Fréttablaðið - 14.05.2012, Page 10
14. maí 2012 MÁNUDAGUR10
Enn setjast þjóðir heims-
ins að samningaborði um
aðgerðir í umhverfis málum
í Brasilíu. Ekki er mikil
bjartsýni gagnvart útkom-
unni, en ráðstefnan hefst í
júní.
Ríó+20 ráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna verður sett í Brasilíu 20. júní.
Þar verður enn einn ganginn reynt
að ná samkomulagi um viðbrögð
alþjóðasamfélagsins við þeirri stað-
reynd að loftslag fer hlýnandi af
mannavöldum. Nafn ráð stefnunnar
vísar í það að 20 ár eru liðin síðan
Ríó-ráðstefnan var haldin. Þar var
kallað eftir alþjóðlegum samningi
um samdrátt í útblæstri gróður-
húsalofttegunda og hann leit
dagsins ljós með Kyoto-bókuninni.
Hún er nú runnin úr gildi.
Enn ein ráðstefnan
Og hvernig er svo staðan? Tja, í
stuttu máli sagt: útblástur gróður-
húsalofttegunda hefur aukist um
38 prósent frá ráðstefnunni í Ríó
1992. Ýmsu er þar um að kenna.
Sum ríki, eins
og Bandaríkin,
hafa einfaldlega
ekki verið til-
búin í samdrátt,
því það þýðir,
að þeirra mati,
lok u n verk-
smiðja og töpuð
störf.
Þá hafa þró-
unarríki bent á
þá staðreynd að hlýnun l oftslags
sé ekki þeim að kenna. Iðn ríkin
hafi mengað andrúmsloftið óhikað
í yfir 200 ár og náð þannig efna-
hagslegu forskoti. Nú eigi að
meina þróunarríkjunum að efla
efnahag sinn.
Lagaleg binding
Heiko Warnken, sem starfar hjá
því ráðuneyti Þýskalands sem sér
um efnahagslega samvinnu og
þróun, segir viðhorf almennings
litað af því hve ferlið er þungt
í vöfum. Fyrir fólki sé Ríó+20
aðeins enn ein umhverfisráð-
stefnan sem ekkert kemur út úr.
Warnken segir að Ríó-ráð-
stefnan árið 1992 hafi verið gríðar-
lega mikilvæg og þrátt fyrir allt
líti út fyrir að markmið hennar
náist. Gallinn við hana hafi verið
að engar lagalegar skuld bindingar
hafi fylgt hinum háleitu mark-
miðum. Síðan þá hefur umræðan
fyrst og fremst snúist um að koma
slíkum bindingum á.
Nú er uppi hugmynd um að koma
á sjálfbærnimarkmiðum (e. Sustai-
nable Development Goals), ekki
ósvipað Þúsaldarmark miðunum
(e. Millennium Development
Goals). Evrópusambandið styður
þá leið og Warnken vonast eftir
að sú verði niðurstaðan, en það
mundi binda hendur ríkja heims
frekar til að sinna málaflokknum.
Öflugir andstæðingar séu þó gegn
því, ekki síst Bandaríkin.
„Það er ekki hægt að fókusa
aðeins á gróða og ætla svo að
bjarga umhverfismálunum síðar.
Við þekkjum þá leið og fyrir utan
þau slæmu áhrif á umhverfið sem
hún hefur í för með sér er hún
gríðarlega kostnaðarsöm.“
Síðasti séns
Ljóst er að væntingar til ráð-
stefnunnar eru ekki miklar. Til
að mynda hefur Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, tilkynnt að
hún hyggist ekki mæta, og líklegt
þykir að Francoise Hollande, for-
seti Frakklands, fylgi í fótspor
hennar. Þá þykja engar líkur á
því að Obama Bandaríkjafor-
seti samþykki nokkrar binding-
ar fyrir Bandaríkin svo skömmu
fyrir kosningar þar í landi og því
er viðvera hans ólíkleg.
