Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 4
14. maí 2012 MÁNUDAGUR4 GENGIÐ 11.05.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 223,8627 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,39 125,99 201,91 202,89 162,22 163,12 21,819 21,947 21,366 21,492 18,023 18,129 1,5675 1,5767 192,68 193,82 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Buika á Listahátíđ 3. júní / 4.900 kr. www.listahatid.is Buika syngur í kvikmynd Almódóvars Skannaðu kóðann! SVEITARSTJÓRNIR Landeigendur á Arnarnesi krefjast bóta samþykki bæjaryfirvöld nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir almenn- ingsstígum við strandlengjuna. Í lögfræðiáliti fyrir bæinn segir að landeigendurnir hafi réttinn sín megin. Bæjaryfirvöld fengu Andra Árnason hæstaréttarlögmann til að fara yfir tilteknar athuga- semdir sem bárust vegna fyrir- hugaðra breytinga á deiliskipulagi á Arnarnesi. Snýst málið meðal annars um eignarhald á landi undir almenningsgarð og landi undir mal bikaðan og upp lýstan göngu- og hjólastíg meðfram strandlengjunni á norðanverðu og norðvestanverðu Arnarnes. Deilt er um túlkun gamals sam- komulags frá upphafi skipu lagðrar byggðar á Arnarnesi þar sem land- eigendur afsöluðu sér landi til almenningsnota. Segja landeig- endurnir að þar sem nú sé gert ráð fyrir almenningsgarði á Háholti hafi upphaflega átt að vera skóli og að landinu hafi verið afsalað til þeirra nota sérstaklega. Andri Árnason telur bæinn hafa eignarhald á Háholtinu en öðru máli gegni um land undir almenn- ingsstíga á norður- og norðvestur- ströndinni. Þar þurfi leyfi landeig- anda fyrir lagningu stíganna. Auk þess kunni eigendur íbúðarhúsa- lóða að telja sig verða fyrir tjóni með því að nýtingarmöguleikar eigna þeirra minnkar og verð- mæti lækkar. „Telja verður líklegt að lóðareigendur verði í slíkum til- fellum taldir eiga bótarétt á hendur sveitarfélaginu,“ segir í lögfræði- álitinu. - gar Lögfræðiálit var unnið fyrir Garðabæ vegna áformaðra breytinga á deiliskipulagi á Arnarnesi: Von er á bótakröfum vegna strandstígs ARNARNES Bærinn hyggst leggja hjólreiða- og göngustíga fyrir almenning neðan við sjávarlóðir á Arnarnesi en á ekki strandlengjuna. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL. FANGELSISMÁL Umsóknir fanga um náðanir hafa allar verið sam þykktar á grundvelli heilsufarsástæðna. Síðan 1980 hafa alls verið náðaðir 167 einstaklingar hér á landi, þar af 45 á síðustu 16 árum. Skúli Þór Gunnsteinsson, lög- fræðingur hjá innanríkisráðu- neytinu, segir allar náðanir byggðar á læknisfræðilegum rökum. „Menn geta verið að kljást við alvarleg geðræn vandamál eða eru algjörlega bundnir á stofnunum. Einnig er mjög algengt að menn eigi einfaldlega ekki langt eftir og séu við dauðans dyr,“ segir Skúli. „Svo eru einstaklingar sem eru algjör- lega ósjálfbjarga og það er ekki hægt að vera með slíka menn í fang- elsi. Það þjónar engum tilgangi.“ Dómarnir sem náðaðir ein- staklingar hafa hlotið eru í lang- flestum tilvikum vægir. Skúli segir mikið þurfa að koma til ef um sé að ræða þunga dóma og slíkt heyri til algjörra undantekninga. „Það er til, en það er mjög óalgengt,“ segir hann. Í flestum tilvikum séu menn að afplána dóma fyrir fésektir. Hljóti maður náðun þarf að halda almennt skilorð. Skúli man eftir einu tilviki þar sem náðaður maður braut skilorð, en þar var um að ræða mjög andlega veikan einstak- ling. „Hann var bara settur aftur í steininn.“ Sama gildir um skilorðsrof hjá náðuðum einstaklingum og þeim sem hafa fengið skilorðsbundna dóma. Í því samhengi bendir Skúli á að gæti viðkomandi keyrt, sem náðaðir einstaklingar geti þó yfir- leitt aldrei, myndi hraðaksturssekt ekki valda skilorðsrofi. Til þess þyrfti árásarbrot eða annað alvar- legra lögbrot. „Ástæða þess hversu skilorðs- rof eru sjaldgæf yfirleitt er sú að þessir einstaklingar eru svo veikir að þeir hafa ekki burði til að brjóta af sér,“ segir hann. „Og ef þeir gera það, eru þeir yfirleitt ekki ábyrgir gjörða sinna.