Bændablaðið - 19.11.2009, Side 24
24 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009
4 8 5
2 3
7 4
2 8
9 1 7 6
6 7
3 1
4 9
1 8 2
6 9 2
3 5 4
5 3
1 5
4 2 7 6
7 1
9 3
9 3 8
4 6 9
4 9 7 2 3
8
6 4 9
1
9 8
4
2 6 1
9
8 7 3 1 5
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Byggsalat í grískum stíl og jarðarberjakókosterta
Hafdís Sigrún Roysdóttir er
grunnskólakennari við Kirkju-
bæjarskóla á Síðu og býr fimm
daga vikunnar á Kirkju bæjar-
klaustri en um helgar og í skóla-
fríum heima á Svínafelli í Öræf-
um. Hafdís á ættir að rekja til
Vestfjarða og ól móðir hennar,
Svan hvít Sigurlinnadóttir, þau
syst kinin upp á soðinni ýsu, salt-
fiski, gellum, kinnum, signum
fiski, lúðu og hrefnukjöti svo fátt
eitt sé nefnt.
„Í Svínafelli háttar þannig til
að þar eru margir bæir sem mynda
bæjartorfu og ber hvert íbúðarhús
sitt nafn. Ég, ásamt manni mínum
Jóhanni Þorsteinssyni og börn-
um okkar þremur, eigum heima á
Nýjatúni, Pálína mágkona mín og
Ólafur eiga heima í Suðurbæ og
mágur minn Guðjón Þorsteinsson
á heima í Austurbæ, en þar bjuggu
tengdaforeldrar mínir einnig;
Sig rún Pálsdóttir og Þorsteinn
Jó hanns son sem eru bæði látin.
Þá eru einnig í Svínafelli bæirnir
Breiðatorfa, Bölti og Víðihlið.
Við hjónin erum hvort af sínu
landshorninu. Maðurinn minn er frá
Svínafelli í Öræfum en ég á ættir
mínar að rekja til Vestfjarða, bæði
í móður- og föðurlegg. Móðir mín,
Svanhvít Sigurlinnadóttir, ól okkur
systkinin upp á fiski; soðinni ýsu,
saltfiski, gellum, kinnum, signum
fiski, reyktum fiski, lúðu, skötu og
hrefnukjöti og þrifumst við vel af.
Ég sýð því skötu á Þorláksmessu til
að viðhalda hefðum frá mínu æsku-
heimili (reyndar var skatan borðuð
oftar en bara á Þorláksmessu), en
hangikjötið er einnig soðið þann
dag og borðað kalt á jóladag en
það er hefð frá heimili Jóhanns.
Hangikjötið er heimareykt eins og
tíðkast til sveita og sér mágur minn
Guðjón oftast um það.“
London-lamb og „pokabaunir“
„Mér finnst oftast gaman að elda en
verð þó að viðurkenna að stundum
elda ég meira vegna þess að ég þarf
þess frekar en af brennandi löng-
un. Ég fór ekki að fást við elda-
mennsku fyrr en ég fór að búa sjálf.
Um tíma var ég jurtaæta og því
finnst mér gott að elda þannig mál-
tíðir í bland. Uppáhaldsmaturinn
minn er sennilega rauðrófubuffið
hennar Þórunnar Sveins með góðu
salati og heimabökuðu brauði en ég
kann líka að meta gott lambakjöt.
Á aðfangadag hefur skapast sú
hefð hjá okkur að borða London-
lamb, einnig heimareykt, og er
það svili minn, Ólafur Sigurðsson
í Suðurbæ, sem úrbeinar og saltar,
en Guðjón reykir. Einni skemmti-
legri matarhefð hef ég kynnst hér
í Öræfum, sem gaman er að deila
með lesendum Bændablaðsins, en
það eru „pokabaunir“, gular hálf-
baunir, sem soðnar eru í léreftspoka
ásamt hangikjötinu. Baunirnar
sjóða í mauk, sem tekur í sig bragð
af hangikjötinu og er borðað með
því. Afar ljúffengt. Þetta ku vera
komið frá frönskum skútusjómönn-
um, sem dvöldu stundum á bæjum
um tíma, ef skip þeirra strönduðu.
Þeir hafa ef til vill skilið eitthvað
fleira eftir en kunnáttuna að sjóða
pokabaunir.“
Byggsalat í grískum stíl
íslenskt bankabygg
gúrka
kirsuberjatómatar
rauðlaukur
paprika
fetaostur
ólífur
oreganó
ólífuolía
sítrónusafi
salt og pipar úr kvörn
Aðferð:
Sjóðið bankabyggið (3 dl bygg á
móti 9 dl af vatni) og kælið. Hafið
einn hluta byggs á móti einum
hluta af grænmeti. Blandið síðan
öllu hráefninu saman og látið
standa í 1-2 klukkustundir áður en
borðað er.
