Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 8
14. maí 2012 MÁNUDAGUR8 Meðaleyðsla aðeins 3,8 lítrar á hverja 100 km* www.volkswagen.is Sparar sig vel Volkswagen Polo Trendline TDI Komdu og reynsluaktu Volkswagen Polo * Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum Volkswagen Polo Trendline 1.2 TDI Polo kostar aðeins frá 2.390.000 kr. A uk ab ún að ur á m yn d: 1 8“ á lfe lg ur , þ ok ul jó s og li ta ða r rú ðu r Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00 Humar 2.350 kr.kg Harðfiskurinn frá Stykkishólmi Þessi sjúklega góði Sigin Grásleppa Frá Drangsnesi Nýr flugvallarstjóri ráðinn Hjördís Þórhallsdóttir hefur verið ráðin flugvallarstjóri hjá ISAVIA á Akureyrarflugvelli í stað Sigurðar Hermannssonar. Hann hefur gegnt starfinu frá 1997, en lætur af störfum í haust fyrir aldurs sakir. FSu fær nýjan skólameistara Menntamálaráðherra hefur skipað Olgu Lísu Garðarsdóttur í stöðu skóla- meistara Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi (FSu), að því er fram kemur á vef skólans. Hún tekur við í ágúst af Örlygi Karlssyni sem gegnt hefur stöðunni síðustu ár, en hann hefur starfað við skólann frá stofnun hans fyrir rúmum 30 árum. STJÓRNSÝSLA SLYSAVARNIR Faxaflóahafnir sf. styrkja starfsemi Landsbjargar, Björgunarbátasjóðs Reykjavíkur og fjögurra björgunarsveita við Faxaflóa næstu fimm árin. Skrifað var undir samning þessa efnis á aðalfundi Faxaflóahafna á laugar- dag. Alls greiða Faxaflóahafnir út á samningstímanum tíu milljónir króna, tvær milljónir hvert ár. „Auk Landsbjargar og Björg- unarsjóðs Reykjavíkur nær samn- ingurinn til Björgunar sveitarinnar Ársæls í Reykjavík, sem hyggur á bátakaup, Björgunar sveitarinnar Kjalar á Kjalarnesi, Björgunar- félags Akraness og Björgunar- sveitarinnar Brákar í Borgarnesi,“ segir í tilkynningu Landsbjargar og Faxaflóahafna. „Aðilar samkomulags þessa eru sammála um að veita hver öðrum gagnkvæma aðstoð þegar á þarf að halda vegna björgunar og að- stoðar við sjófarendur, skip og báta á Faxaflóa,“ segir í fyrstu grein samkomulagsins. Þá segir í tilkynningunni að í samkomulaginu felist viðurkenning Faxaflóahafna á mikil vægi björgunarsveitanna og staðfesting á hlutverki þeirra til aðstoðar sjófarendum. - óká Faxaflóahafnir hafa samið við björgunarsveitir við Faxaflóa um styrk og aðstoð: Aðstoða sjófarendur á Faxaflóa SKRIFAÐ UNDIR Um helgina var gengið frá samningi um styrk Faxaflóahafna sf. til björgunarsveita sem hjálpa sjófar- endum á Faxaflóa. MYND/LANDSBJÖRG LONDON, AP Breska varnarmála- ráðuneytið hefur staðfest að tveir hermenn Nato, sem voru skotnir til bana í Afganistan á dögunum, hafi verið Bretar. Tilræðismennirnir voru klædd- ir afgönskum lögreglubúningum. Ekki er vitað hvort þeir hafi notað búningana sem dulargervi. Her- mennirnir voru skotnir þegar þeir héldu uppi öryggisgæslu á sam- komu yfirmanna í sýslunni Helm- and. 414 breskir hermenn hafa látið lífið í Afganistan síðan ráðist var inn í landið árið 2001. -fb Skotárás í Afganistan: Tveir breskir hermenn féllu MEXÍKÓ,AP Fjörutíu og níu aflimuð og