Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 14
14 29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR Með lækkandi sól og hækkandi útgjöldum virðist enn ein illa krydduð skuldasúpa Reykjavíkur- borgar vera á matseðlinum. Und- anfarið hefur mikið verið rætt um Hörpuna og slæma afkomu hennar og nú er uppi á teningnum að reisa gríðarstórt hótel með tilheyrandi bílastæðakjallara. Ef litið er fram hjá rekstri Hörp- unnar og peningabruðlinu í kring- um hana er hægt að segja að hún sé gríðarlega vel heppnuð. Hún er ein- staklega glæsileg að sjá og fyllist ég stolti þegar ég horfi á þetta verk- fræðiundur sem minnir helst á þurs sem situr í fótabaði við höfnina. Hljómflutningurinn í Eldborg er á heimsmælikvarða og segi ég oft að loks hafi Sinfóníuhljómsveit Íslands flutt sig úr hesthúsi í Colosseum hið forna. Mér sárnar því þau áform að sparka eigi í þursinn okkar með því að reisa ógnarstórt ferðamannabæli við Hörpuna okkar. Í fleiri ár hef ég hjólað meðfram Sæbrautinni, hlustað á hafgoluna og dáðst að duttlungafullum Faxafló- anum. Þessi dásemd lenti í gjöreyð- ingarvél stjórnmálanna þegar til- kynnt var um að reisa skyldi hótel á Hörpureitnum, Marriott í þokka- bót. Ég spyr: Var Eddu-hótelunum ekki gefinn kostur á þessum reit? Enn spyr ég: Voru þetta skilyrði frá hræfuglunum í Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum? Það stingur í stúf að þau alkunnu sannindi sem allir þekkja hafi verið hunsuð. Hótelbyggingar eiga ekki heima í þéttbýli. Erlendir ferðamenn koma hingað til að drekka í sig íslenska náttúru en hugmyndalausum borg- arfulltrúum finnst betra að bjóða upp á óheflaða drykkjumenningu og saurlífishátt. Hafa erlendir auð- menn virkilega meira að sækja til Reykjavíkur en að versla lopapeys- ur í Rammagerðinni? Fjöldi erlendra ferðamanna hefur aukist gífurlega eftir gosin og með aukinni áherslu á að markaðssetja íslenska náttúru í stað lauslátra kvenna. Því gengur mér erfiðlega að átta mig á ráðabruggi borg- arstjórnar að menga höfuðstað- inn með hótelferlíki sem skemm- ir Hörpu. Það er umhugsunarvert að Huang Nubo veki meiri gremju hjá landanum en fyrirhugað hnefa- högg á Hörpu. Verði þetta hótel reist væri best ef það væri staðsett í Hvalfirðinum og boðið yrði upp á dagsferðir til Reykjavíkur eða borginni yrði bætt við gullna hring- inn. Hvalfjörðurinn er geysilega fallegur staður sem er illa nýttur eftir að göngin voru opnuð. Ef ég væri þýskur ferðamaður á leiðinni til Íslands þá þætti mér spennandi kostur að dvelja á framandi stað og hótelið bæri íslenskt nafn eins og Hótel Hvalur. Við verðum að standa vörð um gjaldeyrinn og sjá til þess að hann haldist hér á landi í stað þess að vera sendur með hraðferð til höfuðstöðva Marriott. Verndum Hörpuna Alþingi hefur ákveðið að efnt skuli til þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögur stjórnlaga- ráðs um nýja stjórnarskrá 20. október nk. Annars vegar verða kjósendur spurðir hvort þeir vilji leggja tillögur ráðsins til grund- vallar nýrri stjórnarskrá en hins vegar um afstöðu þeirra til nokk- urra lykilatriða í tillögum ráðsins. Aðdragandi málsins er langur en verður ekki rakinn hér. Aðalatrið- ið er að nú liggur fyrir heildartil- laga í frumvarpsformi um nýja stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland og að þjóðinni gefst með atkvæða- greiðslunni einstakt tækifæri til að stuðla að því að nýr og traustur grundvöllur verði lagður að þjóð- félagi okkar. Um hvað verður spurt? Eftirfarandi spurningar verða lagðar fyrir kjósendur: 1. Vilt þú að tillögur stjórnlaga- ráðs verði lagðar til grundvall- ar frumvarpi að nýrri stjórnar- skrá? 2. