Fréttablaðið - 07.08.2012, Qupperneq 42
7. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki,
stoltur stuðningsaðili í 15 ár
Ísland - Bretland 41-24
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
8 (13), Aron Pálmarsson 5 (5), Vignir Svavarsson
5 (6), Alexander Petterson 5 (7), Ásgeir Örn
Hallgrímsson 4 (4), Ólafur Stefánsson 3/1 (4/1),
Snorri Steinn Guðjónsson 3/1 (5/1), Róbert
Gunnarsson 2 (2), Ingimundur Ingimundarson
2 (2), Kári Kristján Kristjánsson 2 (3), Arnór
Atlason 2 (3).
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 19 (37,
51%), Björgvin Páll Gústavsson 1 (7, 14%),
Hraðaupphlaup: 14 (Guðjón Valur Sigurðsson
4, Vignir Svavarsson 2, Alexander Petterson 2,
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1, Ólafur Stefánsson 1,
Róbert Gunnarsson 1, Ingimundur Ingimundar-
son 2, Arnór Atlason 1,)
Utan vallar: Ísland 8 mín - Bretland 8 mín
Mörk Breta skot): Steven Larsson 9 (18),
Mark Hawkins 4 (10), Christopher Mohr 4 (11),
Christopher McDermott 2 (3), John Pearce 1 (1),
Gawain Vincent 1 (2), Martin Hare 1 (2), Robin
Garnham 1 (2), Ciaran Williams 1 (4), Sebastien
Edger (1),
Varin skot: Robert White 10 (47/2, 21%),
Jesper Parker 1 (5, 20%).
Ísland - Frakkland 30-29
Mörk Íslands (skot): Alexander Petterson
6 (7), Aron Pálmarsson 5 (7), Guðjón Valur
Sigurðsson 5 (9), Róbert Gunnarsson 4 (4),
Ólafur Stefánsson 4/1 (6/1), Arnór Atlason 3
(5), Kári Kristján Kristjánsson 1 (1), Ingimundur
Ingimundarson 1 (2), Snorri Steinn Guðjónsson
1 (2/1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 12/2
(41/5, 29%),
Hraðaupphlaup: 9 (Alexander Petterson 2,
Guðjón Valur Sigurðsson 4, Arnór Atlason 2,
Ingimundur Ingimundarson 1, )
Utan vallar: Ísland 14 mín - Frakkland 8 mín
Mörk Frakklands (skot): Jérôme Fernandez
9/1 (10/2), Cédric Sorhaindo 4 (4), Samuel
Hornrubia 4 (4), Nikola Karabatic 4 (9), Luc
Abalo 3 (7), Michaël Guigou 2/2 (3/2), Daniel
Narcisse 2 (5), Bertrand Gille 1 (1), Guillaume
Joli (1/1), Xavier Barachet (2),
Varin skot: Thierry Omeyer 9/1 (39/2, 23%).
TÖLFRÆÐI
ÓL 2012 Íslenska handboltalands-
liðið stendur vel að vígi á Ólymp-
íuleikunum í London eftir sigra á
Frakklandi og Bretlandi í síðustu
leikjum riðlakeppninnar. Ísland
endaði með fullt hús stiga og
mætir á morgun Ungverjalandi
í fjórðungsúrslitum keppninnar.
„Þetta sá ég ekki fyrir áður
en mótið hófst. Þetta er frábær
árangur,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari. „En
við viljum sem minnst tala um
það. Nú viljum við bara hugsa um
næsta leik.“
Stigin það eina sem við vildum
Sigurinn á Frökkum á laugar-
dagskvöldið var glæsilegur í
alla staði og sendi öðrum liðum
í keppninni skýr skilaboð um að
árangurinn í Peking fyrir fjórum
árum síðan væri engin til viljun.
Niðurstaðan var eins marks
sigur, 30-29, eftir æsi legar loka-
mínútur þar sem íslensku lands-
liðsmennirnir reyndust hafa
stáltaugar. Strákarnir spiluðu
glimrandi vel, bæði í vörn og
sókn, og þá sérstaklega þegar
mest á reyndi.
Liðið mætti svo Bretum í
gær og afgreiddi þann skyldu-
sigur eftir nokkuð þunga byrjun.
Strákarnir hrukku reyndar ekki
í gang fyrr en 25 mínútur voru
eftir af leiknum og keyrðu þá
yfir Bretana. Munurinn varð á
endanum sautján mörk, 41-24,
eftir að heimamönnum hafði
tekist að hanga í þriggja marka
mun í hálfleik.
