Fréttablaðið - 19.03.2012, Síða 50
19. mars 2012 MÁNUDAGUR22
% AFSLÁTTUR AF ALLRI LÍNUNNI 19.03 – 12.04
HÚÐLÍNA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR Á FRÁBÆRU VERÐI. ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í
knattspyrnu skipað drengjum
17 ára og yngri mætir Dönum
í fyrsta leik sínum í milliriðli
Evrópumótsins á morgun. Liðið,
sem skipað er drengjum fædd-
um árið 1995, þykir afar efni-
legt. Það varð Norðurlandameist-
ari á Akureyri síðastliðið sumar
þar sem Danir lágu í valnum í
úrslitaleik 1-0. Ekki nóg með það
heldur náði b-lið Íslands fjórða
sæti í mótinu.
Íslenska liðið vann riðil sinn í
undankeppni EM í október þar
sem mótherjarnir voru Grikk-
land og Sviss auk heimamanna
í Ísrael. Sigur í milliriðli trygg-
ir liðinu sæti í úrslitakeppni EM
U17 liða sem fram fer í Slóveníu
í maí.
Gunnar Guðmundsson, þjálf-
ari liðsins, tilkynnti 18 manna
hóp sinn í síðustu viku. Þegar
fæðingarmánuðir drengjanna
eru skoðaðir kemur ýmislegt
áhugavert í ljós. Átta drengjanna
eru fæddir í janúar eða febrú-
ar og enginn þeirra í nóvember
eða desember. Þá eiga fimmtán
drengjanna eða 83 prósent þeirra
afmæli á fyrri hluta ársins.
Einn lykilmann vantar í
íslenska liðið. Hafnfirðingurinn
Þórður Jón Jóhannesson, sem er
á mála hjá AGF í Danmörku líkt
og tveir aðrir leikmenn liðsins,
er frá vegna meiðsla. Þórður Jón
er fæddur í janúar.
Svipað hjá stelpunum
U17 ára landslið kvenna náði
frábærum árangri á síðasta ári.
Liðið varð Norðurlandameistari í
júlí í Finnlandi og spilaði síðar í
mánuðinum í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í Þýskalandi eftir
að hafa svo gott sem rúllað upp
undan- og milliriðlum sínum.
Liðið hafnaði að lokum í fjórða
sæti eftir töp gegn Spánverjum
og Þýskalandi.
Ef fæðingarmánuðir stúlkn-
anna sem urðu Norðurlanda-
meistarar og höfnuðu í fjórða
sæti á EM eru skoðaðir kemur í
ljós að svipað er uppi á teningn-
um og hjá drengjunum. Átta
stúlknanna eru fæddar í janú-
ar, febrúar eða mars en engin
þeirra í október, nóvember eða
desember. Alls eiga tólf stelpur
eða 67 prósent þeirra afmæli á
fyrri hluta ársins.
Þeir „betri“ verða betri og þeir
„lakari“ lakari
Í bókinni Outliers fjallar
Malcolm Gladwell um það hvaða
þættir hafa áhrif á hvort fólk
nái eftirtektarverðum árangri
í lífinu. Þar bendir Gladwell á
hversu miklu máli skipti hvort
krakkar séu fæddir 1. janúar
eða 31. desember þegar kemur að
árangri í íþróttum. Þar sem börn
fædd snemma á árinu eru í flest-
um tilfellum líkamlega og and-
lega þroskaðri virðast þau við
fyrstu sýn betri íþróttamenn en
„jafnaldrar“ þeirra fæddir síðar
á árinu. Fyrir vikið geta þau gert
meira, vekja meiri athygli, þjálf-
arar sýna þeim meiri áhuga og
þau fá betri þjálfun. Á Íslandi
birtist þessi staðreynd til dæmis
þegar yngri flokkum er skipt í
tvo eða fleiri hópa eftir styrk-
leika á æfingum.
Samkvæmt Gladwell og þeim
rannsóknum sem hann vitnar
í vindur þetta upp á sig svipað
og hvernig þeir ríku verða rík-
ari og þeir fátæku fátækari. Í
stað þess að yngri krakkarnir
nái þeim eldri verður bilið alltaf
breiðara. „Efnilegri“ krakkarn-
ir keppa stöðugt gegn sterkum
andstæðingum, eru valdir í ung-
lingalandslið og bæta sig hrað-
ar en yngri krakkarnir. Fæð-
ingardagur þeirra hefur áhrif á
möguleika þeirra til að ná langt
í íþróttinni.
Íslenskar rannsóknir staðfesta
fæðingardagsáhrif
Lýður Vignisson fékk staðfest-
ingu á fæðingardagsáhrifum
hér á landi í lokaverkefni sínu
frá Háskólanum í Reykjavík árið
2009. Hann tók saman upplýsing-
ar um fæðingardag unglinga-
landsliðsmanna í knattspyrnu
karla á árunum 1994-2000. Í
ljós kom að 65 prósent lands-
liðsmannanna voru fæddir fyrri
hluta ársins. Þá áttu tvöfalt fleiri
afmæli fyrstu þrjá mánuði ársins
en þá síðustu þrjá.
Í BA-ritgerð Hrannars Leifs-
sonar við Háskóla Íslands frá
síðasta ári kemur fram að þeir
knattspyrnuiðkendur sem fædd-
ir eru fyrstu mánuði ársins eru
mun líklegri til þess að skila
sér upp í 2. flokk félaganna
en þeir sem fæddir eru seint á
árinu. Eftir því sem iðkendur
verða eldri eru færri í hverj-
um flokki sem fæddir eru á síð-
asta ársfjórðungi (okt-des). Úr
úrtaki Hrannars voru aðeins 14
prósent drengja og 12 prósent
stúlkna í 2. flokki fædd á síðasta
ársfjórðungi.
Því eru fæðingardagsáhrifin
ekki aðeins umhugsunarverð
þegar kemur að möguleikum
barna og unglinga að ná langt
í sinni íþróttagrein. Einnig er
áhyggjuefni ef iðkendur fæddir
seint á árinu hrökklast fyrr úr
íþróttum. Forvarnagildi íþrótta
ætti að vera flestum ljós og varla
þarf að hafa mörg orð um þau í
samantekt þessari.
Ekki öll nótt úti fyrir desember-
börnin
Foreldrar barna fædd seint á
árinu sem eru að stíga sín fyrstu
skref á knattspyrnuvellinum
þurfa þó ekki að örvænta. Rann-
sóknir Ashworth og Hendels frá
árinu 2007 sýndu að atvinnu-
menn í Þýskalandi höfðu heilt
yfir umtalsvert hærri tekjur en
kollegar þeirra fæddir snemma
á árinu. Aðalástæðuna telja þeir
vera þá að núverandi flokkakerfi
ýti undir brottfall leikmanna
sem fæddir eru seint á árinu.
Þeir fáu leikmenn sem halda út
og komast í gegnum þetta mis-
rétti þróa með sér hugarfar sig-
urvegarans og þeim eru allir
vegir færir. kolbeinntumi@365.is
Forréttindi að fæðast snemma á árinu
Óvenjuhátt hlutfall drengjanna sem skipa stórefnilegt landslið Íslands 17 ára og yngri, sem hefur leik í úrslitakeppni Evrópumótsins á
morgun, eru fæddir á fyrri hluta ársins. Í átján manna hópi eiga fimmtán afmæli í júní eða fyrr. Fæðingardagurinn getur haft mikið
að segja um möguleika iðkenda til að ná árangri en rannsóknir sýna einnig hærra brottfall hjá iðkendum fæddum seint á árinu.
„Hættan er að þjálfarar yngstu barnanna vilji vinna
leiki eða mót, oft undir pressu frá foreldrum,
og velji þá sterkari og fljótari sem yfirleitt eru
fæddir snemma á árinu. Þeir krakkar fá svo
meiri athygli þjálfarans sem stjórnar stundum
A-liðinu en lætur aðstoðarmenn um að stjórna
hinum liðunum.,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son fræðslustjóri Knattspyrnusambands
Íslands. Hann segir þjóðfélagið vissulega
ósanngjarnt gagnvart börnum fædd
seint á árinu.
Sigurður Ragnar segir lykilatriði að
félögin og þjálfarar séu meðvituð
um vandamálið. Meiru máli skipti
að sýna öllum leikmönnum athygli
enda sé engin leið að vita hvaða
börn muni skara fram úr síðar meir.
Hann nefnir knattspyrnukempurnar
Eyjólf Sverrisson, Hermann Hreiðars-
son og Tryggva Guðmundsson sér til
stuðnings.
„Alfreð Finnbogason var líka varamaður í
3. flokki og framan af 2. flokki. Ástæðan
var að þjálfaranum fannst hann of lítill.
Hann var síðar valinn efnilegastur og
bestur í efstu deild, komst í atvinnu-
mennsku og er í A-landsliðinu,“ segir
Sigurður Ragnar. Sigurður Ragnar segir ekki síður
mikilvægt að foreldrar átti sig á því að líkamsþroski
barna jafnist út þegar leikmenn verða eldri. Þá skipti
meiru máli að vera með góða tækni, sendingargetu,
leikskilning og rétt hugarfar. Oftar en ekki skari
leikmenn fæddir síðar á árinu fram á þessu sviði
þar sem þeir hafa þurft þess til í samkeppni við
líkamlega sterkari og fljótari leikmenn fæddir
fyrr á árinu.
Hann bendir á að fæðingardagsáhrifin
séu alls ekki bundin við íþróttir heldur sé
þau einnig að finna í skólakerfinu.
„Börn fædd seint á árinu eru líklegri til
þess að vera með lægri meðaleinkunn,
þurfa sérkennslu, hafa lægra sjálfsmat
og sjálfstraust auk þess sem þau leggja
síður stund á íþróttir,“ segir Sigurður
Ragnar meðvitaður um mikilvægi þess
að börn haldist sem lengst í íþróttum.
„Ef pressan á þjálfaranum er minni
að vinna titla í stað þess að þróa
leikmanninn áfram verður minna
um fæðingardagsáhrif. Ef úrslitin eru
ekki aðalatriðið dreifist spiltíminn
og athygli þjálfarans betur og eftir
stendur breiðari leikmannahópur
vegna minna brottfalls.“
Þú veist aldrei hver á eftir að skara fram úr
FRAMTÍÐARMENN Fjórir strákar sem voru lukkudrengir fyrir landsleik Íslands og Kýpur í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL