Fréttablaðið - 19.03.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.03.2012, Blaðsíða 10
19. mars 2012 MÁNUDAGUR10 „Að hjóla er eins og kynlíf. Maður gleymir því aldrei. Svo eru hjólreiðar líka fín hreyfing.” Safnaðu mottu og áheitum á www.mottumars.is H :N M ar ka ðs sa m sk ip ti / S ÍA Skapaðu góðar minningar með teppi frá Danfloor Öll teppin sem við bjóðum eru afrafmögnuð, ofnæmisprófuð og með óhreinindavörn. Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! SJÓNVARPSSTÖÐIN ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER EINGÖNGU Í BOÐI Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS KARL Í TEBOÐI Karl Bretaprins heim- sótti sýninguna Ideal Home Show í London á dögunum og drakk te með öðrum gestum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP IÐNAÐUR Afstaða fólks til aukinna virkjanaframkvæmda á Hellis- heiði er önnur en til almennrar nýtingar jarðvarma. Þetta kemur í ljós þegar bornar eru saman tvær nýlegar kannanir. Í nýrri könnuninni, sem fjallað var um í Fréttablaðinu í liðinni viku kemur fram að tæp 84 pró- sent spurða líta nýtingu jarð- varma jákvæðum augum og nær níu af hverjum tíu telja mikil tæki- færi tengd starfsemi sem tengist nýtingu jarðvarma. Í áður óbirtri könnun sem þrett- án náttúruverndarsamtök létu gera í október og nóvember í fyrra, í tengslum við vinnu við umsögn við rammaáætlun stjórnvalda um virkjanakosti, kemur hins vegar fram að 31,4 prósent aðspurðra voru mótfallin byggingu fleiri jarðvarmavirkjana á Hellisheiði. 30,2 prósent voru hlynnt frekari virkjanaframkvæmdum og 38,4 prósent létu málið sig engu varða. Könnunin var gerð dagana 26. október til 2. nóvember. 1.350 voru spurðir og 857 svöruðu. Guðmundur Hörður Guðmunds- son, formaður Landverndar, segir að fram hafi komið að andstaðan hafi verið mjög mikil í Reykjavík. Þá undrast hann orð Ólafs G. Fló- venz, forstjóra ÍSOR, um hættu- leysi útblásturs brennisteinsvetn- is. „Þetta er verið að rannsaka,“ segir Guðmundur og kveður skorta þekkingu á langtímaáhrifum brennisteinsvetnis. Stefán Arnórsson, prófessor við jarðfræðideild Háskóla Íslands, segir ekki koma á óvart þótt sterk- ar skoðanir komi fram í könnunum um nýtingu jarðvarma. „Líklega hefur þjóðin í heild sinni ekki verið meira meðvit- uð um nokkra auðlind en fiskinn í sjónum og jarðhita. Það segir sig sjálft,“ segir hann og vísar til þeirrar byltingar sem orðið hafi með hitaveitunni. Slík nýting orkunnar sé hins vegar af öðrum meiði en raforkuframleiðsla með jarðvarma, þar sé um svokallaða stórnýtingu að ræða. „Hellisheiðin er stórnýting og þá getur verið allt annað uppi á teningnum,“ segir hann. Ekki sé þó alltaf einfalt að greina ástæð- ur andstöðu við stórnýtingu jarð- varmasvæða. „Hluti umhverfis- sinna er ekki bara á móti stórri nýtingu sem slíkri, heldur á móti stórri nýtingu til erlendra kaupenda.“ Stefán segir fullyrðingar sem stjórnmálamenn vilji gjarnan ýta undir um að jarðvarmi sé endur- nýtanleg auðlind ekki standast og í raun sé rennt blint í sjóinn með stærð sumra svæða sem til standi að nýta, svo sem á Hellisheiði. „Í þessu togast á þrennt, pólitík, hagsmunir og fagmennska,“ segir hann og kveður allt faglegt mat segja að auðlindin sé ekki endur- nýjanleg. olikr@frettabladid.is Þriðjungur er andvígur meiri virkjun Í könnun 13 náttúruverndarsamtaka eru 31 prósent aðspurðra á móti frekari virkjun á Hellisheiði. Um 30 prósent vilja virkja meira. Prófessor segir ekki koma á óvart að fólk hafi sterkar skoðanir á málinu. STRÓKARNIR Á HEIÐINNI Unnið er að leiðum til að draga úr útblæstri brennisteins- vetnis frá jarðvarmavirkjunum. Nokkur andstaða er í Reykjavík við frekari virkjana- framkvæmdir á Hellisheiði. MYND/UMHVERFISSTOFNUN SKIPULAGSMÁL Samkomulag um lóðir og skipulagsmál vegna fram- tíðaruppbyggingr Landspítalans og Háskóla Íslands norðan Hringbraut- ar var undirritað á föstudag. „Samningar ríkisins og Reykja- víkurborgar um lóðamál LSH og byggingarrétt fyrir spítalann og HÍ teygja sig allt aftur til ársins 1969. Þeim var síðast breytt árið 2006,“ segir í tilkynningu. Fram kemur að fulltrúar fram- kvæmda- og eignasviðs og skipu- lags- og byggingarsviðs Reykjavík- urborgar hafi unnið að endurskoðun samninga borgarinnar og ríkisins með það að markmiði að endur- heimta byggingarrétt á svokölluðum C- og U-reitum. Að auki hafi áhersla verið lögð á að borgin fái í sinn hlut byggingarrétt að „randbyggð“ við Hringbraut, neðan sjúkrahússlóð- arinnar. Um sé að ræða verðmætt byggingarland í hjarta Reykjavíkur. Ríkið fær aukið bygginga- magn á A og B-reit samkvæmt samkomulaginu sem háð er endanlegu samþykki og gildis- töku deiliskipulags á svæðinu. Það voru þau Jón Gnarr borg- arstjóri, Oddný G. Harðar- dóttir fjármálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra undirrituðu samkomulagið. - gar Gerðu samkomulag um lóðir fyrir uppbyggingu Landspítalans við Hringbraut: Ríkið fær aukið byggingarmagn LANDSPÍTALASVÆÐIÐ Borgin endur- heimtir byggingarrétt á U-reit og C-reit og ríkið má byggja meira á A- og B-reit. LÖGREGLUMÁL Karlmaður um tví- tugt var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær fyrir sér- staklega hættulega líkamsárás. Maðurinn játaði að hafa sleg- ið annan mann með bjórglasi þannig að það brotnaði og sleg- ið hann svo nokkrum höggum með krepptum hnefa í maga á skemmtistað í miðborg Reykja- víkur í maí árið 2010. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða fórnarlambinu 250 þúsund krónur í miskabætur. Maður um tvítugt dæmdur: Braut glas á höfði og kýldi Hluti umhverfissinna er ekki bara á móti stórri nýtingu sem slíkri, heldur á móti stórri nýtingu til erlendra kaupenda. STEFÁN ARNÓRSSON PRÓFESSOR VIÐ HÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.