Bændablaðið - 19.11.2009, Síða 20

Bændablaðið - 19.11.2009, Síða 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009 Líf og starf Skýrt var frá niðurstöðum kúa- dóma í Eyjafirði og Suður-Þing- eyjarsýslu og viðurkenningar veitt ar á fundum sem haldnir voru nýlega í Hlíðarbæ í Hörg- ár byggð og á Narfastöðum í Reykja dal. Um nokkurt árabil hafa flestar fyrsta kálfs kvígur á þessu svæði verið útlitsdæmdar. Einn aðal- tilgangur kvíguskoðunarinnar er að fá afkvæmadóma á ungnautin, en jafnframt að styrkja dóm eldri nauta. Þegar jafnframt liggja fyrir kynbótaeinkunnir kúnna varðandi afurðir hefur hver árgangur verið tekinn til uppgjörs og var nú komið að kúm fæddum árið 2004. Sá árgangur samanstóð af alls 1653 kúm, 1249 í Eyjafirði og 404 í Suður-Þingeyjarsýslu. Kýrnar voru á 158 búum, mjög mismarg- ar á hverju, eða frá 1 upp í 50. Meðaleinkunn fyrir skrokkbygg- ingu reyndist vera 27,9 stig, 16,8 fyrir júgur, 16,3 fyrir spena, 17,7 fyrir mjaltir og 4,7 fyrir skap. Í dómseinkunn gerir þetta að með- altali 83,4 stig. Einkunnin sveifl- aðist frá 75 stigum upp í 90. Eigendur þessara kúa fengu sem viðurkenningu stækkaðar myndir af kúnum, gefnar af bún- aðarsamböndunum á viðkomandi svæðum. Að loknu fyrsta mjólk- urskeiði kýrinnar, þ.e. þegar hún hefur fætt sinn annan kálf, fær hún reiknaða út kynbótaeinkunn þar sem tekið er tillit til hennar eigin afurða, til viðbótar ætternismati. Út frá kynbóta- og dómseinkunn- inni er reiknuð út heildareinkunn fyrir kýrnar. Á það að vísu einungis við þær kýr úr þessum árgangi sem lifandi voru um síðustu áramót. Heildareinkunnin er reiknuð þann- ig: Dómseinkunn x 2 + kynbótaein- kunn + eigið frávik fyrir afurðir. Búnaðarsamböndin veittu eig- endum þriggja stigahæstu kúnna á hvoru svæði verðlaunastyttur, gull-, silfur- og bronskýr, auk stækkaðra mynda af kúnum. MÞÞ Kýr verðlaunaðar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu Verðlaunahafar í Eyjafirði f.v.: Þór og Aðalheiður í Kristnesi, Vaka á Brattavöllum, Sigurhanna á Hofi, Pálmi í Nesi, Friðrik og Sigurbjörg á Grund, Jónas á Rifkelsstöðum II, Benjamín á Ytri- Tjörnum, Níels í Torfum, Ármann á Skáldsstöðum, Gunnsteinn og Dagbjört á Sökku, Ingólfur í Þríhyrningi, Bogi á Stóra-Hamri I og Helgi á Syðri-Bægisá. Verðlaunahafar í S-Þing. ásamt formanni BSSÞ, aftari röð f.v.: Jón á Auðnum form., Ólafur og Elín á Fljótsbakka, Karl í Veisu, Unnur og Jón í Víðiholti, Víðir í Úlfsbæ, Árni í Miðhvammi og Sigurður á Lækjamóti. Fremri röð f.v.: Sigríður á Laxamýri, Friðgeir á Breiðumýri og Sveinbjörn á Búvöllum. Á myndirnar vantar nokkra verðlaunahafa. Fold 583 á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit (hér að ofan) bar af öðrum kúm í Eyjafirði. Hún fékk 89 í dómseinkunn og 304 í heildarstig. Lokka 224 á Lækjamóti í Köldukinn (efst til vinstri) og Lóa 450 í Grímshúsum í Aðaldal (lengst til vinstri) fengu hæstu dómseinkunn þing- eyskra kúa, 90, en Mósa 129 á Breiðumýri í Reykjadal varð efst í heildar- stigum, hlaut 301 stig. Bændur blogga Nú hefur Bændablaðið ákveðið að hrinda af stað nýjum þætti í blaðinu þar sem fengin eru að láni dagbókarbrot hjá bændum til að skyggnast