Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 2
29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR2 ... og rjómi FÓLK Íbúar í þjónustuíbúðum aldr- aðra komast ekki út úr húsi því eina lyfta hússins hefur verið biluð síðan á mánudag. „Það eru svo margir sem ekki geta farið stiga,“ segir Hrafnhildur Thors, fyrrverandi húsmóðir og 92 ára gamall íbúi í þjónustuíbúð Sunnuhlíðar við Kópavogsbraut 1A. Hún hefur búið í húsinu í rúmlega tíu ár og verður 93 ára gömul í september. „Fólkinu finnst það vera eins og fangar þegar eitthvað svona kemur upp á,“ segir Hrafn hildur. Íbúar hússins vita ekki hversu lengi þeir þurfa að bíða eftir því að lyftan verði lagfærð, en hús- vörður vonast til að lyftan komist í lag í dag. Langflestir íbúanna eiga allt undir því að komast niður í lyftu. Hrafnhildur er reið yfir því að á mánudag ætlaði hún að hitta ættingja sinn sem hafði misst ástvin. Hún komst hins vegar ekki út úr húsi því hún á orðið erfitt með gang og leggur ekki í stigana. „Ég borga mikið af peningum á mánuði í húsgjöld og er því mjög svekkt. Svo er ég nú orðin svo fullorðin að ég treysti mér ekki til þess að flytja héðan, það er ekki nokkur leið. Ég veit að ég gæti verið á góðum stað þar sem ég get verið á fyrstu hæð. En ég er ákaflega ánægð hérna og ég vil alls ekki flytja. Mér finnst þetta hins vegar ekki hægt.“ Þær upplýsingar fengust frá húsverði á Kópavogsbraut 1A að unnið sé að viðgerð á lyftunni. Viðgerðin sé tímafrek því mótor hafi brunnið yfir. Það er hins vegar vonast til þess að lyftan komist í lag í dag. Þá sé reynt að veita venjubundna þjónustu hússins þó lyftan sé biluð. Því sé matur borinn upp til þeirra sem þess óska. Hrafnhildur er þeirrar skoðun- ar að lyftur í svona húsum eigi ekki að vera bilaðar. Tvær eigi að vera í húsinu til að gulltryggja aðgengið. „Hver ber ábyrgð á því að hafa svona stórt hús með aðeins eina lyftu?“ spyr hún. birgirh@frettabladid.is Íbúar eins og fangar á lyftulausu heimili Margir aldraðir íbúar í þjónustublokk í Kópavogi reiða sig á lyftu hússins til þess að komast út úr húsi. Lyftan er biluð og margir komast hvorki lönd né strönd. Íbúar ekki ánægðir og spyrja af hverju aðgengi þeirra sé ekki tryggt. FÖST HEIMA Hrafnhildur kemst ekki út úr húsi af því að hún getur ekki notað stiga. Lyftubilunin kemur sér mjög illa fyrir hana sem og marga aðra íbúa hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LYFTAN STOPP Ekki er gefið upp hversu lengi lyftan hefur verið biluð. Ég er ákaflega ánægð hérna og ég vil alls ekki flytja. Mér finnst þetta hins vegar ekki hægt. HRAFNHILDUR THORS ÍBÚI VIÐ KÓPAVOGSBRAUT 1A DANMÖRK Danir setja notaða matar olíu á bílana sína og hita húsin sín upp með henni. Þetta er hins vegar ólöglegt samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla. Starfsmenn veitingastaða mega hvorki selja né gefa notaða matarolíu. Þeir geta látið sækja hana á löglegan hátt eða farið með hana í endurvinnslu. Oftast er matarolían sett í tunnur sem geymdar eru við bakdyr veitinga- staðanna. Fyrirtækin sem sækja olíuna skilja svo eftir tómar tunnur í staðinn. - ibs Notuð matarolía seld: Setja matarolíu á bílana sína LÖGREGLUMÁL Símfyrirtækin mega ekki afhenda lög- reglunni á Selfossi gögn sem gætu nýst við að upplýsa nauðgunarmál gegn ólögráða unglingsstúlku á Þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum. Þetta er niðurstaða Hæsta- réttar frá því í gær. Héraðsdómur Suðurlands hafði áður úrskurðað að símafyrirtækjunum bæri að afhenda lögreglunni lista yfir öll símtöl sem fóru um fjarskiptamöstur sem ná inn í Herjólfsdal á tíu mínútna tímabili á sjötta tím- anum að morgni mánudagsins 6. ágúst. Til rannsóknar er nauðgun gegn ólögráða unglings- stúlku og á eftirlitsmyndavélum sést maður sem svipar til lýsingar stúlkunnar á hinum brotlega hlaupa frá vettvangi brotsins og niður á bílastæði í Herjólfs- dal. Hann er ógreinilegur á upptökunni en þó sést að hann er að tala í símann, rétt eftir brotið. Lögregla taldi því brýnt að fá upplýsingar um alla þá sem hefðu talað í síma í dalnum á þessu tíu mínútna tímabili og féllst héraðsdómur á að það gæti skipt sköpum við að upplýsa málið. Hæstiréttur telur hins vegar að slík afhending gagna samræmist ekki ákvæðum sakamálalaga þar sem beiðnin beinist ekki að tilteknum síma. Hin símafyrirtækin höfðu enn ekki afhent lögreglu upplýsingarnar eftir úrskurð héraðsdóms og munu ekki gera það úr þessu. