Fréttablaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 20. febrúar 2012 11
Stöndum saman – lækkum lyfjaverð!
Er þér boðið ódýrasta lyfið
í apótekinu þínu?
Grensásvegi 22 | 108 Reykjavík | S ími 534 3500
Verðlagseftirlit ASÍ – 14. júní 2006 – „Allt að 68%
verðmunur á lyfjum“ Neytendum bent á að vera
vakandi fyrir ódýrari samheitalyfjum.
Hefur ekkert breyst frá 2006? – www.asi.is
Markmið LYFIS er að bjóða lægsta lyfjaverð á Íslandi og hefur tilkoma lyfja
fyrirtækisins aukið verulega samkeppni og leitt til mikilla verðlækkana í
viðkomandi lyfjaflokkum. LYFIS lyfin eru framleidd hjá þekkustu og öflugustu
lyfjaframleiðendum heims, m.a. TEVA – RATIOPHARM – KRKA – MEDIS –
BLUEFISH – FARMAPLUS, sem allir hafa hlotið lof og viðurkenningu fyrir mikil
gæði og örugga framleiðslu. LYFIS hefur markaðssett fjölda samheitalyfja
og margir tugir lyfja eru á leiðinni.
STJÓRNMÁL Hallveig, félag
ungra jafnaðarmanna í Reykja-
vík, hefur ályktað að gera eigi
opnunar tíma skemmtistaða í mið-
borg Reykjavíkur frjálsan. Telur
stjórn félagsins það ekki í verka-
hring borgaryfirvalda að stjórna
opnunartíma skemmtistaða.
Í ályktuninni segir að tak-
mörkun á opnunartíma sé skað-
leg fyrir rekstur skemmtistaða
og færi skemmtanalífið úr mið-
borg og inn í íbúðahverfi þangað
sem lögregla hafi ekki eins góða
yfirsýn yfir það. Þá geti það
valdið fjölskyldufólki áreiti. Loks
harmar félagið að borgarstjórnar-
meirihluti Samfylkingarinnar og
Besta flokksins hafi ákveðið að
stytta opnunartíma skemmtistaða
á þessu kjörtímabili. - mþl
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík:
Vilja frjálsan
opnunartíma
MIÐBORGIN Stjórn Hallveigar telur
að takmarkanir á opnunartíma færi
skemmtanalífið úr miðborginni og inn í
íbúðahverfi. MYND/HARI
SAMFÉLAGSMÁL Barnaheill á Íslandi
stendur nú fyrir samstarfsverkefni
með 13 íslenskum veitinga stöðum
á landinu. Ágóði af ákveðnum
réttum á stöðunum rennur í sjóð
sem stuðlar að verndun barna
gegn ofbeldi.
Verkefnið hófst 15. febrúar og
stendur til 15. mars. Veitinga-
staðirnir sem taka þátt í þessum
mánuði eru Caruso, Dominos,
Grill66, Hamborgarafabrikkan,
Íslenska kaffistofan, KFC, Naut-
hóll, Pizza Hut, Saffran, Serrano,
Skrúður, Subway og Taco Bell. - sv
Út að borða fyrir börnin:
Veitingastaðir
styrkja börnin
FERÐAMÁL Fyrirtækið Iceland
Travel hlaut Starfsmenntaviður-
kenningu Samtaka ferðaþjónust-
unnar (SAF) í ár. Verðlaunin voru
afhent fyrir helgi.
Fram kemur hjá SAF að alls
hafi borist níu tilnefningar til
starfsmennta viður kenningarinnar,
sem nú var veitt í fimmta sinn.
Í rökstuðningi eru tínd til fjöl-
mörg atriði sem urðu til þess
að Iceland Travel hlaut viður-
kenninguna, svo sem að þar sé
litið á endurmenntun sem lykil-
atriði í að viðhalda starfsánægju
innan fyrirtækisins. - óká
Afhent á degi menntunar:
Verðlaunað í
fimmta sinn
AFHENDINGIN María Guðmundsdóttir
fræðslufulltrúi SAF, Árni Gunnarsson for-
maður, Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra og Ragnheiður Valdimarsdóttir,
mannauðsstjóri Iceland Travel. MYND/SAF
Skalli við Hlöllabáta
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur rúmlega tvítugum
manni fyrir að verjast handtöku
með því að skalla lögregluþjón
við matsölustaðinn Hlöllabáta á
Ingólfstorgi fyrir rúmu ári. Sá marðist
á gagnauga.
DÓMSTÓLAR
NÁTTÚRA Vísbendingar eru um að breytt veiði-
fyrirkomulag í Eyjafjarðará hafi skilað betri
seiðabúskap í Eyjafjarðará, einni bestu bleikju-
veiðiá landsins.
Nýverið sendi Veiðimálastofnun frá sér
skýrslu með niðurstöðum úr seiðamælingum í
ánni haustið 2011. Þéttleiki seiðanna og ástand
þeirra var metið á vatnasvæðinu. Líkt og í
flestum sjóbleikjuám á Íslandi hefur dregið úr
veiði síðastliðinn áratug og hefur sú þróun verið
sett í samband við hlýnandi veðurfar. Meðal-
veiðin í ánni á árunum frá 1986 til 2010 var
2.132 bleikjur.
Til að bregðast við minnkandi veiði í Eyja-
fjarðará hafa frá árinu 2008 verið takmarkanir
á veiðar á annað agn en flugu og veiðimönnum
gert að sleppa mestu af þeirri bleikju sem þeir
veiða. Vísbendingar eru um að þær ráðstafanir
séu að bera árangur.
Í skýrslunni kemur fram að heildarþéttleiki
flestra árganga bleikjuseiða hafi ekki áður
mælst jafn mikill og haustið 2011. Ekki er um
stórfelldar breytingar að ræða en þó virðist
sem nýliðun seiða í ánni hafi náð sér á strik
síðustu ár og sé fremur á uppleið.
Augljóst er að bleikjustofninn á vatnasvæðinu
er fáliðaður og einhver búsvæði á vatnasvæðinu
vannýtt. - shá
Rannsóknir sýna bættan seiðabúskap eftir breytt veiðifyrirkomulag í Eyjafjarðará:
Fluguveiði og sleppingar skila sér vel
FALLEG VEIÐI Gísli Sigurðsson með glæsilegan feng.
Stórtæk efnistaka úr ánni hefur verið nefnd sem
skýring þess að bleikjustofninn hefur látið undan síga.
MYND/STEFÁN JÓN HAFSTEIN