Bændablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 8
Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 20118
Fréttir
Landbúnaðarsafn Íslands á
Hvanneyri efnir til Farmal-
fagnaðar á Hvanneyri laugar-
daginn 16. júlí nk. Tilefnið er
að heiðra Farmalinn og nánustu
ættingja hans, Nallana af ýmsum
gerðum. Farmalarnir mynduðu
fyrstu bylgju heimilisdráttarvéla
hérlendis á árunum 1945-1950 og
teljast því tímamótavélar í sveitum
landsins.
Tilgangur fagnaðarins er að kynna
mikilvæga þætti úr tæknisögu land-
búnaðarins, einnig að skapa forn-
dráttarvélamönnum vettvang til
þess að sýna dráttarvélar sínar.
Síðast en ekki síst er tilgangurinn
að njóta stundarinnar. Helsta mottó
fagnaðarins verður „Gömul vél er
gaman manns“.
Úr smiðju International Harvester
Til Farmal-fagnaðarins eru allir
áhugamenn velkomnir með forn-
dráttarvélar sínar að Hvanneyri,
hvaða gerðar sem eru. Eigendur
Farmal-véla og annarra forn-drátt-
arvéla frá verksmiðjum International
Harvester eru sérstaklega velkomnir
með gripi sína.
Fornvélarnar verða sýndar, sleginn
þrælasláttur með nokkrum þeirra og
farið í stuttan skrautakstur í fögru
staðarumhverfinu. Valdar verða
og heiðraðar fallegustu Farmal-
forndráttarvélarnar.
Alltaf er Farmall fremstur
Kynnt verður bók, sem er að koma út
um þessar merku dráttarvélar og heitir
Alltaf er Farmall fremstur. Höfundur
hennar er Bjarni Guðmundsson en
útgefandinn Uppheimar hf.
Sérstakur gestur á Farmal-fagnaði
verður Ólafur Eggertsson bóndi á
Þorvaldseyri. Með samstarfsmönnum
sínum mun hann kynna dráttarvéla-
eldsneyti af íslenskum akri – ræktun
á repju og framleiðslu lífdísel-elds-
neytis úr henni. Farmal-dráttarvél
verður reynd á olíu framleiddri á
staðnum.
Nánar m.a. á heimasíðu
Landbúnaðarsafns, www.landbu-
nadarsafn.is. Upplýsingar um
Farmal-fagnaðinn veitir Bjarni
Guðmundsson, s. 844 7740.
Farmalfagnaðurinn á Hvanneyri 16. júlí:
„Gömul vél er...
gaman manns"
- Farmall og Nallarnir heiðraðir Í Landbúnaðarsafni
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin
Svaðastaðir við Sauðárkrók
blása til landbúnaðarsýningar og
bændahátíðar í Skagafirði þann
20. ágúst nk. Líkt og undanfarin
ár kallast hátíðin Sveitasæla og þar
mun margt fróðlegt og skemmti-
legt bera fyrir augu manna.
Meðal þess sem á dagskránni
verður á Sveitasælunni má nefna
sveitamarkað, vélasýningu skag-
firskra bænda og vélasala, hús-
dýragarð, leiktæki fyrir börn og
kynningu á fyrirtækjum tengdum
landbúnaði. Einnig fróðleik um
fornar vinnsluaðferðir til sveita,
mjaltir og mjólkursýningu, sýning
á skeifnasmíði og sjúkrajárningum.
Klaufskurður á kúm verður sýndur,
þá verður fiskasýning, smalahunda-
sýning, hrútasýning, kálfasýning og
hundasýning HRFÍ. Hæfileikakeppni
gröfumannsins verður þar einnig og
keppni í dráttarvélaakstri. Sem og
gæðingakeppni, keppni í ungbónda
Norðurlands, bændafitness og „bjart-
sýnasti bóndinn 2011“. Auk þess
verður öllum gestum boðið í grill-
veislu þar sem skagfirskir skemmti-
kraftar láta ljós sitt skína.
Í Reiðhöllinni Svaðastöðum
Landbúnaðarsýningin og bændahá-
tíðin SveitaSæla er nú haldin hvert
ár í Reiðhöllinni Svaðastöðum á
Sauðárkróki. Sýningin var fyrst
haldin árið 2005, en síðast þegar
hún var haldin árið 2010 sóttu um
eitt þúsund og fimmhundruð gestir
sýninguna heim.
Það er því óhætt að hvetja sem
flesta til þess að taka daginn frá
og sækja skagfirska bændur heim
laugardaginn 20. ágúst. Nánari upp-
lýsingar veitir framkvæmdastjóri
sýningarinnar Eyþór Jónasson í síma
453-6440 og í farsíma 842-5240,
netfangið er svadastadir@simnet.is.
Landbúnaðarsýningin Sveitasæla
haldin í Skagafirði 20. ágúst