Ekki virðist mikið tilefni til
bjartsýni um að náist að semja
um stóra áfanga í Ríó. Í dag hefst
í Bonn fundur aðildarríkjanna
þar sem reyna á til þrautar að
ná samkomulagi. Fulltrúanna
bíður erfitt verkefni; af þeim
rúmlega 200 atriðum sem semja
skal um hefur 21 verið sam-
þykkt. Fyrstu drög loka skjalsins
voru skýr og klár á 17 blað síðum.
Einstakar kröfur ólíkra ríkja
fóru þá að hrúgast inn og skjalið
bólgnaði út í 250 blað síður en er
nú komið niður í 170 blaðsíður.
Viðræðurnar í Bonn skipta því
miklu fyrir útkomuna.
Engu að síður er litið á ráð-
stefnuna sem enn einn áfangann
á langri leið. Aðildarríkin hittast
í desember í Doha á Indlandi og
meiri bjartsýni ríkir gagnvart
þeirri ráðstefnu. Ulrich Keller,
talsmaður Þýska demókrata-
flokksins í umhverfismálum,
telur mun líklegra að samkomulag
náist þar en í Ríó, sem hann hefur
raunar ekki mikla trú á.
„Það er nauðsynlegt að um 90
prósent útkomu ráðstefnunnar
verði ákveðin fyrirfram. Það eru
engar líkur á að svo verði nú,“
segir Keller. Hann bendir einnig á
að nokkuð vanti upp á að ríki upp-
fylli fyrri loforð sín í loftslags-
málum. Keller er þó bjartsýnn á
að Ríó geti undirbúið jarðveginn
fyrir ráðstefnu sem verður í Doha
í desember.
FRÉTTASKÝRING: Umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna – Ríó+20
Lenovo Ultraslim Plus
Þráðlaust lyklaborð og mús
Nú 8.720 kr.
Áður 10.900 kr.
2,4 GHz þráðlaus tækni
Íslenskir stafir
Nettur nanó-sendir
Þriggja hnappa mús með
skrunhjóli
20 ár
Betri
lausnir í
1992-2012
Nýherji býður 20% afslátt af völdum vörum í tilefni af 20 ára afmæli sínu.
Vikuna 14. – 20. maí bjóðum við afslátt af völdum Lenovo búnaði.
Komdu við í verslun Nýherja Borgartúni, Akureyri eða á netverslun.is.
Tilboðið gildir 14. maí – 20. maí.
Lenovo Edge 91z
Sambyggð tölva og skjár
Nú 159.920 kr.
Áður 199.900 kr.
Intel Core i5 2400S 2,5 GHz
21,5" skjár og 500 GB diskur
Þráðlaust lyklaborð og mús
Þriggja ára ábyrgð
Intel Core i5 2450M 2,5–3,1 GHz
14“ skjár og 500 GB diskur
Aðeins 2,2 kg
Þriggja ára ábyrgð
Afmælistilboð:
20% afsláttur af
Lenovo búnaði
Lenovo
ThinkPad T420i
Nú 159.120 kr.
Áður 198.900 kr.
LIÐSAUKI Á
LÆKKUÐU VERÐI
Reynt til þrautar að semja fyrir Ríó
FORSETAFRAMBJÓÐANDI Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur aukist um 38%
síðan Bill Clinton, þá forsetaframbjóðandi, ávarpaði ráðstefnuna árið 1992.
NORDICPHOTOS/AFP
HEIKO WARNKEN
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Þrátt fyrir að ekki hafi allt það uppfyllst sem stefnt var að í Ríó árið 1992
hefur þó ýmislegt gerst. Það er orðin viðurkennd staðreynd að gjörðir
mannsins hafi haft áhrif á hlýnun loftslags, þrátt fyrir að örfáar efasemdar-
raddir heyrist enn. Þá náðist árangur með Kyoto-bókuninni, en hún er nú
útrunnin.
Helsti árangur hennar er kerfið sem hún byggir á. Það er til staðar vilji
menn nota það; infrastrúktúrinn, skuldbindingarnar, gagnsæið, aðkoma
allra. „Það þarf einfaldlega raunverulega pólitískan vilja og til þess að hann
náist þarf þrýsting almennings. Það er gríðarlega mikilvægt,“ segir Warnken.
Nokkur árangur hefur náðst