Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 12
14. maí 2012 MÁNUDAGUR12
NOREGUR Tollverðir í Svinesund í
Noregi töldu sig nýverið hafa rök-
studdan grun um að tveir ferða-
langar frá Póllandi hefðu eitthvað
að fela. Mennirnir, sem komu
akandi frá Svíþjóð, sögðust á leið
til Óslóar í atvinnuleit.
Ekkert fannst í fórum þeirra og
leit í bifreiðinni bar ekki árangur.
Þá voru þeir sendir á sjúkrahús
þar sem röntgenmyndataka leiddi
í ljós að þeir höfðu samtals gleypt
kíló af kókaíni. Mennirnir sitja nú
í gæsluvarðhaldi og bíða dóms.
- þj
Ýmislegt er á sig leggjandi:
Kyngdu saman
kílói af kókaíni
SAMGÖNGUR Þrjú ný hjólastæði
hafa verið tekin í notkun við Land-
spítalann. Stæðin eru við Hring-
braut, Landakot og í Fossvogi.
Hjólastæðin eru sögð fyrsti
áfanginn í stærra verkefni spít-
alans sem miðar að því að bæta
aðstöðu hjólreiðafólks.
Við Hringbraut er nú rými
fyrir 40 hjól í yfirbyggðu hjóla-
stæði.
Við sjúkrahúsið Fossvogi er
rými fyrir 26 hjól og unnið er
að yfirbyggingu. Við Landakots-
spítala er núna pláss fyrir fjórtán
reiðhjól í yfirbyggðu stæði.
Á öllum stöðunum þremur
stendur svo til að bæta við fleiri
hjólreiðastæðum. - þeb
Áfangi í stærra verkefni:
Ný hjólastæði
tekin í notkun
STÆÐI Í NOTKUN Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, tók fyrir helgi nýtt
hjólastæði við Hringbraut í notkun.
AFGANISTAN,AP Byssumaður skaut
háttsettan fulltrúa afganska friðar-
ráðsins til bana í höfuborginni
Kabúl í gær. Morðið er enn eitt
áfallið í áratugslangri baráttu við
að binda endi á stríðið í landinu.
Maðurinn sem var myrtur hét
Arsala Rahmani og er fyrrverandi
talibani sem gerðist samninga-
maður um frið í Afganistan. Hann
var staddur í bíl þegar árásar-
maður á öðrum bíl myrti hann við
gatnamót í vesturhluta Kabúl.
Í september í fyrra gengu
friðar viðræður til baka þegar
fyrr verandi forseti Afganistan,
Burhanuddin Rabbani, sem var
yfirmaður friðarráðsins, var
drepinn í sjálfsmorðsárás.
Sendiráð Bandaríkjanna í
Kabúl sagði á Twitter-síðu sinni
að morðið á Rahmani væri harm-
leikur. Hann var einn af fjörutíu
áhrifa miklum Afgönum og fyrr-
verandi tali bönum sem Hamid
Karzai, forseti Afganistan, réði til
að semja við talibana. Rahmani var
menntamálaráðherra í ríkisstjórn
talibana, sem stjórnaði Afganistan
í fimm ár og hélt hlífiskildi yfir
hryðjuverkasam tökunum al-
Kaída allt þar til Bandaríkjamenn
og bandamenn þeirra réðust inn í
landið árið 2001. -fb
Enn eitt áfallið í áratugslangri baráttu við að ljúka stríðinu í Afganistan:
Meðlimur friðarráðsins myrtur
Á VERÐI Afganskur hermaður á verði
við gatnamótin þar sem Rahmani var
drepinn. MYND/AP
EGYPTALAND, AP Tveir forseta-
frambjóðendur mættust í sjón-
varpskappræðum í Egyptalandi
fyrir helgina. Þetta er í fyrsta
skiptið í sögunni sem Egyptar
upplifa þessa tegund kosninga-
baráttu og þá opinskáu gagnrýni
sem henni getur fylgt.
Þeir Amr Moussa, fyrr verandi
leiðtogi Arababandalagsins, og
Abdelmoneim Abul Fotouh, sem
er hófsamur múslimi, skutu
föstum skotum hvor á annan.
Ágreiningur þeirra í kappræð-
unum snerist einkum um hlut-
verk trúarbragða í samfélaginu
og hvernig eigi að koma á lýð-
ræðisumbótum í Egyptalandi. - gb
Kappræður í sjónvarpi:
Egyptar spá í
forsetakjörið
NÝJUNG Í EGYPTALANDI Amr Moussa og
Abdelmoneim Abul Fotouh í sjónvarps-
kappræðum. NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR Tillaga Hægri flokksins
í Noregi um heimild lögreglu til
fíkniefnaleitar með hundum í skól-
um var fyrir helgi felld á norska
þinginu. Skriflegt samþykki nem-
enda verður að liggja fyrir slíkri
leit. Séu nemendur yngri en 16 ára
verður að fá samþykki foreldra.
Lögreglan hefur birst skyndi-
lega með hunda í skólum víða um
Noreg. Í fyrra voru 29 nemendur
handteknir við slíka fíkniefna-
leit í Ósló en óvissa hefur ríkt um
heimild lögreglu til hennar.
