Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 1

Fréttablaðið - 15.05.2012, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Þriðjudagur skoðun 12 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Búslóðaflutningar 15. maí 2012 113. tölublað 12. árgangur Dómur landsdóms Mikilvægt er að greina forsendurnar fræðilega, skrifar Róbert Spanó. umræðan 13 BÚSLÓÐAFLUTNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2012 Kynningarblað HJÁLPLEGIR VEFIR, PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA, SÖLURÁÐ.. Hollir og næringarríkir réttir eru uppistaðan á matseðli veitinga-staðarins Ginger en tæp tvö ár eru síðan staðurinn var opnaður. Nýlega opnaði Ginger nýjan stað í verslun 10- 11 í Lágmúla en hann er meira í stíl við verslunina sjálfa að sögn Kristófers Jóns Hjaltalín, framkvæmdastjóra Ginger, sem jafnan gengur undir nafninu Nonni. „Hægt er að koma hér sjö daga vikunnar og grípa hollan og góðan mat til að taka með heim eða í vinnuna Við l j lingarétti og salöt. Öll brauð eru bökuð á staðnum en þau innihalda meðal annars haframjöl og hunang. „Vefjurnar okkar eru vinsælastar. Þar notum við mikið marineraðan kjúkling en upp- skriftin að leginum er leynileg. Við tökum algengan mat, eins og samlokur og búum til holla útgáfu án þess þó að rétturinn verði þurr og leiðinlegur.“ Nonni segir viðskiptavinahópinn breiðan. Íþróttafólk hafi verslað mikið HEILBRIGÐI ALLA DAGAGINGER KYNNIR Veitingastaðurinn Ginger hefur opnað nýjan stað í verslun 10-11 í Lágmúla. KOMA SÉR VEL Ginger býður að sögn Nonna upp á vinsæla heilsupoka sem innihalda mat fyrir hálfan og heilan dag. MYND/VALLI FRÍSKANDI Í MORGUNSÁRIÐGrænn djús í morgunsárið gerir líkamanum ekkert nema gott. Setjið epli, engiferbút, spínatlúku, spergil-kál og límónusafa í blandarann og maukið þar til bland-an verður jöfn. Þetta má líka setja í safapressu en hafið í huga að við það tapast umtalsvert af trefjum. Teg. 810857 - þunnur, veitir fínan stuðning í C, D skálum á kr. 5.500,- buxur í stíl á kr. 1.995,- Fallegur og sumarlegur Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga Betra loft - betr Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • 9 3100 56 • erg.is eirb Raka- og lofthreinstæki Verð: 29.850 kr. Vatteraðir jakkar - 14.500 kr. FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG N1 BLAÐIÐ Sumartilboð Fosshótela! BÓKAÐU Á FOSSHOTEL.IS EÐA Í SÍMA 562 4000 EX PO • w w w .e xp o. is ms.is Nýtt Gráða & feta ostateningar í olíu Hanna íslenska smokka Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir hanna smokka sem minjagripi fyrir ferðamenn. fólk 30 FÓLK Óperan Raven´s Kiss verður frumsýnd í American Scandinavi- an Society í New York í kvöld en höfundar hennar eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson og tónsmiður- inn Evan Fein. Söguþráður óperunnar á rætur sínar að rekja til Vest- fjarða en þang- að fóru Þor- valdur og Fein í ógleymanlega ferð árið 2009. „Ferlið hefur verið einkar ánægjulegt en þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í að skrifa leikgerð. Samvinnan er búin að vera skemmtileg,“ segir Þorvaldur. Brjálað veður og dularfullt landslag heillaði Fein en félagarn- ir kynntust í Juilliard-skólanum í New York. - áp / sjá síðu 30 Koss hrafnsins í New York: Þorvaldur sýnir fyrstu óperuna ÞORVALDUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON Fertug friðarhreyfing Samtök hernaðar and- stæðinga halda upp á 40 ára afmæli á morgun. tímamót 18 BJART V-TIL Í dag verður áfram hvöss suðaustan- og austanátt en lægir heldur með deginum. Fremur hægur vindur vestantil og nokkuð bjart en él norðantil. Allt að 6 stiga hiti sunnanlands en vægt frost fyrir norðan. veður 4 2 1 0 1 4 FERÐAÞJÓNUSTA Rauðka ehf., Félag Róberts Guðfinns- sonar, mun leggja 300 milljónir króna í skíðaskála á skíðasvæði Siglfirðinga og fleiri framkvæmdir, en félagið hefur þegar lagt 600 milljónir í uppbyggingu í bænum. Með