Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. ágúst 2012 13 Um þessar mundir standa yfir aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Neyt- endasamtökin (NS) hafa ekki tekið afstöðu með eða á móti aðild Íslands að ESB en í nokkur ár hafa NS skoðað kosti og galla mögulegrar aðildar. Að mati NS væri aðild að ESB í mörgu mjög góður kostur fyrir íslenska neyt- endur. Ef Ísland gerist aðili mun það styrkja fjárhag heimilanna. Hagur neytenda myndi batna vegna þess að Ísland yrði aðili að mun stærra markaðssvæði og sam- keppni myndi því aukast. Að vera utan ESB gerir það að verkum að Íslendingar njóta þess ekki til fulls að vera fullir aðilar að innri mark- aðnum. Viðskiptakostnaður er mun hærri nú vegna tollafgreiðslu og umsýslukostnaðar ýmiss konar. En almennt verður að taka fram að áður en hægt er að taka afstöðu til aðildar að ESB verður aðildar- samningur að liggja fyrir. Ef skoðaðir eru þrír þættir sem skipta neytendur mestu máli; húsnæðislán, matarkostnaður og neytendavernd, þá er ljóst að aðild að ESB hefur verulega þýðingu fyrir neytendur. Við aðild Íslands að ESB myndi vaxtakostnaður neytenda lækka töluvert og þar hafa húsnæðislánin mesta þýð- ingu. Húsnæðiskostnaður er einn stærsti kostnaðarliður í bókhaldi hvers neytanda. Í könnun sem NS gerðu árið 2005 kom fram að kostnaður íslenskra neytenda vegna húsnæðislána er umtals- vert hærri en á öðrum Norður- löndum og löndum sem hafa evru sem gjaldmiðil. Lántöku- kostnaður, kostnaður við greiðslu afborgana og uppgreiðslugjald var almennt hærra á Íslandi en í þeim löndum sem könnunin náði til. Í sömu könnun kom fram að vextir á íslenska húsnæðismark- aðnum voru þeir hæstu meðal þeirra landa sem könnunin náði til og raunvextir voru að jafn- aði 2 til 5 prósentustigum hærri hér á landi en á hinum löndunum í könnuninni. Birtar hafa verið nýlegar kannanir sem staðfesta að þetta hefur ekki breyst. Könn- unina „Dýrast að taka húsnæðis- lán á Íslandi“ til að mynda má sjá á www.ns.is undir „útgáfa“. Því hefur oft verið haldið fram með rökum að verð á matvælum myndi lækka með aðild. Ástæða er til að minna á að það gekk eftir bæði í Svíþjóð og Finnlandi eins og spáð var. Í skýrslu Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands frá árinu 2004 og í skýrslu frá Evr- ópufræðasetri á Bifröst komu fram sterk rök fyrir því að svo yrði einnig hér. Tollar yrðu afnumdir á öllum vörum með aðild okkar að Tollabandalagi Evrópu og þar myndi muna mest um landbúnaðar- vörurnar. Einnig myndi inngangan leiða til aukins innflutnings vegna afnáms tolla sem aftur myndi auka samkeppnina á matvæla- markaðnum og ætti það að skila sér í lægra vöruverði til neytenda. Þegar kemur að almennri neyt- endavernd þá er það umhugsunar- vert að nánast öll sú löggjöf sem snýr að neytendavernd hér á landi er komin frá ESB í gegnum EES. Hér má nefna lög um neytendalán, skaðsemisábyrgð, samningsskil- mála og fjarsölu svo eitthvað sé nefnt. Með fullri aðild Íslands að ESB myndi hagur neytenda aukast enn frekar, þar sem tollar og vöru- gjöld myndu falla brott. Þannig myndi til að mynda kostnaður við póstverslun lækka umtalsvert sem yrði mikil búbót fyrir neytendur á litlu markaðssvæði. Íslenskir neytendur munu því njóta þess ríkulega