Bændablaðið - 19.11.2009, Síða 16

Bændablaðið - 19.11.2009, Síða 16
16 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009 Utan úr heimi Aukinn framleiðslukostnaður og samdráttur er í framleiðslu sauðfjárafurða um mestallan heim. Á alþjóðlegri ráðstefnu um sauðfjárrækt, sem haldin var í Brussel í Belgíu snemma í októ- ber sl., voru áberandi áhyggjur yfir stöðu greinarinnar. Sauðfjárrækt hefur um árabil búið við erfið rekstrarskilyrði víða um heim. Fjármálakreppan á sl. ári, 2008, herti svo enn á kreppunni, þar sem kindakjöt er flokkuð sem dýr vara í samanburði við fugla- og svínakjöt. Afleiðingin er sú að framleiðsla kindakjöts hefur dregist saman í mörgum löndum. Það var tilefni þess að Nýja-Sjáland, kunnasta sauðfjárræktarland í heimi, gekkst ásamt Ástralíu fyrir áðurnefndri ráðstefnu til að fjalla um hvernig hér eigi að bregðast við. Fjöldi sauðfjár í Nýja-Sjálandi hefur dregist saman um helming á undanförnum áratug. Árið 1982 voru þar um 70 milljónir fjár. Þá var mjög dregið úr opinberum afskiptum í hagstjórn landsins. Það reyndist þarlendum landbúnaði afar erfitt þannig að margir bændur urðu að bregða búi. Afleiðingin var m.a. sú að fjárfjöldi í landinu dróst saman um meira en helming og er nú 33 milljónir fjár. Í Ástralíu dróst fjárfjöldinn aftur saman um 7% á sl. ári og komst niður í sama fjölda og árið 1916. Sauðfjárrækt býr víða í heim- inum við sömu vandamál. Við blas- ir að afkoma í greininni er léleg og það leiðir til minnkandi fram- leiðslu, að sögn Mike Petersen, stjórnarformanns nýsjálensku sauð- fjársamtakanna Meat & Wool New Zealand. Áðurnefnda ráðstefnu í Brussel um sauðfjárrækt sátu fulltrúar fjárbænda og opinberra stofnana í Eyjaálfu, Afríku, Ameríku og Evrópu. Kindakjöt stendur andspæn- is samkeppni við ódýrt fugla- og svínakjöt. Mikil hagræðing í þeim greinum hefur leitt til þess að unnt er að selja það á verulega lægra verði en kindakjöt. Þeirri skoð- un vex fylgi að sauðfjárrækt verði „hliðarbúgrein“ fyrir lúxusmarkað. Einn þátttakendi á ráðstefnunni gaf kindakjötinu þá einkunn að það væri munaðarvara fyrir eldri borgara. Mike Petersen taldi þó ekki að verðlækkun á kindakjöti væri rétta leiðin í stöðunni. Hvorki kaupmenn né neytendur geta vænst þess að lamb verði jafn ódýrt og svín eða kjúkling- ur. Verkefnið er að fá sanngjarnt verð fyrir kjötið, sem byggja myndi á gæðum þess, og tryggja bóndanum jafnframt stærri hluta verðsins. Hár framleiðslukostnaður og auknar álögur stjórnvalda á grein- ina hafa leitt til þess að margir fjár- bændur hafa hætt búskap eða skipt yfir í aðrar búgreinar. Þátttakendur á ráðstefnunni voru sammála um að ná þyrfti niður framleiðslu- kostnaðinum. Jafnframt höfðu þeir áhyggjur af því að kostnaðarsamar aðgerðir í loftslagsmálum myndu bitna á rekstri þeirra. Þá var rætt um það hvort aukin tækni í rekstrinum gæti bætt afkomuna, svo sem við vöruþróun og gagnvart umhverfismálum. Neytendur vilja fá vöruna sem mest tilbúna til matreiðslu og neyslu. Það er hins vegar útbreidd skoðun, einkum meðal ungu kyn- slóðarinnar, að kindakjöt sé „erf- itt“. Þessu verðum við að ráða bót á, segir Mike Petersen. Nationen Sauðfjárrækt X Nýja-Sjáland og Ástralía eru mestu útflytjendur kindakjöts