Bændablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009
Föstudaginn 13. nóvember sl.
kynnti Hagþjónusta landbún-
aðarins, niðurstöður úr uppgjöri
búreikninga ársins 2008. Í upp-
gjörinu var unnið úr upplýsing-
um frá 302 búum. Þar af voru
150 sérhæfð kúabú og 89 sér-
hæfð sauðfjárbú. Að auki voru
64 öðruvísi samsett bú þar sem
mjólkur- og/eða kindakjötsfram-
leiðsla kemur einnig víða við sögu.
Búreikningabúin framleiddu
alls 27% innveginnar mjólk ur
á árinu 2008 (34 millj. lítra) og
13,2% kindakjötsframleiðsl unn-
ar (1.177 tonn).
Rekstur kúabúa – samanburður
við árið 2007
Meðal innvigtun mjólkur á 116
sérhæfðum kúabúum var 215.000
lítrar árið 2008 og meðal innvigt-
un á kú nam 5.117 lítrum. Tekjur
af aðalstarfsemi, framleiðslu naut-
gripaafurða, jukust um 16,5%,
bæði hafa búin stækkað lítillega og
eins hækkaði mjólkurverð á árinu.
Breytilegur kostaður hækkaði hins
vegar um 32%. Þar vegur þyngst
61% hækkun á liðnum áburði og
sáðvörum, eða nærri 4 krónur á
lítra innveginnar mjólkur. Þjónusta
hækkaði um 27,3%, rekstur búvéla
þ.m.t. eldsneyti um 22,8% og fóður
um 20,2%. Framlegð hækkar um
10,2% en framlegðarstig búsins,
þ.e. hlutfall reglulegra tekna sem
er eftir til að greiða fastan kostnað,
afskriftir og fjármagnsliði lækkar
því úr 65,2% í 60,9%. Þessa breyt-
ingu virðist einkum mega rekja til
hækkana á erlendum aðföngum
bæði vegna hækkana á heimsmark-
aðsverði sem og lækkun gengis
krónunnar. Hálffastur kostnaður,
þ.m.t. laun eigenda (bóndans) stóð
nánast í stað (hækkun um 2,1%).
Niðurstaðan er því að hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
hækkar um 16,9% milli ára
Afskriftir voru 11% minni á
árinu 2008 og liggur sú breyting
fyrst og fremst í lægri afskriftum
véla, eða úr 2.523 þús. kr. í 1.988
þús. kr. Stóri skellurinn er síðan
fjármagnsliðirnir sem hækka um
27,5 milljónir kr. milli ára (692%).
Greinilegt er að kúabúin eru fjár-
mögnuð að verulegu leyti í erlend-
um lánum og hrun krónunnar því
megin orsök þessa auk hárra vaxta
og verðbólgu.
Rekstur sauðfjárbúa –
samanburður við árið 2007
Alls nær samanburðurinn til 71
bús. Vetrarfóðruðum kindum
fjölg aði um 10 milli ára og tekjur
af aðalstarfsemi aðrar en bein-
greiðslum 2.881 þús. kr. í 2.405
þús. kr. (18,2%). Tekjur af bein-
greiðslum hækkuðu um 20,9% sem
má að verulegu leyti rekja til hækk-
aðs gæðastýringarálags, samkvæmt
sauðfjársamningi sem tók gildi
1. janúar 2008. Breytilegur kost-
aður hækkaði um 27,2%. Þar vegur
þyngst 44% hækkun á liðnum
áburður og sáðvörur, þá hækkaði
aðkeypt fóður um 16,8. Framlegð
hækkar um 8,5% en framlegðar-
stig búsins, þ.e. hlutfall reglulegra
tekna sem er eftir til að greiða fast-
an kostnað, afskriftir og fjármagns-
liði lækkar því úr 66,4% í 62,8%.
Hálffastur kostnaður, þ.m.t. laun
eigenda (bóndans) hækkaði um
7,4% Niðurstaðan er því að hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagns-
liði hækkar um 11,6% milli ára.
Afskriftir voru 10,8% minni
á árinu 2008 og líkt og á kúabú-
um liggur sú breyting fyrst og
fremst í lægri afskriftum véla.
Fjármagnsliðirnir hækka um 319%
(3.118 þús. kr.). Sauðfjárbúin virð-
ast því í minna mæli vera fjármögn-
uð með erlendum lánum. Á móti
kemur að veltan á þeim er lítil og af
litlu að taka til að fást við sveiflur
af þessu tagi.
