Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 14

Bændablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 Breyttar aðstæður í heiminum öllum þýða að íslenskir bændur og matvælaframleiðendur verða að líta í eigin barm og ákveða framtíð sína. Háskóli Íslands tekur nú þátt í alþjóðlegu samstarfsverkefni sem ætlað er að auðvelda venjulegu fólki að hafa áhrif á breytingarnar og afleiðingar þeirra og leitar eftir þátttakendum í vinnuhópa sem taka til starfa í haust. Í hverjum mánuði vex mann- kynið um eina Lundúnaborg – tæpar 8 milljónir barna fæðast umfram einstaklinga sem látast. Þessi öri vöxtur er ekki gamall – fyrir 60 árum síðan taldi mannkynið 2,5 milljarða einstaklinga, en núna erum við tæplega 7 milljarðar og gerir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráð fyrir að við verðum nær 10 milljarðar eftir 40 ár. Eftir sem áður hafa menn- irnir enn jafn mikið landsvæði til umráða, það er að segja þessa einu jörð, og það gefur auga leið að sífellt þarf að finna nýjar leiðir til að metta æ fleiri munna. Til viðbótar er ljóst að loftlags- breytingar munu hafa víðtækar afleiðingar fyrir matvælaframleiðslu í heiminum. Áhrifanna mun gæta í íslenskri matvælaframleiðslu, verð- lagi innfluttra matvæla og auknum tækifærum til útflutnings íslenskra matvæla. „Við þurfum að sjá heildarmynd- ina og geta staðsett okkur í þessari stóru mynd sem við erum hluti af,“ segir Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvís- indasviðs Háskóla Íslands, sem er í forsvari fyrir alþjóðlegt samvinnu- verkefni sem ætlað er að finna leiðir fyrir samfélög til að aðlagast þeim breytingum sem fyrirsjáanlegar eru í matvælaframleiðslu heimsins. „Íslenskir matvælaframleiðendur verða að finna leiðir til að aðlagast þessum nýja veruleika,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. „Ef við hefjum vinnuna nægilega snemma, þá geta falist gífurleg og afar spennandi tækifæri í þessum fyrirsjáanlegu breytingum. Íslenskir bændur hafa hér tækifæri til að hafa sjálfir mikil áhrif á eigin framtíð.“ Bændablaðið hitti þær stöllur fyrir á dögunum til að ræða Samleiðniverkefnið, auk Norðmannsins Haralds Sverdrup, en hann er prófessor í efnaverkfræði við háskólann í Lundi í Svíþjóð og sérfræðingur í kerfislíkanasmíðum, og tekur þátt í verkefninu fyrir hönd skólans. Tækifæri í sjálfbærni Samleiðniverkefnið er unnið af fjórum evrópskum háskólum og fimm frjálsum félagasamtökum frá fimm löndum. „Ætlunin er að útbúa leiðarvísi sem samfélög geta notað til að færast í átt að sjálfbærni, þar sem Vesturlönd draga úr notkun auðlinda og ósjálfbærri hegðun á sama tíma og þróunarríkin fá rúm til að auka sína notkun – allt innan þeirra líf- fræðilegu marka sem jörðin setur okkur. Með öðrum orðum, við leið- um saman mismunandi fólk og mis- munandi lífsstíla, til að finna bestu framtíðarsýnina fyrir hvert samfélag fyrir sig, alltaf með heildarmyndina í huga. Samleiðni í átt að sjálfbærni er leiðin að jafnrétti mannkyns innan líffræðilegra takmarka jarðarinnar,“ útskýrir Kristín Vala. „Þetta byrjaði allt saman í Bristol í Englandi, þar sem ég vann áður og þar sem tölu- verður áhugi er meðal almennings á að jafna rétt jarðarbúa til auðlinda jarðarinnar. Og það er mikilvægt að muna að við erum ekki að tala um samdrátt hérna, við erum að tala um leiðir til að finna réttlátari skiptingu og varanlegar og raunverulegar fram- tíðarlausnir í matvælaframleiðslu,“ bætir hún við. „Allt þetta tekið saman, áhrifin af fjölda fólks í heiminum og loftlags- breytingar, auk þverrandi auðlinda, mun setja okkur stólinn fyrir dyrnar hvað varðar matvælaframleiðslu, en við megum ekki gleyma því að á sama tíma munu þessar breytingar opna nýjar dyr sem nú eru lokaðar eða sem við komum ekki auga á eins og staðan er í dag. Einmitt þess vegna er svo áhugavert að sjá tækifærin í þessum breytingum og gera það nægilega snemma til þess að við höfum raun- verulega möguleika á að hafa áhrif á eigin framtíð,“ segir Brynhildur. Ástand jarðar Fyrir tveimur árum síðan skil- greindi hópur alþjóðlegra vísinda- manna níu þolmörk jarðar sem mann- kynið verður að halda sig innan ef jörðin á að vera lífvænlegur staður til frambúðar. Af þessum níu þol- mörkum telja vísindamennirnir að við séum komin fram yfir þremur (þ.e. köfnunarefnahringrásina, loftlagsbreytingar og æ minnkandi líffræðilegum fjölbreytileika), og langt komin með að fara fram úr tvennum öðrum (sýrustigi sjávar og fosfórhringrásinni). Kristín Vala og Harald birtu nýverið rannsókn sem undirstrikar fyrri rannsóknina og sýnir að