inn í daglegt líf í sveitum landsins. Mun blaðið nota bloggfærslur af Netinu og þiggur ritstjórn með þökkum ábendingar um bændur sem not- ast við blogg til dagbókarskrifa. Þeir sem bent geta á slíkar síður eru vinsamlega beðnir um að senda línu á netfangið ehg@ bondi.is Svanur H. Guðmundsson bóndi í Dalsmynni í Eyja- og Miklholtshreppi http://dalsmynni.123.is/blog/ 17.11.2009 – Refaveiðarnar, ríkið, möppudýrin og mófugl- inn sem tjónast Nú stefnir í að ríkið hætti að taka þátt í refaveið- unum. Það hlálega við þennan „sparnað“ er það að við grenjavinnsluna vinna undantekningarlítið verktakar sem skila ríkissjóði VSK af öllum reikningum. Sýnt hefur verið fram á að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti vegna refaveiðanna er meiri en þessar millur sem hafa farið í endurgreiðsluna, enda er það gamalt baráttumál sveitarfélaganna að fá endurgreiddan vaskinn vegna veiðanna. Verði þetta að veruleika mun margt breytast í refa- veiðinni. Hluti sveitarfélaganna mun halda áfram veið- unum en þjarma að veiðimönnunum með greiðslur fyrir verkið. Önnur munu leggja af skipulegar veið- ar og bændur og áhugasamir veiðimenn sinna þessu skipulagslaust. Þetta mun þýða það að skýrsluhald Umhverfisstofnunar vegna veiðanna mun leggjast af, því forsendur endurgreiðslunnar voru nákvæmar veiði- skýrslur frá veiðimönnum/sveitarfélögum. Ekkert sveitarfélag mun skila inn veiðiskýrslum vegna refaveiða komi þetta til framkvæmda. Ég þekki persónulega vel hvað skeður þegar stærð refastofnsins takmarkast af afkomumöguleikum þeirra á veiðisvæð- inu/óðalinu sínu sem minnkar sífellt eftir því sem fjölgunin verður meiri. Mófuglinn þurrkast fljótlega út því þó rebbinn sé klókur um margt rányrkir hann fuglinn og hreinsar gjörsamlega upp egg og unga. Mér hefur sýnst að mófuglinn sé ótrúlega staðbundinn, því það tekur mörg ár fyrir svona svæði að ná sér upp eftir að búið er að koma refastofni svæðisins í skaplegt horf. Þegar svona „offjölgun“ verður og mófuglinn þrot- inn er stutt í að rebbi snúi sér að lömbum og síðan fullorðnu fé þegar kemur fram á haustið. Skynsamlegt væri hjá þessari krísuríkisstjórn ef halda á því til streitu að hætta aðkomu að refaveiðum að taka upp endur- greiðslu virðisaukaskatts af veiðunum. Með því myndi kostnaður margra sveitarfélaganna standa í stað og veiðiskýrslurnar skila sér inn. Ef niðurstaðan verður hinsvegar sú að skipuleg refaveiði leggist af í mörg- um sveitarfélögum væri skynsamlegt að setja pening og atvinnulaus möppudýr í að fylgjast með hvað ger- ist úti á mörkinni þegar rebbanum fjölgar. En nú um stundir er það víst ekki skynsemin heldur örvæntingin sem ræður ríkjum. Og hetjur lyklaborðanna munu fara á því meiri kostum um málið sem þeir vita minna um lífríkið. Gallerýið í sveitinni, Teigi Eyjarfjarðarsveit. Bjóðum fólki sem er á ferð um Norðurland að skoða fjölbreytt úrval í list og hand- verksvörum. Vinsamlegast hafið samband ef hópar hefðu áhuga á að líta við. Opið frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14-18. Aðra daga má hringja í síma 894 1323 Gerða eða 820 3492 Svana. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.