afskræmd lík fundust í plast- pokum á þjóðvegi sem tengir saman borgina Monterrey og bandarísku landamærin. Þetta er enn eitt áfallið í baráttu yfirvalda gegn sífellt versnandi stríði á milli mexíkóskra eiturlyfjagengja. Skipulögð glæpagengi í Mexíkó skilja oft eftir lík á fjölförnum stöðum til að senda andstæð ingum sínum skilaboð. Einhver fórnar- lambanna sem fundust á þjóð- veginum í gær báru húðflúr Santa Muerte-samtakanna sem eru vin- sæl á meðal eiturlyfjasala. Ekki er samt útilokað að fórnarlömbin hafi verið fólk sem ætlaði að flýja yfir landamærin til Bandaríkjanna. Að sögn lögreglunnar í sýslunni Nuevo Leon var borði skilinn eftir þar sem líkin fundust með skila- boðum frá eiturlyfjahringnum Zetas þar sem hann lýsti ábyrgð fyrir fjöldamorðunum á hendur sér. Erfitt var að bera kennsl á líkin vegna þess að búið var að skera af þeim höfuðin, hendurnar og fæturna. Barátta mexíkóskra eiturlyfja- hringja hefur farið harðnandi að undanförnu. Þeir svífast einskis til að öðlast stjórn yfir svæðunum sem notuð eru til að smygla eitur- lyfjum til Bandaríkjanna, auk þess sem þeir berjast um yfirráð á eitur lyfjamarkaðnum heima fyrir. Einnig beita þeir ítrekað fjárkúg- unum og herja oft á þá sem reyna að komast ólöglega til Banda- ríkjanna. Í september skildi Sinaloa- hringurinn eftir 35 lík við þjóð- veg skammt frá borginni Vera- cruz og nokkrum dögum síðar fann lögreglan 32 lík til viðbótar skammt frá. Svo virtist sem sami eiturlyfjahringur hafi þar verið að verki. Í nóvember fundust 26 lík í Guadalajara, sem er svæði þar sem Zetaz- og Sinola-hringirnir hafa barist um yfirráð. Á síðasta ári fundust 193 lík í fjöldagröf í bænum San Fernando. Talið er að þetta hafi verið flótta- menn sem voru drepnir af Zetas- hringnum. 72 flóttamenn til við- bótar, margir frá Mið-Ameríku, fundust drepnir í San Fernando árið 2010. freyr@frettabladid.is Hátt í fimmtíu lík fundust á þjóðvegi Hátt í fimmtíu lík fundust aflimuð á þjóðvegi við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Barátta mexíkóskra eiturlyfjahringja um yfirráðasvæði fer harðnandi. Á ÞJÓÐVEGINUM Vígalegur mexíkóskur lögreglumaður á þjóðveginum þar sem 49 aflimuð lík fundust í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVEITARSTJÓRNARMÁL VA arkitektar báru sigur úr býtum í samkeppni um hönnun nýs hjúkrunarheim- ilis á Ísafirði. Tillagan var kynnt við athöfn í matsal Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða á föstudag. Um leið voru kynnt úrslit í samkeppni um nafn á heimilið. Sigurvegari þar var Magdalena Sigurðardóttir sem lagði til nafnið „Eyri“, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ísafjarðar bæ. - óká Hönnunartillaga var kynnt: Nafnið Eyri bar sigur úr býtum 1. Hvernig deild segir lögregla og fleiri að skorti innan lögreglunnar? 2. Hvað var þingsályktunartillaga um fækkun ráðuneyta rædd lengi á Alþingi? 3. Hvað heitir rektor Háskólans í Reykjavík? SVÖRIN 1. Mansals- og vændisdeild. 2. Í fjörutíu klukkustundir. 3. Ari Kristinn Jónsson. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.