birgðir heimsins af fosfór fara nú ört minnkandi. Fosfór fyrir- finnst í erfðavísum allra lífvera og er höfuðefni í tilbúnum áburði. Hvað menn varðar er hann meðal annars lífsnauðsynlegur fyrir myndun beina og tanna, allan frumuvöxt, samdrátt hjartavöðva og heilbrigða nýrna- starfsemi. „Þar fyrir utan er vitað mál að nær allt land sem hentar vel til land- búnaðar er nú þegar í notkun, og við verðum að nota aðrar leiðir til að auka matvælaframleiðslu en að finna bara nýja akra,“ segir Harald. „Maðurinn er orðinn að náttúru- afli, jarðfræðiafli. Við höfum haft svo gífurleg áhrif að á bara þremur áratugum erum við búin að eyða 30 prósentum af öllum skógum jarðar, höfum tapað 25 prósentum af jarðvegi, erum búin að brenna meira en helmingi allrar olíunnar, helming alls fosfats og málmar fara þverrandi. Fjórðungur spendýra er í útrýmingarhættu og vistkerfi bæði í sjó og á landi eru víða hætt komin. Ábyrgðin liggur mestmegis hjá okkur Vesturlandabúum, neyslu- mynstur okkar hefur valdið þessu,“ segir Kristín Vala. „Sem dæmi má nefna að ég sá krækling frá Asíu til sölu í íslenskri verslun núna í vor, og rökin þar á bak við eru óskaplega undarleg – við eigum gnægð af kræklingi hér og engin ástæða til að flytja hann yfir hálfan hnöttinn með öllum þeim tilkostnaði og orkueyðslu sem því fylgir. Það er einmitt svona tilgangslaus flutningur matvæla sem við þurfum að hugsa upp á nýtt.“ Samleiðniverkefnið Albert Einstein sagði á sínum tíma: „Það er ekki hægt að leysa vandamálin sem fyrirfinnast í heiminum í dag með sama hugsanaganginum og skapaði þau.“ Í samræmi við þá hugsun er takmarkið með Samleiðniverkefninu að nota aðferðafræði sem heitir kvik kerfislíkön, þar sem hópur fólks býr til sitt eigið líkan af framtíð matvæla- framleiðslu með aðstoð sérfræðinga. Við vinnuna verður stuðst við ákveð- inn leiðarvísi sem Háskóli Íslands hefur hannað með samstarfsaðilum í verkefninu. Leiðarvísirinn og líkanasmíðin verða prófuð í haust í þremur sam- félögum, á Íslandi, í þorpi á Suður- Indlandi og í borginni Bristol á Bretlandi. Á hverjum stað fyrir sig verður leitað að fólki sem tengist mat- vælaiðnaði í víðasta skilningi – allt frá innflytjendum tilbúins áburðar til kokka á veitingastöðum og allt þar á milli. „Það borgar sig að fá sem breið- astan hóp til að ná sem bestum árangri, og þá erum við að tala um grænmetis- bændur og sauðfjárræktendur og allt upp í smásölu- og stórsöluaðila. En mikilvægt er að hafa ráðamenn með líka, til dæmis sveitarstjórnaraðila og fólk frá sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytinu, til að geta haft sem mest áhrif á lög og reglugerðir,“ segir Harald. Áætlað er að 20-50 manns taki þátt í vinnufundunum á hverjum stað fyrir sig. „Við byrjum út frá framtíðarsýn þátttakenda, og á þremur heilsdags vinnufundum munum við búa til raunhæft tölvulíkan af því hvernig sjálfbær matvælaframleiðsla, með atvinnusköpun og útflutningi og öllu sem til heyrir, getur litið út í þessum þremur samfélögum. Árangurinn verður síðan kynntur á hverjum stað fyrir sig með hádegisfyrirlestri. Við bindum miklar vonir við verkefnið hér á landi. Tilgangurinn er að sjá heildarmyndina í stóru samhengi og búa til framtíðarsýn sem íslenskir mat- vælaframleiðendur geta lifað við. Hér er gríðarlega gott tækifæri til að láta að sér kveða,“ segir Kristín Vala. „Ef bændur og aðrir matvæla- framleiðendur taka ekki sjálfir þátt í að móta framtíðarstefnu landbúnaðar- ins á Íslandi, þá gera bara einhverjir aðrir það og það er auðvitað ekki jafn ákjósanlegt. Það er einmitt þetta sem gerir þátttöku í Samleiðniverkefninu svo áhugaverða,” segir Brynhildur að lokum. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins, http://www. convergeproject.org, eða með því að hafa samband við Sigrúnu Maríu Kristinsdóttur í netfanginu smk5@ hi.is, en hún tekur einnig þátt í verk- efninu fyrir hönd Háskóla Íslands. /Sigrún María Kristinsdóttir Tækifærin felast í breytingum í matvælaframleiðslu Harald Sverdrup og Kristín Vala Ragnarsdóttir vinna nú að stóru alþjóðlegu verkefni, sem ætlað er að útbúa líkan að vænlegri og sjálfbærri matvælafram- leiðslu á Íslandi í framtíðinni. Íslenskir matvælaframleiðendur breytingum sem fyrirsjáanlegar eru í heiminum, segir Brynhildur Davíðs- dóttir dósent við Háskóla Íslands. ÞÓR HF | Krókhálsi 16 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | DEUTZ-FAHR sláttuvélar HEYVINNUVÉLAR TIL AFGREIÐSLU STRAX DEUTZ-FAHR Fjölfætlur DEUTZ-FAHR múgavélar DEUTZ-FAHR rúlluvélar

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.