Fréttablaðið - 14.05.2012, Qupperneq 44
14. maí 2012 MÁNUDAGUR20
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Sesselja Thorberg og Magnús Sævar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum.
Þau fara á stefnumót á hverju sunnu-
dagskvöldi til að næra ástina. Þau halda
upp á ástarafmælin, taka frá tíma hvort
fyrir annað og passa sig á að láta ekki
annir, vini, áhugamál eða börn skerða
frátekinn hjónatíma. Þau vanda sig í hjú-
skapnum og vita að það þarf að skipu-
leggja ástar lífið vel til að það blómstri.
Ári eftir hjónavígslu komu þau í viðtal og
fengu uppherslu hjá prestinum. Það þarf
að yfirfara hjúskapinn reglulega ekkert
síður en bílinn!
FIMM árum eftir giftingu endurnýjuðu
þau svo hjúskaparheitin. Þau áttuðu
sig á að þó hjónavígsluathöfn sé
einstök er ekkert sem hindrar
að fólk komi í kirkjuna aftur og
jafnvel reglulega til að staðfesta
hjúskaparheitin og treysta kær-
leiksböndin. Eitt föstudags-
hádegið, á fimm ára giftingar-
afmælinu, gengu þau hátíðlega
inn kirkjuganginn og fyrir
altari. Á þeim helga stað sögðu
þau já-in sín aftur og fannst
það frábært. Þau eru búin að
panta athöfn í september 2015.
SAGA þessara hjóna er til eftir-
breytni. Þeim þykir gaman að
vera saman og töff að vera rómó. Þau
kunna að rækta hjónaband sitt. Þeim
þykir líka vænt um kirkjuna sína og vita,
að hún stendur með þeim í lífinu. Sesselja
lagði til að Neskirkja efndi til stefnu-
mótakvölda. Svo var myndaður hópur til
undirbúnings og kvöldið auglýst. Á björtu
maíkvöldi fylltist safnaðarheimilið af
fólki, sem vill næra það sem máli skiptir,
elskuna og ástina. Og það var ekki skil-
yrði að fólk væri í sambandi. Þrenn hjón
miðluðu af reynslu sinni, sögðu sögur af
sambandinu, hvað gengi og hvað ekki.
Kertaljósin spegluðust í augum fólksins,
hlátrarnir ómuðu og hendur laumuðust
saman. Svo komu mörg þeirra aftur í
kvöldguðsþjónustu nokkrum dögum
seinna til að heyra ástarsögur Biblíunnar
og njóta söngs og kyrrðar í kirkjunni.
PRESTARNIR vígja fúslega eftir vel
heppnuð stefnumót. Og svo opnar kirkjan
faðm og hús gagnvart lífinu. „Þetta
var frábært,“ sagði ein konan. Glaður
karl sagði: „Þið verðið nú að gera þetta
aftur, þetta gerir okkur svo gott“. Já,
það er sjálfsagt að efna til stefnumóta
í kirkjunni. Prestarnir taka hjón í upp-
herslu. Svo er hægt að ganga upp að
altarinu að nýju til að endurnýja hjúskap
á ástarafmælinu. Það er eftirspurn eftir
rómantík. Kirkjan leggur lífinu lið. Má
bjóða þér á rómantískt stefnumót?
Má bjóða þér á stefnumót?
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. plat, 6. kringum, 8. skordýr, 9. lík,
11. samanburðartenging, 12. bit,
14. grastoppur, 16. í röð, 17. nálægt,
18. fugl, 20. bókstafur, 21. frumeind.
LÓÐRÉTT
1. erfið, 3. frá, 4. fugl, 5. bæn, 7.
afsökun, 10. skammstöfun, 13. kelda,
15. felldi tár, 16. spíra, 19. svörð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gabb, 6. um, 8. fló, 9. nár,
11. en, 12. glefs, 14. skegg, 16. áb,
17. nær, 18. lóm, 20. sé, 21. atóm.
LÓÐRÉTT: 1. þung, 3. af, 4. blesgæs,
5. bón, 7. málsbót, 10. rek, 13. fen,
15. grét, 16. ála, 19. mó.
Hverjum
höldum
við með?
Þú veist að
Ísland er
ekki með?
Ójá, það er
móttekið
kona! En við
erum með
nokkuð góða
kandídata!
Spánn! Bras-
ilía! Svo ekki
sé minnst á
Bretland!
Af hverju
Bret-
land? Við
erum jafn
ensk og
kjúklinga-
núðlur!
Svona,
svona!
Við getum
haldið með
hverjum
sem er! Bara
ekki Ítalíu!
Ekki?
Þeir eru skít-
ugir hundar sem
kunna ekki fót-
bolta heldur liggja
hæfileikar þeirra á
sviði leiklistar og
hnífastungna!
Trúðu mér! Ef
Ítalía svindlar sér
alla leið að gull-
inu hætti ég að
horfa á fótbolta!
HÆTTI!!
Og þarna
fann ég liðið
sem ég held
með! Sjáðu
leggina?
Þeir eru
rakaðir!!
Forza!
Forza!
Ég er einn af
þessum gaurum
sem lendir í hlut-
unum.
Nei elskan,
ég óttast ekki
skuldbindingu!
Og viltu sleppa
höndinni minni?!
Klikk! VÆÆÆÆÆÆÆÆÆL
Hannes, þú
færð ekki þessa
klippingu!
Þessi mynd er að
minnsta kosti 40
ára gömul!
Ég meina, hver er með svona klippingu í dag??
Meinarðu fyrir
utan manninn
fyrir aftan þig
sem heldur á
banvænum
skærum?
Suðurlandsbraut 22 • Sími 530 6500 • heimili.is
Andri Sigurðsson
sölufulltrúi og lögg.
leigumiðlari
Vesturhús - laus til afhendingar.
Mjög falleg og vel skipulögð efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr með
stórglæsilegu útsýni við Vesturhús í Grafarvogi. Þrjú svefnherbergi.
Allar nánari upplýsingar veitir Andri í s 690 3111.
Verð: 49,5 m.
Tilboð óskast í jörðina Bjálmholt í
Rangárþingi.
15238 - Bjálmholt í Rangárþingi ytra.
Um er að ræða jörðina Bjálmholt í Rangárþingi, (án greiðslu-
marks). Á jörðinni er 115,1m² íbúðarhús sem er kjallari, hæð
og ris byggt úr steinsteypu og timbri árið 1930. Ræktað land er
37,3ha en heildarstærð jarðarinnar er u.þ.b. 180-200ha. Úti-
hús eru: Fjárhús byggt 1964 stærð 95,4m², hlaða byggð 1964
stærð 50,4m², fjárhús byggt 1975 stærð 196,5m² , hlaða byggð
1964 stærð 170,0m², fjárhús byggt 1973 stærð 176,4m².
Fasteignamat eignarinnar er kr.16.427.000,- og Brunabótamat
kr.46.415.000,- samkv. Fasteignaskrá Íslands. Mannvirkin
þarfnast töluverðra endurbóta.
Jörðin er í um klukkustundar akstursfjarlægðar frá höfuðborgar-
svæðinu. Einnig er stutt í þjónustu á Hellu og þá er jörðin í næsta
nágrenni við Laugalandsskóla. Jörðin býður upp á ýmsa mögu-
leika.
Jörðin og húsakosturinn eru til sýnis í samráði við Pál Georg
Sigurðsson í síma 865 6418 og Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105
Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama
stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast á þar til gerðum tilboðseyðublöðum
fyrir kl.10.00 þann 29. maí 2012 þar sem þau verða opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.