Fréttablaðið - 14.05.2012, Síða 50
14. maí 2012 MÁNUDAGUR26
Visit us during our Open Day
at the ndic Institute Icela
ent Machinesfor Intellig
& for AnalysisCenter
of Intelligent and Design
entsAg
Program
Wednesday, May 16th
15:30 – 17:15
Research at IIIM and CADIA
Dr. Kristinn R. Thórisson
welcomes Open Day visitors
Dr. Deon Garrett
Simultaneous Machine Learning
of Many Diverse Tasks
Dr. Jacky Mallett
Testing Economic Theory
Gunnar Steinn Valgardsson
& Hrafn Thorri Thórisson
The Day My Shadow Left Me
Dr. Yngvi Björnsson
General Game Playing: Learning to Play
Dr. Hannes H. Vilhjálmsson
Ambient Assisted Living
Angelo Cafaro
First Impressions in
Human-Agents Encounters
Elín Carstensdóttir
Emergent Narrative
17:15
Refreshments
Open University / 2nd floor, Mars building
ore information For m
visit: www.iiim.isplease
looking forward to We are
you on Wednesday!seeing
dnesday We
6 at 15:30May 1
k University,Reykjavi
gur 1, 101 RvkMenntave
enue: V
st floor Venus V102 / 1
N1-deild kvenna:
Valur-Fram 24-21
Valur - Mörk (skot): Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
8/1 (16/2), Þorgerður Anna Atladóttir 6 (14),
Karólína Bærhenz Lárudóttir 5 (5), Dagný
Skúladóttir 3 (5), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 1
(1), Ragnhildur Rósa Guðm. 1 (3)
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 10/2
(29/4, 34%), Sunneva Einarsdóttir (2/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 4 ( Karólín 1, Dagný 2, Ragnhild. )
Fiskuð víti: 2 ( Anna, Ragnhildur)
Utan vallar: 8 mínútur.
Fram - Mörk (skot): Elísabet Gunnarsdóttir 6/3
(7/4), Stella Sigurðardóttir 6 (15/2), Sigurbjörg
Jóhannsdóttir 4 (6), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3
(3), Sunna Jónsdóttir 2 (8).
Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir 14 (38/1,
37%),
Hraðaupphlaup: 2 ( Guðrún, Sunna )
Fiskuð víti: 6 ( Stella 3, Sigurbjörg, Steinunn, Ásta)
Utan vallar: 2 mínútur.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Hinn skrautlegi þjálf-
ari Fram, Einar Jónsson, til-
kynnti eftir leikinn um helgina
að hann hefði látið af starfi sem
þjálfari kvennaliðsins. Hann mun
eingöngu stýra karlaliði félagsins
næsta vetur.
Einar hefur stýrt kvennaliðinu
með eftirtektarverðum árangri
undanfarin ár. Hann hefur komið
liðinu í úrslit Íslandsmótsins
fimm ár í röð en ávallt þurft að
sætta sig við silfur. Honum tókst
þó að landa bikarmeistaratitli
með liðinu og hélt því ávallt á
toppnum þau ár sem hann stýrði
liðinu.
Halldór Jóhann Sigfússon, leik-
maður karlaliðs Fram, mun taka
við kvennaliðinu af Einari og
það verður frumraun hans með
meistaraflokkslið. - hbg
Einar hættur með Fram:
Halldór Jóhann
tekur við
HANDBOLTI Vodafone-höllin var þétt
setin og líklega hafa aldrei jafn-
margir mætt á kvennaleik en rúm-
lega 1800 manns voru í höllinni og
frábær stemmning. Jafnræði var
á með liðunum til að byrja með en
þegar leið á leikinn náðu Valsarar
góðum tökum á leiknum og í raun
var aldrei spurning hvar titillinn
myndi enda.
„Mér líður frábærlega,“ sagði
Stefán Arnarson, þjálfari Vals,
rétt eftir að liðið hafði tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn 2012 á
laugardaginn.
„Þetta hefur verið ótrúlegt
einvígi og þvílík auglýsing fyrir
íslenskan kvennahandbolta. Við
fengum fullt hús í dag og and-
rúmsloftið var með ólíkindum.
Við höfum náð öllum okkar mark-
miðum á liðsheild, þetta er liðs-
íþrótt.
Allir leikmenn skiluðu sínu í
þessu einvígi og það færir okkur
þennan titil. Í dag lékum við vel
bæði varnarlega og sóknarlega
og þá er erfitt að vinna okkur.
Við fórum vel yfir leik fjögur og
náðum að finna ákveðnar lausnir
við sóknarleik Fram.
Núna verður þessum titli vel
fagnað og síðan fer maður að
hugsa um framhaldið,“ sagði
Stefán sem hefur ekki tekið neina
ákvörðun um það hvort hann verði
áfram með liðið á næsta tímabili.
„Þetta er auðvitað ógeðslega
svekkjandi,“ sagði Stella Sigurðar-
dóttir, leikmaður Fram, eftir að
félagið hafði tapað einvíginu gegn
Val. Þetta er fimmta árið í röð sem
Fram hafnar í öðru sæti Íslands-
mótsins.
„Fyrri hálfleikurinn var ekki
nægilega góður af okkar hálfu.
Við fáum allt of mikið af mörkum á
okkur eftir hröð upphlaup frá Val,
en við náðum að stöðva það í hinum
leikjunum. Mér fannst þetta í raun
bara okkur sjálfum að kenna í dag,
við mættum bara ekki grimmar
eins og áður. Við gáfum okkur allar
110 % í þennan leik en auðvitað var
smá þreyta farin að segja til sín.
Valsliðið er með meiri breidd
og þær ná að nýta sér það. Núna
langar mig bara að taka mér smá
frí og fá aðeins að anda. Ég er
samningslaus og veit ekki hvar ég
mun enda á næsta tímabili,“ sagði
Stella nokkuð svekkt eftir leikinn.
Stella var líklega besti leik-
maður einvígisins og á fullt erindi
í stærri félög erlendis. - sáp
Endurtekið efni hjá frábæru Valsliði
Valur varð um helgina Íslandsmeistari í handknattleik kvenna þriðja árið í röð eftir frábæran sigur, 24-21,
yfir Fram í oddaleik um titilinn. Valsstúlkur voru miklu sterkari allan tímann og áttu skilið að vinna.
GLEÐI Hrafnhildur Ósk og Guðný Jenný
faðmast en þær voru báðar í lykilhlut-
verkum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÞREYTIST ALDREI Hrafnhildur Skúladóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lyfta hér bikarnum á loft enn eitt árið og finnst það
ekkert sérstaklega leiðinlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL