Fréttablaðið - 14.05.2012, Qupperneq 2
14. maí 2012 MÁNUDAGUR2
WASHINGTON, AP Harry Bretaprins
var verðlaunaður fyrir góðgerða-
starf sitt í þágu særðra hermanna
í kvöldverðarboði í Washington.
Þetta var fyrsta heimsókn Harrys
til bandarísku höfuðborgarinnar.
Hinn 27 ára Harry er þyrluflug-
maður í breska hernum og starfaði
í tíu vikur í Afganistan á árunum
2007 til 2008. Við athöfnina í Wash-
ington sagði hann að margir karl-
menn og konur úr hernum hefðu
þurft að borga dýru verði fyrir
að tryggja almenningi öryggi og
standa vörð um frelsi hans. „Þau
eiga það inni hjá okkur að við
styðjum við bakið á þeim og fjöl-
skyldum þeirra þegar þau eiga um
sárt að binda. Vonandi öðlast þau
á endanum vonina á nýjan leik og
sjálfstraust til að blómstra,“ sagði
prinsinn. „Fyrir þetta fólk hefst
hinn raunverulegi bardagi eftir að
byssurnar hafa þagnað.“
Colin Powell, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
veitti verðlaunin. Hann sló á létta
strengi og sagði meðalaldur þeirra
sem sækja þennan árlega kvöldverð
hafa lækkað um 25 ár. „Jafn margar
ungar og einhleypar konur hafa
aldrei áður sótt kvöldverðinn.“ - fb
Fékk viðurkenningu vegna góðgerðastarfs í þágu særðra hermanna:
Harry Bretaprins verðlaunaður
VERÐLAUNAÐUR Harry Bretaprins
ásamt Colin Powell sem afhenti honum
verðlaunin. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BOSTON, AP Þrír stúdentar úr
Boston-háskóla í Banda ríkjunum
fórust og fimm til viðbótar
slös uðust í bílslysi á Nýja Sjálandi
á laugardaginn. Nemendurnir
voru á ferðalagi í lítilli rútu
skammt frá bænum Taupo þegar
hún fór út af veginum og valt.
Móðir eins háskólanemans
sem fórst sagði í viðtali við
Boston Globe að sonur hennar
hefði verið duglegur að setja inn
myndir á Facebook frá ævin-
týrum sínum á Nýja Sjálandi, þar
á meðal teygju stökki á afmælis-
degi sínum. Prófum lauk í
Boston-háskóla á föstudaginn en
enginn áhugi var fyrir hátíðar-
höldum vegna harmleiksins. - fb
Harmleikur á Nýja Sjálandi:
Þrír stúdentar
fórust í bílslysi
MINNINGARATHÖFN Nemendur í
Boston minntust látinna samnemenda
sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MADRÍD, AP Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, varði í gær niðurskurðaraðgerðir ríkis-
stjórnarinnar en þeim er ætlað að rétta við
slæmt efnahagsástand landsins. Á laugardaginn
flykktust tugir þúsunda Spánverja út á götur og
mótmæltu aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Rajoy sagði aðgerðirnar nauðsynlegar vegna
slæms ástands efnahags landsins, þar á meðal
mikils atvinnuleysis sem mælist næstum 25 pró-
sent. „Við erum að gera allt sem í okkar valdi
stendur og þess vegna verðum við að taka erfiðar
ákvarðanir. Við erum að gera hluti sem voru ekki
nefndir í kosningaherferð okkar en við verðum að
framkvæma þá,“ sagði hann.
Tugir þúsunda Spánverja flykktust á göturnar
á laugardaginn í tilefni þess að eitt ár er liðið
síðan Indignant-hreyfingin var stofnuð. Hún varð
til þess að margar aðrar mótmælagöngur voru
haldnar gegn stjórnvöldum um allan heim. Sam-
kvæmt spænsku lögreglunni mótmæltu 72 þúsund
manns í landinu, þar af 30 þúsund í Barselóna og
22 þúsund í Madríd.
Átján mótmælendur voru handteknir í gær.
Að auki slösuðust tveir lögreglumenn í Madrid
þegar þeir reyndu að rýma stórt almenningstorg
í borginni.
- fb
Tugir þúsunda flykktust á götur Spánar til að mótmæla ríkisstjórninni:
Rajoy varði niðurskurð Spánar
LEIDDUR Í BURTU Mótmælandi leiddur í burtu af lögreglunni í
Madríd á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Unnar, eru þetta góð samtök?
„Þetta eru fyrst og fremst skemmti-
leg samtök.“
Unnar Jón Kristjánsson er meðlimur bif-
hjólasamtakanna Postularnir sem stunda
góðgerðarstarfsemi.
KOSNINGAR Ari Trausti Guð-
mundsson hefur lokið við söfnun
meðmæla fyrir forsetaframboð
sitt. Framboð hans sendi frá sér
fréttatilkynningu um þetta í gær.
Ari Trausti og stuðnings-
menn hans fóru meðal annars í
Grímsey á föstudagskvöld, þar
sem nokkrar af síðustu undir-
skriftunum á meðmælalista hans
fengust. Hann átti fund með
Grímseyingum þá um kvöldið.
Framboðsfrestur rennur út 25.
maí næstkomandi. - þeb
Lauk undirskriftasöfnun:
Ari Trausti
búinn að safna
FLOGIÐ Í GRÍMSEY Ari Trausti flaug
í Grímsey á föstudag á lítilli tveggja
hreyfla vél.
STJÓRNMÁL Bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn í Garði er fallinn, eftir
að Kolfinna Snæbjörg Magnús-
dóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, tilkynnti að hún hygðist
ganga til liðs við minnihlutann.
Kolfinna sagði við fréttastofu
RÚV í gær að ágreiningsefnin
hefðu verið mörg og alvarleg.
Hún nefndi sérstaklega málefni
grunnskólans í Garði.
Myndaður hefur verið nýr
meirihluti N- og L-lista ásamt
Kolfinnu. Til stendur jafnframt
að ráða nýjan bæjarstjóra, en
Ásmundi Friðrikssyni núver-
andi bæjarstjóra verður sagt upp
störfum á fundi á miðvikudag.
- þeb
Bæjarstjórinn látinn fara:
Meirihlutinn
fallinn í Garði
SLYS Maður sem veiktist í Esju-
hlíðum í gærdag var látinn við
komuna á bráðamóttöku Land-
spítalans.
Maðurinn hafði veikst skyndi-
lega. Björgunarsveitir og sjúkra-
flutningamenn voru kölluð á stað-
inn rétt eftir hádegi í gær. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var einnig
kölluð til, en varð frá að hverfa
vegna veðurs. Maðurinn var flutt-
ur á bráðamóttöku Landspítalans
en var látinn við komuna þangað.
Ekki er hægt að greina frá nafni
hins látna að svo stöddu. - þeb
Björgunarsveitir kallaðar til:
Lést á göngu í
Esjuhlíðum
LÖGREGLUMÁL Maður var stunginn
með hnífi á Laugavegi rétt eftir
sjö á laugardagskvöld. Hann var
fluttur með sjúkrabíl á slysadeild
en ekki hafa fengist nánari upp-
lýsingar um meiðsl hans. Árásar-
mannsins var enn leitað í gær.
Lögreglan sinnti fleiri verk-
efnum af svipuðum meiði á
laugardagskvöld. Maður ógnaði
fólki með hnífi á veitingahúsi við
Laugaveg, en starfsmaður skarst
í lófa við að afvopna hann. Þá var
stúlka skorin í andlitið á skemmti-
stað við Bankastræti. - sh
Nóg að gera hjá lögreglunni:
Hnífar á lofti í
miðborginni
SPURNING DAGSINS
VIÐSKIPTI Það kemur ekki til
greina að hleypa kaupauka-
kerfinu í bönkunum af stað aftur
í þeirri mynd sem það var fyrir
hrun segir Steingrímur J. Sig-
fússon, efnahags- og viðskipta-
ráðherra. Hann
segir áform
um kaupauka-
kerfi í Lands-
bankanum til
komin vegna
óska kröfuhafa.
Eins og fram
kom í Markað-
inum, fylgiriti
Fréttablaðsins,
í síðustu viku
munu starfsmenn Landsbankans
eignast allt að tveggja prósenta
hlut í bankanum þegar lokaupp-
gjör fer fram milli bankans og
þrotabús gamla Landsbankans
í lok þessa árs. Með þessu er
ætlunin að byggja upp kaupauka-
kerfi, en hluturinn er um fjögurra
milljarða króna virði.
„Það kemur ekki til greina að
hleypa þessu kaupaukakerfi af
stað í þeim anda sem það var,
enda stendur það ekki til,“ segir
Steingrímur. Hann segir búið
að taka fyrir að stjórnendum
bankanna verði greiddir risa-
bónusar tengdir skammtíma-
gróða, svo sú hætta verði aftur
til staðar að stjórnendurnir reyni
að skrúfa afkomuna upp milli árs-
fjórðunga vegna bónusa.
Hann segir að um það hafi
samist við kröfuhafa gamla
Landsbankans að starfsmenn
nýja bankans fengju að njóta þess
með kaupaukum ef vel gengi.
„Þeir voru raunar með miklu
meiri kröfur í þeim efnum sem
við féllumst ekki á. Að endingu
náðist saman á þessum nótum, að
allir starfsmenn bankans gætu
fengið vissa hlutdeild í því þegar
til uppgjörsins kemur milli nýja
og gamla bankans,“ segir Stein-
grímur.
Steingrímur vísar til þess að
Fjármálaeftirlitið (FME) hafi sett
reglur um kaupauka þar sem þeim
eru settar verulegar skorður, og
bankarnir verði að sjálfsögðu að
fara eftir þeim reglum.
„Ég er persónulega ekki mikill
aðdáandi kaupauka eða bónusa
yfir höfuð og deili ekki þeirri
hugmyndafræði að þeir þurfi að
vera,“ segir Steingrímur. „Að
því marki sem það er þarf að
setja um það mjög stífar reglur
og koma í veg fyrir að vitleysan
frá því fyrir hrunið geti tekið sig
upp á nýjan leik. Það verður séð
til þess,“ segir Steingrímur.
Í eigendastefnu ríkisins er kveð-
ið á um hófsemi í launa málum hjá
bönkunum, og bankanum ber að
starfa í þeim anda, segir Stein-
grímur. brjann@frettabladid.is
Bónusar eins og fyrir
hrun ekki á dagskrá
Nýtt kaupaukakerfi sem verið er að þróa í Landsbankanum er til komið vegna
óska kröfuhafa segir ráðherra. FME hefur sett kaupaukum í fjármálafyrirtækj-
um miklar skorður. Kveðið er á um hófsemd í launakjörum í stefnu ríkisins.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
KAUPAUKAR Setja þarf mjög stífar reglur til að koma í veg fyrir að „vitleysan“ með
bónusa fyrir stjórnendur bankanna verði endurtekin segir Steingrímur J. Sigfússon
efnahags- og viðskiptaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND
Það kemur ekki til
greina að hleypa
þessu kaupaukakerfi af stað
í þeim anda sem það var,
enda stendur það ekki til.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA