Fréttablaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 18
7. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR18 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is „Hátíðin hefur verið í fyrsta sæti hjá okkur sem að henni stöndum síðustu daga, hjá okkur í framkvæmda- stjórninni, öllum kennurunum og þeim sem taka þátt. Þetta er stór hópur og mikil tilhlökkun,“ segir Guðný Þóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarhátíðar unga fólksins sem hefst á morgun, miðvikudaginn 8. ágúst, á menningartorfu Kópavogs og stendur yfir til 19. ágúst. Hátíðin var fyrst haldin árið 2008 og fagnar því fimm ára afmæli sínu í ár, en með Guðnýju Þóru í framkvæmdastjórn sitja þær Elín Ásta Ólafsdóttir og Gunnhildur Daðadóttir. Tilgangur hátíðarinnar er að gefa tón- listarnemum tækifæri til að kynnast og taka þátt í samspili og tónlistarsköpun, auk þess að gefa þeim kost á að sækja fjölbreytta tónleika og fyrirlestra. Um hundrað nemar taka þátt í ár. Hugmyndin að Tónlistarhátíð unga fólksins kviknaði upphaflega meðal Guðnýjar Þóru og fleiri ungra tónlistar- nema sem þótti vanta vettvang fyrir íslenska tónlistarnema til að sinna list sinni yfir sumartímann. „Eftir áralöng ferðalög á námskeið, hátíðir og annað slíkt á sumrin fórum við að spyrja okkur að því hvers vegna ekki væri völ á slíku á Íslandi og hvers vegna enginn hefði reynt þetta hér á landi. Í rauninni ákváðum við hreinlega að slá til og gera þetta bara sjálf,“ segir Guðný Þóra og bætir við að nú fimm árum síðar séu aðstandendur hátíðarinnar í skýjunum yfir viðtökunum. „Það virðist vera að hér ríki grundvöllur og mikill áhugi á svona hátíð. Við höfum fundið okkar farveg, bæði hvað varðar fjölda nem- enda og fjölda námskeiða. Það væri gaman að geta tekið við fleiri, sérstak- lega nemendum erlendis frá því víða um heim ríkir mikill áhugi á íslenskri tón- list og kennararnir okkar trekkja að, en þá myndum við sennilega sprengja hús- næðið utan af okkur.“ Sem fyrr leitast skipuleggjendur hátíðarinnar við að bjóða þátttakendum upp á fjölbreytta dagskrá sem saman- stendur meðal annars af einkatímum í hljóðfæraleik og einsöng, kammertón- list og tilsögn í sviðsframkomu, tón- listarspuna, jóga og Alexandertækni og fleira. Í lok hátíðarinnar eru fjöl- margir nemendatónleikar þar sem þátt- takendur fá tækifæri til að koma fram bæði í Salnum í Kópavogi og í Hörpunni á Menningarnótt. Þá eru sex fyrir lestrar á dagskrá hátíðarinnar að þessu sinni og spanna umfjöllunarefni þeirra allt frá barokki til rapptónlistar, auk þess sem haldið verður málþing um framtíðarsýn íslenskra tónskálda. Sjálf tónleikaröðin samanstendur af átta tónleikum þar sem lögð er áhersla á að kynna ungt tónlistarfólk, auk þess sem kennarar á námskeiðum hátíðarinn- ar koma fram. „Á tónleikunum kemur afburðafólk fram,“ segir Guðný Þóra og nefnir meðal annars Strengjasveit- ina Skark sem flytur tvö ný verk, Arn- gunni Árnadóttur sem er nýráðin fyrsti klarinettuleikari Sinfóníunnar og Huldu Jónsdóttur, eina björtustu von íslenska fiðluheimsins. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á Musicfest.is. kjartan@frettabladid.is TÓNLISTARHÁTÍÐ UNGA FÓLKSINS: HEFST Í FIMMTA SINN Á MORGUN GERÐUM ÞETTA BARA SJÁLF AFMÆLI Guðný Þóra er í skýjunum með fimm ára afmæli Tónlistarhátíðar unga fólksins, sem hefst á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þennan dag, 7. ágúst árið 1960, hlaut Fílabeinsströndin sjálfstæði frá Frakk- landi. Landið hafði verið undir stjórn Frakka frá síðari hluta 19. aldar og voru þar framleiddar kakó- og kaffi- baunir í miklu magni. Félix Houphouët-Boigny leiddi Fíla- beinsstrendinga til sjálfstæðis eftir diplómatískum leiðum. Hann var leið- togi innlendra kaffibaunaræktenda og kosinn á franska þingið 1945. Hann varð fyrstur Afríkubúa til að komast í evrópska ríkisstjórn og ítök hans í frönskum stjórnmálum höfðu mikið að segja er