Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 14. maí 2012 23
Leikkonan Eva Mendes var gestur
í spjallþætti Ellen Degeneres fyrr
í vikunni og talaði þar í fyrsta
sinn um samband sitt og Ryans
Gosling.
„Ég verð mjög meðvituð og
óörugg þegar ég byrja að tala
um þetta því ég vil vernda einka-
líf mitt. Þetta er það dýrmætasta
sem ég á og ég fer í vörn í hvert
sinn sem ég er spurð út í þetta,“
sagði leikkonan.
Mendes og Gosling kynntust
við tökur á kvikmyndinni The
Place Beyond the Pines þar sem
þau leika einmitt kærustupar. Þau
voru fyrst mynduð saman í fríi í
París í nóvember á síðasta ári.
Dýrmætt samband
DÝRMÆTT SAM-
BAND Eva Mendes
ræddi samband
sitt og Ryans
Gosling í fyrsta
sinn með Ellen
Degeners.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TYÍrski leikarinn Michael Fassbender
hefur búið í London undanfarin ár
og vill síður flytjast búferlum til Los
Angeles þrátt fyrir velgengni sína.
Fassbender er fæddur í Þýska-
landi og uppalinn á Írlandi en hefur
búið sér heimili í London síðustu
ár og vill ekki flytja þaðan burt.
„Sumir segja að ég hafi ekki fengið
rétta mynd af LA, en ég er hrifnari
af lífinu í London. LA gerir fólk
mjúkt, það gerir ekkert annað en
að dreifa nafnspjöldum sínum. Í
London er húmor sem ég samsama
mig við, ég kann vel við almennings-
garðana og hugarfar fólksins og ég
hef gaman af því að ganga,“ sagði
leikarinn í viðtali við breska Elle.
Kýs London frekar en LA
HRIFINN AF LONDON Michael Fass-
bender vill heldur búa í London en
Los Angeles. NORDICPHOTOS/GETTY
Litabók er nefnist Colour Me
Good, Kate Moss Coloring Book
er nú fáanleg fyrir áhugasama
tískuunnendur. Litabókin er ein-
ungis fjórtán blaðsíður en líkt og
nafnið gefur til kynna inni heldur
hún aðeins myndir af bresku
fyrir sætunni Kate Moss.
Books with Style heitir útgáfan
er stendur að baki litabókinni,
sem þykir ekki við hæfi ungra
barna. Tískuunnendur geta nú
horfið aftur til barnæsku sinnar
og varið kvöldum sínum í að
vanda sig við að lita ekki út fyrir
útlínur Kate Moss.
Litaðu Moss
LITAÐU MOSS Litabók með myndum af
Kate Moss er nú fáanleg.
NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Jennifer Lopez og
kærasti hennar, dansarinn
Casper Smart, deila nú heimili
Lopez við Hidden Hill í Los
Angeles. Parið hefur verið saman
í sex mánuði og virðist afskap-
lega hamingjusamt.
„Hann kemur fram við hana
eins og drottningu. Allt snýst
um Jennifer,“ sagði innanbúðar-
maður í samtali við tímaritið
People. Lopez er engu minna
hrifin af Smart, ef marka má
fréttir slúðurmiðla, og hefur
parið þegar rætt barneignir.
Lopez á fyrir tvíburana Max og
Emme með fyrrum eiginmanni
sínum, Marc Anthony.
Flutt inn
með Smart
HAMINGJUSÖM Jennifer Lopez og
kærasti hennar, Casper Smart, hafa rætt
barneignir. NORDICPHOTOS/GETTY
Þegar þú semur við Íslandsbanka um að greiða niður yfirdráttinn lækkum við vextina.
Þannig lækkar vaxtakostnaður svo um munar.
Þetta er einhver besti sparnaður sem völ er á.
Dæmi:
Ef þú greiðir 360.000 kr. yfirdrátt niður um 15 þúsund kr. á mánuði í 24 mánuði þá
sparar þú 51.023 kr. í vaxtakostnað.*
Þú færð nánari upplýsingar á islandsbanki.is og hjá ráðgjafa í þínu útibúi.
*Miðað við að yfirdráttarvextir lækki úr 11,8% (Gullvild) í 9,05% (þrepalækkun) skv. vaxtatöflu 1. maí.
Lægri vaxtaprósenta skilar 10.312 kr. lækkun og lækkandi yfirdráttur 40.711 kr. – samtals 51.023 kr.
Lægri vaxtakostnaður
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Við bjóðum
betri stöðu
Greiddu niður yfirdráttinn
á aðeins 9,05% vöxtum