Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 6
14. maí 2012 MÁNUDAGUR6
Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn
fimmtudaginn 24. maí nk., kl. 16.00, á Hilton
Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.
Dagskrá
1. Fundarsetning
2. Almenn ársfundarstörf
3. Kynning á viðbrögðum sjóðsins við athugasemdum í skýrslu
úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða
4. Önnur mál löglega upp borin
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar og rétthafar
séreignarsparnaðar rétt til setu á fundinum.
Reykjavík, 2. maí 2012
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á
heimasíðu sjóðsins, lifeyrir.is
Ársskýrslu og dagskrá fundarins má nálgast á skrifstofu
sjóðsins og á lifeyrir.is
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
52
28
0
ÁRSFUNDUR
FRÉTTASKÝRING: Forseti Íslands hellir sér í kosningabaráttu
Forseti Íslands telur að
kvótafrumvörp ríkis-
stjórnarinnar eigi heima
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Forystumenn stjórnar og
stjórnarandstöðu taka ekki
illa í það. Ólafur Ragnar
Grímsson hóf kosninga-
baráttu sína í gær með
harðri gagnrýni á meðfram-
bjóðanda sinn, stjórnvöld
og fjölmiðla.
Barátta Ólafs Ragnars Gríms-
sonar fyrir endurkjöri til embættis
forseta Íslands hófst með hvelli
í ítarlegu viðtali í þættinum
Sprengisandi á Bylgjunni í gær.
Samdægurs opnaði hann kosninga-
skrifstofu sína að Laugavegi 88 og
heimasíðuna Olafurogdorrit.is.
Kvótinn stærsta mál þjóðarinnar
Meðal þess sem fram kom í við-
talinu við Sigurjón M. Egilsson
var að Ólafur Ragnar telur fá mál
eins vel til þess fallin að vera borin
undir þjóðina í atkvæðagreiðslu og
kvótamál.
„Ég hef haft það sem grund-
vallar reglu að lýsa ekki þeirri
afstöðu, þegar frumvörp eru til
meðferðar á Alþingi, hvað for-
seti kynni að gera við þessar að-
stæður. En hitt er alveg ljóst – og
það er alveg í samræmi við mál-
flutning forystumanna núverandi
ríkisstjórnar og reyndar stjórnar-
andstöðuflokkanna líka – að kvóta-
málið er, orðrétt samkvæmt þeirra
eigin ummælum, stærsta mál
þjóðarinnar.“
Erfitt væri að hugsa sér mál sem
væri eðlilegra að setja í þjóðar-
atkvæðagreiðslu ef tiltekinn
hluti þjóðarinnar krefðist þess og
hann sæi ekki hvernig formenn
stjórnar flokkanna gætu mögulega
sett sig upp á móti slíkri ákvörðun
forseta.
Óhefðbundin yfirlýsing
Fréttablaðið náði ekki tali af Stein-
grími J. Sigfússyni sjávarútvegs-
ráðherra í gær en í samtali við
Ríkisútvarpið sagðist hann ekki
fráhverfur því að kvótamálin
yrðu borin undir þjóðina. „Ég
kvíði því ekki. Ég held að það sé
mikill áhugi hjá þjóðinni á að gera
breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu,“ sagði Steingrímur. „En
það er náttúrulega óhefð bundið
ef forsetinn er farinn að boða
fyrir fram að hann kunni að vísa
þessum eða hinum málum sem eru
í vinnslu í þjóðaratkvæði.“
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segist jafn-
framt vel geta séð fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu um kvótamálin.
„Ég skildi þessi orð sem harða
gagnrýni á þau frumvörp sem
eru fram komin. Ég get vel skilið
að hann sjái alvarleika málsins
þegar fyrir liggur að stór hluti út-
gerðarinnar gæti lent í greiðslu-
þroti ef málið nær fram að ganga,“
segir Bjarni.
Eitt allsherjar bíó
Ólafur fór um víðan völl í við-
talinu, og gagnrýndi meðal annars
Þóru Arnórsdóttur, þann mótfram-
bjóðanda hans sem til þessa hefur
mælst með mest fylgi.
Hann sagði að kosningabaráttu
hennar væri stýrt af sama manni
og gert hefði kvikmynd um kosn-
ingabaráttuna fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar, og vísaði þar
til Gauks Úlfarssonar leikstjóra.
„Þetta finnst mér endurspegla
ákveðna blindu í fjölmiðlum, að
kannski sé þetta bara allt saman
orðið svona eitt allsherjar bíó, for-
setakosningarnar og umræðan í
þjóðfélaginu og ákvarðanirnar.“
Þá gagnrýndi hann afstöðu Þóru
til utanríkismála, og nefndi sem
dæmi að Þóra hefði sagst munu
halda afstöðu sinni í Evrópu-
sambandsmálum leyndri fyrir
þjóðinni.
Jafnframt sagði hann alvarlegt
að forsetaframbjóðandi lýsti því
yfir að hann teldi það hlutverk
forseta að fylgja utanríkisstefnu
ríkisstjórnarinnar. „Manneskja,
sama hvort hún er ung eða gömul,
sem segir það skyldu forsetans að
styðja utanríkisstefnu ríkisins,
hún sýnir afstöðu sem er fagnaðar-
efni fyrir forsætisráðherra. Ég tel
að þetta sé ekki sú tegund forseta
sem þjóðin þarf á að halda núna.“
Jóhanna í herferð
Forsetinn ræddi einnig um sam-
band sitt við Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra og sagði
hana og aðstoðarmann hennar –
og raunar Steingrím J. Sigfússon
einnig – hafa verið í herferð gegn
sér eftir að hann ákvað að vísa
Icesave-lögunum til þjóðarinnar
í tvígang.
„Eftir að ég tók ákvörðun um
Icesave er ljóst að Jóhanna hefur
aldrei fyrirgefið og hefur verið í
ýmiss konar leiðöngrum gegn mér.
Hún telur þetta vera dauðasök,“
sagði hann. Jóhanna hefði meðal
annars talað gegn honum á flokks-
stjórnarfundi Samfylkingarinnar
og slík framganga væri líklega
einsdæmi. „Og
mér þykir þetta
leitt, þetta stríð
sem Jóhanna
telur sig þurfa
að vera í gegn
mér.“
Þá ful lyrti
hann að Jó hanna
hefði róið öllum
árum að því að
finna mótfram-
bjóðanda til höfuðs honum.
Vísar öllu á bug
Jóhanna Sigurðardóttir vildi ekki
tjá sig um ásakanir forsetans í
gær en sendi hins vegar frá sér
yfirlýsingu þar sem þeim er vísað
á bug. „Forsætisráðherra mun
ekki blanda sér í kosninga baráttu
vegna væntanlegs kjörs til
embættis forseta Íslands og mun
því ekki bregðast við ummælum
sem fram komu í útvarpsviðtali
við forsetann í dag,“ segir í yfir-
lýsingunni.
„Mikilvægt er að sú barátta
fari vel og málefnalega fram og
umdeildum málum á vettvangi
stjórnmálanna sé haldið að-
greindum frá forsetakosningum.
Hverjum og einum fram bjóðanda
er auðvitað í sjálfsvald sett
hvernig hann eða hún kýs að tjá
sig um slík mál eftir atvikum.
Í samskiptum sínum við nú-
verandi forseta hefur ríkisstjórn-
in í einu og öllu fylgt stjórnarskrá
og mótuðum stjórnskipunar-
hefðum. Er því óhjákvæmilegt að
vísa á bug öllum ásökunum um að
annað hafi átt við í samskiptum
ríkisstjórnarinnar eða forystu-
manna hennar og núverandi for-
seta.“
Kvótinn tilvalinn í þjóðaratkvæðagreiðslu
ÓSÁTTUR VIÐ ÞÓRU Ólafur segir alvarlegt að fram komi forsetaframbjóðandi sem lýsi því yfir að forseti eigi að styðja utanríkis-
stefnu sitjandi ríkisstjórnar, líkt og Þóra Arnórsdóttir hefur gert. „Ég tel að þetta sé ekki sú tegund forseta sem þjóðin þarf á að
halda.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Forsetinn fór hörðum orðum um framgöngu fjölmiðla í viðtalinu, og beindi
spjótum sínum sérstaklega að DV og Ríkisútvarpinu. Hann gagnrýndi
fréttastofu RÚV harðlega fyrir það að leyfa Svavari Halldórssyni, eiginmanni
forsetaframbjóðandans Þóru Arnórsdóttur, að vinna
fréttir um forsetakosningarnar eftir að byrjað hefði verið
að leggja grunninn að framboði Þóru.
Ólafur Ragnar nefndi sérstaklega frétt Svavars um
komandi kosningar sem birtist 20. mars síðastliðinn.
Hann sagði að fréttin hefði verið „sérhönnuð og klippt
frétt til að sá efasemdum í minn garð, skapa tortryggni
út í mitt framboð. Þetta fékk hann að gera á sama tíma
og þau höfðu samþykkt að fylgi hennar yrði mælt.“
Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, vísar gagn-
rýni forsetans á bug. „Ólafur Ragnar Grímsson verður
að fá að ráða því hvernig hann hagar baráttu sinni fyrir
endurkjöri. Við höfum reynt að vanda okkur og vinna heiðarlega og ég hef
ekki heyrt neinar rökstuddar ábendingar um annað.“
Forsetinn nefndi sérstaklega að umrædda frétt væri ekki að finna á
sérstökum kosningavef Ríkisútvarpsins og gerði því skóna starfsfólk RÚV
skammaðist sín fyrir hana og vildi þess vegna fela hana. Óðinn segir þetta
ágæta ábendingu hjá Ólafi. Fréttin hafi aldrei verið á vefnum og því ekki
farið á kosningavefinn en því hafi verið kippt í liðinn í gær. „Við höfum
ekkert að fela í þessu – öðru nær. Þetta var mjög hlutlaus og yfirveguð frá-
sögn. Ásakanir um að yfirmenn fréttastofunnar taki þátt í samsæri einhverra
eru ekki svaraverðar.“
Ásakanir um samsæri ekki svaraverðar
ÓÐINN JÓNSSON
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
BJARNI
BENEDIKTSSON
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Jóhanna hefur
aldrei fyrirgefið og
hefur verið í ýmiss konar leið-
öngrum gegn mér.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
FORSETI ÍSLANDS