöruverslunum
um land allt
Til liðs við náttúruna
E
IN
N
, T
V
E
IR
O
G
Þ
R
ÍR
4
11
.0
0
8
Útilegu-
mannahátíð
að Kiðagili
Ferðamannatíð sumarsins lauk
ný nýverið með pompi og prakt
að Kiðagili í Bárðardal, þegar þar
var haldin útilegumannahátíð.
Útilegumenn voru á ferli allan tím-
ann, sýndir voru valdir leikþættir
úr leikritunum um Skuggasvein og
Fjalla-Eyvind og stiginn var dans í
anda útilegumanna. Eldsmiður var
á staðnum og bjó til fallega muni
úr járni á meðan fólk gat gætt sér á
frábærum máltíðum í anda útilegu-
manna, farið til spákonu eða grýtt
útilegumenn. Seinni daginn var
svo haldið síðasta kaffihlaðborð
sumarsins og gátu ungir sem aldnir
skemmt sér saman í útilegumanna-
leikum þar sem keppt var í ýmsum
þrautum, skoppað um í hoppukast-
ala og fylgst með í hjálparleysi
þegar heimasætu var rænt af úti-
legumönnunum. Þessi hátíð mun
verða árlegur viðburður héðan í frá
og bíða menn spenntir eftir að sjá
hvað útilegumönnunum í Kiðagili
hugkvæmist að bjóða upp á að ári.
Myndatextar:
1. Eldstæði voru vítt og breitt um
svæðið.
2. Starfsfólkið klæddi sig að sjálf-
sögðu upp á að hætti útilegumanna.
3. Gunnar Marteinsson eldsmiður
hamrar járnið. Hann gerði m.a.
skeiðar og fleiri nytjamuni á sýn-
ingunni og fylgdust gestir spennir
með.
4. Gestir nutu veitinga í fallegu
umhverfi, þær voru að sjálfsögðu
að hætti útilegumanna, þar sem
lambakjötið var í öndvegi.
5. Ekki er víst að útilegumenn hafi
haft svo girnilega máltíð á boð-
stólum hversdags, en borðbúnaður-
inn sem notaður var í Kiðagili var
samskonar, þe. steinar!
6. Hjördís Ólafsdóttir yljar sér við
eldinn. Myndir Lilja Björk Þuríðardóttir
1
3
5 6
4
2