Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 2
7. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
Bjarni, hvernig líst ykkur á að
brugga Agnesi?
„Hún gæti orðið nýtt og ferskt
belgískt sumaröl.“
Bjarni Kristófer Kristjánsson er formaður
Bjórseturs Íslands að Hólum í Hjaltadal.
Sú hugmynd hefur vaknað innan set-
ursins að brugga bjóra sem kenndir yrðu
við íslenska biskupa á borð við Guðmund
góða og Jón Arason.
FERÐAMÁL „Það er ekki hægt að
segja annað en að það sé töluverð
umferð. Það eru alltaf þó nokkrir
bílar og ein til tvær rútur á dag
sem koma við,“ segir Halldór
Þórarinsson, sem býr að Laugar-
dælum. Leiði Bobby Fischers er
orðinn vinsæll áfangastaður ferða-
manna.
Haraldur segir jákvætt að fólk
komi og votti Fischer virðingu
sína, á meðan það veldur ekki
truflun eða ónæði. „Það hefur ekki
gert það. Þetta er bara kurteist og
almennilegt fólk þannig að það er
ekkert nema jákvætt um þetta að
segja.“
Guðmundur
G. Þórarinsson
skákáhugamað-
ur hefur orðið
var við þennan
mikla áhuga.
„Vinur bróður
míns, Englend-
ingur, var hér á
ferð og langaði
að fara að leið-
inu. Það voru
þrjár rútur á undan honum og bið-
röð og hann þurfti að bíða í meira
en klukkutíma til að komast að.
Fólk var í biðröð til að taka af sér
myndir við leiðið.“
Kristján Ágúst Friðfinnsson,
sóknarprestur á Selfossi, segir
fjölda fólks koma við í Selfoss-
kirkju og spyrja vegar að Laugar-
dælum. „Frá mínum bæjardyrum
séð er þessi áhugi mjög jákvæður.“
Guðmundur segir að BBC hafi
valið einvígi Fischers og Spass-
kys sem einn af 10 merkilegustu
viðburðum síðustu aldar. Það
sé stórmerkilegt, þegar horft sé
til þess að verið sé að bera það
saman við tvær heimsstyrjaldir,
kjarnorkusprengjur og rússnesku
byltinguna, svo eitthvað sé tínt til.
Hann saknar þess að meira sé úr
því gert.
„Þegar ég var á ferð í Arles í
Frakklandi gekk ég þar eftir ein-
hverri götu og sá að það var mikið
að gerast inni í húsasundi. Ég fór
þar inn og fólkið sagði við mig að
það væri álitið að van Gogh hefði
skorið af sér eyrað þarna. Þarna
var allt fullt af ferðamönnum og
menn voru að kaupa alls konar
kort og ýmislegt.“
Guðmundur telur vannýtta
möguleika hér á landi, í ljósi áhuga
ferðamanna á gröf Fischers.
„Ferðamenn kvarta yfir því að geta
ekki fengið póstkort, ekki myndir
af Fischer eða Spassky eða neitt.“
Halldór segir að komið hafi til
tals að koma upp einhverri aðstöðu
eða sölu fyrir ferðamenn, en ekki
hafi orðið af því. „Hann velur sér
þennan stað á vissan hátt til að fá
að vera í friði. Það væri ekki bein-
línis í hans anda að ætla að fara
að gera eitthvað, nema það væri
þá með fullri vinsemd og virðingu
þeirra sem næst honum eru.“
kolbeinn@frettabladid.is
Ferðamenn bíða í
röð við leiði Fischers
Örtröð hefur myndast í kirkjugarðinum í Laugardælum þegar ferðamenn heim-
sækja leiði Bobbys Fischer. Ekki nema jákvætt meðan engin truflun er af, segir
heimamaður. Guðmundur G. Þórarinsson vill að afmælis einvígisins sé minnst.
GRAFREITURINN Englendingur sem var hér á ferð í sumar þurfti að bíða í rúma
klukkustund til að komast að leiði Fischers. Fjöldi ferðamanna stóð í biðröð til að
láta mynda sig við leiðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GUÐMUNDUR G.
