Fréttablaðið - 07.08.2012, Page 32

Fréttablaðið - 07.08.2012, Page 32
7. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. glansa, 6. í röð, 8. illæri, 9. fugl, 11. í röð, 12. bolur, 14. gróðabrall, 16. slá, 17. sauðaþari, 18. maðk, 20. leita að, 21. hviða. LÓÐRÉTT 1. samtals, 3. fíngerð líkamshár, 4. verkfæri, 5. tímabils, 7. andmæli, 10. sægur, 13. viðmót, 15. skarpur, 16. stormur, 19. sjúkdómur. LAUSN LÁRÉTT: 2. gljá, 6. lm, 8. óár, 9. lóm, 11. rs, 12. stofn, 14. brask, 16. rá, 17. söl, 18. orm, 20. gá, 21. kast. LÓÐRÉTT: 1. alls, 3. ló, 4. járnsög, 5. árs, 7. mótbára, 10. mor, 13. fas, 15. klár, 16. rok, 19. ms. ÉG VAR EINMANA! Já, jú! Ég hef aldrei komið inn í svona lítið hús. Ekki segja mér að þið völduð litina á veggina? Þetta var svona, er það ekki? Þetta er Anna. Hæ, Anna. Hæ. Þjónustu- stúlkan ykkar væri faglegri í búningi. Mér finnst alltaf svo skrýtið að kaupa svona lagað. Hvernig líst þér á? Líst mér á hvað? Litinn! Ég var að mála herbergið! Það var ljósbrúnt. Hvernig er það núna? Brúnleitt. Hugrekki þitt er hvatning, mamma. Vó! Er ég í réttu húsi!?! Mykja Mykja Það er orðið árviss viðburður að fá fréttir af nauðgunum um Verslunarmanna- helgi. Sem betur fer virðist ákveðin vit- undarvakning hafa orðið í þessum efnum og jafnvel örgustu tréhausar hafa samþykkt víðtækari aðgerðir til að sporna við þeim hryllilega glæp sem nauðgun er. Á stundum hefur manni nefnilega fundist að skipu- leggjendur hátíða telji það gefa þeim slæmt orðspor ef það spyrst út að til allra ráðstaf- ana sé gripið til að hamla gegn nauðgunum. Það er auðvitað mikill misskilningur, orð- spor hátíða batnar aðeins við það að allra bragða sé beitt til að koma í veg fyrir að sálsjúkir karlpungar nauðgi. ÞAÐ er hins vegar umhugsunarefni af hverju það er árviss viðburður að konum sé nauðgað um Verslunar- mannahelgi. Stundum finnst manni eins og okkur þyki þetta hvimleiður en óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að smala nokkur þúsund Íslendingum saman á fyllerí. Nauðgun getur aldrei verið eðlileg afleiðing, hún er alltaf brot á öllum þeim siðalögmálum sem hver einstaklingur á að búa yfir. EF við erum farin að gera ráð fyrir nauðgunum, þá er eitthvað að. Kannski vantar algjöra um pólun á hugsunarhætti karlmanna (og hér er rúm fyrir forpokaða karlpunga til að nöldra um að konur nauðgi líka og allt það sem gjarnan er notað til að dreifa athyglinni frá stóra vandamálinu; ofbeldi karla gegn konum). Þarf ekki einfaldlega að mennta okkur upp á nýtt? Þarf ekki samstillt átak mennta- kerfis og allra sem að uppeldi koma til að stimpla það inn í eitt skipti fyrir öll að nauðgun er viðbjóðslegur glæpur gagnvart öðrum einstaklingi, gagnvart mennskunni sjálfri. FRÉTTIR um Verslunarmannahelgi snúast oftar en ekki um hátíðirnar. Í útvarpinu má heyra að svo og svo margar nauðganir hafi verið tilkynntar, svo margir verið lamdir og þetta mikið af fíkniefnum hafi fundist. Síðan er gjarnan í sömu frétt sagt að allt hafi nú gengið vel að öðru leyti og gjarnan spilaður bútur af brekkusöng og viðtal við fullt, hresst fólk. ÞETTA er furðulegt. Það er ekki ósvipað því að segja frá því að maður hafi verið stunginn í partýi og liggi nú á gjörgæslu, en teitið hafi nú að öðru leyti gengið vel, mikið stuð verið á fólki og hér má heyra partý- gesti syngja Undir bláhimni. Eða að bílferð hafi nú verið hin skemmtilegasta fram að því að bíllinn keyrði út af og amma dó. NAUÐGUN er viðbjóðsleg. Þeir sem nauðga eru viðbjóðslegir. Fréttir af slíkum viðbjóði á ekki að flétta saman við frá sagnir af almennri skemmtun. Smá nauðgað, annars fínt Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.