Samantekt
Niðurstöður úr uppgjöri búreikn-
inga síðasta árs draga skýrt fram
þann fjárhagsvanda sem allur
búrekstur stendur frammi fyrir og
er afleiðing fjármálahrunsins síð-
astliðið haust. Nauðsynlegt er að
tekið verði á fjárhagsvanda fyr-
irtækja í landbúnaði. Ljóst er af
rekstrartölum að reksturinn heldur
sínu striki þó áhrif gengislækkunar
á aðfangaverð séu ekki að fullu
komin fram auk þess sem framlög
samkvæmt búvörusamningum hafa
verið skert.
Þessi niðurstaða undirstrikar
nauðsyn þess að tekið verði á fjár-
hagsvanda búanna þannig að skuld-
ir verði aðlagaðar rekstrinum með
þeim hætti þó að eigendur sjái fram
á að mynda eigin fé í rekstrinum.
Strax á árinu 2008 sést að bændur
hafa dregið saman í fjárfestingum
til að bregðast við breyttri stöðu en
til framtíðar verður eðlileg endur-
nýjun að geta átt sér stað ásamt því
að eigendur geti tekið út eðlilegt
endurgjald fyrir vinnu sína.
Á markaði
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur Bændasamtaka
Íslands
eb@bondi.is
Búrekstur
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir september 2009
okt.09 ágú.09 nóv.08 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2009 okt.09 okt.09 október '08 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 603.083 1.861.001 6.932.936 18,2 6,4 -9,0 25,6%
Hrossakjöt 99.147 208.127 1.062.126 -8,3 0,4 9,2 3,9%
Nautakjöt 328.889 938.430 3.696.122 -1,9 4,0 0,4 13,7%
Kindakjöt 4.817.339 8.565.521 8.859.099 1,1 -0,6 -0,8 32,8%
Svínakjöt 500.239 1.589.053 6.487.353 -14,3 -12,0 0,3 24,0%
Samtals kjöt 6.348.697 13.162.132 27.037.636 0,7 -0,9 -2,3
Sala innanlands
Alifuglakjöt 576.851 1.806.428 6.995.172 -1,1 0,3 -8,2 28,8%
Hrossakjöt 67.112 149.397 686.238 -14,0 -6,2 10,3 2,8%
Nautakjöt 326.964 957.559 3.705.200 -3,0 5,4 0,1 15,2%
Kindakjöt* 1.073.533 2.504.723 6.459.904 -4,7 1,2 -14,4 26,6%
Svínakjöt 500.719 1.606.784 6.476.116 -14,3 -11,1 0,0 26,6%
Samtals kjöt 2.545.179 7.024.891 24.322.630 -6,1 -1,8 -6,3
* Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana.
Helstu niðurstöður úr samanburði áranna 2007 og 2008, 116 kúabú,
þús. kr.
2007 2008 Breyting %
Innvegin mjólk 212.599 215.023
Heildartekjur 22.281 25.812 15,9
Tekjur af nautgripum 20.208 23.534 16,5
Breytilegur kostnaður 7.295 9.636 32,1
Hálffastur kostnaður 6.460 6.593 2,1
Afskriftir 5.568 4.933 -11,4
Fjármagnsliðir 3.974 31.469 691,8
Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði
7.842 9.169 16,9
Hagnaður/tap -645 -26.624
Framlegðarstig 65,2 60,9
Skuldir alls 46.670 70.213 60,8
Höfuðstóll -8.269 -36.795
Helstu niðurstöður úr samanburði áranna 2007 og 2008, 71 sauðfjárbú,
þús. kr.
2007 2008 Breyting
Innvegið kindakjöt, kg 7.531 8.997
Heildartekjur 6.251 7.128 14,0
Tekjur af sauðfé 5.114 6.105 19,4
Breytilegur kostnaður 1.895 2.410 27,2
Hálffastur kostnaður 2.576 2.767 7,4
Afskriftir 1.236 1.103 -10,8
Fjármagnsliðir 978 4.093 318,7
Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði
1.505 1.679 11,6
Hagnaður/tap -456 -3.303 624,3
Framlegðarstig 66,4 62,8
Skuldir alls 10.548 13.983 32,6
Höfuðstóll 524 -2.467
Afkoma á kúa- og sauðfjárbúum 2008
– rekstrarkostnaður fer hækkandi og fjármagnskostnaður að sliga búin
Innflutt kjöt
Tímabil janúar - september Árið 2009 Árið 2008
Alifuglakjöt 262.696 457.283
Nautakjöt 83.181 301.778
Kindakjöt 61 0
Svínakjöt 116.319 259.009
Aðrar kjötvörur af áðurtöldu 19.942 14.983
Samtals 482.199 1.033.053