Fréttablaðið - 19.03.2012, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 19. mars 2012 13
Flestir á mínu reki muna fyrst eftir Einari Má í svörtum
leðurjakka á pönkárunum að
selja ljóðin sín: Sendisveinninn
er einmana og Er nokkur í kórón-
afötum hér inni? Flestir keyptu
bókina, þetta voru auðskilin ljóð,
það var einhver prósi í þeim, rétt
eins og það er alltaf eitthvert ljóð
í prósa Einars. Þrátt fyrir leður-
jakkann og ytra pönkfas var hann
hláturmildur og drengjalegur –
hér var ekki þungbúið skáld, alls
ekki hógvært og fráleitt innhverft
skáld – þetta var rokk-skáld.
Það var Pétur Gunnarsson sem
innleiddi hið bítlalega í íslensk-
ar bókmenntir. Fram að Punkt-
inum hans var gjörvöll menning
ungs fólks utan landamæra þess
sem mátti skrifa um nema með
hnussi. Með Pétri kom einlægni
og sakleysi hinna gömlu bítlalaga
áður en allt lenti þar út í í tómum
hedónisma og skilvita – meðvit-
aðri – brenglun. Allt í einu mátti
segja fimmaurabrandara í skáld-
skap og lýsa keleríi og poppkorn-
sáti án þess að hnussa, bíóferðum,
strætó, borginni ungu … Pétur
Gunnarsson braut niður Berlínar-
múrinn sem hafði varið íslenskar
bókmenntir fyrir erlendri lág-
menningu.
Upp úr miðri síðustu öld var
Reykjavík allt í einu orðin ung.
Hún var áform. Hún var still-
ansar og steypa, moldarbingir og
drullusvað, endalaus úthverfi og
enn ekki komin nein innhverfi.
Það ríkti einhvern eftirvænting
eins og eitthvað væri í vændum.
Svona hefst einmitt önnur skáld-
saga Einars Más, Vængjasláttur
í þakrennum: „Slík er eftirvænt-
ingin slík er spennan.“ Hann má
ekki einu sinni vera að því að
setja kommu á milli setninganna.
Því að það var Einar Már sem
tók upp þráðinn frá Pétri og
spann hann áfram. Andri Péturs
Gunnarssonar hélt áfram að eld-
ast og einhvern veginn þrengjast
eftir því sem leið á bækur hans
og þá kom Einar Már með þessa
söguvitund barns og spekings
– þessa sérstæðu rödd sem var
alltaf að ávarpa og kalla á þenn-
an Óla – og fór að skrifa um það
hvernig var að alast upp í Reykja-
vík á 6. áratug síðustu aldar, í
Vogunum, sem var regin-úthverf-
ið, sjálfur borgarjaðarinn í austri,
spriklandi af ungu lífi. Var ekki
soldið bítl í því í sjálfu sér? Voru
ekki Vogarnir einmitt Liverpool
Íslands frekar en Keflavík, þessi
ameríski smábær?
Frá Guðbergi Bergssyni fékk
Einar Már tilfinningu fyrir
formi og stíl, því hvernig ófegr-
að mannlífið getur opinberast
sem skáldskapur. Hann segir frá
því í Bankastræti núll, seinustu
bókinni sinni hvernig hann „…
sat kannski í strætó með bók
eftir Guðberg og sá blokkirnar
í úthverfinu hjúpaðar þoku og
gráma og hugsaði með mér: Þessu
langar mig að lýsa.“
Bókmenntalegum fagurkerum
þótti efnið en þó einkum sögu-
sviðið hins vegar ósegjanlega
lítilsiglt og var algengt að heyra
háðsglósur um „bernskuminning-
ar ungra skálda úr Vogunum“ á
þessum árum, eins og þetta væri
alrangt sögusvið, saga sem ekki
væri þess verð að segja.
Pétur Gunn og Guðbergur,
Megas, Dylan, Lennon, Günter
Grass, Brautigan – alls konar
kallar hafa eflaust ómað í þessum
haus með vængi á heilanum en
frá fyrstu tíð var þetta hans rödd,
há, svolítið hvell, full af vissu
um erindi sitt, full af frásagnar-
löngun, ritgleði og eftirvæntingu.
Hann lýsti barnaskaranum, hús-
mæðrunum, atvinnustarfseminni,
prestinum, dúfunum, rigningunni
og hálfbyggðum blokkunum –
mannlífinu, anda hverfisins: þetta
var hans Macondo og hann lét sér
úrtöluraddir í léttu rúmi liggja.
Það hefur Einar Már alltaf gert.
Hann hefur iðulega fengið fremur
dræmar viðtökur frá Bókmennta-
stofnuninni hér á landi, hefur
til dæmis aldrei verið á áskrif-
endalistanum þegar tilnefningar
til Bókmenntaverðlaunanna eru
annars vegar en notið velgengni í
nágrannalöndunum.
Hann skrifaði trílógíuna úr
Vogunum, um landnám og auðn,
æskuleiki og dauða, upphaf og
endalok og eftirmálann sem
kannski var skáldlegasta bókin
hans. Seinna skrifaði hann aðrar
og eiginlega ennþá áhrifameiri
bækur um fátækt fólk á Íslandi á
fyrri hluta síðustu aldar og ömur-
legar aðstæður þess – sitt fólk.
Í skurðpunktinum þarna á milli
og kannski í skurðpunktinum á
höfundarferli Einars Más er svo
þessi vængjaða skáldsaga, Englar
alheimsins, þar sem hann safnar
saman öllum sínum kröftum,
allri sinni þekkingu og innlifun,
innsæi, orðkynngi – öllu sínu ljóði
– til að lýsa lífi í geðveiki.