Kókoskaka með jarðarberjarjóma
4 egg
1 bolli sykur (2 dl)
4 msk. hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 ½ bolli kókosmjöl
100 g rifið súkkulaði
1 tsk. vanilludropar
½ l rjómi
1 dós jarðarber
Aðferð:
Stífþeytið egg og sykur saman.
Sigtið hveitið og lyftiduftið saman.
Blandið kókosmjölinu og rifnu
súkkulaðinu saman við hveitið og
blandið þessu síðan öllu varlega
saman við eggjahræruna. Bakið
í tveimur hringlaga formum við
180°C í um 20-25 mínútur.
Þeytið hálfan líter af rjóma og
stappið jarðarber, geymið nokk-
ur ber til að skreyta með, hrærið
varlega saman, setjið á milli botn-
anna og ofan á. Einnig má setja
jarðarberjarjómann á milli botn-
anna og hreinan rjóma ofan á. Mér
finnst best að baka þessa köku dag-
inn áður en hennar er neytt og setja
rjómann á milli botnanna og geyma
hana þannig yfir nótt. Síðan þeyti
ég ferskan rjóma og set á hana
rétt áður en hún er borin fram. Þá
er einnig gott að þurrka vel jarð-
arberin, ef þau eru úr dós. Láta þau
standa á eldhúsbréfi á diski inni í
ísskáp svo rjóminn litist ekki af saf-
anum. ehg
MATARKRÓKURINN
Við tókum við búinu 18. ágúst
1989, en áður bjuggum við á
Patreksfirði. Við fluttum inn 1.
sept. og giftum okkur 9. sept. Þá
voru hér 20 mjólkandi kýr og 70
ær. Fjárhúsin fuku svo í febrúar
1991 en þá vorum við hætt með
fé. Við byrjuðum á því að endur-
byggja húsið, síðan byggðum
við fjósið og breyttum því, síðan
reistum við skemmu sem er skipt
í tvö hólf þar sem grásleppuverk-
un er öðrumegin og verkstæði
hinumeigin. Nú erum við að
ljúka við að innrétta nýju fjós-
viðbygginguna og þar er mjalt-
arbás sem tekur 20 kýr og gjafa-
aðstaða fyrir 80 kýr og geldneyti
á sömu jötu, einnig 30 legubásar
og svo verður gamla hlutanum
breytt í 40-50 legubása.
Býli?
Mýrartunga 1.
Staðsett í sveit?
Við innanverðan Króksfjörð í
Reykhólasveit, Austur-Barða-
stranasýslu.
Ábúendur?
Hjónin Erla Þórdís Reynisdóttir og
Jens Valbjörn Hansson.
Fjölskyldustærð (og gæludýr)?
Erla og Jens eiga þrjú börn, og
tvö barnabörn. Kristbjörg er fædd
1983 og býr á Akranesi ásamt dótt-
ir sinni Ísabellu sem er að verða
5 ára. Kári er fæddur 1987 og er
bílamálari hann býr í Reykjavík.
Þóra er fædd 1990 og býr á býlinu
ásamt 18 mánaða syni sínum. Svo
eru það læðurnar Múrí og Mala og
hundurinn Moli sem sjá um mein-
dýraeyðingar.
Stærð jarðar?
Um 2000 hektarar.
Tegund býlis?
Kúabú. Einnig er sonur okkar og
Guðmundur bóndi í Gufudal með
grásleppuútgerð og verkun hér.
Fjöldi búfjár og tegundir?
53 mjólkandi kýr ásamt fjölda
geldneyta og 5 hestar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Farið er í fjósið um 8 á morgn-
ana og taka fjósverkin um 3 tíma.
Svo er ýmsum verkum sinnt eftir
hádegi og aftur er farið í fjósið um
6 á kvöldin. Eftir seinni mjaltirnar
er vanalega afslöppun og sest þá
mannskapurinn niður við sjónvarp,
tölvu eða prjónaskap.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Húsfrúnni finnst skemmtileg ast
er að fara í fjóseftirlit á vor nóttu
og sjá sólina koma upp. Hús bónd-
anum finnast vorverkin á túni
skemmtilegust. Leiðinlegast er að
þurfa lóga búfénaði heima.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Áframhaldandi mjólkurframleiðsla
og vonandi fleiri búgreinar.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda?
Enga.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Hann dafnar ekki nema við höfum
trú á honum sjálf.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara?
Útflutningur á grænmeti. En þá
þarf náttúrulega að rétta af raf-
orkuverð til gróðurhúsabænda.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Kavíar, mjólk, skyr, ostur og epli.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Kjöt í karrý.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Veturinn 1995 í heild sinni þegar
að hægt var að renna sér niður af
húsþaki á rassþotum og mjólk-
urbíllinn komst ekki dögum saman.
Mýrartunga, Reykhólasveit
Bærinn okkar
Frá vinstri: Moli, Jens, Múrí, Elmar,
Erla og hluti kúahópsins.
Kókostertan ljúffenga með jarðarberjarjómanum.
Fjölskyldubæirnir í Svínafelli í
Ör æfum, talið frá vinstri; Austur-
bær, Suðurbær og Nýjatún.