Fréttablaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 42
20. febrúar 2012 MÁNUDAGUR18
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
BAKÞANKAR
Erlu
Hlynsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ventill, 6. ólæti, 8. saur, 9. pili,
11. mun, 12. kæra, 14. bragðbætir,
16. hvað, 17. beiskur, 18. angan,
20. tveir, 21. flink.
LÓÐRÉTT
1. leikur, 3. pot, 4. páfagaukur,
5. svelg, 7. heimting, 10. meiðsli, 13.
háð, 15. skítur, 16. töf, 19. eyðileggja.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loki, 6. at, 8. tað, 9. rim,
11. ku, 12. klaga, 14. krydd, 16. ha,
17. súr, 18. ilm, 20. ii, 21. klár.
LÓÐRÉTT: 1. hark, 3. ot, 4. kakadúi,
5. iðu, 7. tilkall, 10. mar, 13. gys,
15. drit, 16. hik, 19. má.
Öxl í öxl? Hvað
gerðist með
beinar lappir í
hnéhæð?
Heyrðu! Held-
urðu að ég
geti ekki fram-
kvæmt hreina
tæklingu?
Allt í lagi... ég
fékk krampa
í tilhlaupinu!
Nei!
Hann var á
útsölu! Það er
ekki eins og hann
merki eitthvað!
Vá. Þú notar
mikið af
svörtum.
Ég byrjaði
nýlega. Eftir að
við hættum
saman.
Málar þú?!
Svona,
listrænar
myndir?
Ekkert. Bara
nokkur
málverk.
Palli,
hvað er
þetta?
Svefnleysisvaktin
Opið frá 2 til 6
Ég skrifa ekki
undir þetta!Heimavinnuloforð
Þegar ég hjálpa barninu
mínu við heimalærdóminn:
Sé ég til þess að barnið skilji
verkefnið fullkomlega.
Hjálpa ég barninu að þróa
aðferð til að klára verkefnið.
Ég mun ekki skella
sökinni á kennara,
skólann eða skóla-
kerfið þegar ég kemst
að því að svörin mín
eru röng.
Við skulum byrja á að leggja línurnar. Mak-ríll er ekki færeyskt orð yfir sam-
farir. Makríll er ekki orð sem þú vilt heyra
frá kvensjúkdómalækninum. Makríll er
fiskur (orð sem þú vilt reyndar heldur ekki
heyra frá kvensjúkdómalækninum), hollur
og góður fiskur sem langar að kynnast þér.
TUNGUTAKIÐ á fréttastofum er oft heldur
sérstakt. Þannig telst fréttaefni sem áhorf-
endur og lesendur virðast hafa sérstakan
áhuga á vera sexí. Kvótinn hefur hingað til
ekki verið sexí. Ekki heldur fiskvinnsla.
En nú er nýr fiskur kominn að ströndum
landsins og hann er sexí. Nefnilega makríll.
LÍKLEGA átt þú það sameiginlegt
með flestum Íslendingum að vita
mest lítið um makríl nema þá að
yfir stendur „makríldeila.“ Þeir
sem hafa ekki áttað sig á því
hversu sexí makríllinn er vita
þó ekki einu sinni um hvað þessi
deila snýst. En þar sem ég ætla
ekki að vera ábyrg fyrir því að
þú sofnir ofan í morgunverðar-
skálina skulum við bara fara yfir
í annað.
ÞORSKUR er dæmi um fisk
sem þótti svo fínn að hann var
allur seldur til útlanda. Íslend-
ingar borðuðu síðan sjálfir ýsuna
sem útlendingarnir fúlsuðu
við. Makríll er líka það fínn að
framan af var hann allur seldur
út. Þar til nú í vetur þegar byrjað var að
selja hann, frosinn, í matvöruverslunum á
Íslandi. Líklega er ofsögum sagt að makríll
sé orðinn sexí á Íslandi. En hann á eftir að
verða það. Ég er alveg sannfærð.
LAX hefur löngum verið talinn með holl-
ustu fisktegundum vegna þess hversu ríkur
hann er af omega-fitusýrum. Þessum sömu
og við fáum með því að taka lýsi. Makríll
inniheldur tvöfalt meira af omega- fitu-
sýrum en lax og fullt fullt af D-vítamíni.
MAKRÍLL er nánast allra meina bót. Fyrir
utan að hann læknar ekki alnæmi og
krabbamein og svartadauða og kvef. Fyrir
utan allt það. Sexí!
VEGNA þess hversu sjaldséður makríll er á
borðum okkar landsmanna má ætla að hér
hafi aðeins veiðst örfá tonn á síðustu árum.
Nei, nei. Í fyrra veiddu Íslendingar um 150
þúsund tonn af makríl. Það er því af nógu
að taka.
MAKRÍLL er vinsæll reyktur, hann er hægt
að nota í sushi, en mörgum finnst makríll
einfaldlega bestur steiktur á pönnu með
salti og pipar.
* Ofanrituð hefur enga fjárhagslega,
félagslega eða kynferðislega hagsmuni af
aukinni markaðshlutdeild makríls á Íslandi
** Orðið „kynþokkafullur“ var bara ekki
nógu sexí fyrir þennan pistil
Makríll = sexí
Hefst á fimmtudag á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
eru hér með auglýst tillaga að breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík.
Rafstöðvarvegur 9 og 9a.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Elliðaárvog,
Rafstöðvarsvæði vegna lóðanna Rafstöðvarvegur 9
og 9a.. Í breytingunni er gert ráð fyrir breyttri notkun
lóðar, breytingu á lóðarmörkum og fjölgun bílastæða.
Stærð lóðar, að lokinni breytingu, verður 9040m²,
nýtingarhlutfall fer úr 0,5 í 0,47 og bílastæði á lóð verða
34 eftir stækkun.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 –
16:15, frá 20. febrúar 2012 til og með 2. apríl 2012.
Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við tillöguna skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is,
til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 2.
apríl 2012. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem
eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 20. febrúar 2012
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið