Fréttablaðið - 19.03.2012, Qupperneq 51
MÁNUDAGUR 19. mars 2012 23
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Gegn krabbameini í körlum
Í mars renna 100 kr. af hverjum
seldum pakka af Nicotinell beint
til átaksins Mottumars.
Mundu að það eru bláu pakkarnir
frá Nicotinell sem styrkja gott
málefni.
100 KRÓNUR
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni.
Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring.
Ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun
eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með
barn á brjósti máttu einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
Iceland Express deild karla
Stjarnan-Fjölnir 82-74 (44-37)
Stjarnan: Keith Cothran 17, Fannar Helgason 13,
Renato Lindmets 12, Marvin Valdimarsson 12
(9 frák.), Jovan Zdravevski 8, Justin Shouse 7 (8
frák./10 stoðs.), Guðjón Lárusson 6, Dagur Kár
Jónsson 6, Magnús Bjarki Guðmundsson 1.
Fjölnir: Nathan Walkup 27, Calvin O’Neal 16 (8
frák./8 stoðs.), Arnþór Freyr Guðmundsson 12,
Jón Sverrisson 9, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5,
Hjalti Vilhjálmsson 3, Trausti Eiríksson 2.
Snæfell-Tindastóll 89-80 (45-39)
Snæfell: Marquis Hall 32, Jón Ólafur Jónsson
20 (11 frák.), Quincy Hankins-Cole 15 (14 frák.),
Pálmi Freyr Sigurgeirs. 12, Sveinn Davíðsson 7,
Hafþór Ingi Gunnarsson 2, Ólafur Torfason 1.
Tindastóll: Curtis Allen 28, Maurice Miller 20,
Helgi Margeirsson 7, Hreinn Gunnar Birgisson 6,
Helgi Rafn Viggósson 6, Þröstur Leó Jóhannsson
6, Igor Tratnik 4, Friðrik Hreinsson 3.
KR-Haukar 98-92 (50-41)
KR: Joshua Brown 28, Dejan Sencanski 19,
Robert Ferguson 13, Emil Þór Jóhanns. 13,
Hreggviður Magnúss. 12, Finnur Atli Magnússon
6, Björn Kristjánsson 5, Martin Hermannsson 2.
Haukar: Christopher Smith 34, Alik Joseph-
Pauline 29 (7 frák./6 stoðs.), Haukur Óskarsson
11, Emil Barja 7, Helgi Björn Einarsson 7,
Guðmundur Kári Sævarsson 2, Andri Freysson 2.
STAÐAN Í DEILDINNI
Grindavík 20 17 3 1799-1599 34
KR 21 14 7 1882-1773 28
Stjarnan 21 14 7 1843-1717 28
Þór Þ. 20 13 7 1704-1613 26
Keflavík 20 12 8 1785-1697 24
Snæfell 21 12 9 1966-1860 24
Tindastóll 21 10 11 1755-1821 20
Njarðvík 20 9 11 1682-1714 18
ÍR 20 8 12 1770-1855 16
Fjölnir 21 8 13 1788-1883 16
Haukar 21 6 15 1667-1752 12
Valur 20 0 20 1516-1873 0
LEIKIR Í KVÖLD
Njarðvík - Grindavík Njarðvík kl. 19.15
Þór Þorl. - Valur Þorlákshöfn kl. 19.15
Keflavík - ÍR Keflavík kl. 19.15
1. deild karla - úrslitakeppni
ÍA-Hamar 86-72 (ÍA 2-0)
Höttur-Skallagrímur 77-88 (Skallagr. 2-0)
Skallagrímur og ÍA mætast í úrslitaeinvíginu um
laust sæti í úrvalsdeild karla.
KARFAN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur
tóku við deildarmeistaratitlinum
eftir öruggan 73-40 sigur á KR í
lokaumferðinni á laugardaginn.
Þá kom einnig í ljós að Keflavík
fær Hauka í undanúrslitum
úrslitakeppninnar en Njarðvík
glímir við Snæfell.
Keflavík tapaði 3 af 5 leikjum
sínum á lokasprettinum en
fyrirliðinn Birna Valgarðsdóttir
hefur ekki áhyggjur. „Þetta er
búið að vera upp og niður hjá
okkur í vetur en vonandi er
þetta bara upp á við núna. Við
þurftum að hafa fyrir þessu í
vetur og vorum í raun heppnar í
lokin að þetta datt okkar megin.
Ég held að það sé bara gott fyrir
okkur að hiksta aðeins fyrir
úrslitakeppnina. Núna förum
við bara að einbeita okkur að
úrslitakeppninni og setjum
vonandi í fimmta gírinn,“ sagði
Birna.
Falur Harðarson fagnar því
að vera með heimavallarrétt
alla leið. „Það hljómar mjög
vel. Okkur líður mjög vel á
heimavelli og þetta er mjög
dýrmætt fyrir okkur að ná
þessum deildarmeistaratitli.
Úrslitakeppnin á að vera erfið
og ég hef sagt það áður að það á
enginn þessa bikara. Það er bara
það lið sem vill taka þá sem tekur
þá,“ sagði Falur. - óój
Keflavíkurkonur meistarar:
Bara gott að
hiksta aðeins
BIKAR Á LOFT Pálína Gunnlaugsdóttir og
Birna Valgarðsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
BLAK Kvennalið Aftureldingar
og karlalið KA urðu í gær
bikarmeistarar í blaki en
úrslitaleikir Asics-bikarsins fóru
þá fram í Laugardalshöllinni.
Afturelding var að vinna sinn
fyrsta bikarmeistaratitil en
KA-menn urðu meistarar þriðja
árið í röð og í fimmta sinn alls.
Afturelding vann þarna sinn
fyrsta stóran titil á sínu fyrsta
tímabili. Apostol Apostolov tók
við liðinu í haust og fékk til sína
marga sterka leikmenn þar á
meðal eiginkonu sína og dætur
þeirra tvær. Afturelding vann
öruggan 3-0 sigur á Þrótti Nes. en
nokkrir leikmenn Aftureldingar
urðu bikarmeistarar með Þrótti
Nes. í fyrra. Þar á meðal er
Zaharina Filipova sem var valin
besti leikmaður vallarins í gær.
KA vann 3-1 sigur á Stjörnunni
hjá körlunum en KA hefur unnið
Stjörnuna í bikarúrslitaleiknum
þrjú ár í röð. Stjarnan vann fyrstu
hrinuna 25-15 og var lengi yfir í
annarri hrinunni en KA-menn
tóku þá við sér og unnu þrjár
síðustu hrinurnar. - óój
Afturelding og KA urðu bikarmeistarar í blaki í gær:
Sögulegt á fyrsta ári
GULL-FJÖLSKYLDA Apostol Apostolov, þjálfari Aftureldingar, sést hér með eiginkonu
sinni Miglenu og dætrunum Velinu og Kristinu en þau urðu öll bikarmeistarar í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI