Fréttablaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011
Mánudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
20. febrúar 2012
43. tölublað 12. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Staffan Holm kynnti nýja stólalínu á húsgagna-
sýningunni í Stokkhólmi á dögunum. Línan ber
nafnið Spin en um er að ræða litríka kolla sem hægt
er að raða hverjum ofan á annan og mynda þeir þá
nokkurs konar spíral. Þeir eru einnig til sem barstólar.
Holm hannar Spin fyrir fyrirtækið Swedese.
Inga María Brynjarsdóttir teiknar skordýr og aðrar óaðlaðandi skepnur með karakter.Hrífst af því sem öðrum finnst ógeðslegtÞ etta byrjaði með pennateikn-ingum af upphugsuðum dýrum en hefur smám saman þróast yfir í að eiga raunveruleg dýr að fyr-irmynd,“ segir Inga María Brynjarsdóttir teiknari, en blýantsteikningar hennar af alls kyns dýrum hafa vakið athygli undanfarið. „Dýrin eru auðþekkjanleg á myndunum,“ segir Inga María, „en það er þó alltaf
3
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
íslensk framleiðsla
í 20 ár
Rafhitarar fyrir heita potta
FASTEIGNIR.IS
20. FEBRÚAR 2012
8. TBL.
Fasteignasalan Eignamiðlun kynnir einbýlishús við Eikarás 7 í Garðabæ.
H úsið er á tveimur hæðum, skráð 299,5 fer-metrar og þar af er íbúð 257,2 og bílskúr 42,3 fermetrar.
Á efri hæð er anddyri, eldhús, borðstofa, bóka-herbergi, gestabaðherbergi, hjónaherbergi fataher
frístundaherbergi með gufu og snyrtingu innaf. Auk þess er sér stúdíó íbúð sem gengið er í frá vestur hlið hússins.
Auk þess er sér stúdíó íbúð sem gengið er í frá vestur hlið hússins. Þess má geta að frístunda-herbergið er 100 fm óskráð rými og eignin því um 400 fm í heildina.
Öll gólf utan baðherbergja eru parketlögð. Gólfhitier í öll hú i
Tveggj hæða einbýli
með tórko tlegu útsýni
Húsið er á tveimur hæðum, bjart og rúmgott. Húsinu fylgir tvöfaldur, innbyggður bílskúr.
Skoðanir fasteigna og leiguíbúða.
Verðmöt fasteigna
Vantar allar
gerðir eigna
á skrá
Söluverðmetum eign þína
þér að kostnaðarlausu
Ástþór Reynir
Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Fjórir löggiltir fasteignasalar. Áralöng r ynsla.
Við erum Landma k*
Sími 512 4900
landmark.is
Heimilis
RIFINN OSTUR
370 g
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
NÝJUNG
2 dagar
til Öskudags
Barnabúnin
gar:
1.490, 2.990
og 4.990
Sjáðu
búningana
okkar á
Facebook
Tulipop vel tekið
Tulipop kynnti vörur
sínar á sýningunni
Ambiente í Frankfurt.
allt 2
Edduverðlaunin
Rúnar Rúnarsson og
aðstandendur myndarinnar
Eldfjall fengu flest verðlaun.
fólk 22
Stefnir hátt
Fréttablaðið tók hús á
Björgvini Páli Gústavssyni í
Magdeburg.
sport 26
EFNAHAGSMÁL Efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis mun funda
með fulltrúum Samtaka fjármála-
fyrirtækja í dag til að fara yfir
nýfallinn dóm Hæstaréttar um
gengistryggð lán. Nefndin fundaði
með fulltrúum bankanna á föstu-
dag þar sem einnig var hreyft við
málinu.
Helgi Hjörvar, formaður
nefndarinnar, segir að kallað verði
eftir viðbrögðum fleiri aðila eftir
að fjármálafyrirtækin ákveða
með hvaða hætti dómurinn verði
túlkaður. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu á miðvikudag að
lánastofnanir máttu ekki rukka
lántaka um seðlabankavexti fyrir
gengistryggð lán fyrir þann tíma
sem liðinn var áður en lánin voru
dæmd ólögleg.
„Ég held að það sé allnokkuð
síðan að það myndaðist þverpóli-
tísk samstaða um að draga úr vægi
verðtryggingarinnar,“ segir Helgi.
„Og það sama er að gerast hvað
varðar almennar aðgerðir gagn-
vart þeim sem tóku verðtryggð
lán.“
Helgi og Kristján Þór Júlíusson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks,
voru í Silfri Egils í gær þar sem
meðal annars var rætt um dóminn.
Báðir sammæltust um að þver-
pólitísk samstaða væri að skapast
um það að bæta stöðu þeirra
með almennum hætti sem tóku
verðtryggðu lánin.
- sv
Efnahags- og viðskiptanefnd fundar með Samtökum fjármálfyrirtækja í dag:
Samstaða um skuldaleiðréttingu
HELGI HJÖRVAR KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
Fuglahræðan kvödd
Leiklistarneminn Sigurður
Þór Óskarsson er reynslunni
ríkari eftir hlutverk sitt í
Galdrakarlinum í Oz.
fólk 30
SAMFÉLAGSMÁL Áverkar á börnum
sem hafa greint frá kynferðislegri
misnotkun eru einungis greinanleg-
ir við læknisskoðun í fimm til tíu
prósentum tilfella. Að mati Ebbu
Margrétar Magnúsdóttur, sér-
fræðilæknis á Kvennadeild Land-
spítalans, ætti frásögn barnsins því
að vega mun þyngra en niðurstöður
úr læknisskoðun.
Ebba er hluti af læknisteymi í
Barnahúsi sem skoðar börn í kjöl-
far kynferðisofbeldis. Fleiri tugir
barna eru skoðaðir þar á ársgrund-
velli.
„Engu að síður er mikilvægt að
læknisskoðanir séu framkvæmdar
því þá fá foreldrar og barnið sjálft
að vita að allt sé í lagi,“ segir Ebba.
Að hennar mati er dómur Hæsta-
réttar frá 19. janúar, þar sem
nauðgunarákvæði var beitt og
dómur þyngdur yfir manni sem
hafði misnotað þrjár stúlkur í Vest-
mannaeyjum í fjölda ára, tíma-
mótadómur og mikilvægur fyrir
starfsemi Barnahúss. Maðurinn
var dæmdur til átta ára fangelsis-
vistar, en refsirammi vegna
nauðgana er þyngri heldur en í kyn-
ferðisbrotamálum gegn börnum.
Ebba ber oft og tíðum vitni í kyn-
ferðisbrotamálum þar sem börn
eiga í hlut. „Ég er þá spurð hvort
líkamlegir áverkar hafi fundist á
barninu,“ segir hún. „Þeir finnast
afar sjaldan og fólk má ekki gleyma
því að þó svo sé, þýðir það ekki að
ofbeldi hafi ekki átt sér stað.“
Að hennar mati hefur það gerst
að dómar séu mildaðir ef áverkar
finnast ekki og því sé nauðsynlegt
að dómarar fræðist um þessi mál,
það er að segja hversu óalgengt
það sé að finna áverka á kyn færum
barna í kjölfar ofbeldis.
Dómum í kynferðisbrotamálum
þar sem börn eiga í hlut hefur þó
fjölgað á síðustu árum. Fréttablaðið
greindi frá því í desember í fyrra
að árið 2010 sat 21 barnaníðingur í
fangelsi, en árið 2001 sat einn inni.
Fagráð innanríkisráðuneytisins
um kynferðisbrot vill að ráðherra
láti kanna hvernig eftirliti með
dæmdum brotamönnum með barna-
girnd á háu stigi geti verið háttað til
þess að tryggja öryggi barna. - sv
Sjáanlegir áverkar óalgengir
á börnum eftir kynferðisbrot
Líkamlegir áverkar á börnum sem hafa verið misnotuð kynferðislega sjást einungis í 5 til 10 prósentum til-
fella. Læknir í sérfræðiteymi Barnahúss segir nauðsynlegt að framburður barna vegi þyngra en skoðunin.
Þeir finnast afar
sjaldan og fólk má
ekki gleyma því að þó svo sé,
þýðir það ekki að ofbeldi hafi
ekki átt sér stað.
EBBA MAGNÚSDÓTTIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Í BARNAHÚSI
GÓU FAGNAÐ MEÐ BLÓMUM Finnur Björnsson var einn þeirra fjölmörgu karlmanna sem
í gær lögðu leið sína í Blómatorgið við Hringbraut til að gleðja konu með blómum á konudag, þann fyrsta dag
Góumánaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BJART fram eftir degi sunnan-
og vestanlands en él norðan til.
Fremur hægur vindur víðast hvar og
kólnandi veður.
VEÐUR 4
1
1
-2
-1
-3
STJÓRNSÝSLA Stjórn Fjármálaeftir-
litsins tilkynnti Gunnari Ander-
sen, forstjóra, á föstudag að til
standi að segja honum upp störf-
um. Byggir sú ákvörðun á álits-
gerð um hæfi
Gunnars sem
Ástráður Har-
aldsson, hæsta-
réttarlögmað-
ur, og Ásbjörn
Björnsson,
endurskoðandi,
unnu nýverið.
Aðalsteinn
Leifsson, stjórn-
arformaður
FME, segir málið ennþá í ferli.
Ekki hafi verið tekin ákvörðun um
að segja Gunnari upp og óvíst sé
hvort sú ákvörðun verði tekin.
Stjórn félags forstöðumanna
ríkisstofnanna ályktaði í gær að
óvægin aðför hefði verið gerð að
Gunnari. Aðspurður hvort hann
tæki undir þá fullyrðingu svaraði
Gunnar: „Hvernig get ég verið
ósammála því?“ - mþl / sjá síðu 4
Stjórnarformaður FME:
Óvissa um upp-
sögn Gunnars
GUNNAR Þ.
ANDERSEN