í lægri hús- næðiskostnaði og vöruverði (og þá ekki síst matarverði) ef Ísland gerist aðili að ESB, þrátt fyrir þá tímabundnu efnahagserfiðleika sem ESB glímir við um þessar mundir. AF NETINU Landið er ekki beitarhæft Ég er nýbúinn að fljúga fram og til baka yfir Almenninga og hef flogið yfir þetta svæði áratugum saman. Þegar horft er á árangurinn af friðun og uppgræðslu í Þórsmörk og það borið saman við ástand Almenninga er það broslegt þegar sagt er að búið sé að gera Almenninga beitarhæfa. Flögin og jarðvegseyðingin á Almenningum eru á sama stigi og samsvarandi svæði voru í Þórsmörk fyrir tuttugu árum. Þegar fé fór inn á þau svæði eftir upprekstur raðaði það sér í flögin þar sem mesta konfektið var, nýgræðingurinn, og sá til þess að hann væri algerlega eyddur áður en farið var á önnur beitarsvæði. Nú munu um 9% Almenninga vera gróið land og 91% er berangur. Auðséð er hvað muni gerast ef fé verður að nýju hleypt inn á þetta svæði, sem nú er galopið. omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson Ný framboð eiga bágt Nýir flokkar eiga erfitt uppdráttar í könnunum. Skást er dæmi Guðmundar Steingrímssonar, þótt ég sjái ekki, að hann hafi merkilegt til málanna að leggja. Annað en að hafa verið heiðarlegur á þingi og þá er auðvitað mikið sagt. Lilju Mósesdóttur gengur illa, enda er hún einfari, sem á erfitt með samstarf við aðra. Ég held að hún muni ekki ná sér á strik. Önnur framboð hafa ekki vakið á sér athygli, til dæmis ekki það, sem Hreyfingin styður. Ég sé ekki bóla á framboði stjórnlagaráðsmanna, enda eru afdrif stjórnarskrárinnar enn í þoku. Held að margir vonist eftir slíku framboði og vilji styðja það. www.jonas.is Jónas Kristjánsson Ef skoðaðir eru þrír þættir sem skipta neytendur mestu máli; húsnæðislán, matarkostnaður og neytendavernd þá er ljóst að aðild að ESB hefur verulega þýðingu fyrir neytendur. Nú standa yfir í London Ólympíu-leikar og á hverjum degi berast fregnir af fræknum íþróttamönnum sem setja bæði ný Ólympíumet og heimsmet. Þetta eru fréttir sem við gleðjumst öll yfir. Það eru þó ekki öll met jafn- ánægjuleg. Á sama tíma og íþrótta- met eru sett birtast fréttir um að við Íslendingar eigum nú orðið Evrópu- met í skattahækkunum, bæði á ein- staklinga og fyrirtæki. Í gögnum sem KPMG hefur tekið saman og birtast í nýjasta tölublaði Viðskipta- blaðsins kemur fram að skattar á einstaklinga og fyrirtæki hafa hækkað um þriðjung frá árinu 2008. Á sama tíma hafa aðrar Norður- landaþjóðir almennt lækkað skatta. Lífskjör almennings á Íslandi hafa versnað ár frá ári saman borið við önnur lönd í Evrópu sem við kjósum helst að bera okkur saman við. Rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur versnað til muna og samkeppnisstaða þeirra veikst. Stjórnvöld standa ráðþrota frammi fyrir þeirri spurningu hvernig afnema skuli gjaldeyris- höft. Vörugjöld hafa verið hækkuð og skattar þyngdir samhliða því að skattkerfið allt hefur verið gert flóknara. Samhliða þessu hefur opinber eftirlitsiðnaður eflst og þykir mörgum sem þar fari menn offari við íþyngjandi eftirlit, aðgerðir og sektir sem hamla eðli- legum rekstri og vexti fyrirtækja. Aðgerðir eftirlits iðnaðarins eru iðulega vanhugsaðar eða byggðar á van þekkingu. Á Íslandi búa aðeins