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn segir erfitt að meta hvaða áhrif dómurinn muni hafa á rannsókn málsins. „Lögreglurannsókn miðar að því að leiða fram sekt eða sýknu og það að ná á þennan mann hefði getað hreinsað hann af grun eða leitt til frekari skoðunar.“ - sh Selfosslögreglan leitar þess sem nauðgaði ólögráða unglingsstúlku á Þjóðhátíð: Fær ekki gögn frá símfyrirtækjunum AF ÞJÓÐHÁTÍÐ Nauðgunin átti sér stað árla á mánudagsmorgni verslunarmannahelgar. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON DANMÖRK Danskir stjórn- málamenn íhuga nú að hækka greiðslur til eggjagjafa vegna skorts á eggjum handa barn- lausum pörum. Í Danmörku fær kona sem gefur egg greiddar 500 danskar krónur, eða um 10.000 íslenskar krónur, auk greiðslu fyrir kostnað vegna ferða. Á vef Kristilega dag blaðsins segir að stjórnendur sæðis- bankans Cryos vilji koma á fót eggjabanka. Tilgangurinn er að fá konur til að gefa egg gegn því að þær fái sjálfar að geyma þar egg til að nota síðar. Heilbrigðis- yfirvöld hafna slíkum viðskipta- háttum. - ibs Stjórnmálamenn í Danmörku: Eggjagjafar fái hærri greiðslu SÝRLAND, AP François Hollande, forseti Frakklands, kallaði eftir því í gær að sýrlenskir uppreisnar menn myndu sam- einast í eina fylkingu. Frakkar myndu viðurkenna og standa með tímabundinni ríkisstjórn and- spyrnunnar. Sundrung er milli uppreisnarhópa bæði í Sýrlandi og þeirra hópa sem eru í útlegð. Bandaríkjamenn skutu hug- mynd Hollandes niður um leið og bentu einmitt á að vegna sundur- leitra markmiða uppreisnar- manna væri ótímabært að hefja umræðuna um ríkisstjórn and- spyrnunnar. Blóð rann enn í Sýrlandi í gær. Tólf létust í bílasprengju í úthverfi höfuðborgarinnar Damaskus og minnst þrettán létust í loftárás á bæinn Kfar Nabl. Þá var enn barist um allt landið. - bþh Kallar eftir andspyrnustjórn: Ríkisstjórnartal ótímabært RÚSTIR Bíllinn sprakk á gatnamótum í úthverfi Damaskus með þeim afleiðingum að tólf létust. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hálfþrítugur síbrotamað- ur neitaði því fyrir dómi í gær að bera ábyrgð á því að ung stúlka, lífs- hættulega veik af fíkniefnaneyslu, komst ekki undir læknishendur og lést. Meðal sönnunargagna í málinu er myndbandsupptaka af dauða- stríði konunnar. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær, þar sem greint var frá því sem fram fór í réttarhöldum yfir mann- inum fyrr um daginn. Málið kom upp í apríl í fyrra. Konan var talin hafa neytt fíkni- efnisins PMMA, afbrigðis af amfetamíni sem hefur valdið dauðs- föllum í nágrannalöndum okkar. Í kjölfarið gerði lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu mikla leit að hinu hættulega fíkniefni í því skyni að koma því alfarið úr umferð. Að sögn RÚV kom fram fyrir dómi að stúlkan hefði lagst veik í rúm í íbúðinni þar sem hún var gestur eftir tveggja klukku- stunda fíkni- efnaneyslu. Þar var myndbands- upptaka í gangi við rúmstokkinn og á henni sést stúlkan fá krampa og deyja að lokum. Ekki liggur fyrir hvort til- gangurinn var að taka myndband af stúlkunni. Maðurinn afplánar nú fimmtán mánaða dóm frá því í fyrra, meðal annars fyrir handrukkun með loftbyssu. - sh Síbrotamaður ákærður fyrir að koma dauðvona stúlku ekki undir læknishendur: Upptaka af dauðastríði er lykilgagn HÆTTULEGT Efnisins er ýmist neytt í duft- eða töflu- formi. Snekkjan bilaði í leiðangri Snekkja auðkýfingsins Pauls Allen, Octopus, sneri aftur til Reykjavíkur í gærmorgun eftir að vélin bilaði í skipinu. Snekkjan var í leiðangri á Grænlandssundi til að endurheimta skipsbjöllu HMS Hood, breska her- skipsins sem sökk í seinna stríði. FÓLK FASTEIGNAMARKAÐUR Samtök iðnaðarins vara við því að ef nýframkvæmdir á íbúðamark- aði fari ekki af stað bráðlega sé hætta á því að til komi vöntun á íbúðum, jafnvel fyrr en áður var talið. SI stóðu nýverið fyrir taln- ingu íbúða í byggingu á höfuð- borgarsvæðinu. Niðurstaðan er sú að íbúðir í fjölbýli, sem eru fokheldar og lengra komnar, eru 545 talsins. Þar af eru ekki nema 192 íbúðir íbúðarhæfar og hefur fækkað um 292 á innan við ári. Talið er að árlega þurfi um 1.500 nýjar íbúðir inn á markað- inn og eru íbúðir í byggingu því innan við áætlaða ársþörf. - shá SI varar við skorti á húsnæði: Vilja tafarlausar framkvæmdir FJÖLBÝLI Þarf 1.500 nýjar íbúðir á markað árlega. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS Jörundur, var nokkuð ofhermt hjá þér hérna í denn? „Nei, nei. Sjaldan lætur betur sá er eftir hermir.“ Jörundur Guðmundsson, skemmtikraftur eftirherma og vert, segir erfitt að herma eftir stjórnmálamönnum í dag því þeir séu svo litlausir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.