Fréttablaðið - 07.08.2012, Page 24
Fróðaþing - nýlegt vandað hús
Vandað og vel staðsett 360m fm einbýli innst í botnlangagötu með fallegu
útsýni yfir Elliðavatn. Húsið er teiknað af Baldri Svavarssyni arkitekt og Rut
Káradóttir hannaði allar innréttingar sem voru sérsmíðaðar. Húsið var byggt af
TVT verktökum árið 2008. V. 130 m. 1738
Hrísholt - glæsilegt útsýni
Glæsilegt einbýlishús á einum fallegasta útsýnisstað í Garðabæ í næsta nágrenni
við gólfvöll Garðabæjar. Eignin skiptist m.a. í forstofu, forstofuherbergi, snyrtingu,
eldhús, baðherbergi, stofu, borðstofu, arinstofu, fjögur herbergi, geymslur o.fl.
Einstakt útsýni er frá stofunni í átt til suðurs, vesturs, Reykjaness, Bessastaða,
Snæfellsjökuls og Esjunnar. V. 87 m. 1795
Hólar við Esjurætur við Mógilsá
Einbýlishús í skógivöxnu landi við Mógilsá. Húsið er 129,8 fm (auk sólstofu) og
stendur á um 5.000 fm leigulóð. Við húsið er 40 fm nýlegur bílskúr. Húsið er í góðu
ástandi. Falleg heimreið er að húsinu og gott bílaplan. Grasflöt er við húsið en að
öðru leyti er landið skógi vaxið og hallar til suðurs. Útsýni er fallegt. Húsið skiptist í
forstofu, tvær vinkil stofur, sólstofu, eldhús, bókaherbergi, baðherbergi, þvottahús og
svefngang. Innaf svefnganginum eru tvö rúmgóð svefnherbergi en innaf öðru þeirra
(hjónaherbergi) er fataherbergi og sér baðherbergi. V. 59 m. 1599
Árland - glæsileg eign
Fallegt og vel hannað einbýlishús í Fossvoginum ásamt sérstæðum bílskúr.
Húsið er teiknað á arkitektastofu Skarphéðins Jóhannssonar. Eignin skiptist í
forstofu, snyrtingu, borðstofu, stofu, bókastofu, eldhús, þvottahús, bakinngang,
4 barnaherbergi,o.fl. Í kjallara er stórt herbergi með gluggum o.fl. Stór og gróinn
garður. V. 89 m. 1811
Stuðlasel - með tvöf. bílskúr
Vel skipulagt 205,7 fm einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Stór og
gróin lóð kringum húsið, flísalögð verönd og steypt bílaplan fyrir framan húsið.
Hjónaherbergi og fjögur barnaherbergi. V. 46 m. 1771
Kleifarsel - Barnvænt umhverfi.
Vel skipulagt og frábærlega staðsett 178,1 fm sérbýli á tveimur hæðum með
rúmgóðum bílskúr (33,5 fm) við Kleifarsel í Reykjavík. Húsið er staðsett í
barnvænu og rólegu umhverfi og aðeins í nokkra mín. göngufæri frá skóla. Tvær
stofur og tveir útg. frá jarðhæð út í fallegan garð. Rúmg. svalir frá hjónaherb.
Eignin er björt og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi. Frábært leiksvæði
fyrir börnin er á svæðinu. V. 39,8 m. 1734
Vættaborgir - glæsileg eign
Einstaklega vandað einbýlishús á góðum útsýnisstað við Vættaborgir í Grafarvogi.
Um 100 fm harðviðarverönd með sjávarútsýni og stórt hellulagt bílaplan er
við húsið. Ekkert hefur verið til sparað. Vandaðar innréttingar, tæki, gólfefni og
loftaklæðning. Sérstaklega mikil lofthæð í stofu (ca 7 metrar) og bílskúr.
V. 66,9 m. 1410
Hrísrimi 22 - glæsilegt parhús
Glæsilegt og einstaklega vandað 185 fm parhús á tveimur hæðum við Hrísrima
í Reykjavík. Falleg lóð með timburverönd baka til og stóru steyptu bílaplani að
framanverðu. Aukin lofthæð er á efri hæð að hluta og stórar suður svalir frá
hjónaherbergi. Gott og vandað fjölskylduhús þar sem stutt er í skóla og alla
helstu þjónustu. V. 47 m. 1552
Kjalarland 22 - mikið endurnýjað
Vel staðsett og mikið endurnýjað 202,8 fm endaraðhús fyrir ofan götu ásamt 20,2
fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í Fossvoginum. Eignin skiptist þannig: anddyri,
hol, gesta snyrting, svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og á neðri hæð eru þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sjónvarpshol. V. 56,9 m. 1723
Heiðarhjalli - glæsileg efri sérhæð - laus strax.
Glæsileg efri sérhæð í tvíbýlishúsi með frábæru útsýni til austurs, suðurs og
vesturs. Hæðin er 145,7 fm, sérgeymsla er 8,3 fm og innbyggður bílskúr er 25,8
fm, samtals 179,8 fm. Sér inngangur. Allar innréttingar eru hannaðar af Tryggva
Tryggvasyni arkitekt og eru sérsmíðaðar úr spónlagðri eik eða hvítsprautaðar.
V. 47,9 m. 1606
Skúlaskeið - öll uppgerð
Einstaklega falleg og algjörlega uppgerð 4ra herbergja 85,2 fm íbúð gengt
skemmtigarðinum Hellisgerði. Íbúðin var öll endurnýjuð árið 2009 og var m.a.
skipt um allar innréttingar, lagnir, rafmagn, gler, skólplagnir, gólfefni og margt
fleira. Glæsileg uppgerð íbúð í miðbæ Hafnarfjarðar. V. 22,0 m. 1850
Kóngsbakki - sér lóð.
Mjög góð og vel skipulögð 4ra herbergja 96,4 fm íbúð á jarðhæð. Húsið er
nýlega málað og viðgert og sameign snyrtileg og góð. Þrjú barnaherbergi og
hjónaherbergi, þvottahús inn af eldhúsi og frá stofu er gengið út á sér lóð með
verönd V. 18,9 m. 1822
Neðstaleiti - stór með stæði í bílageymslu
Vel skipulögð og góð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð, ásamt stæði í bílageymslu,
mjög miðsvæðis í Reykjavík. Tvennar svalir til norðurs og suðurs. Íbúðin skiptist í
forstofu, hol, stóra stofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaher-
bergi, þvottahús innan íbúðar. V. 38 m. 1317
Laufvangur 3 - laus strax
Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð (efstu hæð) Íbúðin er 117,9 fm og
skiptist í forstofu/hol, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og stórt
eldhús með borðkrók, þvottahús inn af eldhúsi og rúmgóð stofa í kjallara er sér
geymsla. V. 21,5 m. 1736
Maríubaugur - efsta hæð
Maríubaugur 99 er falleg 4ra-5 herbergja íbúð á 3.hæð (efstu) í fallegu fjölbýli á
mjög góðum útsýnisstað í Grafarholtinu. Fínar innréttingar. V. 30,9 m. 1674