„Ég vil helst ekkert tala um
þennan leik,“ sagði Guðjón
Valur Sigurðsson eftir sigurinn
á Bretum í gær. „Við unnum,
fengum tvö stig og það er það sem
skiptir máli. Leikurinn bar keim
af því. Við vissum alveg að við
myndum vinna og þó svo að við
Næsti leikur sá eini sem skiptir máli
Ísland fékk fullt hús stiga í A-riðli handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í London eftir að hafa unnið
sigra á Frakklandi og Bretlandi nú um verslunarmannahelgina. Ungverjar bíða í 8 liða úrslitum á morgun.
SIGURINN Í HÖFN Guðmundur Þórður Guðmundsson og hans menn gátu leyft sér
að brosa í síðari hálfleik þegar íslenska liðið sýndi sitt rétta andlit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Byrjaði í handbolta fyrir fjórum árum
Robert White, markvörður breska
landsliðsins, sló í gegn í leiknum
gegn Íslandi í gær. Á meðan breska
liðinu gekk sem best með strákana
okkar sýndi hann nokkur góð til-
þrif sem vöktu gríðarlega lukku
áhorfenda í Koparboxinu í gær.
„Allir íþróttamenn vilja vinna en
stundum snýst þetta líka um að
berjast allt til loka. Það er það
sem við gerðum í dag. Ég er
stoltur af strákunum og
fyrri hálfleikurinn er
líklega sá besti sem
við höfum spilað frá
upphafi,“ sagði White við
Fréttablaðið eftir leikinn í gær.
Bretland er nú úr leik og hefur því
leikið sinn síðasta leik á Ólympíuleik-
unum. „Við bjuggumst aldrei við
því að vinna leik en við göngum
stoltir frá okkar verki og er það
góð tilfinning. Við öðluðumst
frábæra reynslu með því að
spila á Ólympíuleikunum
og það var nákvæmlega
það sem ég vildi fá
þegar ég byrjaði í
handbolta fyrir
fjórum árum
síðan.“
höfum verið lélegir í fyrri hálf-
leik langar mig einfaldlega ekki
til að eyða orku í þennan leik.“
Við eigum enn helling inni
Með sigrinum á Frakklandi á
laugar dag tryggðu Íslendingar sér
efsta sæti riðilsins. Leikurinn gegn
Bretum varð því þýðingarlaus.
Guðmundur segir að við slíkar
aðstæður geti verið erfitt að mæta
af fullum krafti í leik sem þennan.
„Ég hef samt engar áhyggjur af
þessum leik því við höfum verið að
spila vel og bæta okkur heilmikið á
milli leikja. Við eigum samt helling
inni og verkefnið verður skemmti-
legt á miðvikudaginn.“
Guðjón Valur segir að leikurinn
á morgun sé sá leikur sem allir
hafi verið að bíða eftir. „8. ágúst.
Það er dagsetningin sem við erum
búnir að vera með í kollinum síðan
að leikjafyrirkomulagið var gefið
út. Næsti leikur er það eina sem
skiptir máli í dag og menn verða
að vera klárir.“
Íslendingar í gullbaráttu
Ungverjar höfðu í gærmorgun
betur gegn Serbum í hreinum
úrslitaleik um hvort liðið kæmist
áfram í fjórðungsúrslit og í leikinn
gegn Íslandi. Laszlo Nagy, leik-
maður Barcelona, er kominn aftur
í lið Ungverja og hann gegndi lykil-
hlutverki í ógnar sterkum varnar-
leik Ungverjalands sem tryggði
liðinu sigurinn í gær. Hann á von
á erfiðum leik við Ísland.
„Ísland hefur spilað mjög vel á
þessu móti. Liðið verst vel og er
með góðan markvörð – reyndar
eru tveir mjög sterkir leikmenn í
öllum stöðum,“ sagði hann.
Lajos Mocsai, landsliðsþjálfari
Ungverja, tók í svipaðan streng í
viðtali við Fréttablaðið.
„Ég ber mikla virðingu fyrir
Íslandi. Ég gjörþekki þetta lið og
leikmenn þess enda hefur liðið
verið með á mörgum stórmótum
og alltaf staðið sig vel. Eins og
liðið er að spila í dag þá eru þeir
sigurstranglegir – ekki bara gegn
okkur heldur á öllu mótinu.“
eiríkur@frettabladid.is
HANDBOLTI Strákarnir okkar hafa
oftast landsliðanna tólf í riðla-
keppninni fengið tveggja mínútna
brottvísanir.
Alls hafa okkar menn verið
reknir af velli 30 sinnum en
næstir koma Túnisar með 26
tveggja mínútna dóma. -ktd
Íslensku strákarnir harðir:
Oftast út af