um 320 þúsund manns sem reyna að halda uppi þjóðfélagi með jafn mörgum úrlausnarefnum og glímt er við meðal margfalt stærri þjóða. Hér eru eftirlitsstofnanir margfalt fámennari en gerist meðal lítilla nágrannaþjóða eins og Norður- landaþjóðanna. Burðir þeirra til að takast á við þau flóknu úrlausn- arefni sem á borð þeirra rekur eru þeim mun minni. Sama á við um mörg önnur svið stjórn sýslunnar eins og ráðuneyti og dómstóla. Þessir aðilar hafa örfáa starfs- menn til að setja sig inn í flóknustu úrlausnarefni. Væri úr vegi að leita samstarfs við stærri þjóðir um ýmis verkefni stjórn sýslunnar, t.d. að útvista eftirlitinu til eftirlits- stofnana annarra landa á völdum sviðum? Er ekki hugsanlegt að slík lausn myndi kosta minna, leiða til vandaðri ákvarðana og vera laus við afleiðingar klíku- og kunn- ingjaþjóðfélagsins? Virðisaukaskattur er hér sá hæsti sem vitað er um en sá skattur leggst sérstaklega þungt á fólk með lág laun, enda fer stærri hluti tekna þess til neyslu en þeirra sem hafa hærri laun. Flóknara skattkerfi eykur svigrúm til undir- skota sem skekkja alla samkeppn- isstöðu. Virðis aukaskattur er í mörgum þrepum sem flækir veru- lega innheimtu hans, gefur kost á undanskotum og sýnt hefur verið fram á að margþrepa virðisauka- skattur kemur sér verst fyrir þá sem lægstar hafa tekjurnar. Það er eins og gleymst hafi að alþjóðleg samkeppni um fólk, fyrir- tæki og fjárfestingar nær einnig til Íslands. Þjóðartekjur á mann eru langminnstar á Íslandi af öllum Norðurlöndunum, þrátt fyrir allar auðlindirnar sem við eigum. Árið 2010 voru þær sem nemur um 4,4 m.kr. á mann hér á landi en 7,0 m.kr. á mann í Danmörku. Þær gríðarlegu skattahækkanir sem hér hafa orðið munu á endanum þrýsta fólki og fyrirtækjum burt frá landinu, e.t.v. því fólki og fyrir- tækjum sem við viljum síst missa. Það mætti halda að stjórnvöld á Íslandi hafi kosið að leika með hinu liðinu á alþjóðlegum keppnisvelli lífskjara og hagsældar. Evrópumet í skattahækkunum Aðild Íslands að ESB – Hagstæð eða óhagstæð fyrir neytendur? Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð, að hámarki um 4.500 tölvuslög með bilum. Aðeins er tekið við yfirlesnum og villulausum texta. Greinahöfundar eru beðnir að hafa í huga að því styttri sem greinin er, þeim mun líklegra er að hún fái skjóta birtingu. Eingöngu er tekið við raunverulegum umræðugreinum, en ekki greinum sem eru fyrst og fremst kynning á til dæmis fyrirtæki eða félagasamtökum, ráðstefnu eða átaki. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða á Vísi eða í báðum miðlum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Sendið okkur línu Evrópusambandið Gunnar Alexander Ólafsson hagfræðingur Skattamál Svana Helen Björnsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins ELLINGSEN AKUREYRI ELLINGSEN REYKJAVÍK HÚSASMIÐJAN OLÍS KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA VEIÐIFLUGAN REYÐARFIRÐI VEIÐIPORTIÐ VEIÐISPORT Á SELFOSSI VESTURRÖST VEIÐIVON ENDURSÖLUAÐILAR: ABU GARCIA FRAMLEIÐIR VANDAÐAR VEIÐIVÖRUR, VINNUR STÖÐUGT AÐ ÞRÓUN ÞEIRRA OG SLÆR HVERGI AF Í GÆÐUM. VANDAÐAR VEIÐIVÖRUR FYRIR ALLA ABU GARCIA PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 21 19

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.