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu lýstar þjóðar- eign? 3. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi? 4. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er? 5. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af land- inu vegi jafnt? 6. Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningarbærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? Þeir sem eru í einu og öllu sam- mála tillögum stjórnlagaráðs svara öllum spurningum með jái nema þeirri þriðju með neii. Komi í ljós skýr vilji kjósenda um að einhverj- um af spurningum beri að svara með öðrum hætti, verður að ætla að þingið breyti tillögum ráðsins í samræmi við það. Í skoð- anakönnun sem gerð var í lok mars sl. um spurn- ingarnar tjáðu fjórir fimmtu hlutar kjósenda sig þó sammála ráðinu í þessum atriðum. Þó voru þeir álíka marg- ir sem vilja þjóðkirkju- ákvæðið inni og hinir sem vilja að það hverfi úr stjórnarskránni eins og ráðið leggur til. Málið verður kynnt Greinarhöfundur mun fjalla um spurningarnar vikulega fram að kjör- deginum hér í Frétta- blaðinu. Í kjölfar þessa inngangs verða teknar fyrir þær þeirra sem lúta að einstökum álitamálum en í lokin fjallað um málið í heild, þ.e. meginspurninguna, þá fyrstu. Ætlunin er að upplýsa og færa rök fyrir þeim svörum sem samrým- ast tillögum stjórnlagaráðs. Gagn- raka verður einnig getið og þeim svarað. Höfundur sat í stjórnlaga- ráði og stóð að tillögum þess í heild. Málsmeðferðin tekur vitaskuld mið af því. Um þjóðaratkvæðagreiðslur gilda sérstök lög (nr. 91/2010) en þar er m.a. mælt fyrir um að Alþingi skuli standa fyrir víðtækri kynningu á málefninu. Þess er að vænta að myndarlega verði að því verki staðið. Á okkur sem sátum í stjórnlagaráði hvílir á hinn bóg- inn einnig sú siðferðislega skylda að upplýsa og mæla fyrir tillögum okkar. Því eru þessir pistlar ritaðir. Til frekari upplýsingar skal bent á vefsíðu stjórnlagaráðs, Stjornlagarad.is, þar sem bæði má sjá tillögur ráðsins í heild sinni ásamt ítarlegri greinargerð, auk þess sem rekja má umræður og atkvæða- greiðslur í ráðinu. Þá er gagnlegt að bera frum- varp ráðsins að nýrri stjórnarskrá saman við gildandi stjórnarskrá, grein fyrir grein. Slíkan samanburð er að finna á vefsíðunni thorkell- helgason.is/?p=1175. Að lokum má benda á lítið kver, Ný stjórnarskrá Íslands, með frumvarpi ráðsins í heild sem fæst við vægu verði í heldri bókabúðum. Stjórnarskrármálinu lyktar ekki með þjóðar- atkvæðagreiðslunni í haust þar sem niðurstöður hennar eru ekki bindandi fyrir Alþingi. Engu að síður er þetta mikilvægt skref sem mun þoka málinu vel áfram. Því er brýnt að allir kynni sér viðfangsefnið vandlega og taki afstöðu og mæti á kjörstað. Það er von undirritaðs að lokaniðurstað- an verði góð stjórnarskrá, þar sem öll helstu markmiðin í tillögum stjórnlagaráðs nái fram að ganga. Þjóðin verður að leggja línurnar Skipulagsmál Guðmundur Pálsson vélstjóri Ný stjórnarskrá Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði Stjórnar- skrármálinu lyktir ekki með þjóðar- atkvæða- greiðslunni í haust. Verði þetta hótel reist væri best ef það væri staðsett í Hval- firðinum. Sjáðu magnað íslenskt vídeóverk sem tekið var upp á Samsung Galaxy SIII. Skannaðu kóðann eða farðu á siminn.is/samsung-galaxy-s3 siminn.is | *Gildir til 31. ágúst Gefðu sköpunargáfunni frelsi með Samsung Galaxy SIII Samsung Galaxy SIII Stgr. nú: 119.900 kr. Stgr. áður: 134.900 kr Innifalið: 5.000 kr inneign á mán. í 2 mán. og áskrift að Tónlist.is*

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.