af öllum löndum í heiminum. X Fé í Nýja-Sjálandi hefur fækkað úr 70 milljónum árið 1982 niður í 33 milljónir nú. Í Ástralíu, þar sem heimamarkaðurinn er stærri, er fjárfjöldinn nú 72 milljónir. Fénu hefur fækkað þar um 7% á einu ári og er nú færra en nokkru sinni síðan 1916. X Fjöldi sauðfjár í löndum Suður-Ameríku og í Suður-Afríku hefur haldist í horfinu síðastliðinn áratug en fénu hefur fækkað þar veru- lega frá því á 10. áratug síðustu aldar. X Í nokkrum fjárríkum löndum, svo sem Kína, Indlandi og Súdan, hefur sauðfé farið fjölgandi. Sauðfé fækkar um mestallan heim Staða Afríku er slæm um þess- ar mundir. Hátt í helmingur íbúa álfunnar, 43% eða yfir 200 milljónir manna, býr við mat- arskort. Konur eiga þar að jafn- aði 5,3 börn og barnadauði er 5-6 sinnum algengari en í Suður- Ameríku og Austur-Asíu. Þá er eyðni þar afar útbreidd og talið að yfir tvær milljónir manna deyi úr sjúkdómnum árlega. Á síðustu 50 árum hafa verið gerðar 186 stjórnarbyltingar í Afríku og háðar 26 styrjaldir. Flestum dettur fyrst í hug að kenna spilltum þjóðarleiðtogum um ástandið, en fleira liggur hér að baki. Á stórum svæðum er veðurfar óhagstætt til búsetu og margir sjúk- dómar eru þar skæðari en í öðrum þróunarlöndum. Jafnvel þó að allir einræðisherr- ar Afríku hefðu hagað sér skikk- anlega, þá hefði álfan átt við mikil efnahagsleg vandamál að glíma. Náttúruauðlindir Afríku hafa í stórum dráttum verið ofnýttar og þar hafa iðnríki Vesturlanda og fjölþjóðleg stórfyrirtæki átt mestan hlut að máli. Ríki Afríku hafa haft brýna þörf fyrir að efla útflutning sinn en útflutningsvörurnar hafa eink- um verið óunnið hráefni, svo sem kaffi- eða kakóbaunir, eða málm- ar og önnur jarðefni. Verð þess- ara útflutningsvara hefur verið afar lágt. Þar með hefur myndast vítahringur bæði fyrir afkomu land- anna og umhverfið. Þannig eru nú í Afríku um 150 milljónir manna sem skortir eldivið og þetta fólk neyðist til að höggva niður verð- mæta skóga til að lifa af. Jarðvegur í Afríku er víða ófrjósamur og hefur að ýmsu leyti minni mótstöðu gegn jarðvegs- eyðingu en jarðvegur í t.d. Asíu. Áætlað er að 72% af ræktunarlandi og 31% af beitilandi í Afríku stafi hætta af jarðvegseyðingu. Þá er minna um vatn til vökvunar akra en í öðrum heimsálfum, einkum í norðan- og austanverðri álfunni. Af þeim sökum hefur ekki verið unnt að hrinda þar af stað „Grænni bylt- ingu“ eins og í Asíu. Til þess að rofi til í Afríku þarf að koma spilltum leiðtogum frá völdum, draga úr fólksfjölguninni og skjóta fleiri stoðum undir efna- haginn. Jafn mikilvægt er að auka matvælaframleiðsluna. Næstu tvo áratugi þurfa ríki Afríku að verja 20% af tekjum sínum til að efla matvælafram- leiðslu sína með auknum rannsókn- um og bættri tækni, vökvun, vega- lagningu, öflun hreins neysluvatns og menntun. Matvælakreppan herðir hér enn á. Ástæða er til að draga skýrt fram að mörg dæmi eru um góða möguleika á að auka matvælafram- leiðslu í Afríku. Í Eþíópíu voru sett lög um stöðu smábænda og rétt þeirra til landsins. Það hefur skilað árangri í aukinni búvöruframleiðslu og minni jarðvegseyðingu. Í Kenía hefur átak í baráttu við illgresi aukið uppskeruna um 30-40%. Með samræktun korns og köfn- unarefnisbindandi