Fílabeinsströndin fékk full- veldi 1958 og varð loks sjálfstætt ríki árið 1960. Þegar Fílabeinsströndin fékk sjálf- stæði var ríkið eitt stöndugasta ríki Vestur-Afríku. Ríkið var, og er enn í dag, einn af stærstu kaffibaunaframleiðendum í heimi, ásamt því að eiga stóra markaðs- hlutdeild á heimsmarkaði kakós og pálmaolíu. Síðasti áratugur hefur einkennst af borgarastríði og grimmdarverk- um á Fílabeinsströndinni. Barátta um demanta námur, frekar en pólitískur ágreiningur, þar sem barnahermönnum var miskunnarlaust beitt, hefur skilið landið eftir í sárum. Skrifað var undir friðarsamninga árið 2007 sem halda að nafninu til þótt lítið megi út af bera. ÞETTA GERÐIST: 7. ÁGÚST 1960 Fílabeinsströndin hlýtur sjálfstæði Sólrún Bragadóttir sópransöngkona og Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari flytja sönglög um drauma eftir norræn, þýsk og frönsk tónskáld í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld, þriðjudaginn 7. ágúst, klukkan 20.30. Sólrún hefur starfað við mörg helstu óperu- og leikhús í Þýskalandi. Meðal hlutverka hennar má nefna Mimi í La Bohème, Suor Angelica í sam- nefndri óperu og Desdemona í Óþelló. Hún hefur komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, tekið þátt í óperum, söngleikjum, ljóðatónlist, óratoríum og sungið Vínartónlist. Sólrún býr í Danmörku. Anna Málfríður Sigurðardóttir hefur starfað sem píanókennari og píanóleikari frá 1974, bæði á Íslandi og erlendis. Hún hefur haldið tónleika víðsvegar, bæði hér heima og erlendis og komið fram sem einleikari, meðal annars með Sinfóníu- hljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Trier. Draumar Sólrúnar og Önnu SÓLRÚN BRAGADÓTTIR JIMMY WALES, stofnandi vefsíðunnar Wikipedia, á afmæli í dag. „Ímyndið ykkur heim þar sem hver einasti einstaklingur á plánetunni hefur frían aðgang að allri mannlegri vitneskju. Við vinnum að því.“ 46 Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, AUÐUR PÉTURSDÓTTIR Mýrarási 3, Reykjavík, lést á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 30. júlí. Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju í Reykjavík fimmtudaginn 9. ágúst kl. 13.00. Ríkharður Sverrisson Pétur Kristmanns Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir Ríkharður B. Ríkharðsson Margrét Ríkharðsdóttir Guðlaugur Geir Kristmanns Ríkharður Kristmanns Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHILDUR RAGNA KARLSDÓTTIR Hjarðarhaga 26, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Karl Þorsteinsson Margrét Geirrún Kristjánsdóttir Guðbjörg Þorsteinsdóttir Halldór Bjarnason Baldur Þorsteinsson Linda Udengaard barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR DÚNNA, Lækjasmára 4, Kópavogi, lést fimmtudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sumardvöl fatlaðra í Reykjadal, kt. 630269-0249, banki 549-26-10. Halldór Ólafsson Gyða Þórisdóttir Inga Ólafsdóttir Guðmundur Jónsson Sigrún Ólafsdóttir Guðmundur Ingi Ásmundsson Ómar Örn Ólafsson Sigurbjörg Alda Guðmundsdóttir Gunnar Ólafsson Brynhildur Ásgeirsdóttir Ólafur Jóhann Ólafsson Sigríður Einarsdóttir barnabörn og langömmubarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR áður til heimilis að Nökkvavogi 42, Reykjavík, lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks miðvikudaginn 1. ágúst sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Páll K. Gunnarsson Esther Þorgrímsdóttir Guðmundur Gunnarsson Bjarma Didriksen Sigurður D. Gunnarsson Anna S. Gunnarsdóttir Oddur Gunnarsson Áslaug Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁLFHEIÐUR ÁRMANNSDÓTTIR frá Skógum, Lindasíðu 4, Akureyri, er látin. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Anna Soffía Sverrisdóttir Sverrir Brynjar Sverrisson Elín Sigurðardóttir Þóra Sverrisdóttir Þorsteinn Berg Sólrún Sverrisdóttir Óskar Steingrímsson ömmu- og langömmubörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.