ÞÓRARINSSON
BEIRÚT, AP Riyad Hijab, forsætisráðherra Sýrlands,
flúði frá landinu til Jórdaníu í gær. Lýsti Hajib
jafnframt yfir stuðningi við uppreisna rmennnina
sem barist hafa gegn stjórn Bashar al-Assad
síðustu misseri.
Hajib var skipaður forsætisráðherra í júní að
loknum þingkosningum sem sýrlenska stjórnar-
andstaðan neitaði að taka þátt í. Er hann hæstsetti
embættismaðurinn í valdakerfi al-Assad til að
ganga til liðs við uppreisnina.
Fjöldi embættismanna og yfirmanna í sýrlenska
hernum hafa lýst yfir stuðningi við uppreisnar-
mennina á síðustu mánuðum og flestir flúið til
Jórdaníu. Auk Hajib flúðu tveir aðrir ráðherra í
sýrlensku ríkisstjórninni til Jórdaníu á mánudag.
Talsmenn al-Assads neituðu fregnunum um að
Hijab hefði gengið til liðs við uppreisnar mennina
og héldu því fram að hann hefði verið rekinn.
Hijab staðfesti fréttirnar hins vegar í yfirlýs-
ingu þar sem hann gagnrýndi harðlega stjórn al-
Assads.
Þá sprakk sprengja á þriðju hæð höfuðstöðva
sýrlenska ríkissjónvarpsins í Damaskus í
gærmorgun. Byggingin skemmdist mikið í
sprengingunni en enginn virðist hafa látist. Upp-
reisnarmenn í borginni eru taldir bera ábyrgð á
sprengingunni. - mþl
Sprengja sprakk í höfuðstöðvum sýrlenska ríkissjónvarpsins í gær:
Forsætisráðherra Sýrlands flúði land
DAMASKUS Í GÆR Miklar skemmdir urðu á höfuðstöðvum
sýrlenska ríkissjónvarpsins þegar sprengja sprakk þar í
gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AKUREYRI Mun fleiri sóttu fjöl-
skylduhátíðina Eina með öllu á
Akureyri en í fyrra. Tíu þúsund
manns sóttu hátíðina í ár en það
eru um 2.500 fleiri en í fyrra.
Talið er að veðurblíðan hafi haft
þar nokkuð að segja.
Mikill erill var um helgina hjá
lögreglunni þó svo að fjölskyldu-
hátíðin hafi að mestu farið vel
fram. Engin stórmál komu upp og
engin mál hafa enn verið kærð til
embættisins eftir hátíðar höldin.
- ktg
Mikil aðsókn á Eina með öllu:
Tíu þúsund
voru á Akureyri
Útafakstur við Stóru Laxá
Bíll fór út af á veginum við Stóru
Laxá um helgina. Fjórir farþegar voru
í bílnum og var einn maður fluttur
með þyrlu til Reykjavíkur til frekari
aðhlynningar. Maðurinn er ekki talinn
mikið slasaður og áverkar minni en
talið var í fyrstu.
HRUNAMANNAHREPPUR
ÍSAFJÖRÐUR Mikill fjöldi sótti
Evrópumeistaramótið í mýrar-
bolta á Ísafirði um helgina. Alls
voru 1200 manns skráðir til leiks
og talið er að hátt í þrjú þúsund
manns hafi lagt leið sína til Ísa-
fjarðar.
Lögreglan á Vestfjörðum segir
helgina almennt hafa gengið vel
fyrir sig. Tvær líkamsárásir hafa
þó verið kærðar til embættisins,
en auk þess voru tveir ökumenn
teknir grunaðir um ölvun við
akstur og tveir fyrir akstur undir
áhrifum fíkniefna. - ktg
Mikill fjöldi gesta á Ísafirði:
Margir sóttu í
mýrarboltann
NEW YORK, AP Fjármálaeftirlit New York- ríkis
í Bandaríkjunum hefur hafið rannsókn á
breska bankanum Standard Chartered vegna
gruns um stórfellda ólöglega bankastarfsemi á
árunum 2001 til 2007.
Er bankanum gefið að sök að hafa í samvinnu
við stjórnvöld í Íran stundað peningaþvott á
um 250 milljörðum Bandaríkjadala. Upphæðin
jafngildir um 31.250 milljörðum króna eða um
tuttugufaldri landsframleiðslu Íslands.