Nemendafélög mótmæltu til-
lögunni harðlega og sögðu að-
gerðir lögreglu niðurlægjandi. - ibs
Norskir þingmenn:
Fíkniefnaleit í
skólum óheimil
RANNSÓKNIR Ný rannsókn leiðir
í ljós afar ólík viðhorf fólks til
refsinga við afbrotum, sér í lagi
þegar kemur að kynferðisbrotum.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor
við Félags- og mannvísindadeild
Háskóla Íslands, kynnti niður-
stöður rannsóknar sinnar á 50
ára afmælisráðstefnu Norræna
sakfræðiráðsins sem fram fór á
Hótel Selfossi í byrjun vikunnar.
„Í ljós kemur djúp gjá í afstöðu
fólks til kynferðisbrota gegn
börnum,“ segir Helgi um niður-
stöðurnar. „Mjög stór hópur er
miklu harðari en dómararnir.“
Í rannsókninni var fólk í rýni-
hópum beðið að lýsa afstöðu sinni
til tveggja raunverulegra afbrota-
mála. Annars vegar er um að ræða
konu sem starfaði í banka og
notaði aðstöðu sína til að draga sér
fé, bæði með því að stofna gervi-
reikninga og til að stela peningum
af reikningum fólks. Af raksturinn
af gervireikningunum notaði
hún til hlutabréfakaupa og nam
endan legt tap bankans 60 millj-
ónum króna. Hitt voru smærri
upp hæðir. Fyrir dómi fékk hún
þriggja ára óskilorðsbundið fang-
elsi. Í rýnihópunum vildi um fjórð-
ungur sjá þyngri refsingu.
Helmingur aðspurðra vildi hins
vegar sjá fimm ára óskilorðs-
bundið fangelsi, eða jafnvel mun
þyngri refsingu, í máli fertugs
manns sem misnotað hafði stjúp-
dóttur sína.
Misnotkunin hófst þegar
stúlkan var tíu ára og lauk þegar
hún var 15 ára. Maðurinn hafði
við stúlkuna samfarir frá því hún
var 14 ára. Málið komst upp þegar
stúlkan greindi vinkonu sinni frá.
Maðurinn brotnaði saman þegar
málið komst upp og viðurkenndi
allt og var fullur iðrunar. Hann
var í góðu starfi og kominn í nýtt
hamingjuríkt samband þegar að
dómi kom. Hann var þá dæmdur
í 18 mánaða óskilorðsbundið
fangelsi.
„En síðan var þarna í rýni-
hópunum þriðjungur sem bara
vildi ekki fangelsisrefsingar og
kaus fremur aðrar leiðir,“ segir
Helgi og kveður það fólk fremur
hafa horft til betrunarúrræða og
mýkri leiða. „En afstaðan sem í
ljós kom í báðum hópum er mjög
afgerandi, annars vegar er það
rosaleg harka og svo hinir sem
telja að nálgast þurfi hlutina á
annan hátt.“
Rannsókn Helga er hluti af
stærri norrænni rannsókn, en
niðurstöður hennar leiða í ljós
heldur meiri refsigleði en í þeirri
norrænu. Í hvoru máli fyrir sig
voru þrír rýnihópar, á aldrinum
18 til 29 ára, 30 til 49 ára og 50 til
74 ára, alls um 30 manns í hvoru
máli. olikr@frettabladid.is
Helmingurinn vildi
sjá þyngri refsingar
Um helmingur aðspurðra í nýrri rannsókn hefði viljað sjá mun þyngri dóm yfir
manni sem misnotaði stjúpdóttur sína. Um þriðjungur valdi vægari refsingu.
Afbrotafræðiprófessor segir viðhorf fólks til refsinga skiptast í tvö horn.
Á HÓTEL SELFOSSI Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Háskóla Íslands, kynnti niður-
stöður nýrrar rannsóknar á viðhorfum Íslendinga til refsinga, á ráðstefnu Norræna
sakfræðiráðsins í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Afstaðan sem í ljós
kom í báðum hópum
er mjög afgerandi, annars
vegar er það rosaleg harka og
svo hinir sem telja að nálgast
þurfi hlutina á annan hátt.
HELGI GUNNLAUGSSON
PRÓFESSOR VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
Erill vegna ölvunar
Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu vegna útkalla tengdra ölvun
og hávaða á aðfaranótt laugardags.
Einn var tekinn vegna líkamsárásar við
Dalshraun í Hafnarfirði og flytja þurfti
mann á sjúkrahús með blæðandi sár
á hnakka. Sá féll aftur fyrir sig af barstól.
Ók á móti umferð
Drukkinn 17 ára drengur ók bíl á móti
umferð á Snorrabraut í Reykjavík laust
eftir klukkan þrjú á aðfaranótt laugar-
dags. Lögregla flutti hann í hendur
foreldra sinna að lokinni skýrslu- og
sýnatöku. Þrír aðrir voru gripnir um
nóttina grunaðir um ölvunar- og/eða
vímuefnaakstur.
LÖGREGLUMÁL
HVÍTIR TÍGRAR Hvítur tígrishvolpur
í kjafti móður sinnar í dýragarði í
Úkraínu. Hvít tígrisdýr eru sjaldgæf.
NORDICPHOTOS/AFP