trjáa hefur upp- skera af maís og hirsi tvö- til þre- faldast, jafnframt því að draga úr jarðvegseyðingu, bæta vatnsrýmd jarðvegsins og afla fóðurs fyrir búfé. Á stórum svæðum í Austur- Afríku og á hinu svokallaða Sahel- belti skortir um 80% landsins fos- fór. Í stað þess að flytja inn dýran fosfóráburð væri unnt að nýta fosfór sem finna má í álfunni, en athuganir sýna að unnt er að þre- falda maísuppskeru í Afríku með eigin fosfórvinnslu. Í mörgum löndum Afríku hafa verið grafnar stórar gryfjur til að safna í vatni á regntímanum til notkunar síðar. Í Vestur-Afríku hafa verið teknar í notkun litlar vatns- dælur, oft knúnar af sólarrafhlöð- um, til að vökva gróður á þurrka- tímabilum. Þá hafa verið æxluð saman afr- ísk, asísk og evrópsk kúakyn sem skila auknum afurðum, mjólk og kjöti, af gróffóðri einu. Auk þess eru möguleikar Afríku til fisk- ræktar góðir, bæði í vötnum og við strendurnar. Í Afríku er það hins vegar enn mikilvægara en hjá okkur að við alla ræktun sé þess gætt að hið við- kvæma vistkerfi beri ekki skaða af. Það er erfitt en ekki ógerlegt verk- efni, sem m.a. reynsla frá Senegal sýnir. Landsbygdens Folk/ U. B. Lindström Blikur á lofti um framtíð Afríku Rússar kaupa allt keng- úrukjöt á markaðnum Rússland er stærsti innflytjandi kengúrukjöts í heiminum og kaupir að heita má allt kengúru- kjöt sem flutt er út frá Ástralíu. Viðskiptin svara til um þriðj- ungs af öllum kjötútflutningi Ástralíu. Minnst af kjötinu fer beint í rússneskar verslanir en mest í frekari vinnslu, svo sem í bjúgu og pylsur. Viðskiptin svöruðu árið 2005 11 milljónum dollara en hafa síðan aukist verulega. Rússneskir neytendur vita almennt ekki af því þegar þeir neyta kengúrukjöts. Kjötiðnaðurinn telur hlutfall þess í afurðunum svo lítið að það taki því ekki að upplýsa um það. Skortur er á kjöti í Rússlandi og kengúrukjöt kemur sér þá vel, þar sem engar takmarkanir eru á innflutningi á því. Þjóðir á Balkanskaga, Þjóðverjar, Frakkar og Belgar flytja einnig inn kengúrukjöt. Bretar fluttu það inn framundir síðustu aldamót en hættu því eftir að þarlend dýraverndarsamtök mótmæltu innflutningnum. Landsbygdens Folk Daglegt viðfangsefni milljarða manna um allan heim er að rækta jörðina, kaupa mat eða selja hann. Þetta kemur okkur öllum við. Tökum dæmigerðan bónda, hún býr í litlu þorpi, fer á fætur fyrir sólarupprás og fer gangandi marga kílómetra til að sækja vatn. Ef þurrkar, jurtasjúkdómar eða skað- valdar úr dýraríkinu eyðileggja ekki uppskeruna aflar hún nægi- legs matar fyrir fjölskylduna og e.t.v. smávegis að auki til að selja. En markaðurinn er of langt í burtu og þar hefur enginn efni á að eiga viðskipti við hana. Hugsum okkar líka ungan mann í stórborg 150 km í burtu. Hann vinnur sér inn smávegis vasapen- inga og fer á markaðinn þar sem á boðstólum er skemmdur eða alltof dýr matur. Bóndinn vill selja og ungi maðurinn vill kaupa en við- skiptin geta ekki farið fram, þar sem um þau gilda flóknar reglur sem þau hafa enga stjórn á. Hungrið ógnar Kjarninn í matvælaöryggi er sá að aðstaða sé fyrir hendi til að bregðast við matarskorti, þ.e. að bændur heims eigi kost á því að erja jörð sína og fá góða uppskeru, gæta bústofns síns og stunda