Líklegt er talið að Standard Chartered muni
missa starfsleyfi sitt í New York í kjöl farið.
Fjármálaeftirlitið telur brot bankans svo
alvarleg og umsvifamikil að þau hafi ógnað
stöðugleika bandaríska fjármálakerfisins og
jafnvel verið ógn við heimsfrið.
Alþjóðlegt viðskiptabann er í gildi gagn-
vart Íran en fyrir árið 2008 voru ákveðnir
fjármálagerningar við landið heimilaðir að
ströngum upplýsingaskilyrðum uppfylltum.
Bankinn á að hafa þverbrotið öll slík skilyrði
og stundað margs konar lögbrot til þess að
fela viðskiptin.
Fullyrt er að æðstu stjórnendur bankans
hafi vitað af starfseminni sem fram fór í
gegnum skrifstofu bankans í New York. Eiga
þeir að hafa rætt um það sín á milli að endur-
skoða þyrfti starfsemina þar sem hún gæti
valdið bankanum hræðilegum orðsporsmissi
kæmist hún upp. Þá er talið að málið geti
leitt til sakamálarannsókna á hendur æðstu
stjórnendum bankans. - mþl
Standard Chartered sagður hafa stundað peningaþvott fyrir írönsk stjórnvöld:
Stór banki borinn þungum sökum
Landsmótið gekk vel
Um 15 þúsund manns sóttu
Ungmennafélagsmót UMFÍ á Selfossi
um helgina. Mótið gekk vel fyrir sig
og voru engin mál tilkynnt til lög-
reglunnar í tengslum við hátíðina.
SELFOSS
LIVERPOOL Standard Chartered er eitt stærsta fjár-
málafyrirtæki heims en hér á landi er það sennilega
þekktast sem helsti stuðningsaðili enska knattspyrnu-
liðsins Liverpool. MYND/GETTY
MENNING Þeir Páll Scheving Ingv-
arsson, formaður Þjóðhátíðar-
nefndar ÍBV, og Tryggvi Már
Sæmundsson,
framkvæmda-
stjóri ÍBV,
hyggjast ekki
gefa kost á
sér til áfram-
haldandi setu
í nefndinni.
Var þetta til-
kynnt eftir
brekkusönginn
í Herjólfsdal á
sunnudag sem
er hápunktur Þjóðhátíðar hvert ár.
Greindi RÚV frá því í gær að
þeir Páll og Tryggvi efuðust um
að þeir nytu fulls trausts og vel-
vildar samfélagsins í Eyjum til að
stýra hátíðinni áfram. - mþl
Vonast eftir meiri sátt:
Páll og Tryggvi
hætta í Þjóðhá-
tíðarnefnd
PÁLL SCHEVING
INGVARSSON
DANMÖRK Rétt rúmur meirihluti
Dana, 51 prósent, vill lögleiða
neyslu á hassi og vill að danska
ríkið annist söluna, samkvæmt
nýrri rannsókn Gallup.
„Ef refsiramminn er hertur
leiðir það til þess að undir heim-
arnir harðna og almennings-
álitið á neytendum verður lægra.
Það breytir samt ekki fjölda
neytenda ,“ segir Kim Møller,
aðjúnkt í Rannsóknarstofu í
fíkniefnarannsóknum, í sam-
tali við danska blaðið metroX-
press. „Við lögleiðingu hryndi
grund völlur hassmarkaðarins, en
neyslan yrði meiri sem gæti leitt
til þess að fíkniefnaneytendum
fjölgaði,“ bætir Kim Møller við.
Könnunin hefur leitt til nokkurra
harðra orðaskipta milli stjórn-
málamanna í Danmörku. - ktg
Dönsk skoðanakönnun:
Fleiri vilja láta
lögleiða hass
SPURNING DAGSINS
Ferðamenn kvarta
yfir því að geta ekki
fengið póstkort, ekki myndir
af Fischer eða Spassky eða
neitt.
GUÐMUNDUR G. ÞÓRARINSSON
SKÁKÁHUGAMAÐUR