“ Ekki fást nánari upplýsingar um afbrot þeirra einstaklinga sem hlotið hafa náðun vegna þess hversu fangahópurinn er lítill og auðvelt er að rekja hvert tilfelli fyrir sig. Alls hafa 513 umsóknir um náðun borist síðan árið 1993. Af þeim voru 45 samþykktar. sunna@frettabladid.is Alltaf náðað vegna alvarlegra veikinda Þeir 167 einstaklingar sem hafa hlotið náðun á síðustu 30 árum áttu við alvar- leg veikindi að stríða. Sumir voru við dauðans dyr. Mjög óalgengt að menn rjúfi skilorð eftir að hafa hlotið náðun, segir lögfræðingur innanríkisráðuneytisins. AFTUR Í VARÐHALD Aðeins einn af 167 hefur rofið skilorð náðunar og verið settur aftur í fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Náðunarbeiðni er send til ríkisráðs sem metur hvert tilvik fyrir sig eftir læknisfræðilegum rökum. Hljóti umsóknin samþykki náðunarnefndar innanríkisráðuneytisins er hún síðan send áfram til forseta Íslands til undir- ritunar. Undirrituð tillaga er svo send Fangelsismálastofnun til framkvæmdar. Náðun er alltaf skilorðsbundin, yfirleitt tvö til þrjú ár, eftir þyngd dóma, og Fangelsismálastofnun sinnir hefðbundnu skilorðseftirliti. Náðun er alltaf skilorðsbundin Svo eru einstaklingar sem eru algjörlega ósjálfbjarga og það er ekki hægt að vera með slíka menn í fangelsi. Það þjónar engum tilgangi. SKÚLI ÞÓR GUNNSTEINSSON LÖGFRÆÐINGUR HJÁ INNANRÍKISRÁÐUNEYTI GEORGÍA,AP Fimm manns fórust af völdum mikilla flóða í Tbilisi, höfuðborg Georgíu í gær. Móðir með tvö ung börn, eldri kona og eldri maður fórust í Ortachala-hverfinu eftir að áin Kura flæddi yfir bakka sína. Þau festust öll inni á heimilum sínum og létust þegar híbýlin hrundu. Að sögn sjónarvotta fór vatnshæðin sums staðar yfir þrjá metra. Rafmagn fór af mörgum hverfum og bílar flutu eftir götunum. Herinn í Georgíu aðstoðaði fólk sem var í vanda statt og hjálpaði því að færa sig um set. Spáð er rigningu næstu þrjá daga í Georgíu. -fb Flóð í höfuðborg Georgíu: Fimm manns fórust í Tbilisi FLÓÐ Fimm manns fórust í Tbilisi, höfuðborg Georgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Nemandi á efri stigum grunnskóla í Kiruna í Svíþjóð hefur verið dæmdur fyrir að hafa sparkað í kennara, barið hann og hótað honum lífláti. Kennarinn fær hins vegar engar bætur. Samkvæmt úrskurði undir- réttar verða kennarar, eins og lögreglumenn og dyraverðir, að reikna með vissu ofbeldi og hótunum, að því er blaðið Norr- ändska Socialdemokraten greinir frá. Nokkrir nemendur höfðu verið með læti í matsal síðasta haust og bar kennarinn einn út. Sá mótmælti á fyrrgreindan hátt. -ibs Undirréttur í Svíþjóð: Kennarar reikni með ofbeldi NOREGUR Tollayfirvöld í Noregi geta krafist sannana fyrir eyðslu Norðmanna í útlöndum tíu ár aftur í tímann hafi greiðsla fyrir vöru numið meira en 25 þúsundum norskra króna. Geti menn ekki sýnt kvittun eiga þeir á hættu að greiða viðbótartoll, hvort sem þeir hafa tekið vöruna með sér til Noregs eða ekki, að því er greint er frá á vef Aftenposten. Tölvunefndin í Noregi, sem fengið hafði kvörtun vegna málsins, úrskurðaði í fyrra að slíkt eftirlit væri ólöglegt. Nú hefur norska persónuverndin úrskurðað að svo sé ekki. - ibs Norðmenn skoða eyðslu: Kvittanir þarf að geyma í heilan áratug VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 18° 17° 10° 18° 19° 12° 12° 29° 12° 25° 20° 32° 12° 17° 19° 11°Á MORGUN 5-10 m/s, hvassast austan til. MIÐVIKUDAGUR 3-10 m/s og stöku él. 2 0 -3 0 -1 1 -1 3 4 5 -2 12 13 12 12 10 15 13 18 8 15 10 4 0 -1 0 4 6 1 -1 1 3 LÆGIR Í KVÖLD Í dag má búast við strekkingi víðast hvar en það fer að lægja með kvöldinu, fyrst á Vestfjörðum. Á morgun verður fremur hægur vindur nema allra austast. Á miðviku- daginn lítur síðan út fyrir að hitastigið hækki aðeins. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Eimskipafélag Íslands stefnir á skráningu í Kauphöll Íslands á lokafjórðungi þessa árs. Fram kemur í tilkynningu að félagið hafi ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfest- ingabanka til að vinna að undir- búningi skrán- ingarinnar. „Í tengslum við fyrirhugaða skráningu er gert ráð fyrir að fram fari almennt hluta- fjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að skrá sig fyrir hlutum í félaginu,“ segir í tilkynningu, en með því eigi að tryggja almenna og góða dreif- ingu á eignarhaldi félagsins. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim- skips, væntir þess að skráningin verði farsælt skref. - óká Eimskip ætlar á markað: Skráning á lokafjórðungi GYLFI SIGFÚSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.