veið- ar, jafnframt því að tryggja það að afurðirnar komist óskemmdar til þeirra sem þarfnast þeirra. Matvælaöryggi er ógnað af fjölda vandamála; þurrkum og flóðum af völdum breytinga á veð- urfari, breytingum í alþjóðlegum efnahagsmálum, sem hafa áhrif á verð á matvælum, og hækkuðu olíuverði sem hefur áhrif á flutn- ingskostnað. Viðvarandi hungur ógnar fólki, yfirvöldum, samfélögum og ríkj- um. Vannært fólk er ófært um að annast fjölskyldu sína og býr við vonleysi og örvæntingu sem skap- ar spennu og ofbeldi í mannlegum samskiptum. Frá árinu 2007 hafa verið átök vegna matarskorts í meira en 60 löndum, en landbúnaður er atvinnuvegur um 75% fátæks fólks í heiminum. Ríkisstjórn Obama lítur á bar- áttuna við hungur sem fyrsta for- gangsverkefni í stefnu sinni í utan- ríkismálum. Önnur lönd styðja okkur í þeirri baráttu. Hópur iðn- ríkja hefur heitið því að greiða yfir 22 milljarða dollara á þriggja ára tímabili til að stuðla að hagvexti í landbúnaði í heiminum. Í lok sept- ember sl. vorum við Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ, gestgjafar á fundi leiðtoga yfir 130 landa þar sem leitað var eftir alþjóðlegum stuðningi við þetta verkefni. Áætlanir okkar mótast af feng- inni reynslu. Hingað til höfum við veitt alltof miklu fé í þróunarverk- efni sem hafa ekki borið viðunandi árangur. Við höfum lært af því. Við vitum nú að líklegast til árang- urs er að stjórn verkefnanna sé í höndum þeirra sem standa næst vettvangi úrlausnarefnanna, en starfa ekki á vegum stofnana sem eru staðsettar víðs fjarri honum. Við vitum einnig að það skilar bestum árangri að aðstoðin komi sem fjárfesting en ekki sem gjöf. Með þetta í huga mun verða unnið út frá nokkrum meginreglum: Í fyrsta lagi er engin ein leið sem gildir um landbúnað alls stað- ar. Við munum bjóða fram aðstoð okkar til að hrinda í framkvæmd áætlunum á hverjum stað. Í öðru lagi munum við vinna gegn hungri í smáu sem stóru sem á bjátar, hvort sem um er að ræða að útvega sáðkorn eða huga að tryggingamálum bændanna. Í þriðja lagi munum við kanna sérstaklega stöðu kvenna, færni þeirra og þolgæði, en meirihluti bænda í heiminum eru konur. Í fjórða lagi munum við leggja áherslu á að styðja samstarf innan landa, héraða og alþjóðlega, þar sem hungri verður ekki útrýmt án utanaðkomandi aðstoðar. Í því sambandi munum við styðja alþjóðasamtök sem hafa öðlast mikla reynslu í hjálparstarfi víða um heim. Í fimmta og síðasta lagi heitum við því að vinna fyrir opnum tjöld- um og undir eftirliti um að settum reglum sé framfylgt og jafnframt að endurskoða vinnuferla okkar eftir því sem tilefni gefast. Jafnframt framlagi okkar til jákvæðrar þróunar landbúnaðar- ins munum við verða reiðubúin að grípa inn í með neyðarhjálp þar sem hörmungarástand kemur upp, svo sem nú á sér stað í Sómalíu í Afríku, þar sem þurrkar, uppskeru- brestur og borgarastyrjöld hafa leitt til mannlegs harmleiks. Uppbygging landbúnaðar á heimsvísu gerir miklar kröfur til þ j ó ð a heims. Það er þannig eitt metnaðarfyllsta þróunarverkefni sem Bandaríkin hafa staðið and- spænis. Ef það tekst mun framtíð okkar verða friðsamlegri en fortíð- in. Nationen Matvælaöryggi um allan heim Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.