samkomulagi við Fjallabyggð fær Rauðka lóð undir 900 milljóna króna hótel. „Samkomulagið felur í sér atriði sem við teljum vera mikilvæg til þess að byggja grundvöll fyrir hótel. Það tengist ýmsum umhverfismálum og skíðasvæðinu og golfvellinum,“ segir Finnur Yngvi Kristinsson, verkefnisstjóri hjá Rauðku og tengda- sonur Róberts. Stefnt er að því að opna hótel með 64 herbergj- um eftir þrjú ár, en frumhönnun hótelsins er lokið. Rauðka rekur nú þegar gallerí og tvo veitingastaði á Siglufirði. Markmiðið með frekari uppbyggingu er að skapa byggðarlaginu sérstöðu og gera það eftir- sóknarvert fyrir ferðamenn. - gar, bj / sjá síðu 4 Félag Róberts Guðfinnssonar ætlar að fjárfesta fyrir 1.200 milljónir á Siglufirði: Byggja hótel fyrir 900 milljónir Enginn Eiður Smári Lars Lagerbäck valdi landsliðshóp Íslands í gær. Tveir nýliðar eru í hópnum. sport 26 HALDIÐ Á HAF ÚT Þó viðrað hafi heldur kuldalega á landsmenn í gær gerði Dagur Freyr Hafliðason sig kláran í að sigla af stað úr Reykjavíkurhöfn með afa sínum í gærkvöld til að veiða á sjóstöng. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EFNAHAGSMÁL Landssamtök lífeyr- issjóða höfnuðu í gær hugmynd- um um að færa niður fasteignalán, sem tryggð eru með lánsveðum hjá ábyrgðarmönnum, að 110 prósent- um af fasteignamati. Efnahagsráð- herra, fjármálaráðherra, innanrík- isráðherra og velferðarráðherra lögðu drög að samkomulagi þar um fyrir fulltrúa sjóðanna á fundi í gær. Fulltrúar Íbúða lánasjóðs sátu fundinn einnig. „Það eru vonbrigði að lífeyris- sjóðirnir telji sig ekki geta tekið þátt í þessu með okkur. Þá hefur farið mikill tími í að bíða eftir afgreiðslu þeirra,“ segir Steingrím- ur J. Sigfússon efnahagsráðherra. Arnar Sigurmundsson, stjórnar- formaður landssamtakanna, segir að ljóst sé að lífeyrissjóðunum sé ekki heimilt að færa niður inn- heimtanlegar kröfur. Það hafi lengi legið fyrir og í tengslum við aðgerð- ir vegna skuldavanda heimilanna árið 2010 hafi verið fengið lögfræ- ðiálit sem staðfesti þetta. „Heimildir okkar lífeyrissjóð- anna til að fella niður innheimtan- legar skuldir eru bara ekki til stað- ar, það er alveg skýrt,“ segir Arnar og bendir á að stærstur hluti þess- ara lána, sem eru 2.400 talsins, sé í góðum skilum. Steingrímur segir hins vegar að ekki sé verið að fara fram á að farið verði á svig við lög. Þegar upp sé staðið græði allir á skynsamlegri úrlausn og slíkar aðgerðir gætu bætt eignasafn lífeyrissjóðanna. „Við erum jú öll saman í þessu og lífeyrissjóðirnir líka, að koma heimilunum í gegnum þessa erfið- leika. Menn mega ekki alveg missa sjónar á því og setja niður hælana bara út af einhverri þröngri túlkun á lagabókstafnum.“ Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að vaxandi kurr sé í garð lífeyrissjóðanna innan stjórnar- flokkanna. Þykir mörgum að þeir hafi ekki sýnt nægilegan vilja til að koma til móts við skuldara með lánsveð. Raddir um að leiðir til að skattleggja lífeyrissjóðina til að ná þessum greiðslum inn og koma svo til móts við skuldarana verða æ háværari. Steingrímur vildi þó ekki staðfesta þetta. „Ég ætla ekki að fara út í það, en við þekkjum nú glímuna við þátt- töku lífeyrissjóðanna í ýmsum öðrum aðgerðum.“ Lífeyrissjóðirnir hafa lagt til þá lausn að þeir selji Íbúðalánasjóði umrædd lán og fengju í staðinn rík- isskuldabréf eða ígildi þeirra. „Með slíkum viðskiptum væri aðkomu líf- eyrissjóðanna lokið,“ segir Arnar. - kóp Hugmyndum um nýjan skatt á lífeyrissjóði vex fylgi Lífeyrissjóðirnir hafna hugmyndum um niðurfellingu lána sem tryggð eru með lánsveði. Segja það ólöglegt og bjóða upp á að ÍLS taki þau yfir. Raddir um að sækja fé í lífeyrissjóðina með skatti verða æ háværari. Menn mega ekki alveg missa sjónar á því og setja niður hælana bara út af einhverri þröngri túlkun á lagabókstafnum. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON RÁÐHERRA EFNAHAGSMÁLA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.