Í Hruninu er svo Einar Már allt
í einu mættur á hverjum laugar-
degi hjá honum Herði Torfa (nei,
Hörður Torfa var ekki starfsmað-
ur Álfheiðar Inga eða Steingríms
J. eða VG heldur einfari og jú
víst: það var Hörður sem skipu-
lagði útifundina á Austurvelli í
Búsáhaldabyltingunni og á skilið
að það sé viðurkennt refjalaust).
En þarna, í Hruninu, var Einar
Már, gamli byltingarsinninn, sem
sé mættur, alltaf, og þegar hann
var ekki sjálfur að halda inn-
blásnar og andríkar ræður gegn
auðvaldinu þá var hann við ræðu-
pallinn að stappa stálinu í þau
sem áttu að fara að tala og klappa
hinum á bakið sem voru nýbúin.
Hann var þarna af alefli – gaf allt
sitt; kom kannski ekki með potta
og pönnur á Austurvöll til að láta
glymja í heldur heldur með ljóðið,
vængjuðu orðin og lét þau fljúga
inn í hugskot þeirra sem hlustuðu
til að setjast þar á heilann …
En Einar! Til hamingju með
litla Nóbelinn.
AF NETINU
Lögreglustjórinn í rugli
Löggan hefur einkennilega for-
gangsröðun. Neitar að kanna
strax stórkostlega grófar hótanir
um líkamsmeiðingar. Segir fólki
að hafa bara samband eftir helgi.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
svarar út og suður og neitar að tjá
sig um efnisatriði málsins. Þetta
eru forkastanleg vinnubrögð lög-
reglunnar eins og svo oft áður.
Hún er eins og útspýtt hundskinn
við að verja hagsmuni þeirra, sem
reyna að ná eignum af almenn-
ingi. Getur svo ekki mætt, þegar
almenningur þarf vernd fyrir geð-
sjúklingi. Forgangsröðun Stefáns er
langt út af kortinu.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Skítamórall
Hvers vegna segir bæjarstjóri Sel-
tjarnarness ekki af sér eftir að hafa
orðið uppvís að einelti gagnvart
starfsmanni? Hvers konar samfélag
er þarna á Nesinu – er enginn
þrýstingur á meirihlutann að bæta
ráð sitt eða taka pokann sinn?
blog.eyjan.is/joninaos/
Jónína Óskarsdóttir
Spyrillinn á að ráða för
Umsnúningur hefur orðið í fram-
leiðslu á Gettu betur-þáttunum hjá
Ríkissjónvarpinu. Þar sem spyrj-
andinn réði öllu áður eru dómarar
nú farnir að grípa fram í ótt og títt
og hefta framvinduna. Spyrillinn
í Gettu betur á að ráða för – ekki
dómarar í skartklæðum sem
stöðugt grípa fram í. Áhorfendum
er alveg sama um álit dómara – á
hinu og þessu …!
eirikurjonsson.is
Eiríkur Jónsson
Allt í einu mátti segja fimmaurabrandara
í skáldskap og lýsa keleríi og poppkornsáti
án þess að hnussa …
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
GRÆDDU Á GULLI
Boðið verður upp á verðmat á skartgripum. Engin skuldbinding til að selja.
Þriðjudaginn 20. mars, miðvikudaginn 21. mars
og fimmtudaginn 22. mars frá kl. 11 til 18.
AÐEINS ÞESSA ÞRJÁ DAGA:
Falinn fjársjóður?
Líklega gerir þú þér ekki grein fyrir því að gömlu skartgripirnir sem þú ert
hætt/hættur að nota geta hugsanlega verið mjög verðmætir og jafnvel tug-
þúsunda ef ekki hundruð þúsunda virði. Nú er tækifærið til að komast að því
hvort það leynist fjársjóður í rykföllnum skartgripaskrínum enda safnanar á
höttunum eftir ónotuðum gömlum skartgripum um þessar mundir.
Nú þegar verð á gömlu gulli er í sögulegu hámarki er um að gera að láta leggja
faglegt mat á ónotaða skartgripi. Matið er ókeypis og því fylgir engin skuld-
binding til að selja. Sé hins vegar vilji til þess verður gengið frá viðskiptunum
með reiðufé á staðnum.
Að hverju er verið að leita? Hvað ætti að taka með?
Það er sama hversu stórir eða litlir munirnir eru. Hér eru nokkur dæmi um
muni sem farandsalarnir gætu haft áhuga á:
- Gömlu gulli: skartgripum, sígarettuhulstrum úr gulli eða öðrum
gullmunum.
- Demöntum yfir einu karati.
- Úrum og vasaúrum en þá frá virtum framleiðendum á borð við Rolex,
Cartier, Patek Philippe, Vacheron, Universal, Breitiling, IWS og Omega.
- Skartgripum með gimsteinum, jafnvel þó þeir séu brotnir eða þó vanti
steina.
- Gömlu silfri.
„Ég hef áralanga reynslu af því að meta og kaupa skartgripi og hef á þeim tíma
séð fólk koma með hluti sem voru í þeirra augum lítils virði. Þeir hinir sömu
hafa svo gengið út með umtalsverða peninga á milli handanna,” segir Franks.
Hann segir markaðinn fyrir herraúr aldrei hafa verið betri og að verð á gulli sé
í sögulegu hámarki.
Einkaviðtal við verðmat.
Vinsamlegast athugið að skilríkja er krafist við viðskipti.
Nánari upplýsingar á www.pandhjewellers.com
CenterHotel Klöpp, Klapparstíg 26
AFTUR Á ÍSLANDI VEGNA MIKILS ÁHUGA!
UPPRUNALEGA GULL OG SILFUR KAUPSTEFNAN.
Lárviðarskáldið Einar Már